Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1994, Qupperneq 32
ætla að efna til á næstunni til að efla bókakost
Stúdentar við Háskóla Islands
sem
T /V S
I Ð
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fulirar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
- Dreifing: Sími 632700
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1994.
Guömundur Bjamason:
Geturtalist
óeðlilegt
^ „Ef einhver tekur greiöslur sem
ekki eru í samræmi við kjarasamn-
inga og brýtur almennar, venjulegar
reglur hlýtur það að teljast óeðlilegt
nema eitthvert.annað samkomulag
liggi þar á bak við og það get ég ekki
tjáð mig um fyrr en ég hef kynnt
mér málið,“ segir Guðmundur
Bjarnason heilbrigðisráðherra um
það þegar Guðjón Magnússon fékk
námsleyfi frá heilbrigðisráðuneyt-
inu um leið og hann kenndi í Gauta-
borg.
„Eg man ekki eftir sérstökum
greiðslum til Guðjóns nema ein-
hverju uppgjöri við hann þegar hann
gerðist skrifstofustjóri í heilbrigðis-
ráðuneytinu en ég þori ekki að tjá
mig um hvað fólst í því uppgjöri
íiema geta rifjað það upp. Ef menn
skila því starfi sem þeir fá sin aðal-
laun fyrir er hægt að heimila mönn-
um að vinna fleiri störf,“ segir hann.
-sjáeinnigbls.2
Eg telst vera
stálheppinn
- segir ökmnaöurinn
Verkfallifrestað
Félag íslenskra atvinnuflugmanna,
FÍA, hefur ákveðið að fresta verk-
faUsboðun á flug Atlanta til og frá
íslandi um eina viku. Verkfallið átti
að hefjast á hádegi nk. mánudag en
frestast til 17. október.
Verkfallsboðunin var þingfest í
-'Félagsdómi f gær og hefst málflutn-
ingur 14. október nk.
LOKI
Það kann sem sagt að vera
eðlilegt að gera óeðlilega
samninga!
* i* /
Móðir hans fær sví
virðingar í símann
„Eg hefði seint trúað þessu en
þegar ég kom heim frá útlöndum
nú í vikunni og ætlaði að hringja í
móður mína noröur á Akureyri var
ekki svarað í símann. Það var svo
daginn eftir aö ég komst að þ'ví að
hún hafði orðið að taka símann úr
sambandi vegna sífelldra sím-
hringinga einhverra dóna sem
voru síhringjandi með svlvirðingar
um Kristján og reyndar fjölskyld-
una alla,“ segir Konráð Jóhanns-
son, bróðir Kristjáns Jóhannsson-
ar söngvara.
„Þetta var sóðalegt og ótrúlega
ógeðslegt orðbragð en ég ætla ekki
að gera neitt veður út af þessu, ég
vil það ekki,“ sagði Fanney Odd-
geirsdóttir, móðir Krísíjáns og
Konráðs, og vildi ekki tjá sig frekar
um málið.
Konráð segir hins vegai- að hring-
ingarnar hafi náð hámarki um síð-
ustu helgi og þá hafi móðir sín
neyðst til að taka símann úr sam-
bandi. „Það var um margar hring-
ingar að ræða og nokkrir aðOar
sem áttu i hlut. Svívirðingarnar
sem móðir min fékk yfir sig voru
þess eðlis að þær eru ekki hafandi
eftír," segir Konráð.
Hann segir einnig að Kristján
hafi verið i Kringlunni ásamt konu
sinni og tveimur sonum fyrir
nokkrum dögum og þar haft þau
orðiö fyrir aðkasti frá hópi barna
og unglinga sem liafi elt þau með
munnsöfnuði alveg út á bílastæði.
En hvaö varðar símhringingárnar
til móður sinnar segir Konráð að
þær hafi sennilega hafist í kjölfar
útkomu tímaritsins Mannlifs þar
sem ítarlegt viðtal var birt við
Kristján.
Þó segir Konráö að þessi leiðindi
öll hafi hafist vegna meiningar-
munar Kristjáns annars vegar og
annarra listamanna hins vegar.
