Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1995, Síða 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1995
Afrnæli
Guðjón Armann Eyjólfsson
Guðjón Armann Eyjólfsson, skóla-
meistari Stýrimannaskólans í
Reykjavík, til heimilis að Hjalla-
landi 38, Reykjavík, er sextugur í
dag.
Starfsferill
Guðjón fæddist í Vestmannaeyj-
Til hamingju með af-
mælið 10. janúar
95 ára
Málfríður Þórarinsdóttir,
Norðurbrún 1, Reykjavik.
90 ára
Þórir Ingjaldsson,
Öxará, Ljósavatnshreppi.
85 ára
Valbjörg Kristmundsdóttir,
Dvalarheimilinu Höfða, Akra-
nesi.
Sigrún Áskeisdóttir,
Háholti 15, Akranesi.
75 ára
Þórhallur Þorláksson,
Efstaleiti 10, Reykjavik.
Guðríður Egilsdóttir,
Austurströnd 12, Seltjamamesi.
70ára
Sigurbjörn Ingimundarson,
Hraunbæ 126, Reykjavík.
Benedikt Ólafsson,
forstjóri .
Glófaxahf.,
Langagerði 114,
Reykjavík.
Eiginkonahans
er Björg Ó.
Bemdsen.
Þauhjóninera
íútlöndum.
60ára
Bragi Emilsson,
Kirkjubraut 22, Hornafjarðarbæ.
Arndís Lilja Níelsdóttir,
Urðarstekk 5, Reykjavík.
GuðmundurFinnbogason,
Fannafold 165, Reykjavík.
Pálina Frímannsdóttir,
Laugarvegi 36, Siglufirði.
50ára
Sólveig Halldórsdóttir,
Skipasundi 21, Reykjavík.
Sævar Thorberg Guðmundsson,
Arnarsmára 4, Kópavogl
Sigurleif Erlen Andrésdóttir,
Heiðvangi62, Hafnarfirði.
Oddný J.B. Mattadóttir,
Melteigi 16,Keflavík.
Anna Skúladóttir,
Vesturbergi 100, Reykjavík.
Halldór Guðni Oddgeirsson,
Melási3, Raufarhöfn.
40ára_______________________
Guðmundur Þór Óskarsson,
Boðageröi I, Öxafjarðarhreppi.
Helga Dóra Reinaldsdóttir,
írabakka 30, Reykjavík.
Halldór Ari Brynjólfsson,
Miöholti 8, Akureyri.
Sturla Þorgrímsson,
Ásgarðsvegi 7, Húsavik.
Guðmundur Björgvinsson,
Baldursbrekku 14, Húsavík.
Sunna Árnadóttir,
Steinahh'ð 2 B, Akureyri.
Heiðar Fjalar Jónsson,
Fannafold 211, Reykjavík.
Eyrún Kristinsdóttir,
Helgamagrastræti 53, Akureyri.
Sævar Þór Carslsson,
Lækjasmára 84, Kópavogi.
um og ólst þar upp. Hann stundaði
nám við MR, lauk stúdentsprófi frá
máladeild 1955 og frá stærðfræði-
deild 1956, stundaði nám við Sjóliðs-,
foringjaskóla danska flotans, lauk
þaðan II. stigs-prófi 1959 og I. stigs-
prófi 1960, lauk framhaldsskóla-
kennaraprófi frá KHÍ1976, stundaði
nám við Sjókortasafn Sjómælingar-
stofnunar danska sjóhersins 1960 og
stundaði rekstrarnám við Iðnaðar-
málastofnun íslands 1961 og 1962.
Guðjón starfaði við sjómælingar
og fleira í danska sjóhernum og hjá
íslensku Landhelgisgæslunni
1960-61 auk þess sem hann var
kennari við Stýrimannaskólann í
Reykjavík, var aðstoðarfram-
kvæmdastjóri og framleiðslustjóri
frystihúsa í Vestmannaeyjum
1962-63, stundakennari ogprófdóm-
ari við framhaldskólana í Vest-
mannaeyjum 1962-73, forstöðumað-
ur fyrir skipstjórnarfræðslu í Vest-
mannaeyjum (hiö minna fiski-
mannaprófi) 1963-64, skólastjóri
Stýrimannaskólans í Vestmanna-
eyjum frá stofnun 1964-75, kennari
við Stýrimannaskólann í Reykjavík
1975-81 og skólameistari þar frá
1981.
