Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1994, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1994
33
(ristófer Sigurgeirsson voru að vonum kátir
sem varamenn og Kristófer lagði upp sigur-
DV-mynd GS
orstadæmin, 1-0:
undur
gaði
inum
) í fyrsta landsleiknum
Fairouz varði frá Helga úr þröngu færi
og Haraldur skaut rétt fram hjá auk þess
sem skot (fyrirgjöf?) frá honum af kantin-
um fór í stöngina og út af. í seinni hálfleik
átti Guðni Bergsson ágætan skalla sem
vamarmaður komst fyrir og Helgi Sig-
urðsson var felldur en ekkert dæmt. Hann
reis upp, fékk boltann og skaut en Fairouz
varði naumlega. Á lokasekúndunum var
svo Þormóður Egilsson rétt búinn að bæta
við marki þegar hann skallaði hárfínt
fram hjá.
Sigurður Jónsson og Guðni Bergsson
voru bestu menn íslenska liðsins, Sigurð-
ur réð ferðinni á miðjunni og Guðni var
öryggur í vöminni. Sigursteinn Gíslason
var frískur í fyrri hálíleik og byggði þá
upp margar sóknir. Þó var vömin ekki
nógu sannfærandi miðað við litla mót-
spymu og menn gerðu sig seka um mistök
sem Brohn og Dahlin myndu refsa þó að
Furstamir gerðu það ekki. Það sást vel
að Kristján Jónsson er ekki í leikæfmgu
og spurning hvort hann sé tilbúinn í Svía-
leikinn.
„Við komumst nokkuð oft á bak við þá
á köntunum en þá vantaöi að fyrirgjafirn-
ar væru nógu góðar og svo var of mikið
af einfóldum sendingum að klikka hjá
okkur. Nýliðarnir spjöruöu sig báðir mjög
vel og ánægjulegt að sjá til þeirra. Mér
fannst vörnin ekki vinna nógu mikið af
skallaboltum en þetta segir kannski ekki
mikið fyrir Svíaleikinn, það verður allt
annar leikur," sagöi Ásgeir Elíasson,
landshðsþjálfari íslands.
___________________________íþróttir
Herbert valdi
aðfaratilÍR
- úr hópi íimm úrvalsdeildarliða í körfuknattleik
John Rhodes, þjálfari ÍR, heldur hér á Herbert Arnarssyni og virðist ánægð-
ur með nýja liðsmanninn. Herbert leikur á ný með ÍR eftir átta ára veru í
Bandarikjunum. DV-mynd GS
ÍR-ingar fengu í gærkvöldi gífurleg-
an liðsauka í þeirri baráttu sem
framundan er í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik. Herbert Arnarsson,
einn allra besti körfuknattleiksmað-
ur landsins, ákvað þá að ganga á ný
til hðs við sitt gamla félag eftir átta
ára dvöl í Bandaríkjunum.
„Það voru margar ástæður fyrir
því að ég valdi ÍR. Fjölskyldan átti
þar hlut aö máh og einnig sú stað-
reynd að margir gamlir félagar hafa
ákveðið að leika á ný með liðinu.
ÍR-blóðið hefur ekki stöövast í mín-
um æðum þrátt fyrir langa dvöl í
Bandaríkjunum og það verður mjög
gaman að takast á við verkefni
keppnistímabilsins með ÍR,“ sagði
Herbert í samtali við DV í gærkvöldi.
Hann fór til Bandaríkjanna árið
1986, lék í þrjú ár með menntaskóla-
hði og varð bandarískur meistari
með hðinu á sínu fyrsta ári ytra. Síð-
an lék Herbert í fimm ár með há-
skólaliði Kentucky Wesleyan og var
fyrirliöi hðsins síðustu þrjú árin. Á
síðasta keppnistímabili var Herbert
þriðji stigahæsti leikmaður hðsins
með 12 stig að meðaltah í leik en sá
stigahæsti skoraði aö meðaltali 16
stig í leik. Er óhætt að fullyrða að
enginn íslenskur körfuknattleiks-
maður hefur gert betri hluti erlendis
- ef Pétur Guömundsson er undan-
skilinn.
