Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1995, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1995
23
dv Fréttir
Skólabúið á Hólum í Hjaltadal:
Ær bera þrisvar
á átján mánuðum
Gunnar bústjóri og nokkrar ær í tilrauninni. DV-mynd Örn
Engin ártöl í
Hafnarfjalli
Olgeír H. Ragnares., DV, Borgarbyggð:
Allt fór eðlilega fram í Borgar-
byggð um áramótin að sögn lög-
reglunnar í Borgarnesi. Lítið var
hringt á lögreglustöðina. Engin
slys á fólki og ekkert umferðaró-
happ hafði orðið í gær, 2. í nýári.
Það vakti athygli að ekkert ár-
tal var í Hafnarfjallinu um ára-
mótin en mörg undanfarin ár
hafa skátar í Borgamesi myndað
nýja og gamla ártaliðmeð blysum
í ijallinu.
Þetta féll niður nú vegna þess
að öll fjárveiting sem skátarnir
hafa fengið frá sveitarfélaginu
hefur farið í þetta hingað til. Þeg-
ar þeir hafa sótt um aukaQárveit-
ingu hefur því verið hafnað á
þeirri forsendu að þeir hafi fengið
sína fjárveitingu.
Með aðgerðarleysinu nú eru
skátamir að leggja áherslu á þörf
sína fyrir fjármagn.
Súgandafjörður:
Staðarpresta-
kall á lausu
Sigurjón J. Sigurðsson, DV, feafirði:
Meðal þriggja prestakalla, sem
herra Ólafur Skúlason, biskup
íslands, hefur auglýst laus til
umsóknar er Staðarprestakall i
Súgandafirði. Það tilheyrir ísa-
Qarðarprófastsdæmi og séra Sig-
ríður Guðmarsdóttir, sem gegnt
hefur starfi prests þar síðustu
mánuöi, hefur sagt því lausu.
Umsóknarfrestur er til 24.janúar.
Vinnslustöðin Eyjum:
Skoða togara
IKanada
Ómar Garðares., DV, Vestmannaeyjum:
Þrír fulltrúar frá Vinnslustöð-
irrni hér í Vestmannaeyjum fóru
fyrir skömmu til Kanada og skoð-
uðu þar togara, einkum tvo með
tilþoö í huga.
Haraldur Gíslason, einn
Vinnslustöðvarmanna, sagði að
um væri að ræða tvo ísfisktogára,
smíöaða 1982. Þeir eru 53 metra
langir og 11 metra breiðir og
teiknaðir af Jóni Hafsteinssyni
skipaverkfræðingí.
Haraldur segir að skipin séu í
nokkuð góðu ástandi en ýmsu
þarf þó að breyta til að það stand-
ist kröfur Vinnuslustöðvar-
manna.
„Það eru fleiri sem hafa áhuga
á skipunum, aðilar frá Chile og
Færeyjum, svo ekki er gott aö
segja hvernig þetta fer,“ sagði
Haraldur.
Ámeshreppur:
Versti vetur
í manna
minnum
Regína Thoraxensen, DV, SeKossa:
Að sögn Pálínu Guðjónsdóttur,
Munaðarnesí, er þetta versti vet-
ur sem hún man eftir í Árnes-
hreppi á Ströndum. Snjór er svo
mikíll að ekki er hægt að komast
frá Munaðarnesi í Noröurfjörð til
að versla nema á vélsleðá. Pálina
er uppalin í hreppnum og er á
áttræðisaldri.
Jón Jens, maður hennar sem'
er 82 ára, missti skothús sitt, svo
mikill var sjógangurinn fyrir
skömmu. Jón Jens er kunn refa-
skytta og skothús hans úr torfi
hefur dugað vel í áratugi í öllum
veðrum þar til nu.
Öm Þórarinsson, DV, Fljótum:
Á fjárbúi Bændaskólans á Hólum
í Hjaltadal hefur undanfarin misseri
verið gerð tilraun á sauðfé sem felst
í því að nokkrar ær hafa verið látnar
bera þrívegis á einu og hálfu ári. Til-
raunin er gerð í samvinnu við fjár-
búið á Hesti í Borgarfirði og Rann-
sóknarstofnun landbúnaðarins.
Hófst 1992 og er nú að ljúka.
Haustið ’92 voru 40 ær á búinu sam-
stilltar og sprautaðar með hormón-
um og síðan haldið. Þær báru í mars
’93. Voru látnar bera aftur í janúar
’94 og báru síðan í október sl.
Að sögn Gunnars Steins Rögn-
valdssonar, bústjóra á Hólum, er nið-
urstaða tilraunarinnar sú að vanda-
lítið er að láta ærnar bera oftar en
til þessa hefur tíðkast. Ekki hefur
verið lagt mat á fjárhagslegan ávinn-
ing af slíku sem Gunnar efaðist um
að væri í rauninni nokkur.
Byrjað var með 40 ær í tilrauninni
og 15 af þeim báru nú í haust. Ekki
voru teknar nýjar ær inn í stað þeirra
sem heltust úr lestinni meðan til-
raunin stóð yfir. Heilsufar ánna og
lambanna var gott. Lömbin höfðu
aðgang að heyi nánast frá fæðingu,
gengu undir ánum á húsi og fóru út
þegar þau stálpuðust.