Guðjón var ritstjóri Sjómanna-
dagsblaðs Vestmannaeyja 1965-75.
Eftir hann hafa komið út ritin Vest-
mannaeyjar, byggð ogeldgos, útg.
1973; Stjórn og sigling skipa, sigl-
ingareglur, útg. 1982 og endurbætt
útg. 1989; kafli um Vestmannaeyjar
í 5. bindi ritsins Landið þitt, útg.
1984. Þá þýddi hann Alþjóðlegar
sighngareglur 1972 og sá um sérút-
gáfuna Alþjóðasiglingareglur, 1989.
Guðjón hefur skrifað greinar í sjó-
mannablöð og önnur tímarit.
Fjölskylda
Guðjón kvæntist 30.12.1960 Aniku
Jónu Ragnarsdóttur, f. 14.12.1934
sjúkraliða. Hún er dóttir Ragnars
Guðmundssonar, b. á Lokinhömr-
um og síðar á Hrafnabjörgum við
Arnarfjörð, og k.h., Kristínar Svein-
bjömsdóttur húsfreyju.
Börn Guðjóns og Aniku eru Ragn-
heiður, f. 19.1.1963, BA í frönsku og
spænsku, í sambúð með Salvador
Berenguer í Torres í Barcelona;
Ragnar, f. 9.9.1965, læknir, búsettur
í Reykjavík en unnusta hans er
Kristín Axelsdóttir laganemi; Eyj-
ólfur, f. 23.7.1969, laganemi í Reykja-
vík; Kristín Rósa, f. 27.10.1972, nemi
í bókmenntafræði við HI, í foreldra-
húsum.
Bróðir Guðjóns er Gísli, f. 24.9.
1929, stýrimaður í Kópavogi.
Hálfbróðir Guðjóns, samfeðra, er
Erlendur, f. 19.11.1919, járnsmíða-
meistari í Reykjavík.
Foreldrar Guðjóns vora Eyjólfur
Gíslason, f. 22.5.1897, skipstjóri á
Bessastöðum í Vestmannaeyjum, en
dvelur nú á Hrafnfistu í Reykjavik,
og k.h., Guðrún Brandsdóttir, f. 17.4.
1895, d. 16.12.1981, húsmóðir.
Ætt
Eyjólfur var bróöir Lovísu, móður
Torfa Bryngeirssonar. Eyjólfur var
sonur Gísla, formanns og b. á Búa-
stöðum, Eyjólfssonar, b. á Kirkjubæ
í Eyjum, Eiríkssonar. Móðir Eyjólfs
Gíslasonar var Guðrún, systir
Kristínar í Litlabæ, móðir Ólafs
Ástgeirssonar, föður Ása í Bæ, föður
Kristínar alþk. Guðrún var dóttir
Magnúsar, b. í Berjanesi í Vestur-
Landeyjum, bróður Þorsteins,
læknis í Vestmannaeyjum. Magnús
var sonur Jóns, b. á Miðkekki í Flóa.
Guðrún var dóttir Brands, b. á
Krókfelli undir Austur-Eyjafjöllum
og síðar Önundarhorni, Ingimund-
Guðjón Ármann Eyjólfsson.
arsonar, b. á Klömbru, Sigurðsson-
ar af Presta-Högnaætt. Móðir
Brands var Sigríður, ljósmóöir
Jónsdóttir, b. í Miðbæli, Björnsson-
ar, og Kristínar Bjarnadóttur, b. í
Núpakoti, Bjarnasonar. Móðir Guö-
rúnar var Guðrún Jónsdóttir eldra
Ketilssonar í Kotvogi Ketilssonar,
b. þar, Jónssonar.
