Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1995, Side 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1995
Neytendur
Aðalvertíðin að hefjasthjá líkamsræktarstöðvunum:
Munar allt að 40% á
3ja mánaða kortum
- minni verðmunur á mánaðarkortum, eða 28%
„Það er alveg ótrúlegur fjöldi fólks
sem þyrpist alltaf inn á líkamsrækt-
arstöðvarnar eftir jól og áramót. Það
er eins og áramótaheitið sé það sama
hjá öllum," sagði einn viðmælandi
blaðsins í samtali við blaðamann í
gær. Hann bætti því þó við að fæstir
entust út mánuðinn þrátt fyrir fógur
fyrirheit. Nú er aðalvertíð líkams-
ræktarstöðvanna að hefjast enda
flestir orðnir þreyttir á kyrrsetu og
áti yftr hátíðarnar þó þær hafi verið
með stysta móti i ár.
Af því tilefni, og í tilefni heilsuviku
DV, fór neytendasíðan á stúfana og
geröi verðkönnun hjá líkamsræktar-
stöðvunum í gær, annars vegar á
mánaðarkortum og hins vegar á
þriggja mánaða kortum. Athugað
var verð hjá Líkamsræktinni Kjör-
garði, Hress í Hafnarfirði, Sóknar-
salnum í Skipholti, Aerobic Sport,
Dansstúdíói Sóleyjar, Jassballett-
skóla Báru, Gym 80, Júdó Gym,
Mætti, Stúdíó Agústu og Hrafns og
hjá World Class. Við fengum ekki
uppgefið verð á þriggja mánaða kort-
um hjá World Class á þeirri forsendu
14000 kr.
12000
10000 *
8.800
8000
6000
4000
2000
3ja mánaða kort
** 10.600
9.990
10.950
* /
11.400 1L400 :
* eingöngu tækjasalur *** hægt aö fara í tæki þegar
** eingöngu þolfimi/leikfimi ekki er tími í tækjasal
nv
3500
3000
***
Mánaðarkort
* .*
** ** 4.1
** 4.500 4.500 4.500
4.290 4.300
2500
2000
1500
100i
500
0
H
o! -8
4000
3.900
5000 kr.
4500 ±
Ný lög um fjöleignarhús og húsaleigu:
Sérfræðingar svara
spumingum lesenda
Ný lög tim fjöleignarhús og húsa-
leigu tóku gildi um áramótin. Þar
sem lögin koma víða við og snerta
allmarga hefur neytendasíða DV, í
samvinnu við Húseigendafélagið,
ákveðið að bjóða lesendum blaðsins
að hringja eða póstsenda inn fyrir-
spumir í þessu sambandi og fá svör
við þeim birt í blaðinu á föstudögum.
Það eru þau Sigurður Helgi Guð-
jónsson, hæstaréttarlögmaöur og
höfundur laganna, og Guðrún Agnes
Þorsteinsdóttir lögfræðingur sem
svara spurningunum en fólk er beðið
að hringja þær inn á símsvara í síma
99 1500 og velja 2 fyrir neytendur.
Mikilvægt er að spumingamar séu
stuttar og hnitmiðaöar og haflð í
huga að símtalið kostar 39,90 kr. á
mínútuna. Einnig má senda okkur
bréf á heimilisfangið: Spurt og svar-
að, Neytendasíða DV, Þverholti 11,
105 Reykjavík. Notið nú endilega
tækifærið!
CQUPM.El
Það er aldrei meira að gera á líkamsræktarstöðvunum en rétt eftir jól og
áramót. Einn viðmælandi blaðsins taldi engu líkara en að áramótaheitið
væri það sama hjá öllum. DV-mynd ÞÖK
að ekki væri tekið tillit til mismun-
andi aöstöðu og þjónustu í verðkönn-
uninni. Við birtum því einungis verð
á mánaðarkortum hjá þeim.
Aðstaðan er misjöfn
Hafa ber í huga að aðstaðan er
mjög misjöfn á milli staða, svo og
tækjabúnaður og þjónusta. Það er
engin leið að leggja mat á slíkt í verð-
könnun sem þessari þó það hafi að
öllum líkindum áhrif á kortaverðið.
Þetta verða neytendur að hafa til
hliðsjónar þegar horft er á verðin.
Flestir staðanna sem haft var sam-
band við bjóða bæði upp á leik-
fimi/þolfimi og tækjasal en þeir sem
einungis bjóða annaðhvort eru
merktir þannig sérstaklega í grafinu
hér á síðunni.
Hagstætt að kaupa 3 mánuði
Allt að 28% verðmunur getur verið
á hæsta og lægsta verði á mánaðar-
kortum en Kjörgarður bauö upp á
ódýrasta kortið á 3.900 kr. en World
Class og Stúdíó Ágústu og Hrafns
voru með þau dýrustu á 4.990 kr.
Töluvert meiri verðmunur er á
þriggja mánaða kortum, eða 40%.
Það ódýrasta var í Kjörgarði á 8.800
kr. en það dýrasta í Stúdíói Ágústu
og Hrafns á 12.300 kr.
Allir passa staðirnir upp á að
þriggja mánaða kortin séu mun hag-
stæðari kaup en mánaðarkortin, þ.e.
ef þú kaupir þrjá mánuði í einu er
hver mánuður töluvert ódýrari en
ef þú kaupir þrjú stök mánaðarkort.
