Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1995, Side 28
28
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1995
Ámi Sigfússon.
Skaupinu
var stýrtaf
kommum
...Skaupinu var náttúrlega
stýrt af leikstjóra sem er yfirlýst-
ur alþýðubandalagsmaöur í Mos-
fellsbæ og hefur það sem yfirlýst
markmið að koma íhaldinu frá.
Það segir sína sögu og er umhugs-
unarefni...“ segir Ámi Sigfús-
son í Alþýöublaðinu.
Tók ákvörðun of snemma
„Eftir á aö hyggja, þegar skipið
er komið öruggt í höfn, má
kannski segja að ég hafi tekið
ákvörðun of snemma um að yfir-
gefa það. Þegar ákvörðunin var
tekin fannst mér mikilvægt fyrir
fólkið að komast frá borði. Mér
fannst útilokað á þeirri stundu
að skipinu yrði bjargað," segir
Filip Bruins skipstjóri í DV.
Ummæli
Sáttafúsir eins og
Sameinuðu þjóðirnar
„Við erum svona eins og Samein-
uðu þjóðirnar, við erum tilbúnir
aö leita sátta ef með þarf,“ segir
Hrafnkell A. Jónsson, formaður
Verkalýðsfélagsins Árvakurs, í
DV.
Tíska að hrækja
„Hér í skólanum virðast ganga
ýmis „tískufyrirbæri" meðal
nemenda og skulu þau helst
nefnd: Mjög algengt er að nem-
endur hræki á ailt og alla. Þaö
er ekki óalgengt að hráki leki nið-
ur veggi, sé á stigahandriðum, á
gólfum, í vöskum og bókstaflega
út um allan skóla... “ segir Guð-
mundur Oddsson, skólastjóri
Þingholtsskóla.
Fátækt fólk á rétt
á sínum börnum
„... Hjá þeim eru ekki áfengis-
eða eiturlyfjavandamál. Það ætti
að vera yfirvöldum ihugunarefni
að það er bundið í lög að fátækt
eigi alls ekki að ráð því að börn
séu tekin af fólki.:. “ segir Pétur
Gunnlaugsson, formaður Fjöl-
skylduvemdar.
Gestalt-nám-
skeið kynnt
í kvöid verður haldinn kynn-
ingarfundur þar sem kynnt verð-
ur væntanlegt gestalt-námskeið
sem haldið verður 7.-8. janúar að
Sogavegi 108 og er kynningar-
fundurinn á sama stað. Það er
Daniei Á. Daníelsson sem heldur
námskeiðið.
Fundir
Breytingaskeið kvenna
Á vegum Sálfræðistöðvarinnar
verða haldnir fyrirlestrar um
breytingaskeið kvenna annað
kvöld, fimmtudaginn 5. janúar,
kl. 20 á Hótel Loftleiðum. Fyrir-
iestramir eru einkum ætlaðir
konum á aldrinum 40-50 ára.
Varpað verður ijósi á hvernig
þetta lífsskeið markar timamót í
ævi flestra kvenna.
Snjó- og slydduél
víða um land
I dag verður breytileg átt, gola eöa
kaldi og snjó- eða slydduél víða um
Veðrið í dag
land. í nótt verður hvöss austanátt á
landinu og slydda eða rigning suð-
austanlands og á Austfjörðum en
úrkomulítið annars staöar. Hiti
breytist lítið. Á höfuðborgarsvæðinu
verður norðaustankaldi og él fram
eftir degi. Vaxandi norðaustanátt og
skýjaö í kvöld. Allhvasst og dálítil él
í nótt. Hiti verður nálægt frostmarki.
