Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1995, Síða 6
6
MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 1995
Fréttir__________________________________________________________________________pv
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, um kjarasamning sjúkraliða:
Hef ur viðmiðunaráhrif
í komandi samningum
„Ég vil gjarnan leggja mitt af
mörkum til þess að af kjarasamning-
um geti orðið fyrir þingkosningar í
vor. Það er afar mikilvægt að ganga
frá samningum snemma í þeirri
kosningahríð sem er fram undan.
Eftir því sem nær dregur kosningum
verður erfiðara að ná samningum og
að það sem út úr þeim komi’ verði
óraunhæfara," segir Benedikt Dav-
íðsson, forseti Alþýöusambands ís-
lands.
Benedikt segir nýgerðan kjara-
samning sjúkraliða vera í takt við
það sem haífi verið að gerast hjá hinu
- segir mikilvægt að kjarasamningar náist fyrir kosningar
opinbera á undanfórnum misserum.
Þar hafi launafólk fengið kauphækk-
anir umfram það sem fólk á almenna
vinnumarkaðinum hafi fengið.
„Þetta hlýtur því að hafa einhver
viðmiðunaráhrif í þem samningum
sem fram undan eru.“
Kjarasamningur sjúkrahða fól í sér
7 prósenta hækkun launa með aftur-
virkum hætti, annars vegar til 15.
júní síðastliðinn og hins vegar til 1.
október síðastliðinn. Einnig var sam-
ið um að gerðardómur bæri laun
sjúkraliöa saman við launahækkanir
annarra heilbrigðisstétta undanfar-
ið. Samningurinn gilti einungis í
rúman sólarhring og eru sjúkraliöar
því með lausa samninga núna.
Að sögn Benedikts er of snemmt
að spá fyrir um hvaða kauphækkan-
ir aðildarfélög ASÍ komi til með að
sætta sig við. Hvað samning sjúkra-
liða og annarra opinberra starfs-
manna varðar segir hann óljóst
hversu stór hluti kauphækkunarinn-
ar sé varanleg kjarabót. Gangi hún
yfir alla línuna sé engan veginn gefið
að um raunverulega kjarabót sé að
ræða.
„Það skiptir okkur ekki meginmáli
að fá háar tölur í kauphækkun ef því
fylgir ekki kaupmáttarauki. En við
hljótum að gera ráð fyrir að okkar
fólk fái notið þess bata sem er að
verða í þjóðfélaginu og að sá bati
nýtist til raunverulegrar kaupmátt-
araukningar. Það er til lítils að fá
einhverjar prósentuhækkanir sem
síðan eru teknar jafnharðan af
stjórnvöldum."
Benedikt segir niðurfærslu vöru-
verðs betri kjarabót en flest annað.
Á hinn bóginn hafnar hann þeirri
aðferð krata að nýta ákvæði GATT
um innflutningsfrelsi á landbúnað-
arvörum og lækka jöfnunartolla á
þær til að auka kaupmátt launafólks.
Slík aðgerð myndi einfaldlega svipta
þúsundir bænda starfsgrundvelh og
valda stórauknu atvinnuleysi.
„Ég á ekki von á því að snögg niður-
færsla á verði landbúnaðarvara færi
okkur miklar kjarabætur þegar upp
væri staðið. Lækkun vöruverös yrði
að framkvæma með samvirkum að-
gerðum til þess að tryggja aö það
fólk sem hefur verið að vinna við
þessa framleiðslu fari ekki beint á
mölina í atvinnuleysið."
-kaa
Þrjú öf lugustu verkalýðsf élögin í samf loti
Nú um áramótin eru nær allir
kjarasamningar í landinu lausir.
Samningaviðræður munu væntan-
lega hefjast skömmu eftir áramót.
Nú er ljóst að um heildarsamflot inn-
an ASI verður ekki að ræða. Verka-
mannafélögin Dagsbrún í Reykjavík,
Hlíf í Hafnarfirði og Verkalýðs- og
sjómannafélag Keflavíkur ætla sam-
an í samningaviðræður við Vinnu-
veitendasambandið. Þetta eru langö-
flugustu verkalýðsfélög landsins ef
til átaka kemur því allt flug til og frá
landinu sem og innanlands og nær
allir flutningar til landsins og stór
hluti útflutningsins er í höndum fé-
lagsmanna þessara félaga.
„Við verðum þrjú saman þessi flóa-
félög og munum fljótlega óska eftir
viðræðum við vinnuveitendur. Við
munum í upphafi leggja mikla
áherslu á sérsamninga þessara fé-
laga. í raun hafa kjarasamningar
þeirra ekki verið endurnýjaðir síðan
1988. í þessum heildarsamflotasamn-
ingum hefur aldrei fengist aö ræða
neinar sérkröfur félaganna. Þess
vegna ætlum við ekki að láta loka
okkur af aftur,“ sagði Guðmundur
J. Guðmundsson. formaður Dags-
brúnar.
