Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1995, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1995
29
Kristbjörg Kjeld.
Kirsuberjagarðurinn
Mjög góö aðsókn hefur verið að
Kirsuberj argarðinum, sem leik-
húsið Frú Emilía sýnir að Selja-
vegi 2. Nánast hefur verið upp-
selt á allar sýningar en nú fer
þeim fækkandi, uppselt er á sýn-
inguna í kvöld en næstu sýningar
eru á morgun og laugardag.
Kirsuberjagarðurinn er síðasta
og líklega mikilvægasta leikrit
Antons Tsjekhovs. Þetta er gam-
anleikur sem nálgast jafnvel fars-
ann á köflum. Okkur birtist fynd-
Leikhús
ið fólk sem segir eitt og gerir ann-
að, fólk sem reynir að róa sjálft
sig með því að tala við náungann
um veikindi sín, um gamla daga
og fjarlæg lönd og þráast við að
opna augu sín fyrir sannleikan-
um.
Kristbjörg Kjeld leikur aðal-
hlutverk leikritsins, frú
Ranevskaju. Margir aðrir leikar-
ar taka þátt í verkinu og má þar
nefna Eddu Heiörún Backman,
Þröst Guðbjartsson, Ingvar E.
Sigurðsson, Jónu Guðrúnu Jóns-
dóttur, Eggert Þorleifsson, Helgu
Brögu Jónsdóttur og Árna
Tryggvason. Leikstjóri er Guðjón
Pedersen, Hafliði Arngrímsson
er dramaturg og leikmynd er eft-
ir Gretar Reynisson.
Stærstu risaeðlurnar virðast
hafa vegið nálægt 100 tonnum.
Risaeðlur í mörg-
um stæröum
Árið 1824 var fyrstu fomeðl-
unni lýst á vísindalegan hátt. Var
hún nefnd Megalosaurus buck-
landi. Verkamenn höfðu fundiö
leifar þessarar tvífættu kjötætu í
flögubergsnámu í Oxfordhéraði á
Englandi árið 1818. Var leifum
þessum komið fyrir á háskóla-
bókasafninu í Oxford. Heitið
dinosaurus var hins vegar ekki
gefið þessum risum fornaldar
fyrr en 1841.
Blessuð veröldin
Þyngd risaeðlanna
Stærstu risaeðlur sem vitað er
um virðast hafa vegið frá 50 upp
í 100 tonn, en ekki þarf það að
vera nein vísbending um hugsan-
leg þyngdarmörk landhryggdýra.
Fræðilegir útreikningar benda til
þess að þessar risaeðlur hafi
nálgast hámarkslíkamsþyngd
landdýra, það er 120 lestir. Ef lík-
amsþungi hefði farið fram yfir
það hefðu fætur þurft aö vera svo
efnismiklir til að bera þennan
þunga að eðlan hefði ekki getað
hreyft sig úr stað.
Stærsta risaeðlan
Stærstu landhryggdýr allra tíma
voru armeðlumar (Brachio-
sauridae) sem lifðu í Afríku og
Norður-Ameríku og kjöguðu um
lönd fyrir 150 milljónum ára.
Áður var áætlað að þyngd þeirra
væri 180 tonn en slíkt þykir í dag
útilokað. Nú er ætlaö að Brachio-
sauridae hafi vegið 40 til 80 tonn
en einstaka dýr verið þyngri.
Vegir færir en
hálka og snjór víða
Vegir em víðast hvar færir á land-
inu en hálka er nánast alls staðar og
snjór á mörgum vegum. Á leiðinni
Reykjavík - Akureyri er skafrenn-
ingur á leiðunum um Langadal,
Vatnsskarð, Öxnadalsheiði og
Færðávegum
Öxnadal. Verið er að moka Stein-
grímsfjarðarheiði og er búist viö að
hún opnist á hádegi. Á leiðinni Akur-
eyri - Egilsstaðir - Vopnafjörður er
skafrenningur í Víkurskarði og snjór
á vegum á Fljótsheiði, í Köldukinn
og Tjörn - Laugar. Á Vestfjörðum er
víöa snjór á vegum og ófært á Dynj-
andisheiði og Hrafnseyrarheiði.
