Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1994, Side 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur.
Ritstjórn - Augtýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 632700
Jóhanna Sigurðardóttir:
Vandræða-
laust að
manna lista
alls staðar
„Ágreiningur okkar Jóns Baldvins
snýst ekki um sæti á listanum í
Reykjavík. Hann snýst um málefni
og þaö breytist ekkert þótt ég skipi
1. sæti listans í Reykjavík. Ég hef
sagt það áður að ég tel að það sé ekki
pláss fyrir okkur bæöi í Alþýðu-
flokknum. Sú skoðun mín hefur ekk-
ert breyst," sagði Jóhanna Sigurðar-
dóttir um þá tilraun Suðumesja-
manna aö fá Jón Baldvin á hsta þar
en Jóhanna taki 1. sætið í Reykjavík.
Jóhanna sagðist enn vinna ótrauð
að sameiginlegu framboði jafnaðar-
manna. Hún sagði að Kvennalistinn
yrði að vera með. Framboð með AI-
þýðubandalaginu einu kæmi ekki til
greina. Ef þessi sameiningartilraun
tekst ekki sagðist Jóhanna fara fram
með sérframboð. Hún var þá spurö
hvort hún ætlaði að bjóða fram bara
í Reykjavík eða í öllum kjördæmum?
„Eg ætla ekkert að fullyrða þar um
en ég hygg að ég ætti ekki í vandræö-
um með að manna lista í öllum kjör-
dæmum,“ sagði Jóhanna Sigurðar-
dóttir.
Jón Baldvin á Reykjanesi:
Kannastviðþetta
- segir formaöur kjördæmisráðs
„Ég kannast við sögur af einhveij-
um þreiíingum milli Suðurnesja-
manna og Jóns Baldvins um að hann
taki sæti á listanum á Reykjanesi. Á
fundi kjördæmisráðsins með þing-
mönnum og sveitarstjómarmönnum
fyrir 10 dögum töluðu menn um að
hafa heyrt þessar sögur. Það eru allt-
af til menn sem vilja lægja öldur og
sætta menn. Þetta er hins vegar ekk-
ert á vegum kjördæmisráðsins. Við
stefnum á að fram fari prófkjör á
Reykjanesi, hvort sem það verða
haust- eða vorkosningar," sagöi Eyj-
ólfur Sæmundsson, formaður kjör-
dæmisráðs Alþýðuflokksins á
Reykjanesi, í morgun.
Ekki hefur tekist að ná tali af Jóni
Baldvin Hannibalssyni vegna þessa
máls en hann sagði í sjónvarpsvið-
tali að það væri slúður að hann hefði
rætt við þá Suðurnesjamenn um
þessi mál.
ítali lést í bílveltu
ítölsk kona lést á leið í sjúkrahús
eftir bílveltu í Gilsfirði í gærdag.
Konan var á ferð ásamt eiginmanni
sínum þegar slysið varð. Þyrla Land-
helgisgæslunnar var kölluð á vett-
vang og voru árangurslausar lífgun-
artilraunir gerðar á konunni.
27 aflamarksskip voru svipt
veiðileyfi á miðnætti í nótt. Alls eru
þá 50 skip án veiðileyfa vegna svipt-
ingar sjávarútvegsráðuneytis,
langílestir vegna umframveiða á
þorski en nokkrir vegna rækju.
Um sfðustu helgi fengu 58 afla-
marksbátar viðvörun frá sjávarút-
vegsráðuneytinu um að þeir yrðu
sviptir veiðileyfi frá og með degin-
um í dag vegna þess aö þeir væru
húnir að fiska umfram kvóta. Indr-
iði Kristinsson hjá Fiskistofu sagði
í samtali við DV í morgun að um
helmingur skipanna væri búhm að
bjarga sínum málum. Hann sagði
; þetta í fleslum tilvikum vera stærri
báta frá öllum landshlutum, eng-
inn togari hefði verið s viptur leyfi.
Samkvæmt upplýsingum frá
sjávarútvegsráðuneytinu voru ura
20 skip án veiöileyfis vegna svipt-
ingar áður en til þessara aðgeröa
kom. Til viðbótar verða nú 27 skip
bundin í höfn af sömu ástæðum
þannig að tæplega 50 skip eru nú
að sitja af sér vegna íramúraksturs
í kvóta út flskveiðiárið sem lýkur
31, ágúst.
