Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1995, Side 26
34
MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 1995
Afmæli
Ólafur Magnússon
Ólafur Magnússon, bóndi á
Hnjóti í Örlygshöfn, varö níutíu og
finun ára í gær, nýársdag. Hann
fæddist klukkan tvö á nýársnótt
árið 1900 og er því aö öllum líkind-
um fyrsta barn aldarinnar ef öldin
er talin heíjast áriö 1900.
Starfsferill
Ólafur fæddist á Hnjóti og ólst
þar upp í foreldrahúsum við al-
menn sveitastörf og útræöi. Hann
var ellefu ára er hann missti föður
sinn og varð því snemma aö leggja
sitt af mörkum viö búskapinn.
Ólafur tók sjálfur viö búskap aö
Hnjóti 1922 og stundaði þar búskap
tU 1953 er Egill sonur hans tók viö
búi. Auk þess stundaði hann sjó-
róðra frá Kolsvík og fleiri verstööv-
um frá unga aldri og til 1930. Þá
fékkst hann mikið við dýralækn-
ingarumárabil.
ðlafur sat í sóknarnefnd og var
safnaðarfulltrúi Sauðlauksdals-
sóknar um árabil frá 1938. Þá var
hann meðal stofnenda og einn
helsti hvatamaður að stofnun
Mjólkurfélags Örlygshafnar,
seinna Mjólkurfélags Rauðasands-
hrepps og formaður þeirra 1938-53.
Hann sat í stjórn Sparisjóðs Rauða-
sandshrepps og var formaður
sjóösstjórnar 1945-76. Þá hefur
hann frá 1983 verið umsjónarmað-
ur og séð um móttöku safngesta við
Minjasafn Egils Ólafssonar.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 19.4.1924 Ólafíu
Egilsdóttur, f. 27.11.1894, d. 20.10.
1993, ljósmóður. Hún var dóttir
Egils, síðasta bóndans á Sjöundá
Ámasonar, og k.h., Jónínu Gísla-
dótturhúsfreyju.
Böm Ólafs og Ólafíu eru Egill, f.
14.10.1925, b. á Hnjóti, safnvörður
og flugvallarstjóri, kvæntur Ragn-
heiði Magnúsdóttur húsfreyju og
eignuðust þau fjögur börn en þrjú
þeirra em á lífi; Sigríður, f. 6.12.
1926, húsmóðir í Hafnarfirði, gift
Ara Benjamínssyni bílsfjóra og
eiga þau fjögur böm; Sigurbjörg,
f. 12.12.1929, húsmóðir í Reykjavik,
gift Bjama Þorvaldssyni vélgæslu-
manni og eiga þau fimm böm. Fóst-
urdóttir Ólafs og Ólafiu er Ólafia
J. Ólafsdóttir, f. 10.6.1945, húsmóð-
ir og verkakona í Reykjavík, og á
húnfimm börn.
Ólafur átti ellefu alsystkini en níu
þeirra komust til fullorðinsára og
er ein systir hans lifandi, Kristjana,
húsmóðir í Keflavík. Þá átti hann
tvö hálfsystkini, samfeðra.
Foreldrar Ólafs vom Magnús
Ámason, bóndi á Hnjóti, og k.h.,
Sigríður Siguröardóttir húsfreyja.
Ólafur Magnússon.
Sæunn Elfa Karlsdóttir
Sæunn Elfa Karlsdóttir, leik-
skólastjóri á leikskólanum Staðar-
borg, til heimilis að Klukkurima
12, Reykjavík, er fertug í dag.
Starfsferill
Sæunn fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp og að lóranstöðinni aö
Gufuskálum við Hellissand á Snæ-
fellsnesi. Hún lauk prófi frá Fóstm-
skólaíslands 1977.
Sæunn bjó í Danmörku á ámnum
1977-90. Hún hefur lengst af verið
aðstoðarleikskólastjóri eða leik-
skólastjón.
Fjölskylda
Eiginmaður Sæunnar er Palle
Skals Pedersen, f. 24.3.1955, húsa-
smiður. Þau hófu sambúð 1973 en
giftu sig 1983. Palie er sonur Poul
Skals Pedersen, tækniteiknara og
smiðs í Danmörku, og Irene Peder-
sen húsmóður.
Böm Sæunnar og Palle eru Elva
DöggPedersen, f. 19.7.1976, nemi
við Kvennaskólann í Reykjavík;
Daniel Þór Pallason, f. 1983.
Systkini Sæunnar eru Magnús
Karlsson, f. 14.8.1953, kvæntur
Ingibjörgu Gísladóttur og em böm
þeirra Gísli Magnússon, Ólöf Dís
Magnúsdóttir og Signý Magnús-
dóttir en dóttir Magnúsar með fyrri
sambýliskonu er Hugrún Dögg
Magnúsdóttir; Eiríkur Sverrir
Karlsson, f. 11.8.1960, en börn hans
em Jón Egill Eiríksson og Kasper
Larsen; Sigrún Sóley Karlsdóttir,
f. 1.3.1963, en böm hennar em
Svandís Rún Ríkharðsdóttir og
Amór Ingi Ingvarsson; Karl Jökull
Karlsson, f. 28.6.1971.
Foreldrar Sæunnar; Karl Jakob
Magnússon, f. 24.3.1935, d. 9.3.1993,
loftskeytamaður og símritari, og
Ólöf Svandís Eiríksdóttir, f. 15.10.
