Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1995, Page 14
14
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1995
Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JONSSON
Fréttastjórar: JÖNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÓSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur; auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)563 2700
FAX: Auglýsingar: (91 )563 2727 - aðrar deildir: (91 )563 2999
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF.
Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m/vsk.
Verð i lausasölu virka daga 150 kr. m/vsk. - Helgarblað 200 kr. m/vsk.
Fyrir neðan beltisstað
Fátt ef nokkurt efni í sjónvarpi er vinsælla en ára-
mótaskaupið. Sá skemmtiþáttur hefur unnið sér fastan
sess á gamlárskvöld og má fullyrða að langflestir lands-
manna setjist fyrir framan sjónvarpstækin til að fylgjast
með og njóta þeirrar skemmtunar sem upp á er boðið.
Ástæðan er auðvitað sú að áramótaskaupin hafa alla-
jafna verið vel heppnuð.
Áramótaskaupið er að því leyti sérstæður og óviðjafn-
anlegur sjónvarpsþáttur að þar er dregin upp skopleg
hhð þeirra atburða sem sett hafa svip á þjóðlífið á liðnu
ári og þekkt fólk birtist í spéspegli. Er það oftast græsku-
laust gaman enda hafa fórnarlömbin jafnan getað hlegið
með öðrum og meir en aðrir að þeirri skrumskæhngu
sem dregin er upp af þeim sjálfum.
Stundum er jafnvel sagt að það sé akkur í því fyrir
stjórnmálamenn að komast á blað og verða sögupersónur
í gríninu og það sé til marks um að þeir hafi verið áber-
andi og aðsópsmikhr í störfum sínum, en það eru jú ær
og kýr hvers stjómmálamanns að komast í sviðsljósið.
Áramótaskaupið á gamlárskvöld var í engu frábrugðið
fyrri þáttum að þar var margt stórvel gert og skensið
beinskeytt og hlægilegt. En þar voru líka mistök gerð
og þau verst að þar var skotið yfir markið eða öhu held-
ur slegið fyrir neðan beltisstað. Nafnkunnir stjórnmála-
menn voru ekki aðeins dregnir þar sundur og saman í
háði og spotti með ósmekklegum hætti heldur klykkt út
með því að láta menntamálaráðherra segja að hann
væri apaköttur! Þá ályktun verður að draga að persónu-
legar eða póhtískar skoðanir textahöfunda hafi ráðið því
að stöðugt var höggvið í sama knérunn.
Þessi vinnubrögð eru ámæhsverð. Skiljanlega er erfitt
að ritskoða slíka skemmtiþætti og höfundar verða að fá
að njóta frelsis við að semja efnið. En því frelsi fylgir
ábyrgð, enda hljóta ahir að gera sér grein fyrir því að
áramótaskaupið er þáttur ahra landsmanna og á ekki
að vera ihyrmislegur eða illkvittinn. Hann á ekki að vera
vettvangur fyrir óuppgerðar sakir milh ráðamanna ann-
ars vegar og þáttagerðarmanna hins vegar.
Það er ekki fyndið þegar menn eru kahaðir apakettir.
Stjórnmálamenn verða að þola ýmsar skráveifur enda
bjóða þeir upp á það. Um leið og stjórnmálamenn eru
skotspónn skaups og spaugs eiga þeir ekki að verða fyr-
ir aðkasti og ómerkilegum umsögnum sem ekkert eiga
skylt við skemmtun eða fyndni. Áhorfendur eru næmir
fyrir því hvar munurinn er á milh athlægis og aðhlát-
urs, og því miður féh áramótaskaupið á því prófmu.
Þeir stjómmálamenn eða einstakhngar, sem verða
fyrir barðinu á rætnum texta, verða ekki minni menn
fyrir vikið heldur þeir sem bera ábyrgð á textanum.
Höfundar handritsins hafa vísað ahri gagnrýni á bug.
