Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1994, Blaðsíða 28
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 632700
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1994.
r
Minkur í Skálatúni:
Handsamaður
inni í hljóm-
tækjaskáp
„Ég var aö koma inn úr þvottahúsi
og fór inn á baö aö fá mér vatnsglas.
Þegar ég kom út af baöinu sá ég mink
spásséra eftir ganginum inn í stofu.
Mér brá náttúrlega rosalega og fraus
fyrst. Svo stökk ég á eftir honum og
skellti hurðinni inn í stofu. Síðan
hringdi ég í bakvakt, þvi ég má ekki
taka neinar ákvaröanir sjálf, og síöan
í deildarstjórann. Hann kom í hvelli
og síöan hringdi ég í lögregluna til
aö athuga hvort hún gæti gert eitt-
hvað. Þeir ætluöu bara aö koma og
skjóta dýrið inni í stofu. Mér fundust
þaö nokkuö skrautlegar aöfarir og
afþakkaði þá aðstoö en svo fengum
viö meindýraeyöi til aö koma,“ segir
Vala Jóhannsdóttir, næturvöröur í
Skálatúni í Mosfellsbæ, í samtali við
DV. Vala var á vakt á mánudags-
morgun klukkan 5 þegar hún varð
vör dýrsins.
Hún segir aö erfiölega hafi gengiö
aö króa dýrið af en þremur tímum
eftir aö hún kom fyrst auga á dýriö
hafi tekist að handsama það inni í
hljómtækjaskáp í stofunni. Þegar því
verki hafi verið lokiö hafi hún vakið
vistmann í herbergi inn af stofunni
og síðan aðra vistmenn.
Hún segir dýrið að öllum líkindum
hafa komist inn um opinn þvottahús-
glugga eöa opinn glugga hjá einum
vistmannanna. Minkur hafi sést oft-
ar en einu sinni í nágrenninu en hún
býr ekki fjarri Skálatúni og maður
hennar hafi skotið mink fyrir utan
heimili þeirra fyrir um ári síðan.
Minkurinn var fluttur af vettvangi
í vörslu meindýraeyðis.
Suöureyrarhreppur:
Kauptilboð í Sig-
urvon ÍS
■ Suöureyrarhreppur hefur gert
kauptilboð í Sigurvon ÍS. Halldór
Karl Hermannsson sveitarstjóri
staöfesti það í samtali við DV í morg-
un. Til stendur aö báturinn, sem er
meö um 300 þorskígilda kvóta, verði
seldur til Grindavíkur. Súgfirðingar
vilja sporna gegn því enda* um 80
prósent af veiðiheimildum staðarins
í húfi.
Stormur á miðum
„Það er stormur á miðunum fyrir
noröan og vestan land, vindstrengur
sem gengur sennilega ekki niður fyrr
en á morgun. Lítið verður vart
stormsins inn til landsins, helst að
hann nái sér á strik á stöku stað á
Vestfjörðum," sagöi Haraldur Eiríks-
son veðurfræðingur við DV.
LOKI
Þetta hefur auðvitað verið
svona tónelskur minkur!
Fylgið í mínu kjör-
dæmi tvöfalt meira
en hjá formanninum
„Eg visa nú hara til þessarar
sömu skoðanakönnunar og bendi á
aö fylgi Alþýöuflokksins í kjör-
dæmi minu er tvöfalt á við það sem
er í kjördæmi formannsins. Að
öðru leyti ætla ég ekki að fara út í
svona greiningu," sagði Guðmund-
ur Ámi Stefánsson félagsmálaráð-
herra um þau ummæli Jóns Bald-
vins Hannibalssonar að slæm út-
koma Alþýðuflokksins í nýrri
skoðanakönnun sé umræðunni um
mál Guðmundar Áma að kenna.
Hann sagði að vissulega mætti
útkoman vera betri í þessari skoð-
anakönnun.
„Ég vil þó benda á að eftir að ég
hélt blaðamannafund og gerði
grein fyrir mínum málum fór
flokkurinn upp í skoðanakönnun-
um. Ég man ekki eftir því að menn
hlypu þá til og þökkuöu mér það.
Vinsældir rikisstjórnarinnar hafa
nú verið upp og ofan á liðnum miss-
erum. Ég bið því menn að stíga létt
til jaröar i öllum yfirlýsingum,"
sagöi Guðmundur.
Sighvatur Björgvinsson, heil-
brigðis- og tryggingamálaráöherra,
sagðist ekki vilja meta það neitt
hvort minnkandi fylgi Alþýðu-
flokksins væri umræðunni um mál
Guðmundar Árna að kenna.