Starfsmenn BM Vallár hafa undanfarna daga verið að henda gangstéttarhellum í tonnatali út úr verksmiðju þeirri
sem Steypustöðin ÓS hf. rak lengi í Garðabæ. BM Vallá keypti hellusteypu Óss um siðustu áramót af iðnlána-
sjóði. Ýmsir undrast það að gangstéttarhellunum skuli vera hent enda eru þær ónotaðar og virðast vera heilar.
Viglundur Þorsteinsson hjá BM Vallá segir hins vegar hellurnar ónýtar og þess vegna sé þeim hent. Brotþol og
frostþol þeirra hafi ekki verið í lagi. Víglundur segir að fyrirtækið gefi hvorki né selji ónýta vöru. DV-mynd JAK
Prestskosning
áSelfossi
„Afstaða sóknarbarnanna er af-
dráttarlaus. Nú verður hafinn undir-
búningur að kosningum og þær fara
fram eins fljótt og unnt er,“ segir
séra Tómas óuðmundsson, prófastur
í Árnesprófastsdæmi.
Tómas fékk seint í gærkvöldi í
hendumar undirskriftalista með
nöfnum 855 sóknarbarna á Selfossi
þar sem farið er fram á prestskosn-
ingar í prestakalhnu. Til að. krafan
yrði tekin til greina þurfti minnst 720
undirskriftir.
Um prestakallið sóttu 6 prestar en
ekki náðist samkomulag í sóknar-
nefnd um ráðningu neins þeirra.
Mestan stuðning fengu þeir séra
Haraldur Kristjánsson, prestur í Vík
í Mýrdal, og séra Gunnar Siguijóns-
son, prestur á Skeggjastöðum.
HM-höUin:
Ákvörðun
í dag?
„Menn eru enn að tala saman en
borgarstjóri fer utan um hádegisbii
í dag og ég reikna með að ákvörðun
þurfi að liggja fyrir áður en hann
fer,“ sagði Jens Ingólfsson, umboðs-
maður Electrolux, í morgun, að-
spurður um stöðu mála varðandi
HM-höll.
Samkvæmt heimildum blaðsins
þarf mikið að koma upp á svo að
ekki verði ráðist í byggingu hússins
og það nýjasta í stöðunni er að menn
eru aö ræðu um einhvers konar
kaupleigu á byggingunni.
- sjá einnig bls. 2
Vaxtahækkunog
meiri verðbólga?
Nokkur vaxtahækkun varð í út-
boði ríkisvíxla í vikunni. í ritinu
Gjaldeyrismálum, sem Ráðgjöf og
efnahagsspár hf. gefur út, kemur
fram að enn megi búast við vaxta-
hækkun þriggja og sex mánaða ríkis-
víxla þar sem slíkir vextir séu lægri
en vegið meðaltai Libor-vaxta sam-
kvæmt gengisvog.
í Gjaldeyrismálum segir að þetta
endurspegh væntingar um frekari
vaxtahækkanir, áframhaldandi
gengissig krónunnar og verðbólgu-
væntingar.
„Samanburður á sex og tólf mán-
aða vöxtum leiðir í ljós að væntingar
kunna að vera um að vextir á sex
mánaða ríkisvíxlum stefni í 7,4% eft-
ir sex mánuði. Þá væri um að ræða
um 2 prósenta hækkun frá núver-
andi vaxtastigi. Sambærileg athugun
bendir til væntinga um að 3 mánaða
vextir hækki í 6,2% eftir þijá mán-
uði,“ segir í Gjaldeyrismálum.
LOKI
Er þetta nú ekki fyrir neðan
allar hellur?
Veðriö á morgun:
Hiti
9 til 14
stig
Hæg vestlæg og suðvestlæg átt eða
hægviðri á landinu. Dálítil þoku-
móða við suðurströndina og Vestur-
land en bjart annars staðar. Hiti 9 til
14 stig, hlýjast austanlands.
Veðrið í dag er á bls. 36
Reimar og reimskífur
Voulsen
SuAurlandsbraut 10. S. 680499.