Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1994, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGUST 1994
41
Fréttir
Góð bleikjuveiði hefur verið í mörgum veiðiám í sumar eins og Hvolsá í Dölum en á myndinni eru Júlíus
Sigurbjartsson, Hannes Pétursson, Ólafur Benediktsson og Magnús Atli Pétursson með feiknagóða bleikju-
veiði úr ánni. Stærstu bleikjurnar voru 4 pund. DV-mynd G.Bender
Andakílsá í Borgarfirði:
Betri veiði
enífyrra
-105 laxar núna, 75 í fyrra
„Ég man ekki eftir Soginu svona tregu enda var með herkjum að mað-
ur veiddi lax,“ sagði Ingólfur Ásgeirsson en hann var í Soginu fyrir fáum
dögum en þar hefur veiðin verið róleg i sumar. DV-mynd BB
Þaö fer að síga á seinni hluta lax-
veiðitímans og vatnsleysið er
vandamál í mörgum veiðiám þessa
dagana. Og það versta er að það er
lítil rigning sjáanleg á kortum veð-
urfræðinga. Einn og einn dropi,
sem segir lítið þegar þurkurinn
hefur verið mjög lengi.
„Þetta er allt í fínu lagi hjá okkur
í Andakílsá, núna eru komnir 110
laxar og hann er 15 pund sá
stærsti," sagði Jóhannes Helgason
í gærkveldi er við spurðum frétta
Veidivon
Gunnar Bender
af ánni. En í fyrra á sama tíma
voru komnir 75 laxar en núna eru
þeir 105 svo þetta er 30 löxum betra.
„Það er mikið af laxi í ánni en
hann hefur tekið illa síðustu daga
en þaö hafa komið góð skot í þetta.
Kristján Stefánsson veiddi 10 laxa
og Kristófer Bjarnason veiddi 9
laxa á tveimur dögum. Litlar flugur
hafa gefið vel og mikrótúbur líka,“
sagði Jóhannes í lokin.
Veiddu vel
í Svalbarðsá
„Við veiddum feiknalega vel í
Svalbarðsá í Þistilfirði, fengum 23
laxa á tveimur dögum á fjórar
stangir," sagði Friörik Friðriksson
á Dalvík í gærkveldi er við spurð-
um frétta af svæðinu, en Friðrik
hefur reynt við nokkra laxana í
sumar eins og reyndar fleiri veiði-
menn. Með misgóðum árangri.
„Það var gaman að veiða í Sval-
barðsánni og við sáum töluvert af
laxi. Svarfaðardalsá hefur verið
góð í bleikjunni og veiðimenn hafa
verið að fá á milli 20 og 30 bleikjur.
Þær stærstu eru 4 pund og eru þetta
feiknalega fallegar bleikjur. í Mýr-
arkvísl eru aðeins komnir 100 laxar
og stærsti laxinn er 20 pund. Þetta
er hrikalega rólegt þarna fyrir
norðan og lítið af fiski. Á Hrauninu
í Laxá í Aðaldal hefur veiðst lítið
af laxi en eitthvað af silungi. Lax-
inn er allur svo neðarlega í Laxá,“
sagði Friðrik enn fremur.
Rólegt fyrir vestan
I laxveiðinni
„Þetta er hrikalega rólegt héma
í laxveiðinni, núna hefur Laugar-
dalsáin gefið kringum 150 laxa,
Langadalsáin 70 og svo Hvanna-
dalsáin með 35 laxa,“ sagði okkar
maður á bökkunum fyrir vestan,
sem var óhress með sumarið það
sem af er.
„Þetta má alveg fara að lagast og
fleiri laxar að láta sjá sig í veiðián-
um, en þetta er kannski ekki alveg
búið ennþá,“ sagði okkar maður.
19,5 punda lax í Breiðdalsá
„Breiðdalsá hefur gefið á milli 50
og 60 laxa en hann er 19,5 pund sá
stærsti," sagði Skafti Ottesen á
Hótel Bláfelli á Breiðdalsvík í gær-
kveldi. En laxveiðin hefur verið
frekar róleg fyrir austan en sil-
ungsveiðin góð.
Merming
Góð kammertónlist
Tónleikar voru í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í gærkvöldi.Tveir ung-
ir tónlistarmenn léku, Nicholas Milton fiðluleikari og Nína Margrét
Grímsdóttir píanóleikari. Á efnisskránni voru verk eftir Ludwig van
Beethoven, Claude Debussy og Béla Bartók.
