Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1995, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1995, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1995 fþróttir unglinga Unglingameistaramót TBR í badminton: Dríf a og Tryggvi styrkja mjög unglingalandsliðið Unglingameistaramót TBR í bad- minton fór fram í húsakynnum fé- lagsins viö Gnoöarvog um síöustu helgi. Ljóst er að um miklar framfar- ir er að ræða hjá yngra fólkinu. Þátt- takendur voru frá TBR, Víkingi, KR, UMSB, UMFK, BH, Hamri og HSK. Unglingalandsliðið fær góðan styrk Vigdís Ásgeirsdóttir, TBR, 17 ára, og æflr með unglingalandsliðinu. Hún sigraði Birni Guðbjartsdóttur, ÍA, ótrúlega létt í undankeppni í einliða- leik stúlkna: „Þessi leikur gegn Birnu var ekki góður, - lítið um erfiða bolta hjá okk- ur báðum. Svona er þetta bara stund- um. Jú, unglingalandsliöið tekur þátt í Evrópumótinu í apríl og fer það fram í Slóvakíu. Liðið hefur fengið góðan liðsstyrk þar sem Drífa Harðardóttir, ÍA, hefur bæst í hópinn, en hún hefur dvalið í Danmörku í um 4 ár og spil- að mikið badminton. Svo mætir Tryggvi Nielsen mjög sterkur til leiks svo ég held að unglingalandslið- ið eigi að geta staðið sig nokkuð vel. Hjá mér er allt á uppleið og er ég mjög ánægð meö frammistöðu mína í keppni meistaraflokks þar sem ég hef unnið eitt mót og lent í 2. sæti tvisvar. Ék kvarta ekki,“ sagði Vig- dís Ásgeirsdóttir. Hún var barabetri Birna Guðbjartsdóttir, ÍA, var óhress með úrslitin í leiknum gegn Vigdísi: „Vigdís var einfaldlega betri en ég í þessum leik. Annars fannst mér boltarnir mjög gallaðir og skemmdi það töluvert fyrir okkur. En það var fleira sem var ekki í lagi því það gekk ekkert upp hjá mér. Ég æfði með minna móti yfir jólin og það er nátt- úrlega ekki nógu gott. En þaö verður að segjast eins og er að í dag átti ég enga möguleika gegn Vigdísi. Eg skipa ungalandsliöshópinn, u-18 ára - en í raun á ég að vera í u-16 Vigdis Ásgeirsdóttir, TBR, stóð sig með miklum ágætum á unglingameistaramóti TBR og sigraði þrefalt í stúlkna- flokki. DV-myndir Hson ára liöinu, en fjárskortur er mikill hjá sambandinu svo það lið er ekki á dagskrá, því miður. Jú ég spila í meistaraflokki líka og hefur mér gengið þokkalega," sagði Birna. Erfitt að ganga upp um flokk Sveinn Sölvason, TBR, 16 ára, tapaði tveimur úrslitaleikjum á unglinga- meistaramótinu: „Ég er búinn að æfa nokkuð vel að undanförnu og finnst mér ég hafa tekið miklum framförum frá því í Umsjón Halldór Halldórsson fyrra, sérstaklega hvað styrkinn varðar. Ég spila núna í piltaflokki Jónas Huang, þjálfari TBR og ungl- ingalandsliðsins, u-18 ára. og er í u-18 ára landsliðshópnum. Mér finnst sannast sagna mjög erfitt að ganga úr drengjaflokki og upp í piltaflokk. Þar er miklu meiri barátta um sæti - en að sjálfsögðu verður maður betri spilari á því að mæta sterkari andstæðingum og finnst mér þetta ágætt. Ég byrjaði að æfa badminton þegar ég var 9 ára og æfi 5-6 sinnum í viku. Erfiöustu andstæðingar mínir eru núna þeir Haraldur Guðmundsson og Orri Örn Árnason, báðir í TBR. Ég hef unnið þá báða - svo þetta er í besta lagi,“ sagði Sveinn. Góðir krakka hjá TBR Þjálfari TBR og unglingalandsliðs- ins, Jónas Huang, er fæddur í Kína en hefur öðlast, ásamt konu sinni, íslenskan ríkisborgararétt: „Mér finnst krakkamir hjá TBR mjög góðir og á TBR 9 spilara sem fylla unglingalandsliðshópinn og 4 eru frá Akranesi. Þaö á eftir að velja liðið sem fer á Evrópumótið í Slóvak- íu. Eins og ég sagði er hópurinn mjög góður,“ sagöi Jónas - en vildi ekki úttala sig um væntanlega frammi- stöðu á Evrópumótinu. Birna Guðbjartsdóttir, ÍA, sýnir hér góða takta í leiknum sem hún tapaði Tvær efnilegar í badminton, til vinstri, Rakel Ström, 11 ára, og Tinna Gunn- þó gegn Vigdísi Ásgeirsdóttir, TBR. arsdóttir, TBR, einnig 11 ára. Þær höfnuðu í 3. sæti í tvíliðaleik táta. Badminton unglinga: Úrslitá meistaramóti TBR Úrslitaleikjunum á unglinga- meistaramóti TBR, í hinum ýmsu flokkum, lauk sem hér segir. Hnokkar/tátur, 12 ára og yngri: Einliðaleikur: Óli Þ. Birgisson, UMSB, vann Guðlaug Axelsson, UMSB, 11-6, 11-8. - Ragna Ing- ólfsdóttír, TBR, sigraði Bryndísi Sighvatsdöttur, BH, 11-7,11-9. Tvíiiðaleikur: Óli Þ. Birgisson og Guðiaugur Axelsson, UMSB, unnu Baldur Gunnarsson og Óla P. Ólason, Víkingi, 15-3, 14-17, 15-5. - Ragna Ingólfsdóttir og Hrafnhildur Ásgeirsdóttir, TBR, unnu Láru Hannesdóttur og Hail- dóru Elínu Jóhannsdóttur, 15-12, 15-6. Tvenndarleikur: Guðlaugur Axelsson, UMSB og Bryndis Sig- hvatsdóttir, BH, unnu Baldur Gunnarsson og Tinnu Helgadótt- ur, Víkingi, 18-13, 12-15, 15-10. Sveinar/meyjar, 12 14 ára: Einliðaleikur: Pálmi Hlöðvers- son, BH, vann Helga Jóhannes- son, TBR, 11-10,11-9. - Sara Jóns- dóttir, TBR, vann Oddný Hró- bjartsdóttur, TBR, 11-8,11-8. Tviliðaleilíur: Björn Oddsson og Pálmi Hannesson, BH, unnu Helga Jóhannesson og Birgi Har- aldsson, TBR, 18-17,15-7. - Katr- ín Atladóttir og Aldís Pálsdóttir, TBR, unnu Elísu Viðarsdóttur og Þóru Helgadóttur, BH, 15-5,15-4. Tvenndarleikur: Helgi Jóhann- esson og Katrín Atladóttir, TBR, unnu Pálma Hlöðversson og Elsu Viðarsdóttur, 15-11, 15-8. Drengir/telpur, 14-16 ára: Einliðaleikur: Magnús Helgason, Vikingi, vann Pálma Sigurðsson, Vfkingi, 15-9,15-7. - Anna L. Sig- urðardóttir, TBR, vann Katrínu Atiadóttur, TBR, 11-3,7-11,11-3. Tvíliðaleikur: Emil Sigurðssqn, UMSB, og Bjami Hannesson, ÍA, unnu Magnús Helgason ogPálma Sigurðsson, Víkingi, 7-15, 15-11, 15-11. Piltar/stúlkur, 16-18 ára: Haraldur Guðmundsson, TBR, vann Svein Sölvason, TBR, 15-6, 15-12. - Vigdís Ásgeirsdóttir, TBR, sigraði Brynju Pétursdótt- ur, ÍA, 11-7, 11-1. Tvíliðaleikur: Haraldur Guð- mundsson og Orri Árnason, TBR, unnu Svein Sölvason og Björn Jlónsson, TBR, 15-6,15-8. - Vigdís Ásgeirsdóttir og Margrét Dan Þórisdóttir, TBR, unnu Brynju Pétursdóttir og Birnu Guðbjarts- dóttur, ÍA, 15-8, 11-15, 15-5. Tvenndarleikur: Haraldur Guðmundsson og Vigdis Ásgeirs- dóttir, TBR, unnu Orra Árnason og Margréti Þórisdóttur, TBR, 15-A, 15-4. Sveinn Sölvason, TBR, 16 ára, er mikið efni. Hann spilaði tvo úrslitaleiki i piltaflokki, en tapaði báðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.