Það eiga þeir ekki að gera. Apakattarbrandarinn var
langt fyrir neðan velsæmismörk.
Ekki er ætlunin að gera mikið veður út af þessum
mistökum. Ihtt er þó ljóst að svo vinsælt sem áramóta-
skaupið er, og svo umtalað sem það er meðal almenn-
ings, er óhjákvæmhegt að láta þá skoðun koma heiðar-
lega og tæpitungulaust fram að það er ódrengilegt og
óviðeigandi með öhu að nota slíka þætti th árása og at-
yrða gagnvart fólki sem hefur vahst th ábyrgðarstarfa í
þjóðlífmu. Sérstaklega þegar það er gert undir þeim for-
merkjum að hér eigi fyrst og fremst að ráða saklaust
glens og gaman. Vonandi verða þessi mistök víti th varn-
aðar og annars ágætum höfundum áramótaskaupsins th
iðrunar. EhertB. Schram
„Breyting á lánskjörum getur falið i sér að vöxtum og/eða lántima sé breytt... “ segir Finnur m.a. í greininni.
Ráðgjafar- og endur-
reisnarstöð heimilanna
Það er þjóðhagslega hagkvæmt
að sem flestir geti eignast þak yíir
höfuðið og eftirsóknarvert út frá
hagsmunum einstaklinga og íjöl-
skyldna vegna þess öryggis sem
það veitir. Við eðlilegar aðstæður
treystir eigið húsnæði fjárhagslegt
sjálfstæði manna og eykur ábyrgð-
artilfmningu gagnvart verðmæt-
um. Atvinnuleysið, stórhækkaðir
skattar, auknar álögur í formi
þjónustugjalda, lækkun barna- og
vaxtabóta og vaxandi kjaraskerð-
ing ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks
og Alþýðuflokks hefur grafið und-
an fjárhagslegu sjálfstæði einstakl-
inganna.
Gallar húsbréfakerfisins
Nú er svo komið vegna efnahags-
og atvinnustefnu ríkisstjórnarinn-
ar að miklir greiðsluerfiðleikar
blasa við mörgum heimilum. Fátt
hefur farið eins illa með fjárhag
heimilanna og húsbréfakerfið en
gallar þess birtast í styttri láns-
tíma, hærri vöxtum og þar af leið-
andi aukinni greiðslubyrði.
Á flokksþingi framsóknarmanna
í lok nóvember var samþykkt að
breyta Húsnæðisstofnun í ráögjaf-
ar- og endurreisnarstöö heimil-
anna. Hlutverk hennar verði að sjá
um félagslega húsnæðislánakerfið
og grípa til björgunaraðgerða til að
aðstoða fólk við aö greiða úr
skuldavandamálum heimilanna.
Vandamálum sem þegar eru orðin
svo mikil að heimilin ráða ekki viö
þau. Því er óumflýjanlegt að grípa
til greiðsluaðlögunar, lengingar
lána, félagslegrar aðstoðar og veit-
ingar greiðsluerfiðleikalána.
Viðtækrar samstöðu þörf
Til aö ná sem víðtækastri sam-
stöðu um þau markmið sem stofn-
uninni verði falið að takast á viö
verði henni stjórnað af fulltrúum
KjaUarinn
Finnur Ingólfsson
alþingismaður Framsóknar
flokksins i Reykjavik
ríkisvalds, banka og sparisjóða, líf-
eyrissjóða, verkalýðshreyfmgar,
vinnuveitenda, sveitarfélaga og
neytendasamtaka. Skuldir heimil-
anna eru ekki bara í Húsnæðis-
stofnun. Þær eru einnig í bönkum,
hjá lífeyrissjóðum og hjá sveitarfé-
lögum.
Til þess að leita eftir heildstæðri
lausn á greiösluerfiðleikum heimil-
anna er nauðsynlegt að draga alla
áðurnefnda aðila til samstarfs um
lausn. Því er þessum aðilum falið
að stjórna stofnuninni.