„Ég hef ekki séð mikið af íslenskum
körfuknattleik síðustu átta árin en
veit þó að framfarirnar hafa verið
gífurlega miklar. Það yerður gaman
að leika á ný í búningi ÍR og verkefn-
in eru mjög spennandi. Takmarkið
hjá mér og öðrum í liðinu í dag er
að ÍR nái fyrri stöðu í íslenskum
körfuknattleik," sagði Herbert í gær-
kvöldi.
Herbert er 24 ára gamall og 1,94
metrar á hæð. Hann á um 20 lands-
leiki að baki og er hvalreki á fjörur
ÍR-inga sem ekki hafa fengið viðlíka
liðsstyrk í fjölda ára.
Hin úrvalsdehdarfélögin voru sér
greinhega vel meðvituð um mikh-
vægi þess að fá Herbert í sínar raðir.
Fimm önnur félög en ÍR bitust um
kappann en ÍR hafði sigur. Þjálfari
ÍR er John Rhodes sem leikið hefur
með Haukum síðustu árin. Af leik-
mönnum sem gengið hafa til hðs við
ÍR má nefna Björn Steffensen, sem
kom Skagamönnum á spjöld sögunn-
ar á sínum tíma með því að koma
þeim í úrvalsdeild í fyrra í fyrsta
skipti, og Jón Örn Guðmundsson,
fyrirhða Hauka í fyrra. Af framan-
sögðu má ljóst vera að ÍR-liðið verður
sterkt á komandi tímabih í körfunni.
Barnesvarvalinn
John Barnes, leikmaðurinn
snjalli hjá Liverpool, var í gær
vahnn í 18 manna landsliðshóp
Englendinga i knattspyrnu sem
mætir Bandaríkjamönnum í vin-
áttuleik á Wembley í næstu viku.
Barnes raissti sæti sitt í landslið-
inu þegar Graham Taylor var \dð
völd en Teiny Venables telur sig
hafa not fyrir kappann. Robert
Lee, miöjumaður hjá Newcastle,
er eini nýliðinn í hðinu og at-
hygli vekur að i því er ekkert
pláss fyrir hina marksæknu
Chris Sufton og Andy Cole.
Robbie Fowler, táningurinn
sókndjarfi hjá Uverpool, hefur
hins vegar verið tekinn inn í æf-
ingahópinn hjá Venables.
Enskatandsliðið
Enski hópurhm er þannig skip-
aður: David Seaman og Titn
Flowers eru markverðir. Rob Jo-
nes, Tony Adams, Gary Pallister,
Steve Bould, Graeme Le Saux og
Stuart Pearce eru varnarmenn.
Miðjumenn Darren Anderton,
Robert Lee, David Platt, Matthew
Le Tissier og Paul Ince og sóknar-
menn eru Les Ferdinand, lan
Wright, Alan Shearer, Teddy
Sheringham og John Bames.
ValenciatilSpánar
Adolfo Valencia, miðherji kól-
umbíska landsliðsins í knatt-
spyrnu sem leikið hefur með Bay-
em Múnchen í Þýskalandi, er á
leið til spænska 1. deildar liösins
Atletico Madrid. Þjálfari Atletico
Madrid er Francisco Maturana
sem stjórnaði Kólumbíumönnum
á HM í sumar.
Frakka, valdi í gær liö sitt sem
mætir Slóvökum í Evrópukeppn-
inni í næstu viku. Það bar helst
til tíðinda að varnarmaðurinn
sterki, Basile Boli, sem leikur
með Rangers var ekki valinn í
hðið og kom það mjög á óvart því
Boli hefur rnn árabil leikiö stórt
lúutverk í varnarleik franska
landsliðsins.
Stefán þjálfar Fjölni
Stefán Arnarson hefur verið
ráöinn þjálfari 2. deildarliðs
Fjölnis í handknattleik og mun
hann jafnframt leika með liðinu
í vetur. Stefán, sem ver mark FH
i knattspyrnunni, lék smávegis
með KR í fyrra en var áður lengi
með Gróttu.
Njarðvík vann Keflavík
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjunu
Njarðvík vann Keflavík, 85-83,
í hörkuleik í Reykjanesmótinu i
körfuknattleik í gærkvöldi.
