Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1994, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1994, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1994 Útlönd DV Hvolpar í stjörnuhlutverki Þeir eru ekki háir í loftinu þessir sex vikna gömlu jagúarhvolpar sem þessa dagana njóta mestra vinsælda allra dýra i dýragarðinum í Sofíu, höfuðborg Búlgaríu. Móðir þeirra heitir Fortuna og er tíu ára og var fjölskyldan til sýnis i aðeins annað sinn i búrinu sinu i gær. Símamynd Reuter Sjakalinnnærð- istáTúborgog dönskum vínar- Hryðjuverka- maðurinn Car- los nærðist andlega og lík- amlega á græn- um Túborg og dönskum vín- arbrauðum. Viö leit í íbúð hans í Kartúm I Súdan komu í ljós stæður af bjórdósum en aö- eins ein bók, reifari, en bjórsins hafði verið neytt ótæpilega. Þá hafa nágrannar Sjakalans borið vitni um aö af fastri fæöu hafi kappinn kosið dönsk vínar- brauð öðru fremur. Hann synti þrisvar í viku en hreyfði sig lítið að öðru leyti. Carlos var gripinn af frönskum leyniþjónustumönn- um á skuröarborði lækna sem voru að reyna að ná af honum fitukeppum. Dreifðislóg á20 kílómetra vegarkafla Danskur vörubílstjóri fékk skammir en enga sekt lijá lögregl- unni í Esbjerg fyrir að dreifa slóg á um 20 kílametra langan vegark- afla við borgina. Bílstjórinn veitti því ekki at- hygli að farmurinn, um 30 tonn af fiskúrgangi, lak aftur af bílpall- inum. Lögreglan varð að gefa út viövörun um hálku á veginum þrátt fyrir sól og yfir tuttugu stiga hita. Vel gekk að skola brautina. Maðurdrottn- ingarsnýrsér aðbrugginu Hinrik prins, eiginmaður Margrétar Danadrottn- ingar, hefur nú látiö gamlan draum rætast. Hann hefur snúið sér að bruggi og ætlar að selja ffarn- leiðsluna, sannkölluð eðalvín. Þau hjón eiga búgarð í Suður- Prakklandi. Þar er jörö hagstæö til ræktunar vínviðar en fram til þessa hafa vínber kóngafólksins verið send í nálægt brugghús til gerjunar. Nú ætlar prinsinn aö hefia framleiðslu á eigín fiöskur undir eigin merki. Áætluð afköst á ári munu vera um 100 þúsund lítrar af rauðvíni. Kapphlaup um æðstu metorð í Atlantshafsbandalaginu: Mæla með Uffe í NATO-stólinn Norðmenn draga taum Torvalds Stoltenberg af miWum ákafa Boö hafa komið um það frá æðstu stööum í Þýskalandi að Þjóðverjar geti vel hugsað sér að Uffe EÚe- mann-Jensen, fyrrum utanríkisráð- herra Dana, taki að sér fram- kvæmdastjórn í Atlantshafsbanda! laginu nú þegar Manfred Wörner er allur. Náinn samverkamaður Klaus Kin- kel, utanríkisráðherra Þýskalands, hefur lýst trausti á Uffe í viðtali við þýskt blað. Almennt er talið að meira búi að baki og aö þýsk stjórnvöld og þá sérstaklega utanríkisráðherrann vilji Uffe öðrum fremur. Mál hafa hins vegar þróast svo að Uffe á ef til vill ekki heimangengt því kosningar standa fyrir dyrum í Dan- mörku og að þeim loknum gæti gamall draumur Uffe um forsæti í dönsku ríkis- stjórninniræst. í Þýskalandi er því haldið fram að Uffe gæti gefið NATO frjálslegra yfirbragð en veriö hefur undanfarið. Hann þykir alþýð- legri en fyrri framkvæmdastjórar hjá bandalaginu. Þá er bent á mikla þekkingu hans á alþjóðamálum og Uffe Ellemann. góð tengsl við ráðamenn í Austur- Evrópu. Sjálfur hefur Uffe ekkert viljað segja um málið enda upptekinn við að undirbúa kosningabaráttu Venstre í Danmörku. Norðmenn eru ekkert hrifnir af þessum tíðindum. Þeir róa nú að því öllum árum að koma Torvald Stolt- enberg, fyrrum utanríkisráðherra og nú sáttasemjara, í NATO-stólinn. Norska ríkisstjómin ætlar þó ekki að bjóða Stoltenberg sérstaklega fram sem sinn fulltrúa. Þó er viður- kennt í norska utanríkisráðuneytinu að stjórninni þætti vænt um ef bandamennirnir vildu eftirláta þeirramannistólinn. Ritzau og ntb Frá Grunnskólum Reykjavíkur Grunnskólar Reykjavíkur hefja starf í byrjun september. Kennarafundir verða i skólunum kl. 9.00 árdegis fimmtu- daginn 1. september. Nemendur komi í skólana mánudaginn 6. september sem hér segir: 10. bekkur (nem.f. 1979) kl. 9.00 9. bekkur (nem. f. 