® © •
O 13
Astandvega® , v
o
ePso0
v _ [3 13
[3
ö
B 13
EJ gj “
■
m
m
O'j
12 o
m u m
J3J* B
B
m /
m
j
13 -
W
(3 Hálka og snjór ® Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
GjSS”"*" m Þ“"«ær' ® Fært fjallabílum
Myndarlegi drengurinn á mynd-
inni fæddist á Fæöingardeild
Landspítalans 21. desember kl.
18.30. Hann reyndist vera 3.200
grömm að þyngd og 49 sentímetra
langur. Foreldrar hans eru Rut
Ingólfsdóttir og Þorgeir Jón Sig-
urðsson og er hann fyrsta barn
þeirra.
Lifsglaðar konur í Belle Epoque.
Fjórar systur og
liöhlaupi
Belle Epoque, sem Háskólabíó
sýnir um þessar mundir, hlaut
óskarsverðlaun sem besta er-
lenda kvikmyndin í vor. Belle
Epoque gerist á Spáni árið 1931.
Hinn ungi Fernando hefur gerst
liðhlaupi úr hernum. Á flóttanum
hafa tveir lögreglumenn hendur
í hári hans en rifrildi milh þeirra
um hvort sleppa eigi unga mann-
inum verður til þess að annar
skýtur hinn og fremur síðan
sjálfsmorð. Fernando leitar skjóls
í nærUggjandi þorpi hjá málaran-
um og húmoristanum Manolo
sem tekur hinn unga liðhlaupa
Kvikmyndahúsin
upp á sína arma. Þegar dætur
Manolo eru væntanlegar í heim-
sókn frá Madrid óskar hann eftir
því við Fernando að hann yfir-
gæfi svæðið enda eru dæturnar
fjórar hver annarri fallegri og
Manolo veit hvað gerast muni ef
Femando dvelur undir sama þaki
og þær...
Belle Epoque þykir búa yfir
gáska Cervantes og svörtum hú-
mor Luis Bunuel en leikstjórinn
Fernando Trueba er einn fremsti
leikstjóri Spánar í dag.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Þrír litir: Rauður
Laugarásbíó: Skógarlíf
Saga-bíó: Junior
Bíóhöllin: Konungur ljónanna
Stjörnubíó: Aðeins þú
Bíóborgin: Viðtal við vampíruna
Regnboginn: Stjörnuhlið
Gengið
Almenn gengisskráning LÍ nr. 2.
04. janúar 1995 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 68,560 68.760 69,250
Pund 107,000 107,320 107,010
Kan. dollar 48,780 48.970 49,380 ,
Dönsk kr. 11,1870 11,2310 11,2020
Norsk kr. 10,0680 10,1080 10,0620
Sænsk kr. 9,1980 9,2350 9,2310
Fi. mark 14,4210 14,4790 14,4950
Fra. franki 12,7380 12,7890 12,7220
Belg. franki 2,1356 2,1442 2,1384
Sviss. franki 51,9900 52,2000 52.0400
Holl. gyllini 39,1800 39,3400 39,2400
Þýsktmark 43.9100 44,0500 43,9000
It. líra 0,04214 0.04236 0,04220
Aust. sch. 6,2350 6,2660 6,2470
Port. escudo 0.4277 0,4299 0,4278
Spá. peseti 0,5179 0,5205 0,5196
Jap. yen 0,67760 0,67970 0,68960
Irsktpund 105,630 106,160 105.780
SDR 99.44000 99,94000 100,39000
ECU 83,5700 • 83,9000
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Krossgátan
T~ T~ r~ r~ r-
Jdi i\ l!i
/5
k 1
lá> J V" iV
/4 1 JT
Lárétt: 1 einfaldur, 5 óróleg, 8 alltaf, 9
stautar, 10 ílát, 12 róta, 14 gruni, 15 ein- *
kenni, 17 verri, 19 viðvíkjandi, 20 flýtir,
21 heiður.
Lóðrétt: 1 ágætast, 2 farfi, 3 fljótið, 4
manns, 5 hélt, 6 eining, 7 ferð, 11 nuddi,
13 grein, 14 mynni, 16 léleg, 18 klaki.
Lausn ó síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 huglaus, 8 örlátri, 9 stó, 10 gögn,
12 tæpast, 15 utar, 17 krá, 19 gumar, 21
úr, 22 friðaöi.
Lóðrétt: 1 höstug, 2 urt, 3 glóp, 4 lágar, ,
5 at, 6 urg, 7 sinn, 11 öskra, 13 ætur, 14
trúð, 16 ami, 18 ári.