Klinsmann skoraði tvö
- Tottenham vann og Forest er komiö í efsta sætið
Þrír leikir fóru fram í gærkvöldi í
ensku úrvalsdeildinni í knattspymu
og unnust útisigrar í þeim öhum.
Ipswich tók á móti Júrgen Khns-
mann og félögum í Tottenham og
sigraði Tottenham, 1-3. Klinsmann
var í miklu stuði í leiknum og skor-
aði tvö markanna, á 14. og 38. mín-
útu. Rúmeninn Ihe Dumitrescu skor-
aði þriðja markið á 28. mínútu, hans
fyrsta mark fyrir Tottenham. Chris
Kiwomya minnkaði muninn fyrir
Ipswich á 85. mínútu.
Leeds sigraði Crystal Palace, 1-2.
David WMte kom Leeds yfir en Dean
Gordon jafnaöi. Noel Whelan skoraði
svo sigurmarkið fyrir Leeds á 63.
mínútu.
Ekkert gengur enn hjá Everton.
Liðið tapaði í gærkvöldi gegn Nott-
ingham Forest á heimavelh sínum,
1-2, og Forest er í efsta sæti úrvals-
deildarinnar. Forest komst yfir á
sjálfsmarki og Colin Cooper bætti
öðru marki við. Paul Rideout minnk-
aði mumnn fyrir Everton.
Úrsht í 1. deild:
Bolton-Millwall................1-0
Burnley-Bristol City...........1-1
Charlton-Sheff. Utd............1-1
Notts County-Oldham............1-3
Port Vale-Barnsley.............2-1
Reading-Stoke..................4-0
Southend-Portsmouth............1-2
Sunderland-Grimsby.............2-2
Tranmere-Luton................4-2
Watford-Wolves................2-1
• í 3. deild gerði Doncaster, hö Guð-
mundar Torfasonar, markalaust
jafntefh gegn Fulham á heimavelh.
• Hibernian vann Dunfermhne
2-0 í 3. umferö skoska deildarbikars-
ins og Partick tapaði heima fyrir
Aberdeen, 0-5.
• Cannes vann Auxerre, 3-1, í
frönsku 1. deildinm í gærkvöldi og
Lazio sigraði Modena, 5-0, í 2. umferð
ítölsku bikarkeppmnnar.
ÍSLAND - SVÍÞJÓÐ
ísland - Sameinuðu furstadæmin
(0-3) 1-0
1-0 Guðmundur Benediktsson (82.). Kristófer Sigurgeirsson sendi boltann
fyrir frá hægri, af miklu harðfylgi, boltinn fór af vamarmanni og út, þar
sem Guðmundur þrumaði viðstöðulaust í markið.
Lið íslands: Birkir Kristinsson (Kristján Finnbogason 75.) - Daði Dervic,
Guðni Bergsson (Þormóöur Egilsson 71.), Kristján Jónsson, Sigursteinn
Gíslason - Sigurður Jónsson, Rúnar Kristinsson (Gunnar Oddsson 64.), Ólaf-
ur Þórðarson - Hilmar Bjömsson (Kristófer Sigurgeirsson 75.), Helgi Sigurðs-
son, Haraldur Ingólfsson (Guðmundur Benediktsson 66.).
Lið Furstadæmanna: Fairouz - S.Ali, Al-Dhaheri, Al-Haddad, Ismail -
Mohamed (Khamis 72.), Marzoug (Ahmed 46.), Al-Balooshi (Kahoor 80.),
H.Ah (Abdulla 46.) - Saeed (Saad 63.), Al-Talyani.
ísland: 13 markskot, 7 hom, 11 aukaspymur. Furstadæmin: 8 markskot,
5 hom, 15 aukaspymur.
Gul spjöld: S. Ali, H. Ali, Abdulla, Saeed, Al-Haddad, Fairouz, Rúnar og
Ólafur.
Rautt spjald: Abdulla (73.)
Dómari: Bragi Bergmann, of smámunasamur og leyfði ekki leiknum að
ganga nógu vel.
Áhorfendur: 519 greiddu aðgangseyri.
Skilyrði: Regnúði og létt gola, völlurinn því háll en annars ágætur.