í þessari viku hafa þrjár greinar
birst í Alþýðublaðinu þar sem sagt
er að mál Guðmundar Árna skaði
flokkínn og að hann eigi að fara frá.
Gunnlaugur Stefánsson alþingis-
maður sagðist neita að trúa því að
um skipulega herferð gegn Guð-
mundi Áma væri að ræða. Varð-
andi ummæli Jóns Baldvins um að
minnkandi fylgi Alþýðuflokksins
væri umræðunni um mál Guð-
mundar Áma að kenna og Ðavíðs
Oddssonar í gær um að minnkandi
vinsældir ríkisstjórnarinnar í
skoðanakönnun væru af sömu
ástæðu sagði Gunnlaugur:
„Það eru nú ekki stórir menn sem
vilja láta Guðmund Áma Stefáns-
son bera allar sínar byrðar, enda
þótt hann standi undir þeim.“
Þing Sjómannasambands islands stendur nú yfir í Reykjavík. Óskar Vigfússon, forseti sambandsins, lætur af
embætti. Tveir gefa kost á sér í stað Óskars, Sigurður Ólafsson, formaður Sjómannafélags ísfirðinga og Sævar
Gunnarsson, formaður Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur, sem hér takast í hendur. Búist er við spenn-
andi baráttu milli þeirra. DV-mynd GVA
Veðrið á morgun:
Skúrir aust-
anlands
Á morgun verður norðlæg átt,
nokkuð hvöss norðan- og vestan-
lands en mun hægari suðaustan
til. É1 norðanlands, skúrir aust-
anlands en úrkomuhtið suðvest-
an til. Hiti -2 til 7 stig, hlýjast
suðaustanlands.
Veðrið í dag er á bls. 36
Reykhólahreppur:
Kaupfélagið
hirti ríkis-
styrk til
hreppsins
-síðustu sexárin
í ljós hefur komið að kaupfélags-
stjórinn i Króksfjarðarnesi hefur í
sex ár, án þess að láta viðkomandi
aðila vita, tekið viö styrkgreiðslum
sem senda átti hreppnum frá sam-
gönguráðuneytinu vegna vetrarsam-
gangna. Bjarni P. Magnússon sveit-
arstjóri sagði í samtali við DV í morg-
un að málið hefði uppgötvast fyrir
nokkrum dögum. Málið hefði verið
kynnt samgönguráðherra og sam-
göngunefnd. Hér er um að ræða upp-
hæð sem nemur á fjórðu milljón
króna framreiknað til dagsins í dag.
„Það kom í ljós að þessar greiðslur
fóru vegna mistaka til kaupfélagsins
hér í Króksfiarðarnesi. Þetta eru þó
nokkrir peningar," sagði Bjarni P.
Magnússon sveitarstjóri. Bjarni
sagði að styrkurinn frá samgöngu-
ráðuneytinu væri m.a. til kominn
vegna „framkvæmda á vegum og lag-
færinga á erfiöum snjóköflum" í
Reykhólahreppi.
„Þegar ég kom til starfa hér árið
1990 sá ég enga reikninga um þetta.
Ég hélt aö þarna væri um millifærslu
að ræða. Síðan kom í ljós að vegna
mistaka höfðu greiðslurnar farið til
kaupfélagsins í Króksfiarðarnesi.
Við höfum rætt við kaupfélagsstjór-
ann. Ég vona að þetta leiðréttist og á
von á að það gerist," sagöi Bjarni.
„Þegar ég leitaði skýringa í sam-
gönguráðuneytinu var mér sagt að
greiðslurnar hefðu verið stílaðar á
kennitölu hreppsins og sendar á
kaupfélagið. Ég hafði samband við
forvera minn í starfi sveitarstjóra.
Hann sagðist aldrei hafa heimilað
þetta greiðsluform. Við finnum því
ekki þann huldumanna sem heimil-
aði þetta. Þetta er því óljóst,“ sagði
Bjarni.
- Hafa fullnægjandi skýringar feng-
ist frá kaupfélagsstjóranum?
„Nei.“
Menningarmálanefnd:
Eirósafnið
í Haf narhúsið
Menningarmálanefnd Reykjavíkur
samþykkti samhljóða á fundi sínum
í gær að óska eftir því við borgarráð
að teknar verði upp viðræður við
hafnarstjórn um að fá neðstu hæðir
Hafnarhússins við Tryggvagötu und-
ir Listasafn Reykjavikur og nýtt
Errósafn. Gert er ráð fyrir að sam-
þykktin verði tekin fyrir í borgarráði
á þriðjudag.
MEISTARAFÉLAG
RAFEiNDAVIRK.IA
S-91-616744
Viðurkenndur
RAFEINDAVIRKI
i
i
É
TVOFALDUR 1. VINMNGUR