Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1995, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 1995
13
DV
Regnboginn - Stjömuhliö: ★★ 'A
Himnastökk
Alheimurinn er óhemju stór og enginn hefur hingað
til getað gert sér grein fyrir því hversu stærðin er
mikil. Við vitum þó að sólkerfi okkar er eins og ry-
kögn í þessu mikla flæmi. Líkindalögmáliö segir okkur
að einhvers staðar í þessari óravídd hljóti að vera aö
minnsta kosti einn hnöttur sem hefur þróast eitthvað
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
í likingu við jörðina okkar. Þessi líkindi eru þemað í
Stjörnuhliði (Stargate). Langt, langt í burtu býr mann-
kyn sem hefur haft samband í fornöld.
Fornleifafræðingurinn Daniel Jackson (James Spad-
er), sem er sérfræðingur í myndleturstáknum, er feng-
inn til að ráða tákn sem lengi hafa vaflst fyrir sérfræð-
ingum í Bandaríkjaher. Þessi tákn eru á hringlaga
járnflikki sem fundist hefur í Egyptalandi. Jackson
tekst það sem engum öðrum hefur tekist: að loka
„hringnum“ - og þar með gera hann virkan. En hring-
ur þessi er hlið inn í aðra veröld, sem er svo langt í
burtu að ljósárafjöldinn er miklu meira en mannsald-
urinn. Stjörnuhliðið er stökkpallurinn. Með því að
fara í gegnum hliðið er maður kominn nánast á sömu
stundu á viökomustað þar sem annað mannkyn hefur
þróast með óviljandi hjálp jarðarbúa.
Jackson veit að hann er ekki einn þeirra útvöldu sem
fá að fara í gegnum hliðið. Þvi segist hann vera eini
maðurinn sem geti komið þeim til baka og kemst þann-
ig í víkingasveit sem send er undir stjórn Jack O'Neill
(Kurt Russell) herforingja. Auðvitað veit Jackson ekk-
ert hvernig á að koma þeim til baka. Herdeildarinnar
bíður síðan mikið ævintýri í veröld þar sem sólguðinn
Menning
Kurt Russel (lengst til hægri) leikur herforingja sem
stjórnar inngöngunni i aðra veröld.
Ra ræður ríkjum. Hefur hann bannað þegnum sínum
að læra að lesa og skrifa svo ekki komi til uppreisnar.
Það er orðið nokkuð síöan komið hefur ævintýra-
mynd í geimnum sem ekki er nánast eftirlíking eða
framhaldsmynd og Stjörnuhlið nýtur góðs af því að
sögð er frumleg og skemmtileg saga þar sem farin er
sú eina leið sem hægt er að ímynda sér í ferðalögum
um óravíddir himingeimsins, nokkurs konar tíma-
stökk sem á ekkert skylt við neinn raunveruleika,
enda er Stjörnuhlið fyrst og fremst ævintýri meö flest-
um þeim kostum sem eiga að prýða slíka mynd. Gall-
arnir eru samt nokkrir og sérstaklega vantar aö fylla
upp í sumar persónur, hefði til dæmis verið gaman
að fá eitthvað meira um Ra, sem Jaye Davidson leikur
af sama þokka og hann gerði í The Crying Game.
En þegar upp er staðið hefur nánast heppnast þaö
sem lagt var upp með; að gera skemmtilega ævintýra-
mynd sem gleður augaö, spennan er mest i fyrri hlut-
anum þegar allt er að fara af stað. Stjörnuhlið verður
nokkuð klisjukennd í lokin án þess þó að mikill skaði
sé skeður.
Stjörnuhliö (Stargate)
Leikstjóri: Roland Emerick.
Handrit: Roland Emerick og Dean Devlin.
Kvikmyndun: Karl Walter Lindenlaub.
Tónlist: David Arnold.
Aöalhlutverk: Kurt Russell. James Spader og Jaye Davidson.
BRÉFABINDI
OG MÖPPUR
fæst í öllum betri
ritfangaverslunum
Margir litir margar stærðir.
Þessi vinsælu bréfabindi
fást í öllum helstu
bókaverslunum landsins.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Símar: 628450 688420 688459
Fax 28819
EGLA
-RÖÐOG
REGLA
Gjaldskrá óbreytt
LN. frá liðnum vetri
Systkinaafsláttur - fyrsta barnfullt gjald,
annað barn liálft gjald, þriðja barn og þar yfir
frítt. Aukaafsláttur ef foreldrar eru einnig í
dansnámi.
• Reykjavík:
• Mosfellsbær:
• Innritun í síma 91 -20345 frá
kl. 13-19 í Brautarholti 4.
• Suðurnes: Keflavík,
Garður, Grindavík,
Sandgerði
• Innritun í síma 92-67680frá
kl. 21.30 til 22.30 frá 4. jan.
• Afhending skírteina í Braut
arholti 4, sunnudaginn,
8. janúar frá kl. 16-19.
• SIÐASTI
INNRITUNARDAGUR
LAUGARDAGINN
7. JANÚAR.
Samkvæmisdansar (suður amerískir og standard)
Gömlu dansarnir - Hip Hop - Disco - Tjútt og Rock’n Roll
Erlendir gestakennarar. Allir aldurshópar.
MÁ BJÓÐA ÞÉR í W I DANS?
I t