Nauðasamningar -
greiðsluaðlögun
Starfsemi stöðvarinnar verði
fjármögnuð af lífeyrissjóðum,
bönkum, ríkinu og sveitarfélögun-
um. í einhverjum tilfellum getur
reynst nauðsynlegt að fara með
einhverja einstaklinga í gegnum
nauðasamninga líkt og mörg fyrir-
tæki hafa þurft að fara í gegnum.
í flestum tilfellum ætti greiðsluað-
lögun aö duga. Markmiðið með
greiðsluaðlögun verði að skuldari
fái lánskjörum breytt þannig að
greiöslubyrði verði léttari.
Breyting á lánskjörum getur falið
í sér að vöxtum og/eða lántíma sé
breytt, skuld sé fryst um tíma á
meðan fólk leitar lausnar á tíma-
bundnum erfiðleikum eins og
vegna atvinnuleysis, veikinda og
fleiru. Greiösluaðlögun komi aö-
eins til greina hafi hún í fór með
sér ávinning fyrir skuldara, lánar-
drottna og samfélagið í heild.
Ávinningur fyrir skuldara verð-
ur að vera sá að þeir geti staðiö í
skilum með skuldina. Ávinningur
fyrir lánardrottnana yrði því um
leið að líkur á endurgreiðslu munu
aukast. Ávinningur samfélagsins
yrði því sá að færri þyrftu að leita
á náðir félagsmálastofnana.
Finnur Ingólfsson
„Vandamálum sem þegar eru orðin svo
mikil að heimilin ráða ekki við þau.
Því er óumflýjanlegt að grípa til
greiðsluaðlögunar, lengingar lána, fé-
lagslegrar aðstoðar og veitingar
greiðsluerfiðleikalána.“
Skodanir annarra
Ærumeiðandi sjónvarpsffrétt
„Rétt fyrir jól birtist í fréttum Ríkissjónvarpsins
umfjöllun um dagpeningagreiðslur og ferðakostnað
maka ráöherra... Við skulum vona aö allt hið talaða
mál fréttarinnar hcifi verið kórrétt, enda textinn
byggður á svari forsætisráðherra á Alþingi. En
myndmál fréttarinnar var bæði villandi og ærumeið-
andi... Vinna svona þeir fréttamenn, sem eru að
krefjast siðbótar í íslenskum stjórnmálum og eru
þetta meöulin sem þeir beita? Ef svo er þá kunna
blaða- og fréttamenn ekki mannasiði; þá er hér ekki
um að ræða siðbót, heldur siðleysi."
Atli Heimir Sveinsson tónskáld í Mbl. 3. jan.
ESB ffyrir staffni
„Ég er sannfærður um að ísland sæki um Evrópu-
sambandsaðfid á einhverjum tímapunkti. Mín per-
sónulega skoðun er raunar sú, að hvernig sem næsta
ríkisstjórn veröi skipuð þá muni hún sækja um að-
Od að Evrópusambandinu... Með aðild að samband-
inu yrði fjárfesting á íslandi áhugaverðari kostur en
nú, en íslensk viðskiptalöggjöf, skattalöggjöf og
stjórn efnahagsmála fylgdi með tryggari hætti þró-
uninni í helstu viðskiptalöndum okkar.“
Vilhjálmur Egilsson alþm. í Alþbl. 3. jan.
Maður hugsar ýmislegt
„Ég læt aðra dæma um hvernig ég var tekinn fyr-
ir, en þegar gengið er aö fjölskyldu manns hugsar
maður ýmislegt... Annars snerust áramótin okkar
ekki um skaup Guðnýjar HaOdórsdóttur kommún-
ista úr Mosfellsbæ, sem haföi lýst því yfir að hennar
æðsta takmark væri að fella íhaldið. Ég hef á tilfinn-
ingunni að hún vinni að því áfram eftir að hafa séð
þetta skaup hennar.“
Árni Sigfússon framkvstj. í Tímanum 3. jan.