Guðjón og Anika taka á móti gest-
um í félagsheimili Akóges, Sigtúni
3, á morgun, miövikudaginn 11.1.
kl. 17-19.
Sigurjón Vilhjálmsson
Sigurjón Vilhjálmsson flugvirki,
Ásgarði 4, Reykjavík, er sjötugur í
dag.
Starfsferill
Siguijón fæddist í Reykjavík.
Hann lauk prófi í flugvirkjun frá
Cal-Aero Technical Institute í Kali-
forníu og stundaði sérnám við Santa
Monica Technical Institute í Kali-
fomíu.
Sigurj ón star faði hj á Flugfélagi
íslands 1947-48 en síðan hjá ýmsum
aðilum á Keflavikurflugvelh um
árabil, m.a. hjá Olíufélaginu hf„ við
efnasöludeild Skeljungs hf. í
Reykjavík og hjá Olís til 1987. Þau
hjónin starfrækja nú eigið fyrir-
tæki, G. Amórs - umboðs- og heild-
verslun.
Sigurjón sat í sóknarnefnd Kefla-
víkur og Njarðvíkur 1958-64, í
barnaverndarnefnd og bókasafns-
nefnd Njarðvíkurhrepps 1962-64,
starfaði um árabil með skátahreyf-
ingunni í Njarðvíkum, Hafnarfirði
og í Garðabæ og sat í nokkur ár í
stjórn BÍS sem fyrirliði alþjóða-
starfs.
Fjölskylda
Sigurjón kvæntist 8.11.1952, Guð-
rúnu Arnórs, f. 9.6.1933, húsmóður.
Börn Sigurjóns og Guðrúnar era
Vilhjálmur ívar, f. 26.9.1952, renni-
smiður og kerfisfræðingur í Kópa-
vogi, en kona hans er Anna Hen-
riksdóttir, teiknari og þjálfari, og
eru synir þeirra Oddur og Hinrik
en sonur Vilhjálms frá því áður er
Sigurjón; Þórarinn, f. 7.8.1954, húsa-
smiður í Reykjavík, kvæntur Val-
gerði Jakobsdóttur bankamanni og
eru börn þeirra Ellen Bára, Anton
Kristinn og Ásgeir Örn en dóttir
Ellenar Báru er Guðrún Elísabet
Hjaltadóttir; Kristinn, f. 5.6.1956, d.
13.6.1956; Gunnar Kristinn, f. 10.8.
1960, auglýsingastjóri, búsettur í
Kópavogi, kvæntur Ann Siguijóns-
son frönskukennara og eru böm
þeirra Daniel Kristinn, Axel Paul
ogEtienne Andri.
Systkini Siguijóns: Henny Eldey,
söngkona í Reykjavík; Þóroddur,
vélvirki í Höfnum; Maron Guð-
mann, útvarpsvirki í Ástralíu; Vil-
hjálmur Hólmar, flugmaður og
söngvari sem lést í Lúxemborg 1978.
Foreldrar Siguijóns voru Vil-
Sigurjón Vilhjálmsson.
hjálmur Hinrik ívarsson, f. 12.8.
1899, d. 24.1.1994, smiður og hrepp-
stjóri, ogk.h., Hólmfríður Oddsdótt-
ir, f. 29.4.1906, d. 5.6.1994, húsmóðir.
Þau bjuggu lengst af í Merkinesi
í Höfnum.
Sigurður Geirsson
Sigurður Geirsson, forstöðumaður
verðbréfadeildar Húsnæðisstofnun-
ar ríkisins, Reykjamel 4, Mos-
fellsbæ, er fertugur í dag.
Starfsferi II
Sigurður fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá MH1975 og lauk prófi í
viðskiptafræði viö HÍ1979.
Sigurður starfaöi á endurskoöun-
arskrifstofu Bjöms Steffensens og
Ara Ó. Thorlacíusar 1979-81, starf-
aði við hagdeild Útvegsbanka ís-
lands frá ársbyijun 1982-87, var for-
stööumaður markaðssviðs og þjón-
ustumála Útvegsbankans 1987-89 og
hefur verið forstöðumaður hús-
bréfadeildar og síðan veröbréfa-
deildar Húsnæðisstofnunar ríkisins
frá 1989.
