Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1995, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1995
Fréttir
Sala hlutabréfa Akureyrarbæjar í Útgerðarfélagi Akureyringa:
Getur sprengt meiri-
hlutasamstarfið
- háværar raddir uppi um að greiða þurfi yfirverð fyrir hlutabréfin
Unnið af kappi við að landa fiski úr einum togara Útgerðarfélags Akur-
eyringa. DV-mynd GK
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Málið er þess eðlis 'að það getur
hæglega fellt meirihluta Framsókn-
arflokks og Alþýðuflokks í bæjar-
stjórn. Leiði niðurstöður þeirrar
skoðunar á hagkvæmni sölunnar,
sem nú er að hefjast, til þess að við
framsóknarmenn viljum selja hluta-
bréfin en bæjarfulltrúi krata ekki,
þá getur sú staða komið upp að salan
eigi sér stað með stuðningi sjálfstæð-
ismanna. Það þýddi að meirihlutinn
í bæjarstjórn væri sprunginn," segir
einn af forsvarsmönnum framsókn-
armanna á Akureyri um þá stöðu
sem upp er komin vegna hugsanlegr-
ar sölu á hlutabréfum bæjarins í Ut-
gerðarfélagi Akureyringa hf.
Gísli Bragi Hjartarson, bæjarfull-
trúi Alþýðuflokksins, vildi ekkert
láta hafa eftir sér um málið í gær.
Hann hefur til þessa sagt að það hafi
ekki verið á stefnuskrá flokksins að
seija hlutabréf bæjarins í ÚA og sú
afstaða hafi ekki breyst. Gísli Bragi
hefur hins vegar fengið umboð
flokksmanna sinna til að taka áfram
þátt í viðræðum um söluna, en að
þeim loknum verður staðan metin
upp á nýtt.
í umræðunni til þessa hefur verið
rætt um að selji bærinn 53% meiri-
hluta sinn í ÚA þurfi að greiða fyrir
hann um 1 milljarð króna, það er
gangverð bréfanna, en nafnverð
þeirra er ríflega 300 milljónir króna.
„Mér finnst það fáránlegt að það eigi
að selja meirihlutann í fyrirtækinu á
gangverði bréfanna, það er út í hött,
og nær væri að greitt yrði fyrir þau
1,5 miðað við gangverð sem þýddi að
talan 1,5 milljarðar væri nær lagi,“
sagði einn viðmælandi DV um málið
í gær.
Flokkarnir fjórir sem eiga fulltrúa
í bæjarstjórn Akureyrar eru nú að
skipa fulltrúa sína í viðræðunefnd
við þá aðila sem sýnt hafa áhuga á
kaupunum, en það eru KEA og Sam-
herji, og fulltrúar Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna hafa einnig óskað
eftir að koma að þeim viðræðum. Þá
mun á vegum bæjarsins fara fram
skoðun á áhrifum þess að flytja við-
skipti ÚA frá Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna til íslenskra sjávarafurða
hf. en það er innifalið í tilboði KEA
að ÍS flytji höfuðstöðvar sínar til
Akureyrar og fái viðskiptin við ÚA
sem SH hefur haft til þessa.
Það var mesta mildi að engin slys urðu á fólki þegar 40 feta gámur valt á hliðina í miðbæ Stykkishólms í síðustu
viku. Veriö var að færa gáminn en hann hafði verið fylltur með búslóð, m.a. 5 millj. króna flygli sem er 300 kg
að þyngd. Lögreglan kom strax á staðinn og lokaði götunni meðan kranabíll rétti gáminn af. Gámurinn var á leið
til Vestmannaeyja og verður opnaður þar. DV-mynd Arnheiður Ólafsdóttir, Stykkishólmi
Steingrímur Njálsson í flögurra vikna gæsluvarðhald:
Kuldagalli kæranda f annst
heima hjá Steingrími
Stuttar fréttir
Hættvidverðhruni
Vinnslustöðvum með búnaö til
loðnu- og hrognafrystingar flölg-
aði um helming á síðasta ári.