1980) kl. 10.00 8. bekkur (nem.f. 1981) kl. 11.00 7. bekkur (nem.f. 1982) kl. 13.00 6. bekkur (nem.f. 1983) kl. 13.30 5. bekkur (nem. f. 1984) kl. 14.00 4. bekkur (nem.f. 1985) kl. 14.30 3. bekkur (nem. f. 1986) kl. 15.00 2. bekkur (nem. f. 1987) kl. 15.30 Nemendur 1. bekkjar (börn fædd 1988) hefja skólastarf skv. stundaskrá fimmtudaginn 8. september en verða áður boðaðir til viðtals með foreldrum, hver í sinn skóla. Dan Quayle, fyrrum varaforseti Bandaríkjanna: Hef alla burði til að verða forseti Dan Quayle, fyrrum vara- forseti Banda- ríkjanna, segist hafa alla burði til að verða for- seti en hann muni ekki taka ákvörðun um framboð árið 1996 fyrr en eftir þing- kosningamar í nóvember. „Margir hafa hvatt mig til að bjóöa mig fram árið 1996 en ég hef einfald- lega ekki gert upp hug minn,“ sagði Quayle við fréttamenn í gær. Hann sagði að frambjóðandi til for- setaembættisins þyrfti að búa yfir þremur hæfileikum: í fyrsta lagi þyrfti hann að vera hæfur í starfið, í öðru lagi þyrfti hann að hafa fram- tíðarsýn fyrir landið og loks þyrfti hann aö hafa kjark til að fara fram. Quayle sagði að fyrstu tvö atriðin ættu við hann. „Ég veit ekki hveijar líkurnar yrðu ef ég byði mig fram en ef ég geri það ætla ég mér að ná settu marki,“ sagði Quayle. Talsmenn varaforsetans fyrrver- andi bám til baka fréttir um að hann hefði þegar ákveöið sig þar sem bók hans um varaforsetaárin hefði selst mjög vel. í bók sinni gerir hann m.a. upp gamla reikninga við fjölmiðla, sem hann segir að hafi gert stöðugt grín að sér, og bæði fyrrverandi og hugsanlegakeppinauta. Reuter Balladurvill þriggja þrepa Evrópu Edouard Balladur, for- sæösráðherra Frakklands, hefur hvatt til þessaðEvrópu verði skipt upp í þrjá flokka þar sem vold- ugustu ríki Evrópusambandsins myndi harða kjamann, hin ríki ESB verði saman í hópi en önnur lönd álfunnar í þeim þriðja. Ráðherrann varpaði þessari hugmynd fram í viðtali við franska blaðið Le Figaro 1 gær og sagði hana vera í anda Maa- stricht-sáttmálans. Balladur sagöi að bjóða ætti öll- um ESB-ríkjunum í úrvalsflokk- inn en ekki væri líklegt að þau gætu öll gengið í hann á sama tíma. Atvinnuleysi meðalfinnskra kvennavaxandi Sífellt fleiri konur í Finnlandi verða nú fyrir barðinu á atvinnu- leysinu, samkvæmt upplýsingum sem fmnska hagstofan hefur sent frá sér. í júlímánuði voru tuttugu þúsund fleiri atvinnulausir en á sama mánuöi i fyrra og vora kon- ur þar í meirihluta. Atvinnuleysi meðal kvenna er nú 17,6 prósent og haföi það auk- ist um 1,6 prósent frá því í júlí í fyrra. Atvinnuleysi karla var 18,8 prósent, ámóta og var i júlí í fyrra. Þrátt fyrir mikiö atvinnuleysi heima fyrir hafa ekki margir Finnar haldið til útlanda í at- vinnuleit. Aðeins rúmlega þús- und Finnar hafa leitaö fyrir sér erlendis frá því samningurinn um EES gekk í gildi um áramótin. Kafbátahljóðin komalíklega barafrádýrum Hugsanlegt er talið að minkar, selir og fiskar hafi gefi frá sér hljóðin sem sænski fiotinn taldi koma frá útlendum kafbátum í landhelginni á síðastliðnum fimm árum. Þetta kemur fram hjá Hákan Neckman, fyrmm yfirmanni í kafbátaflotanum, í viðtali við Svenska Dagbladet. Upplýsingaskrifstofa aðal- stöðva hersins í Stokkhólmi skýrði frá því fyrr i ágúst að sjó- herinn hefði lagt stund á dýra- veiðar við kafbátaleit í skerja- garðinum í april i vor. Greining á upptökum úr kafbátsleitinni leiddi i Ijós að hljóðin komu frá dýrum á sundi. Pavarottiætlar aðgeraóperu aðgengilega ítalski óperu söngvarinn Luciano Pava rotti hefur ger samning vii hljómplötufyr- irtæki um ac gefa út tuttugi ópemdiska sem eiga að vera aðgengilegir fyr- ir hinn almenna mann. Diskarnir era fyrir Bandarikjamarkað. „Þessar plötur eru framhald þess sem ég er að reyna að gera fyrir óperulistina," sagði Pava- rotti. Alls verða rúmlega 400 lög á diskunum og hefur Pavarotti val- ið þau öll, m.a. uppáhalds ástar- söngvar hans og fleira. Reuter, FNB,TT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.