Sparnaðurinn er þó mismikill, mest-
ur hjá Mætti, eða 3.300 krónur, en
minnstur hjá JSB, eða 1.500 krónur.
Algengur afsláttur var á bilinu
2-3.000 krónur.
Það borgar sig vissulega ekki aö
byrja á því að kaupa 3ja mánaða
kort þegar fólk er að byrja í líkams-
rækt og jafnvel á nýjum stað. Ef þér
líkar ekki staöurinn, eða þú endist
ekki út mánuðinn, er „sparnaöur-
inn“ ekki lengur fyrir hendi.
Tillaga að heilsumatseðli:
Hollt og bragðgott
Það er vel hægt að útbúa girni-
legan ’matseðil sem jafnframt er
hollur og án mikillar fitu. Hér birt-
um við uppskriftir að forrétti, aðal-
rétti og eftirrétti fyrir fjóra sem
hafa að geyma fáar hitaeiningar.
Njótið vel!
Bakaðir sveppir
500 g sveppir
1 laukur, fínt saxaður
'A knippi steinselja (1-2 msk.
þurrkuð)
1 tsk. smjör
1 tsk. tarragon
1-2 msk. vatn
1 ms.k sítrónusafi
75 g rifinn ostur (11%)
Steikið sveppina heila í smjörinu
ásamt lauknum þar til vökvinn
hefur soðið niður. Blandið stein-
seljunni saman við og setjið í ofn-
fast fat. Dreypið vatni og sítrónu-
safa yfir og stráið tarragoni og osti
á. Bakiö í 8-10 min. við 250° eða þar
til osturinn hefur tekið lit. (Einn
skammtur 100 he.)
Lambalærissneiðar í potti
4 lærissneiðar
5 gulrætur
2 rófur
800 g hvítkál
2 tsk. þurrkaður kjötkraftur
(boullion)
krydd (t.d. pipar og paprika)
Setjið kjötið í pott og kryddið.
Hreinsið grænmetið og skerið í
bita. Setjiö grænmetið í pottinn,
ofan á kjötið, og stráið kjötkrafti
yfir. Setjið þétt lok á pottinn og
setjið á hæsta straum í nokkrar
mín. Lækkið síðan strauminn og
látið malla í 45 mín. Soðið er notað
sem sósa, ójafnað. Borið fram með
soðnum kartöflum. (Einn skammt-
ur 258 he.)
Jógúrtábætir
2 dósir jógúrt án ávaxta
2 eggjarauður
2 msk. gervisykur
1 epli
2 kiwi
100 g jarðarber (frosin eða ný)
Þeytið eggjarauöur og sykur vel
saman og bætið jógúrtinni út í.
Skerið eplið í bita og kiwi í tvennt.
Skiptið ávöxtunum í skálar og hell-
ið jógúrtblöndunni yfir. Geymt í
ísskáp þar til borið er fram. (Einn
skammtur 162 he.)
Kakomalt og heift súkkuiaði frá
Trompvörum.
Heitt og
kalt kakó
Heitt og kalt kakó er aUtaf jafn
vinsælt á meðal yngri kynslóðar-
innar og jafnvel einnig þeirrar
eldri. Fyrirtækiö Trompvörur hf.
hefur hafið sölu á nýrri gerð af
kakömalti og heitu súkkulaði
undir nafninu ískvikk. Kakó-
maltið er ætlað í kalda mjólk en
heita súkkulaðinu er blandað í
heitt vatn. Duftið er í 600 og 700
gramma umbúðum sem henta vel
til geymslu. Þetta er ágætis viðbót
við kakóflóruna og fellur sjálfsagt
í kramið hjá mörgum.
Laushakkað New Yorkers ung-
nautakjöt.
Sláturfélag Suðurlands er þessa
dagana að kynna framleiðslu og
sölu á sérræktuðu ungnautakjöti
i neytendapakkningum sem
markaðssett er undir merkinu
„New Yorkers“.
í fréttatilkynningu segir að
þetta sé bylting í sölu á fersku
ungnautakjöti og þar eru jafn:
framt raktar þær kröfur sem
bændum er gert að uppfylla til
að framleiða slíkt kjöt en mjög
strangar kröfur eru gerðar til
aðbúnaðar og eldis ungneytanna.
Ný vinnslu- og pökkunaraðferð
er sögð tryggja ferskleika vör-
unnar í ailt að tvöfalt lengri tíma
en eldri pakkningamar.
Þýsku fimm og hringprjónarnir
úr bambus.
Bambus-
prjónar
Garnbúðin Tinna hefur hafið
sölu á þýskum hringprjónum úr
bambus sem eigendur verslunar-
innar fuUyrða að geri prjónakon-
um með vöövabólgu kleift að
hefja prjónaskap að nýju. Ptjón-
arnir eru 70% léttari en stálprjón-
arnir og því þreytast notendur
minna. Einnig er yfirborð prjón-
anna sleípara svo garnið rennur
betur, þeir skrölta ekki og oddur
þeirra er ávalari svo prjónarnir
kljúfa síður þráöinn.
Bambus er náttúrulegt efni sem
leiðir ekki þegar þvi slær saman
og fara bambusptjónarnir því að
sögn eigendanna betur meö
taugakerfið. Áðm- voru til fimm
prjónar úr bambus sem hafa gefið
góða raun. Bambushringprjónar
númer 4 kosta 490 kr. en stál-
prjónar 340 kr.