Skv. Sjónvarpinu gæti aukningin
leitt til verðhruns.
Mjólkekkiafgreidd
Verslunarfélag Raufarhafnar
hefur ekki fengið afgreidda mjólk
frá því fyrir áramót vegna skuld-
ar við Mjólkursamlagið á Húsa-
vík. RÚV greindi frá þessu.
Hjartastuð heimilað
Sjúkraflutningamenn fá í lok
vikunnar að gefa hjartasjúkling-
um hjartastuð en hingaö til hafa
læknar einungis mátt fram-
kvæma þessa aðgerð. Morgun-
blaðið greindi frá þessu.
Skortur á konum
íbúum Austurlands fækkaöi
um 114 á síðasta ári. Skv. Alþýðu-
blaðinu er skortur á konum í
landshlutanum. Karlkyns íbúar
eru eru 585 umfram konur.
Myndlistarskóla lokað
Myndlistarskóla Hafnarfjarðar
hefur verið lokað vegna fjár-
skorts. Sjónvarpiö greindi frá.
Matálánshæfni
Lánshæfni ríkissjóðs er góð að
mati bandaríska matsfyrirtækis-
ins Moody’s Investor Service.
Mbl. greindi frá þessu.
Bjór bætir umferðina
Dregið hefur úr umlerðarslys-
um eftir tilkomu bjórs hér á landi.
Þetta kemur fram i nýlegri
skýrslu sem unnin var fyrir
Landspitalann. Mbi. skýrði frá.
Úðakerfi í lagi
Slökkviliðsstjórinn í Reykjavík
segir að nýleg skýrsla fyrir
Brunamálastofnun gefi alranga
mynd af ástandi úðakerfa á Is-
landi. Almennt sé ástandiö gott.
Sjónvarpiðgreindífrá. -kaa
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
úrskurðað Steingrím Njálsson,
dæmdan kynferðisafbrotamann, í
gæsluvarðhald til fjögurra vikna.
Steingrímur var handtekinn á fóstu-
dagskvöld eftir að móðir þroskahefts
manns kærði hann fyrir að gera til-
raun til að misnota son hennar kyn-
ferðislega.
Samkvæmt upplýsingum DV fór
maðurinn í leigubú með Steingrími
að heimili þess síðarnefnda. Þar mun
Steingrímur hafa leitað á manninn
kynferðislega og haldið honum þar
nauðugum í nokkrar klukkustundir
áöur en honum tókst að forða sér út.
Vegfarandi tók hann upp í bíl sinn
stuttu síðar og í kjölfarið kærði móð-
irin atburðinn. Lögregla fór á heim-
ili Steingríms og fann þar kulda-
samfesting sem maðurinn átti og
handtók Steingrím í kjölfarið. Mál-
inu var strax vísað til Rannsóknar-
lögreglu ríkisins.
Síðastliðið vor var Steingrímur
dæmdur í þriggja mánaða fangelsi
fyrir ölvunarakstur og páskaeggja-
stuld. Þeim dómi var áfrýjað til
Hæstaréttar og hefur enn ekki verið
kveðinn upp dómur í því máli. í okt-
óber var hann hins vegar sýknaður
í héraðsdómi af að hafa rifið svo
harkalega í pung manns að af hlaust
7 sentímetra langur skurður. Stein-
grímur sat í 34 daga gæsluvarðhaldi
vegna þess máls og komst héraðs-
dómur að þeirri niðurstöðu aö sú
refsing væri nægileg. Þótt ekki væri
sannað að Steingrímur væri valdur
að áverkum á kynfærum mannsins
þótti ljóst að Steingrímur væri vald-
ur að áverkum á hálsi hans og höfði.
