Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1995, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1995
Fréttir
n
HM í handknattleik:
Stöðugt fylgst
með miðasölu
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyri:
„Ég hef ekki annað um þetta mál
aö segja en það að við erum með stöð-
ugt eftirlit með miðasölunni eins og
öðrum þáttum við undirbúning
keppninnar. HaUdór lagði fram allar
ábyrgðir og tryggingar sem þurfti og
við höfum ekki séð neina ástæðu til
að grípa inn í hans störf,“ segir Há-
kon Gunnarsson, framkvæmdastjóri
heimsmeistarakeppninnar í hand-
knattleik sem fram fer hér á landi í
vor.
Miklar sögusagnir eru í gangi varð-
andi aðgöngumiðasöluna en Halldór
Jóhannsson á Akureyri hefur einka-
leyfi á sölu miðanna samkvæmt
samningi við HM-nefndina. Sögu-
sagnirnar segja m.a. að Halldór hafi
ekki getað lagt fram þær tryggingar
og ábyrgðir sem hann hafi þurft
gagnvart HM-nefndinni en Hákon
bar það til baka. Þá hafa önnur um-
svif Halldórs verið dregin inn í um-
ræðuna en hann rekur m.a. teikni-
stofu á Akureyri og ferðaskrifstofu.
Aðgöngumiðasalan á HM hefur
gengið mun erfiðlegar en reiknað
hafði verið með fyrirfram. Lengi vel
var lítið hægt að aðhafast þar sem
m.a. lá ekki fyrir í hvernig íþrótta-
húsi úrslitaleikirnir yrðu leiknir en
eftir aö það skýrðist hefur m.a. kom-
ið upp það vandamál að aðilar í
ferðaþjónustu hafa tryggt sér gisti-
rými á höfuðborgarsvæðinu án þess
að hafa aðgöngumiða á leiki í keppn-
inni en eftir standa miðasalar sem
hafa bara aðgöngumiða upp á að
bjóða en enga gistingu.
Þórir Einarsson tók i gær formlega við embætti rikissáttasemjara af Guðlaugi Þorvaldssyni sem gegnt hefur starfinu
i hálfan annan áratug. Þórir er fyrrverandi prófessor í viðskiptafræði við Háskóla íslands en það er Guðlaugur
raunar eínnig. DV-myndGVA
Akureyri:
Engar framkvæmdir
við sundlaugina
Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyri:
Framkvæmdum við sundlaug Ak-
ureyrar, sem hófust sl. vor og halda
átti áfram á nýbyrjuöu ári, hefur
verið slegið á frest og er það vegna
minnkandi framkvæmdafjár bæjar-
ins. Fyrsta áfanga af fjórum við laug-
ina er lokið. Byggðir voru nýir „heit-
ir pottar“, settar upp vatnsrenni-
brautir og sólbaðsaðstaða bætt mjög,
auk ýmiss annars. í sumar var áætl-
að að ráðast í næsta áfanga og verja
til hans um 50 milljónum króna.
Aformað var að í þeim áfanga yrðu
endurbætur á aðkomu að sundlaug-
arhúsinu og búningsaðstöðu. Hönn-
unarvinnu vegna þessa áfanga er
ekki lokið en þeirri vinnu verður
haldið áfram þótt verklegum fram-
kvæmdum verði frestað um eitt ár.
Útgerðarfélag Akureyringa:
Af laaukning frá árinu á undan
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
Afli togara Útgerðarfélags Akur-
eyringa fyrstu 11 mánuði síðasta árs
var 20.556 tonn á móti 19.288 tonnum
á sama tíma árið 1993 og er þetta
tæplega 7% aukning. Aflaverðmæti
togara ÚA á þessum tíma á síðasta
ári nam 1.747 milljónum króna.
Þrátt fyrir aflaaukningu frá árinu
1993 minnkaði þorskaflinn um tæp-
legá 30%, var 6.603 tonn fyrstu 11
mánuði ársins 1993 en 4.724 tonn á
sama tíma á síðasta ári og þar af
veiddust 1.575 tonn í Smugunni.
Veruleg aflaaukning er hins vegar á
grálúðu og karfa og ekki síst á ýsu
en ýsuaflinn jókst úr 971 tonni fyrstu
11 mánuði ársins 1993 í 3.032 tonn á
sama tíma á síðasta ári.
Frystitogarinn Svalbakur, sem ÚA
eignaðist snemma á síðasta ári, var
aflahæsta skip félagsins á þessu
tímabili með 3.222 tonn. Frystiskipið
Sléttbakur var skammt undan með
3.006 tonn og Sléttbakur var með
mesta aflaverðmæti af togurum ÚA
fyrstu 11 mánuði síðasta árs.
Starfsmenntastyrkir
félagsmálaráðuneytisins
Félagsmálaráðuneytið auglýsir hér með eftir umsóknum
um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu, sbr. lög
nr. 19/1992.
Styrkir eru veittir til aðila sem standa fyrir starfsmenntun
í atvinnulífinu. Miðað er við að styrkir séu veittir vegna
viðfangsefna á árinu 1995.
Umsóknir berist Vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneyt-
isins á sérstökum eyðublöðum sem þar fást og skal þeim
skilað þangað eigi síðar en 15. febrúar 1995.
Félagsmálaráðuneytið, 2. janúar 1995
<jinAatímar • tírtofetímar
, ó/wíj/M'iAij/mi/Hja/'fwia/'
f//m/ifim
ixi/na
68 97 97
/ ySM IÐJAN
iiiTHUH'mn
IOHANN ORN
ÓLAFSSON
DANSKENNARI
imiiiA
Námskeióin eru að hefiasf
Skipt er í flokka eftir aldri og getu.
Karate eykur styrk, eflir sjálfstraust,
bætir einbeitingu og agar andann
sem og líkamann.
Brautarholti 22 • Sími 14003
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■^^