Veðrið kl. 6 í morgun
Sólarlag í Reykjavík: 15.50
Sólarupprás á morgun: 11.14
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri snjóél -2
Akurnes slydduél 3
Bergstaðir snjókoma -3
Bolungarvík snjóél -3
Kefla víkurflugvöllur þoka 0
Kirkjubæjarklaustur alskýjaö 1
Raufarhöfn alskýjað -1
Reykjavík úrk. í grennd 1
Stórhöfði rigningog súld 2
Bergen skýjað 2
Helsinki snjókoma -3
Kaupmannahöfn heiðskírt -4
Stokkhólmur heiðskírt -6
Þórshöfn rigning 3
Amsterdam þokumóöa -2
Berlín léttskýjað -5
Feneyjar heiðskírt 2
Frankfurt heiðskírt -6
Glasgow alskýjaö 4
Hamborg hrímþoka -5
London skýjað 2
LosAngeles skýjað 12
Lúxemborg léttskýjaö -6
Mallorca léttskýjað -1
Montreal léttskýjað -4
New York alskýjað 1
Nice léttskýjað 1
Orlando alskýjaö 14
Kolbeinn Bjamason flautuleikari:
Sá frumflutning á verkinu
fyrir tuttugu árum
Flautukonsertinn eftir ' Atla
Heimi Sveinsson, sem ég ieik ein-
leik í, tel ég eitt merkilegasta tón-
verk eftir íslenskt tónskáld og
hlaut Atli Heimir tóniistarverð-
laun Norðurlandaráðs fyrir verkið.
Þegar verkið var flutt fyrst fyrir
tuttugu árum varö nánast spreng-
ing. Eg var á þessum tónleikum,
þá ungur drengur, og haföí þessi
konsert mikil áhrif á mig en þetta
Maðuj dagsins
er í fyrsta sinn sem ég flytkonsert-
inn," segir Kolbeinn Bjarnason
flautuieikari en hann leikur ásamt
Sinfóníuhijómsveit íslands kon-
sertinn á tónieikum annaö kvöld.
„Ég er eiginlega búinn aö bíða eftir
að fá tækifæri til að leika konsert-
inn frá því ég heyrði hann fyrst en
ég mun síðan flytja hann aftur á
tónlistarhátíö í Gautaborg í maí.“
Kolbeinn sagði að verkið hefði
verið samið með Robert Aitken í
huga en Manuela Wiesler hefði
Kolbeinn Bjarnason.
meðai annarra flutt það. „Verkið
er ekki það erfiðasta sem maður
lendir í en það sem gerir það erfitt
er að það þarf að spila á þrjár flaut-
ur til skiptis, piccolo-flautu, venju-
lega flautu og flautu að eigin vali.
Ég hef valið Shakuhachi-flautu sem
er ævafornt japanskt hljóðfæri. Ég
lærði á þessa flautu í eitt ár úti í
Bandarikjunum og hrifhing mín
var svo mikii aö ég séldi hér um
bil allar flautumar minar fyrir
þessa einu og það getur jafnvel enn
þá staðið til. Annars er ég nánast
byrjandi á þessa flautu en strangt
til tekið má maður ekki spila á
þessa flautu opinberlega fyrr en
eftir sjö ára nám.“
Kolbeinn er einn af stofendum
Caput-hópsins sem vakið hefur
veröskuldaða athygli og er nýkom-
inn úr ferðalagi um Evrópu: „Við
fórum í þriggja vikna ferð til allra
landa á Norðurlöndum og Ítalíu og
enduðum í Róm. Ferð þessi tókst
mjög vel og fram undan er meiri
spilamennska með Caput-hópnum,
meðal arrnars á Myrkum músík-
dögum. Áður en til þess kemur
mun ég leika á Akureyri í Kaffi-
kantötunni eftir Bach.
Kolbeinn er kvæntur Guðrúnu
Óskarsdóttur semballeikara og
eiga þau eina dóttur. Kolbeinn á
einn son fyrir. Kolbeinn sagði
áhugamál sin fyrir utan tónlistina
vera bókmenntir og skák: „Ég er
einnig farinn aö synda mikið í
Sundhöll Reykjavíkur eftir að ég
flutti 1 sömu götu.“
Myndgátan
,,yb£SS/ RErrvfí.