Af þessu er ljóst að Steingrímur á
enga óafplánaða dóma hjá Fangelsis-
málastofnun.
aðmynda
meirihluta
„Niðurstaða fundarins var sú
að meírihluti Sjálfstæðisflokks og
Alþýðubandalags er fallinn. Eins
og málin líta út núna er það
skylda okkar kratanna, sem
stærsta flokksins i Hafnarfirði,
að standa að meirihluta og fara í
viðræður við aðila í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar um meirihluta-
samstarf. Við vorum á fundi meö
Jóhanni Gunnari Bergþórssyni í
gær. Við fengum heimild til að
halda áfram viðræðum við Jó-
hann Gunnar," segir Ingvar Vikt-
orsson, oddviti Alþýðuflokksins í
Hafnarfirði.
Ingvar Viktorsson og Tryggvi
Harðarson, bæjarfulltrúar Al-
þýðuflokksins í Hafnarfirði, áttu
viðræður við Jóhann G. Berg-
þórsson, bæjarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins, í gær um myndun
nýs meirihluta í bænum. Bæjar-
stjórnarfundi síðdegis í dag verð-
ur að öllum líkindum frestað og
viðræðum Jóhaims G. Bergþórs-
sonar og alþýðuflokksmanna
haldið áfram. Búist er við að
samningaviðræðumar taki
nokkra daga.
„Embætti bæjarverkfræðings
hefur ekki verið uppi á borðinu
í viðræðum við Jóhann. Það er
útilokað að takist að mynda
meirihluta fyrir bæjarstjórnar-
fundinn í dag. Það er líklegra að
það verði af meirihluta þessara
aðila en ekki. Það er ekki starf-
hæfur meirihluti í Hafnarfirði í
dag. Ef Jóhann Gunnar Berg-
þórsson treystir sér ekki til að
vinna með Sjálfstæðisflokknum
er enginn möguieiki á meirihluta
nema Alþýðuflokkurinn komi
þar inn,“ segir Ingvar.
Jóhann G. Bergþórsson:
Vil ópólitískan
bæjarstjóra
„Það er ekki búiö að ræða um
formið á þessu. Þaö er ljóst að
mín viðhorf eru þau að það skuli
ráðinn ópólitískur bæjarstjóri.
Þaö kemur ekki til greina af
minni hálfu að Guðmundur Árni
Stefánsson verði bæjarstjóri,“
segir Jóhann G. Bergþórsson,
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, um nýjan bæjarstjóra í Hafn-
arflrði.
„Mér var á sínum tíma boðið
bæjarverkfræðingsembættið. Ég
hef aldrei haft sérstakan áhuga á
embættinu en ég vildi að það yrði
staðið viö gerðan samning. Ég
sótti um bæjarverkfræðings-
starfið í samráði við Sjálfstæðis-
flokkínn. Ég hef engan áhuga á
því að verða bæjarverkfræðing-
ur. Þegar menn eru ekki tilbúnir
að standa viö gerða samninga
beita þeir þvingunum og hóta að
birta skýrslur. Þeir mega birta
allar skýrslm* sem þeir vilja min
vegna,“ segir hann.
Stíf f undahöld
Sveitarstjórnarmenn í Hafnar-
firði funduðu ákaft í gær til að
búa sig undir umræður um fjár-
hagsáætlun meirihluta Sjálfstæð-
isflokks og Alþýðubandalags á
aukafundi í bæjarstjórn í dag,
í herbúðum sjálfstæðismanna
og alþýðubandalagsmanna var
gengið út frá því sern vísu að
fundurinn yrði haldinn og hittust
Magnús Jón Árnason bæjarstjóri
og Magnús Gunnarsson, formaö-
ur bæjarráðs, til að bera saman
bækur sínar í gærkvöld.
Þá funduðu alþýðuflokksmenn
um fjárhagsáætlunina í gær-
kvöld. Búist er við að kratarnir
leggi fram tillögu um að bæjar-
stjórnarfundi í dag verði frestaö.