Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1994, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1994, Síða 5
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1994 5 Fréttir Réttarhöldin í máli þar sem karlmaður fékk mikla áverka á kynfæri: Steingrímur með nýtt vitni - málið þarf að taka upp aftur með viðeigandi dómsyfirheyrslum Kynferðisafbrotamaðurinn Steingrímur Njálsson hefur farið fram á að nýtt vitni verði yfirheyrt í máh ákæruvaldsins á hendur honum þar sem honum er gefiö að sök að hafa veitt manni áverka á kynfærum síðastliðinn vetur. Steingrímur hefur ávallt neitað sakargiftum í málinu. Aðrir fram- burðir og gögn hafa hins vegar bent til að hann hefði veriö að verki. Ákært er fyrir stórfellda líkamsá- rás. Málið hafði nánast verið tekið til dóms þegar sakborningurinn ósk- aði eftir að umrætt vitni yrði leitt fyrir dóminn og það yfirheyrt. Fall- ist var á kröfuna og þarf því að endurupptaka málið. Þinghald verður í málinu næst- komandi mánudag en reiknað er með að yfirheyra þurfi Steingrím og jafnvel önnur vitni í kjölfar framburðar nýja vitnisins. Umrætt vitni var ekki á staðnum þar sem líkamsárásin, sem Steingrími er gefin að sök, átti sér stað. Málið hefur verið til meðferðar hjá fjölskipuðum dómi í Héraðs- dómi Reykjavíkur um nokkurra vikna skeið. Sigurður T. Magnús- son héraðsdómari er dómsformað- ur en með honum dæma þeir Guð- jón St. Marteinsson og Hjörtur 0. Aðalsteinsson. Hátíð 1 London: Deilt um 2 milljónir Ósk frá utanríkisráðherra innan ríkisstjórnarinnar um fiárveitingu upp á 2 milljónir króna til menning- arhátíðar þeirrar sem haldin var í London í sumar, og stendur raunar enn að hluta, var að ósk Þorsteins Pálssonar vísað til baka. „Það var sótt um þessa upphæð áður en lýðveldismenningarhátíðin hófst og við fengum vilyrði fyrir þessum peningum. Ég held aö það sé einhver pólitískur þefur af því að vilja ekki afgreiða málið nú. Það er orðiö svo stutt í kosningar. En ég lít svo á að málið sé óafgreitt en ekki að því Jiafi verið vísað frá,“ sagði Jakob Magnússon, menningarfull- trúi við íslenska sendiráðið í London. Hann sagði að það lægi ekki fyrir enn hvað þessi menningarhátíð kost- aði enda stæði hún enn og mundi gera til áramóta. Auk ríkisins styrkja ýmis einkafyrirtæki þessa hátíð. Skagaver Akranesi: Hagkaup boð- in eignaraðild Forráðamenn matvöruverslunar- innar Skagavers á Akranesi hafa sett sig í samband við Hagkaupsmenn um mögulega eignaraðild Hagkaups að Skagaveri. Óskar Magnússon, forstjóri Hag- kaups, staðfesti í samtali við DV að þessi ósk hefði borist frá Skagaveri. Óskar sagði að eignaraðild að Skaga- veri hentaði ekki Hagkaupi að svo stöddu en málið yrði kannski skoðað síðar meir. Óskar sagði það ekki algengt að matvöruverslanir í nágrenni höfuð- borgarsvæðisins óskuðu eftir eignar- aðild Hagkaups, algengara væri að óskað væri eftir því að Hagkaup setti upp eigin verslun á viðkomandi stöð- um. Búvörusala í ágúst: Þriðjungi meira seltaf svinakjöti Nær þriðjungi meira var selt af svínakjöti í ágúst sl. en í sama mán- uði í fyrra. í ár seldust 295 tonn af svínakjöti en 228 tonn í ágúst 1993. Framleiðsla og sala á svínakjöti hef- ur aukist sl. 12 mánuði um 10-15%. Þetta kemur fram í yfirliti frá Upp- lýsingaþjónustu landbúnaðarins. Kindakjötssala var 2% minni í ág- úst sl. en í sama mánuði í fyrra. Alls seldust um 950 tonn í mánuðinum í ár en 970 tonn í fyrra. Nautakjötsframleiðsla í ágúst hef- ur aukist um 36,4% miöað við sama mánuð í fyrra en salan hefur verið 12,3% minni. Hrossakjötsframleiðsla jókst í ágústmánuði milli ára um þriðjung en salan minnkaði um 6%. Samdráttur hefur bæði orðið í fram- leiðslu og sölu á alifuglakjöti og svip- aða sögu er að segja af eggjafram- leiðslu og eggjasölu. Meiri- háttar SEGA tilboð allir fá blöðrur spennandi getraun 74. i f JAPIS3 P j sýning Á laugardag og sunnudag gefst þér kostur á aö kynnast öllu því nýjasta í hljómtækjum, sjónvörpum, myndbandstækjum, myndbandstökuvélum, hátölurum ofl. ofl. frá PANASONIC, TECHNICS, SONY og CELESTION takið börnin með J PS* Brautarholti 2 sími 625200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.