Ef til vill má segja að fiðla og píanó komi næst strengjakvartettinum,
sem það form kammertónlistar er mest hefur höfðað til tónskálda á síð-
ari öldum. Mjög mikið er til að frábærri tónlist fyrir þessa hljóðfærasam-
setningu og flest færustu tónskáld seinni tíma hafa látið til sín taka á
þessu sviði. Sýnishornin sem þau Nicholas og Nína Margrét völdu fyrir
þessa tónleika voru fyrsta flokks að gæðum, auk þess sem þau sýndu
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
mjög vel íjölbreytnina sem þarna er að hafa. Vorsónatan er gott dæmi
hinnar klassísku sónötu. Henni hæfir og klassískur flutningsmáti þar sem
lagt er upp úr nákvæmni og skýrleika og rubatospil haft í lágmarki. Þær
kröfur voru ekki alveg að fullu uppfylltar þarna en að öðru leyti var
sónatan mjög vel spfiuð. Sónata Debussys fyrir fiðlu og píanó er sérlega
frumlegt og fallega gert verk sem vel mætti heyrast oftar flutt. Hér fóru
flytjendurnir mjög á kostum og tókst að skapa hrífandi stemningu í blæ-
brigðafullri litadýrð. Rapsódía Bartóks nr. 1 er gott dæmi um færni þessa
frábæra tónskálds í að semja fullkomlega persónulega og frumlega tón-
list úr lánuðum efniviö. Rapsódían fékk hressilegan flutning sem hentaöi
vel í lok tónleikanna - þótt styrkjafnvægið væri stundum fiðlunni fullmik-
ið í óhag.
í heild voru þessir tónleikar mjög vel heppnaðir. Hinir ungu tónhstar-
menn búa báðir yfir góðu valdi á hljóðfærum sínum og höfðu greinilega
lagt túlkun verkanna niður fyrir sér af smekkvísi og alúé. Með aukinni
reynslu mun þeim aukast dýpt og úthald sem fróðlegt verður að fá að
fylgjast með.
Leikhús
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Endurnýjun áskriftarkorta
stendur yfir tll 1. september.
Sala áskriftarkorta til nýrra korthafa hefst
2. september.
Með áskriftarkorti má tryggja sæti að
óperunni Vald örlaganna.
Miðasala á óperuna hefst 9. september.
Miðasalan er opin alla daga frá kl. 13-20
meðan á kortasölu stendur. Tekið á
móti símapöntunum alla virka daga frá
kl.10.
Græna linan 99 61 60. Bréfsiml 61 12 00.
Simi 1 12 00-Greiðslukortaþjónusta.
Tilkyimingar
LEIKFÉLAG
REYKIAVÍKUR
Sala aðgangskorta er hafin.
Sex sýningar aðeins kr. 6.400.
Kortagestir siðasta leikárs hafa
forkaupsrétt til 1. september.
OPIÐHÚS
verður laugardaginn 3. september
kl. 14-17.
Miðasala hefst á Óskina/Galdra Loft
á laugardag.
Miðasala er opin alla daga frá kl.
13.00-20.00 á meðan kortasalan
stendur yfir í sima 680680 alla virka
daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús
Nýjar Ijóðabækur
Hjá Hörpuútgáfunni er komin út ljóða-
bókin Rödd í speglunum eftir Jóhann
Hjálmarsson. Jóhann á að baki hátt á
annan tug ljóðabóka auk þess sem hann
hefur fengist við ljóðaþýðingar og val á
efni í Ijóðabækur.
Þrjár óðarslóðir heitir ljóðabók eftir
Böðvar Guðmundsson og Mái og menn-
ing gefur út. í bókinni glímir höfundur
við samtíma okkar, svo ólíka hluti sem
umferðarmenningu, fréttaheiminn sem
umlykur okkur, virðingu okkar eða
óvirðingu við menn o.fl. Ekkert ljóðanna
ber titil og þótt sjálfstæð séu mynda þau
smátt framvindu sem er á mörkum frá-
sagnar og ljóðs.
Bókaútgáfan Blómakarfan gefur út
Maríutásur í bandaskóm eftir Unni Sól-
rúnu Bragadóttur. Þetta er þriðja ljóða-
bók Unnar en áður komu út bækumar
Er þetta lifandi? (1971) og Fyrir utan
gluggann (1991).
Gísli Gíslason hefur gefið út eigin ljóða-
bók sem nefnist Hamingjusmiðurinn. Er
það önnur bók höfundar. Hamingjusmið-
urinn er í sex köflum: Ástin, Veltu þér
ekki, Söknuður, í ljósaskiptunum, Ástin
deyr og Eyðifjörðurinn.
Hafnargönguhópurinn
Hafnargönguhópurinn heldur áfram
göngu sinni með strönd Kollafjaröar í
kvöld. Fariö verður frá tjaldbúðunum á
Miðbakka kl. 20. Almenningsvagnar
verða teknir til baka við Vesturlandsveg.
Allir velkomnir.
Kórskóli Langholtskirkju
Fjórða starfsár Kórskóla Langholts-
kirkju hefst hinn 15. september. Aldurs-
takmark er átta ár. Kennarar við skólann
eru Signý Sæmundsdóttir óperusöng-
kona, Helga Björg Svansdóttir tón-
menntakennari og Jón Stefánsson, kant-
or við Langholtskirkju. Kennsla fer fram
á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl.
17.00 og 18.20 og 17.50 og 19.10. Innritun
og nánari upplýsingar eru í Langholts-
kirkju á skrifstofutíma.
Tapadfimdið
Köttur týndist
Gulbröndótt ffess týndist frá Hrísateigi
fyrir rúmum þrem vikum. Finnandi er
vinsamlega beðinn um að hringja í s.
30365.
Yiðskii )tal >laðið
Vikublað
um íslenskt
og erlent
viðskiptalíf