Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1995, Side 18
'trilist
Neil Young og Unun
með bestu plötur
ársins 1994
MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 1995
DV
Samkvæmt niðurstööum í vali
hóps hljómplötugagnrýnenda eru
platan æ með nýju
hljómsveitinni Unun
og platan Sleeps with
Angels með Neil
Young & Crazy Horse
bestu plötur ársins
1994.
Sjaldan eða aldrei
hafa gagnrýnendur
samt verið jafn
ósammála um
bestu plötur ársins
eins og nú. Þetta
sést bæði af fjölda
þeirra platna sem
hljóta atkvæði í
valinu og lágri
stigatölu bak við
efstu sætin á
báðum
listunum.
Þannig hljóta
nú alls 35
plötur
tilnefningu í
valinu á bestu
innlendu
plötu ársins
en voru 30 í
íýrra og þó
voru þeir
gagnrýnendur sem þá tóku þátt í
valinu níu talsins en eru nú átta. í
erlendu deildinni eru tilneftiingamar
jafnmargar að þessu sinni og í fyrra
eða 57 talsins. Dreifing stiganna þar
er þó með allra mesta móti sem sést
best á því að stigin sem nægja Neil
Young & Crazy Horse í efsta sætið að
þessu sinni hefðu aðeins nægt í 5.-6.
sætið í fyrra. Þá náði efsta platan
heilum 45 stigum. Nú duga hins
vegar 21 stig.
í innlendu deildinni er svipaða
sögu að segja. Þar náði efsta platan
í fýrra 76 stigum en platan í öðru
sætinu 47 stigum eða jafiimörgum
og nú duga til efsta sætisins.
Valið gengur annars fýrir sig á
hefðbundinn hátt. Plata í efsta
sæti hvers lista fær 10 stig, sú
næsta 9 og svo koll af kolli niður
í 1 stig fýrir 10. sætið. Hæsta
stigatala einstakrar plötu er því
80 stig en engin plata var
nálægt þeirri tölu þetta árið.
Sem fyrr getur varð fyrsta
plata hljómsveitarinnar
Ununar í efsta sæti innlenda
listans og geta liðsmenn
hljómsveitarinnar sannarlega
glaðst yfir góðu gengi. Það geta
reyndar fleiri nýliðar gert því
hlutfaU nýrra og nýlegra hljómsveita
á listanum er óvenju
gott þetta árið. í
öðru sætinu hafiiar Jet Black Joe og
hlýtur það að segja sitt um ágæti
, ' Unun
ftizz
*
4. «,«Ubbi'V'o'the„s
- B/t+K n d N°vels
7-s-
7-8. «S™Pia
,
^^^nsson
þeirrar sveitar að hún hefúr ekki
farið neðar en í fimmta sætið í þessu
ársuppgjöri gagnrýnenda síðan hún
kom fram á sjónarsviðið. Bubbi er í
þriðja sætinu, einu ofar en í fýrra, en
hann er líka árlegur
gestur í efstu
sætum þessa
lista. Fjórða
sætið að þessu
sinni hlýtur
tiltölulega lítt
þekkt hljómsveit,
Strigaskór nr. 42,
en hún fékkst við
dauðarokk meðan
það var og hét en
hefúr nú skipt um
stíl með þessum
líka bærilega
árangri.
Kolrössumar úr
Keflavík eru í
fimmta sætinu og í
sjötta sætinu er nýja
sveitin Birthmark.
Vissulega
athyglisverður
árangur hjá báðum
þessum sveitum.
Sjöunda og áttunda
sætinu deila gamalt og
nýtt; annars vegar sú
gamalkunna rokksveit
SSSól og hins vegar
hljómsveitin Olympia,
einkaframtak Sigurjóns
Kjartanssonar úr Ham sálugu. Bjöm
Jörundur, bassaleikari í Ný Danskri,
nær níunda sætinu með fýrstu
sólóplötu sinni og Milljónamær-
ingamir ná tíunda sætinu annað
árið í röð en nú með annan söngvara
en í fýrra.
Mjótt var á mununum 1 erlendu
deildinni að þessu sinni; þannig
skilja aðeins átta stig fyrsta og
tíunda sætið. Neil Yoimg rétt nær að
merja efsta sætið, stiginu á undan
Eric Clapton, Blur og Soundgarden.
Gömlu rokkbrýnin í ZZ Top ná
fimmta sætinu en í sjötta sætinu em
nýliðarnir í Terapy?. Davið Byme,
fýrrum söngvari Talking Heads,
hlýtur sjöunda sætið en Suede, sem
náði 2.-3. sætinu í fýrra, hafnar nú í
áttunda sætinu. Tveimur síðustu
sætunum deila svo gamli
sveitasöngvarinn Johnny Cash og
hljömsveitin Crash Test Dummies
sem sló í gegn á árinu.
Af björtum vonum ber mest á
Emilíönu Torrini söngkonu Spoon,
og hljómsveitinni Unun og er óhætt
að segja að þetta séu nýliðar ársins
innanlands en í erlendu deildinni
era mjög skiptar skoðanir eins og
svo oft áður.
Og þar með sláum við hér á DV
botninn í umfiöllun um tónlistarárið
1994 og sendum öllum lesendum
blaðsins bestu óskir um farsæld á
nýju ári.
Sigurður Þór Salvarsson
io.
2~4- ******Horse
2 -Blur
SSaerUnkn°^
5‘ +2g«*n
6 T£Uf*W*in
7 °S*&L
8 Doaí.dByrne
D°SM*nstar
9-'°'
,-io.
7?d Sí»uffíed Hls f