Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1995, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1995, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1995 13 Fréttir Osk Péturs-manna um BB-lista á Vestfjörðum: Ég er alfarið á móti því að leyfa slíkt - segir Guðmundur Bjamason, varaformaður Framsóknarflokksins „Eg tel aö landsstjórn flokksins hafi tekiö grundvallarákvörðun varöandi óskir um BB-lista þegar hún hafnaði slíkri ósk frá Stefáni Valgeirssyni fyrir átta árum. í mín- um huga er þaö alveg skýrt að ekki sé hægt að sætta sig við framboð af þessu tagi. Við ættum þá á hættu að sitja uppi með slíkt fyrir hverjar kosningar ef einhver óeining kemur upp í einstökum kjördæmum með uppstillingu á lista. Þess vegna er þaö í mínum huga grundvallarregla að heimila ekki BB-lista,“ sagöi Guð- mundur Bjarnason, varaformaður Framsóknarflokksins, um ósk stuðn- ingsmanna Péturs Bjarnasonar um að heimila BB-lista á Vestíjörðum. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarílokksins, er í einkaer- indum erlendis. Guðmundur Bjarna- son sagðist hafa rætt þetta mál við Halldór sem og aðra framkvæmda- stjórnarmenn og þeir væru allir sam- mála um að ekki eigi að leyfa BB- lista. „Ég hef rætt viö Guðmund Bjarna- son um þetta mál og veit hver hugur framkvæmdastjórnarmanna er. Ég hef ekkert um þetta að segja annáð en það að við tökum eitt skref í einu í málinu. Beiðnin um BB-lista hefur ekki verið send til stjórnar kjör- dæmisráðs. Það verður gert ein- hvern næstu daga. Og næsta skref í málinu verður ekki tekið fyrr en svar þess liggur fyrir,“ sagði Pétur Bjarnason varaþingmaður aðspurð- ur hvort hann myndi ekki leiða lista nema leyfi fengist frá flokknum fyrir BB-hsta. DV hefur heimildir fyrir því að fjöl- margir Vestfirðingar, bæði fram- sóknarmenn og utanflokksfólk, vilji að Pétur leiði sérlista hvort sem fæst aö merkja hann BB eða ekki. Eins eru líka nokkrir stuðningsmanna Péturs sem vilja ekki fara fram með lista nema hann fáist merktur BB. Gangur málsins í þessu er sá aö beiðni um BB-lista verður sendur næstu daga til stjórnar kjördæmis- ráðs Framsóknarflokksins á Vest- fjöröum. Ef kjördæmisráðiö fellst á BB-lista er málið leyst. Hafni ráðið beiðninni er hægt að vísa málinu til landsstjórnar flokksins. Hún er skip- uð framkvæmdastjórn flokksins, for- mönnum beggja landssambandanna, formönnum allra kjördæmissam- bandanna og þar að auki níu mönn- um kjörnum af miðstjórn. Úrskurður landsstjórnar er endanlegur. Atvinnuley si á Akureyri: Toppurinn ekki eins hár og undan- farin ár Gyifi Krístjánsson, DV, Akureyri: „Atvinnuleysið undanfarin ár hefur jafnan verið hæst um ára- mót og tvær fyrstu vikurnar í janúar og það er ljóst að tölurnar nú eru ekki jafn háar og þær voru fyrir ári,“ segir Sigrún Björns- dóttir, forstöðumaður Vinnu- miölunarskrifstofu Akureyrar- bæjar. Um áramót voru 590 manns á atvinnuleysisskrá á Akureyri, 340 karlar og 250 konur, og hafði talan hækkað úr 482 hinn 1. des. sl. Um áramótin 1993/1994 var tala atvinnulausra hins vegar 964. Þá voru að vísu á atvinnuleysisskrá tímabundið um 260 starfsmenn fiskvinnslu ÚA en þeir komu hins vegar inn á atvinnuleysisskrá eft- ir áramótin nú og verða á skránni þar til vinnsla hefst að nýju eftir fyrstu veiðiferöir togaranna. Sé litið fram hjá fiskvinnslu- fóiki ÚA er ljóst að atvinnuleysið um áramótin er umtalsvert minna en fyrir ári og munar þar rúmlega hundrað manns. Folda hf. í rekstrarerfiðleikum: Erf iðleikar en ekkert hættuástand - segir starfandi stjórnarformaður fyrirtækisins Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Folda hf. hefur á nýliðnu ári veriö í nokkrum erfiðleikum, m.a. vegna gjaldþrots eins stórs viðskiptavinar í Noregi, en vonandi sést fyrir end- ann á því máli,“ segir Ásgeir Magn- ússon, starfandi stjórnarformaður ullarvinnslufyrirtækisins Foldu hf. á Akureyri. Ásgeir vildi ekki upplýsa um um- fang skulda norska fyrirtækisins við Foldu en sagði að Folda hefði haft baktryggingar. ,,-Viö vorum með veð í lagerum fyrirtækisins sem viö höf- um verið að taka til baka. Það er svo spurning hvernig okkur gengur að losna við þær vörur sem eru ýmiss konar, bæði nýjar og gamlar, og sennilega misgóð söluvara," segir Ásgeir. Hann segist alls ekki líta svo á að hættuástand sé ríkjandi í Foldu vegna þessa máls. Það hafi hins veg- ar valdið erfiðleikum sem lýstu sér m.a. í minnkandi sölu til Noregs um tíma. Nú hefur verið samið við aðra SlökkviHð Akureyrar: Engir stórbrunar -enfleiriútköll Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Útköll Slökkviliðs Akureyrar á síð- asta ári voru 73 talsins á móti 67 árið áður. Langflest þessara útkaila voru innanbæjar en þó voru 11 útköll ut- anbæjar. Engir stórbrunar urðu á Akureyri á síðasta ári. Mest varð tjón hins vegar þegar íbúð í Brekkugötu 7 skemmdist í eldi 27. september og þegar eldur kom upp í íbúðarhúsinu Hraunholti 7 skömmu fyrir áramót. Sjúkraútköll á síðasta ári urðu 1135 en voru 1086 árið áður. Af þessum 1135 sjúkraútköllum voru 225 bráða- tilfelli. 60 sjúkraflutningar fóru fram á varabíl meðan hinn var í öðrum sjúkraflutningi en varabíllinn er ekki mannaður töstum mönnum. aðiia í Noregi um sölu á framleiðslu- fyrir allt bjartsýnn á framtíð fyrir- vörum Foldu og Ásgeir segist þrátt tækisins. Lokaö í dag Lagerútsalan hefst á morgun Mestu vinningslíkurnar í íslensku stórhappdrœtti HAPPDRÆÍFI Tryggðit þér möguleika ... fyrir lífið sjálft !- —I Verð miða er aðeins 600 kr. Upplýsingar um nœsta umboðsmann í síma 552 2150 og 552 3130 8 MIUJÓNIR ÓSKIPTARÁ EINNMIÐA 12.JANÚAR Eina stórhappdrœttiðþar sem hœstu vinningarnir ganga örugglega út allt árið. Fáðu þér áskrijt í tœka tíð. Nýtt áskriftarár er að hejjast. Dregið 12. janúar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.