„Að mér snýr þetta ekki öðruvísi
en sem ofboösleg öfund fólks sem
fmnur að það hefur ekki sömu
hæfileika og Kristján eða þá að það
lætur bitna á honum að liafa ekki
fengiö sörnu tækifæri og hann hef-
ur unnið sér inn. Þetta eru smásál-
ir sem fengju ekki einu sinni að
sópa tröppumar á Scala-óerunni
þótt þær borguðu með sér,“ segir
Konráð.
„Eg held að bíllinn hafi farið tvær
veltur áður en hann endaði í flæðar-
málinu. Miðað við útlitið á bílnum
telst ég vera stálheppinn. Mér skilst
að sjúkraflutningamenn sem komu á
vettvang hafi átt erfitt með að átta
sig á hve lítið ég var meiddur,“ segir
Eiríkur Sverrir Björnsson, 21 árs
starfsmaður Kaupfélagsins á ísafirði,
í samtali við DV.
Eiríkur var á leið frá ísafirði til
Hnífsdals undir kvöld í gær á pallbíl
Kaupfélagsins þegar hann missti
stjórn á bfinum. Hann segist hafa
verið að gíra bílinn niður þegar hann
byrjaði að rása. Hann fór út af og
valt um sex metra leið niður í fjöru-
borð. Þar lá Eiríkur í bílnum og sjór-
inn flæddi í kring.
r ’Eiríkur, sem var í bílbelti þegar
slysið varð, var fluttur í Fjórðungs-
sjúkrahúsið á ísafirði þar sem hann
lá í morgun. Tvö rifbein brotnuðu í
honum, auk þess sem hann marðist
og skrámaðist. Einnig kennir hann
verkja í fæti og heldur hann sjálfur
að vöðvi hafi tognað.
Vestmannaeyj ar:
Skemmdir í
Nokkrar skemmdir urðu á eignum
í Vestmannaeyjum í gær þegar fyrsta
haustlægðin gerði vart við sig en allt
að 13 til 14 vindstig mældust í sterk-
ustu hviðunum. Tveir bílar skemmd-
ust talsvert þegar tóm fiskiker fuku
við höfnina og þakplötur losnuðu af
tveimur húsum.
Eigendur fiskikeranna, ef tekst að
sanna eign á þá, eru bótaskyldir þeg-
ar kerin skemma eignir annarra, en
töluvert er um að ekki sé hugað að
kerum þegar von er á slæmum veðr-
um.
Tregveiði:
Skipum fækk-
ar í Smugunni
í fyrirhuguðu þjóðbókasafni í Þjóðarbókhlöðunni. Fé verður safnað í svokallaðan Þjóðbókasjóð. Á myndinni eru
forráðamenn stúdenta með íslendingabók frá 1923 sem var notuð til að safna framlögum til byggingar fyrstu stúd-
entagarðanna. Nú gefst almenningi og fyrirtækjum kostur á að skrá sig fyrir framlögum i Þjóðbókasjóð stúdenta.
Frá vinstri á myndinni eru Kamilla Rún Jóhannsdóttir, Skúli Helgason, framkvæmdastjóri átaksins, Brynhildur
Þórarinsdóttir og Dagur B. Eggertsson. DV-mynd Brynjar Gauti
Nú eru aðeins 20 skip að veiðum í
Smugunni, sjö skip eru á heimleið
og eitt á útleið. Þegar mest var voru
tæp 50 skip við þessar veiðar.
Að sögn Gísla Svan Einarssonar
hjá Fiskiðjunni Skagfirðingi er afli
mjög tregur eða 4 til 6 tonn á dag.
Gísli segir viðbúið að fleiri hætti á
næstu dögum ef veiðin ekki lagast.
Veðriðámorgun:
Vaxandi suð-
austanátt
Á morgun verður róleg suðvest-
læg átt eða breytileg átt. Dálítfi
él norðaustanlands en dálitlar
skúrir eða slydduél vestanlands.
Frá 2 stiga frosti til 7 stiga hita
verður að deginum. Vaxandi suð-
austanátt á laugardagskvöldið.
Veðrið í dag er á bls. 36
MEISTARAFELAG
RAFEINDAVIRKJA
S - 91-616744
Viðurkenndur
RAFEINDAVIRKI
4-