Hann vildi hvorki nefna prósentu-
tölu né krónutölu varðandi kaup-
kröfuna. DV hefur aftur á móti heyrt
menn nefna töluna 10 þúsund króna
launahækkun á mánuði, sem það
allra lægsta.
Guðmundur var spurður hvort
hann myndi ljá máls á því að semja
þannig að GATT-samningurinn
verði notaður til að lækka matvöru-
verð og taka það í stað launahækk-
ana. Svarið var stutt.
„Allt má ræða.“
SERHÆFT
■' .............................................................................
KRIFSTOFUTÆKNINAM
Áhrifaríkt, markvisst og ódýrt
114 klst. starfsmenntunarnámskeið
með áherslu á alhliða undirbúning
fyrir skrifstofustörf.
Verð aðeins 75.800 • ”kr. stgr.
Afb.verð 79.800 kr.
eða 5.043 kr. á mánuði!
Skuldabréf í 19 mánuði, allt innifalið.
o
KENNSLUGREINAR:
- Almenn tölvufræði
- Windows gluggakerfið og MS-DOS
- Ritvinnsla
- Töflureiknar og áætlanagerð
- Glærugerð og auglýsingar
- Umbrotstækni
- Bókfærsla
- Verslunarreikningur
- Tölvuíjarskipti
Valtýr Pálsson:
Mér koma einungis í hug þijú
orð til að lýsa náminu hjá
Tölvuskóla Reylgavíkun
ÁHRIFARÍKT, MARKVISST
OG ÓDÝRT.
Innritun er hafin. Hringdu og fáðu sendan bækling
eða kíktu til okkar í kaffi.
1 Tölvuskóli Reykiavíkur
gg BORGARTÚNI 28. 105 REYKJAUÍK. sími 616699. fax 616696
Með áverka í andliti
Maður með áverka í andliti og lét ófriðlega á slysadeild og braut
brotnar tennur kom á slysadeild þar meðal annars spegil áður en
um klukkan sjö í gærmorgun. Veg- gert var að áverkum hans.
farandi í Ármúla ók fram á mann- Lögreglan í Reykjavík fæst við
inn þar sem hann var staddur á rannsókn málsins og óskar eftir því
milli Hótel íslands og Hallarmúla að vegfarandinn, sem kom mann-
og flutti hann á slysadeild. Maður- inum á slysadeild, gefi sig fram
inn mundí óljóst hvað hafði komið vegna rannsóknar málsins.
fyrír enda nokkuð ölvaður. Hann
Nýir eigendur smiðja K.Á. á SeKossi. Frá vinstri Viggó B. Einarsson, Gest-
ur Haraldsson, Guðmundur Kr. Óskarsson, Oddur Már Gunnarsson og Sig-
urjón Reynisson. DV-mynd Kristján
Bifreiðaverksmiðjur K.Á. seldar
Kristján Einarsson, DV, Selfossi:
Fimm ungir menn frá Selfossi
gengu frá kaupsamningi við forráða-
menn Kaupfélags Árnesinga fyrir
áramótin og festu þar með kaup á
Bifreiðasmiðjum K.Á.
Um er að ræða fjórar mismunandi
þjónustueiningar sem allar styðja
hver aðra: bifreiðaverkstæði, smur-
stöö, dekkjaverkstæði og bifreiða-
verkstæði. Bifreiðaverksmiðjur K.Á.
hafa þótt búnar fullkomnum tækjum
og góðum mannafla hingað til en
samt hefur reksturinn hjá K.Á. geng-
iö misjafnlega. Nýju eigendurnir eru
bjartsýnir á aö þeim takist aö glæða
reksturinn nýju lífi og hyggja á
nokkrar skipulagsbreytingar. Vara-
hlutaversluninni verður breytt í
sjálfsafgreiðsluverslun. Þjónustan
við eigendur stórra bíla verður bætt
og sömuleiðis þjónusta við eigendur
smærri bíla.
Auk nýju eigendanna munu alhr
starfsmenn smiðjanna sem höíðu
ráðningarsamning fá áframhaldandi
vinnu. Starfsmenn verða 16 talsins.
Tveir af nýju eigendunum höfðu
unnið hjá K.Á. áður en höfðu stofnað
nýtt bifreiðaverkstæði við þriðja
mann, Bílfoss, sem þeir nú sameina
hinu nýja fyrirtæki. Verslunarstjóri
bílalagers K.Á. og iðnráðgjafi Suður-
lands eru hinir tveir nýju eigendurn-
ir. Kaupfélag Árnesinga seldi ekki
húsin heldur keyptu fimmmenning-
arnir allan rekstur, lager og tæki.