Sigurður sat í stjórn Starfsmanna-
félags Útvegsbankans 1983-84, í
stjórn Sambands íslenskra banka-
manna 1983-87, situr í stjórn Golf-
klúbbsins Kjalar í Mosfellsbæ frá
1989, hefur setið í stjórn sjálfstæðis-
félags Mosfellinga frá 1991, á sæti í
tómstundaráði Mosfellsbæjar frá
1994 og er kjörinn skoðunarmaður
ársreikninga Mosfellsbæjar.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 19.8.1978 Stein-
unni Þóranni Ólafsdóttur, f. 29.4.
1955, hjúkrunardeildarstjóra á
Reykjalundi. Hún er dóttir Ólafs H.
Jónssonar, fyrrv. flugumferðar-
stjóra í Reykjavík, og Guðríðar
Björnsdóttur sem nú er látin.
Böm Siguröar og Steinunnar Þór-
unnar era Ásta Jenný Sigurðardótt-
ir, f. 7.6.1980, og Guðríður Lilla Sig-
urðardóttir, f. 29.9.1986.
Systkini Sigurðar era Karl Geirs-
son, f. 2.5.1956, véliðnaðarmaður á
Álftanesi, kvæntur Þyri E. Þor-
steinsdóttur og eiga þau tvö börn;
Margrét Geirsdóttir, f. 30.6.1965,
röntgentæknir í Kópavogi, gift Jó-
hanni Mássyni og eiga þau einn son.
Foreldrar Sigurðar: Geir Borgþór
Halldórsson, f. 30.9.1927, d. 7.8.1972,
fyrrv. flugumferðarstjóri í Reykja-
Sigurður Geirsson.
vík, ogLilý Karlsdóttir, f. 19.10.1929,
verslunarstjóri.
Þórunn Steinunn Jónsdóttir
Þórunn Steinunn Jónsdóttir versl-
unarmaður,Snorrabraut32, '
Reykjavík, er sjötug í dag.
Starfsferill
Þórann fæddist að Eiðum í Gríms-
ey og ólst þar upp. Hún fór sextán
ára í vist til Garðars Þorsteinssonar
hæstaréttarlögmanns og síðan í vist
til Hafliða Halldórssonar, eiganda
Gamla bíós. í tvö ár var hún svo
vistmaður á Kristneshæli vegna
berkla.
Um 1955 varð Þórunn starfsmaður
hjá Nora magasín. Hún starfaði síð-
an við Sokkabúðina en hóf störf hjá
Hagkaupi 1959 og starfaöi þar í þijá-
tíu og fjögur ár eða þar til hún lét
af störfum fyrir aldurs sakir á síð-
asta ári.
Fjölskylda
Systkini Þórannar: Sigfríður
Jónsdóttir, f. 9.4.1915, húsfreyja í
Hrísey; Júlíana Jónsdóttir, f 22.9.
1917, húsmóðir á Ólafsflrði; Ósk
Jónsdóttir, f. 5.11.1923, símastúlka
við Hjúkranarkvennaskólánn í
Reykjavík, óskírður Jónsson, dó í
bamæsku, og Óskar Jónsson sem
dó úr kíghósta, ársgamall. Hálfsyst-
ir Þórunnar var Sigurveig Jónsdótt-
ir, f. 25.4.1900, d. 31.1.1989, húsmóð-
iríGrímsey.
Foreldrar Þórunnar vora Jón Sig-
urðsson, útvegsb. í Grímsey, og Er-
menga Frímannsdóttir, húsfreyja og
saumakona.
Jón var sonur Sigurðar Guð-
mundssonar bónda og Jóhönnu
Aradóttur húsfreyju.
Ermenga var dóttir Frímanns
Benediktssonar, hreppstjóra í
Grímsey, og Sigríðar Sigmundsdótt-
urhúsfreyju.
Þórunn Steinunn Jónsdóttir.
Þórunn er að heiman á afmælis-
daginn.