Á lömbunum, sem fæddust í haust,
Gylfi Krisljáiisson, DV, Akureyri:
Tíu skólar af landsbyggðinni verða
ekki með í Spurningakeppni fram-
haldsskólanna að þessu sinni vegna
óánægju þeirra með framkvæmd
keppninnar og beinist sú óánægja
fyrst og fremst að forsvarsmönnum
Ríkisútvarpsins.
í hópi skólanna tíu eru Verk-
menntaskólinn og Menntaskólinn á
Akureyri og sagði Páll Tómas Finns-
son, formaður skólafélags MA, við
Nokkurrar óánægju gætir meðal
kylfinga á Akranesi með fyrirhugað-
ar breytingar á golfvelli golfklúbbs-
ins Leynis og hafa athugasemdir ver-
ið gerðar til bæjaryfirvalda. Sam-
kvæmt breytingartillögu við aðal-
skipulag golfvallarins og nágrennis,
sem lögð verður fram á bæjarstjórn-
hefur meðal dagvöxtur verið 337
grömm og eru allmörg nú komin yfir
30 kílóa þunga.
Þess má og geta að á Hólabúinu eru
DV í gær að landsbyggðarskólarnir
hefðu gert ýmsar athugasemdir við
framkvæmd keppninnar. „Bréfum
okkar var hins vegar aðallega svarað
með dónaskap," sagði Páll Tómas.
Forsvarsmenn skólanna á lands-
byggðinni kvarta m.a. undan aukn-
um kostnaði við þátttöku í keppninni
sem í raun ætti að falla á Ríkisút-
varpið þar sem um vinsælt dagskrár-
efni sé að ræða. Þá hafi verið kvartað
undan framkomu Stefáns Jóns Haf-
steins, umsjónarmanns keppninnar
arfundi síðar í þessum mánuði, er
gert ráð fyrir flugvallarstæði og að
vegur vegna Hvalfjaröarganga fari
þvert yfir eina brautina.
„Samkvæmt skipulaginu á vegur-
inn aö fara þvert yfir eina brautina
og sker því hugsanlega af henni. Við
eigum eftir að sjá að Hvalfjarðar-
varðveittir grár, arfhreinn stofn og
dropóttur stofn sem hafa verið rækt-
aðir í allmörg ár, mest að áeggjan
dr. Stefáns Aðalsteinssonar. í þess-
í Sjónvarpinu, sem hafi mismunað
þátttakendum og sýnt keppendum
af landsbyggðinni hroka, að sögn
Páls Tómasar.
Forsvarsmenn Sjónvarpsins hafa
svarað opinberlega að ekki komi til
greina að stofnunin leggi í aukinn
tilkostnað vegna keppninnar. Það er
þvi ljóst að landsbyggðarskólarnir
tíu verða ekki með í keppninni en
19 fulltrúar 10 framhaldsskóla, aðal1
lega af höfuðborgarsvæðinu, munu
taka þátt í keppninni.
göngin komi, lega vegarins hefur
ekki verið endanlega ákveðin, auk
þess sem hugsanlegt er að hægt verði
að gera á þessu lagfæringar fyrir
klúbbinn því að kylfmgarnir vilja
hafa völlinn eins og hann er,“ segir
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akra-
nesi.
um stofnum eru nú liðlega 20 ær í
hvorum af fjárstofni skólabúsins.
Krossvík á Akranesi:
Kaupir hús
Hafarnarins
„Við höfum verið meö vinnslu
í þessu húsi siðan Hafórninn varð
gjaldþrota. Það varð svo úr aö við
keyptum húsakostinn af þrotabú-
inu,“ segir Svanur Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Kross-
vikur hf. á Akranesi.
Krossvík hf. hefur rekið frysti-
hús Hafarnarins á Akranesi síð-
an í mars á síðasta ári. Þar starfa
um 100 manns og fyrirtækið gerir
út ísflsktogarann Höfðavik AK.
Svanur segir að velta fyrirtæk-
ísins hafi verið um 300 miUjónir
króna þá átta mánuði sem það
starfaði. Hami áætlar að hún geti
orðið um 500 milijónir á næsta
ári.
Samkvæmt heimildum DV
keypti Krossvík eignirnar á 70 tii
80 milljónir króna. Fyrirtækið
var rekið með hagnaðí á síðasta
ári. -rt
Selfoss:
Skreytingar
frábærar og
mikil verslun
Regina 'Drorarenaen, DV, Selfossi:
Selfossbúar áttu gleðileg jól og
áramót - aftt fór vel fram. Kirkju-
sókn var mjög mikil og veöur
gott. Það er mál mairna að bærinn
hafi aldrei verið jólalegri. Skreyt-
ingar frábærar í verslunum, á
götum úti og í gluggum íbúðar-
húsa svo og í görðum. Þá voru
Selfossbuar mjög ánægðir með
að hafa hvít jól og áramót.
Verslunareigendum ber saman
um að aldrei haíl verið verslað
meir en núfyrir jólin, hvort held-
ur var í mat- eöa gjafavörum.
Spumingakeppni framhaldsskóla:
Tíu skólar hætta
við þátttöku
Akranes:
Kylf ingar óánægð-
ir með nýjan veg
- hugsanlega tekið tillit til mótmæla þeirra