\ER EKKÍ Æ.riAÐUR
/UE/MUK!. "
4J>
T
L'J
IIII
Refsivöndur
EYÞ°R.-*-
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
ísland - Sví-
þjóð á Norður-
landamótinu
Landsliðið í handboita stendur
í ströngu um þessar mundir en
það tekur þátt í Noröurlandamót-
inu sem fram fer í Svíþjóö þessa
íþróttir
dagana. Liöið hefur leikið tvo
leiki. Þriðji leikurinn er í dag og
nú er röðin komín að Svíum en
stutt er síðan sænska landsiiðið
fór illa með það íslenska hér
heima og verður því róðurinn
erfiður. Bæði er að Svíar eru tví-
mælalaust með eitt sterkasta lið
heimsins í dag og svo leika þeir
á heimavelli. Leikurinn hefst kl.
18.45.
Það eru fleirí landslið ísiend-
inga á erlendri grundu. Knatt-
spyrnulandshðiö 16 ára og yngri
er á drengjamóti í ísrael og leikur
í dag við Möltu.
Skák
Helgi Áss Grétarsson er með fullt hús
vinninga að loknum fimm umferðum á
alþjóðlegu skákmóti i Gausdal í Noregi,
sem nú stendur yfir. Þátttakendur eru tíu
og tefla níu umferðir. Djurhuus, Noregi,
er í 2. sæti með 4 v., Gausel, Noregi, er í
3. sæti með 3,5 v.
í þessari stöðu úr 4. umferð hafði Helgi
Áss hvítt og átti leik gegn danska alþjóða-
meistaranum Bjarke Kristensen:
8
7
6
5
4
3
2
1
25. f7 + ! Kxf7 26. Hfl+ Kg8 27. Hxf8 + t
Hxf8 28. Dxc5 He8? 29. Rd5! Og svartur
gafst upp.
Jón L. Árnason
IV 1
Á A A
i * A
SS&
I
A A
S
ABCDEFGH
Bridge
Hér er varnarþraut fyrir austur og þeir
sem vilja spreyta sig á henni skoði fyrst
aðeins hendur norðurs og austurs. Suður
hefur sagnir á einum spaða, norður segir
eitt grand og suður stekkur þá í fjóra
spaða sem enda sagnir. Vestur spilar út
tígultvisti, þriðja eða fimmta hæsta spili,
sagnhafl setur litið spil og þú setur kóng-
inn en sagnhafi drottninguna. Þú tekur
nú við:
* G
» 9754
♦ G9642
+ K62
♦ 72
V KG63
♦ Á1075
+ 943
* 864
V ÁD108
♦ K3
+ D1087
♦ ÁKD10953
¥ 2
♦ D8
+ ÁG5
Það fyrsta sem austri dettur í hug er að
ráðast á laufið og þá lítur út fyrir að rétta
leiðin sé sú að spila lauftiunni. Það er
nauðsynlegt að fara þannig í litinn ef
sagnhafi á ÁGx eða KGx í litnum, því
þannig getur austur gert laufníuna í
blindum áhrifslausa. En spiliö er ekki
alveg svo einfalt. Sagnhafi á liklega 7
spaða fyrir stökki sínu og ef gert er ráð
fyrir að liturinn sé þéttur þarf sagnhafi
ekki nema 3 slagi til viðbótar til að standa
spilið. Að athuguðu máli sést að sagnhafi
á að öllum líkindum einn tígul til viðbót;
ar (tigultvisturinn sennilega 5ta hæsta
spil) og hefur þá sennilega hent drottn-
ingunni til að geta svínað tiunni. Ef suður
á laufásinn til viðbótar má alls ekki spila
laufi því sagnhafi drepur á ás, tekur spað-
ana og svínar tigultíunni. Til að koma í
veg fyrir það verður austur að spila tígh
aftur áður en sagnhafi getur tekið tromp-
in af vörninni og klippa þannig á sam-
ganginn við blindan.
ísak Örn Sigurðsson