1935, en hún á og starfsrækir fyrir-
tækið Holtahraðhreinsun.
Ætt
Karl var sonur Magnúsar loft-
skeytamanns Jenssonar Alberts,
búfræðings og kaupmanns í Belgs-
dal íDölum, Guðmundssonar.
Móðir Magnúsar var Margrét Ijós-
móðir Magnúsdóttir. Móðir Karls
var Sæunn Þorleifsdóttir, verk-
stjóra á ísafirði, Jónssonar, og Her-
dísar Jónsdóttur.
Ólöf Svandí s er ein af fimmtán
systram frá Réttarholti í Reykja-
vík, dóttir Eiríks, b. og skálds í
Réttarholti, Einarssonar, og Sigr-
únar Benediktu Kristjánsdóttur frá
Bíldudal.
Sæunn Elfa Karlsdóttir.
/
Eiríkur Rósberg
Árelíusson
Eiríkur Rósberg Árelíusson raf-
magnstæknifræðingur, Núpasíðu 6
H, Akureyri, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Eiríkur fæddist í Grindavík og ólst
þar upp og í Reykjavík. Hann stund-
aði nám við Ingenior-Hojskolen og
lauk prófum frá Odense Teknikum.
Eiríkur starfaði við tæknideild
Kópavogskaupstaðar í fimm ár en
stofnaði síðan, ásamt tveimur öðr-
um, verkfræðistofuna Akkur sf.
1975.
Eiríkur var svæðisstjóri á tækni-
deild Slippstöðvarinnar á Akureyri
í fjórtán ár en stundar nú tækni-
þjónustu hjá verkfræðistofunni
Ákkur sf. á Akureyri.
Eiríkur var formaður Lúðrasveit-
arinnar Svanur í Reykjavík í nokk-
ur ár, formaður Sambands ís-
lenskra lúðrasveita í nokkur ár,
formaður Jazzklúbbs Akureyrar
um skeið, fyrrv. forseti kiwanis-
klúbbsins Kaldbaks á Akureyri en
hann starfaði á vegum klúbbsins í
fjórtán ár. Þá er hann formaður
Norðurlandsdeildar Tæknifræð-
ingafélags íslands.
Fjölskylda
Eiginkona Eiríks er Helena Sig-
tryggsdóttir, f. 14.7.1948, sjúkraliði.
Hún er dóttir Sigtryggs Guðmunds-
sonar bílstjóra og Stefaníu Ágústs-
dótturhúsmóður.
Sonur Eiríks og Helenu er Eiríkur
RósbergEiríksson.
Fósturbörn Eiríks í heimahúsum
em Ágúst Ómar Halldórsson og
Valur Freyr Halldórsson.
Börn Eiríks frá því fyrir hjóna-
band em Sveinn Rúnar Eiríksson,
búsettur í Reykjavík, og Ragnhildur
Eiríksdóttir, búsett í Noregi.
Foreldrar Eiríks voru Árelíus
Sveinsson, f. 22.2.1911, bílstjórl í
Eiríkur Rósberg Áreliusson.
Reykjavík, og Ragnhildur Eiríks-
dóttir, f. 1.1.1907, húsmóðir og
saumakona, en þau em bæði látin.
Eiríkur tekur á móti gestum á
heimili sínu að Núpasíðu 6 H, í dag,
millikl. 20.00 og 22.00.
AUGLYSINGAR
63 27 OO
markaðstorg
tækifæranna
2. janúar
90 ára
Ólafia Ester Steinadóttir,
Kumbaravogi, Stokkseyrarhreppi.
80 ára
Jófríður Halldórsdóttir,
Hátúni 8, Reykjavík.
75 ára
Unnur Bjarnadóttir,
Sólvangsvegi 1, Hafnarfiröi.
Sigríður Sigurðardóttir,
Eyjabakka 28, Reykjavík.
70ára
Sveinn Torfi Sveinsson,
Hraungöröum, Garðabæ.
Jóhannes Gíslason,
Kleppsvegi 118, Reykjavík.
Anna Auðunsdóttir,
Ásbraut 19, Kópavogi.
Maggý Björg Jónsdóttir,
Álmholti 2, Mosfellsbæ.
Anna Friðrika Friðriksdóttir,
Grundargerði 3B, Akureyri.
50ára
Guðný Ásólfsdóttir,
Hfauntungu39, Kópavogi.
Rosmary Kistín Sigurðardóttir,
Gmndarvegi 1, Keflavík.
Hákon MagnúsSkaftfells,
Sólvöllum II, Eyrarsveit.
JónGuðlaugsson,
Heiðargerði 7, Húsavik.
Lárus Reynir Halldórsson,
Hólavegi 11, Dalvík.
Kristján M. Jóhannesson,
Hellisgötu 5B, Hafharfirði.
Björn Bjömsson,
Reykjafold 11, Reykjavik.
40 ára
60 ára
Garðar Halldórsson,
Lambalæk, Fljótshlíðarhreppi.
Pétur Þorsteinn Þorgrímsson,
Flúðaseli 74, Reykiavík.
Margrét Sæunn Bogadóttir,
Baðsvöllum 12, Grindavík.
Einar Matthías Þórarinsson,
Hamarsbraut3, Hafharfirði.
Sigríður Rut Pálsdóttir,
Ólafsvegi 23, Ólafsfirði.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A
VALDA ÞER SKAÐA!
yuwewAR