Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1995, Qupperneq 29
ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1995
29
Halldór E. Laxness er leikstjóri.
Töfra-
heimur
prakkarans
Nemendur óperudeildar Söng-
skólans í Reykjavík hafa í haust
æft óperu franska tónskáldsins
Maurice Ravel, Töfraheim prakk-
arans (L’Enfent et les sortUéges),
og er þýðingin eftir Guðmund
Jónsson óperusöngvara. Töfra-
heimur prakkarans er lýrísk
fantasía í tveimur þáttum og var
óperan frumflutt í Monte Carlo
21. mars 1925. Sýning verður í
kvöld í íslensku óperunni og hefst
Tónleikar
hún kl. 20.00.
Eins og nafnið bendir til er
Töfraheimur prakkarans barna-
saga sem höfðar þó engu síður til
fullorðinna. Fjallar sagan um
dreng, sem er óþekkur við móður
sína, vill ekki læra og brýtur allt
og bramlar í kringum sig, hvort
sem það eru leikfong eða annað.
Dag einni lifnar umhverfið við
og gerir uppreisn gegn prakkar-
anum. Hann flýr út í garð en trén
og dýrin taka honum illa. Viðhorf
dýranna breytist þegar hann ger-
ir að sári á loppu íkorna sem
hafði slasast í öllum látunum...
Leikstjóri er Halldór E. Laxness
og stjórnandi tónlistar er Garðar
Cortes.
Stór
myndverk
úr sandi
Lengsta myndverk sem mótað
hefur verið úr sandi var 4591
metri að lengd og var það nefnt
Never Ending Fantasy. Þetta
myndverk var mótaö á Myrtle
Beach í South Carolina 2. júní
1988 af 1613 sjálfboðaliðum.
Hæsta myndverk af þessu tagi
sem vitað er um nefndist Invation
to Fairyland. Það var 17,12 metra
hátt og reist af heimamönnum í
Kesada í Japan 26. júlí 1989.
Blessuð veröldin
Lengsta predikunin
„Lengstu predikun sem vitað er
um flutti séra Ronald Gallagher
í musteri baptista í Lynchburg í
Virginíuríki í Bandáríkjunum frá
26. júní til 1. júlí 1983. Stóð predik-
unin í 120 klst. Fjórtándi Dalai
Lama, sem nú er í útlegð, flutti
röð predikana um Tantrabúdd-
isma fyrir fylgismenn sína á Ind-
landi frá 31. maí til 10. júni 1969.
Stóðu þessar predikanir samtals
í sextíu klukkustundir og las
hann í um það bil 5-7 klukku-
stundir á dag.
Hraðvirkur rakari
„Hraðvirkasti rakari sem heim-
ildir greina -frá er Denny Rowe
sem rakaði 1994 menn á sextíu
mínútum með rakvél í Herne Bay
í Kent á Englandi 19. júní 1988.
Það tók hann 1,8 sekúndur að
afgreiða hvem mann og blóðgaði
hann aðeins fjórum sinnum.
I kvöld verða tónleikar í Menn
ingarmiðstööinni Gerðubergi
Tvær djassöngkonur, Jenný Gunn-
arsdóttir og Iris Guðmundsdóttir
Skemmtamr
verða þar með
mun Mood Swin
Jemtý stundaði nám við Söng-
skólann_ í Reykjavík, Tónlistar-
skóla FÍH og Berklee College of
Music í Boston. Hún hefur komið
viða fram og sungið. íris stundaði
.. oinnig nánt við Tónlistarskóla FÍH
og hefur sungið djass og gospel
mörg ár. Á dagskrá þeirra eru
þekktir bandarískir djassstandard-
ar í anda Ellu Fitzgerald og Söru
Vaughan. Mood Swmg, sem leikur frá áramótum verið að leika á höf-
undir hjá þeim stöllum, hefur síðan uðborgarsvæðinu en í hþómsveit-
inni i-ru; þrir; bandarískir ; hljóö-
færaleikarar og einn islenskur.
Þungíært á
Vestfjörðum
Á Vestfjöröum er þungfært í Gils-
firði og Reykhólasveit og ófært á
Kleifaheiði en fært núlli Patreks-
íjarðar og Bíldudals. Á norðanverð-
um fjörðunum er þungfært á Gemlu-
fallsheiði en ófært á Breiðadalsheiði
Færð á vegum
og Súgandafjarðarvegur er lokaður.
Frá Bolungarvík er fært til ísafjarðar
og áfram ísafjarðardjúp og Stein-
grímsfjarðarheiði. Norðanlands er
þungfært til Siglufjarðar og einnig
um Víkurskarð austan Akureyrar. A
Norðaustur- og Austurlandi er víða
skafrenningur og þungfært.
Astand vegaB
E) Hálka og snjór 0 Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
^ Lokaö'rStÖÖU ® Þungfært (g) Fært fjallabílum
Dóttir Ólafíu
og Hauks
Litla stúlkan á myndinni fæddist á 2880 grömm að þyngd og 50 sentí-
fæöingardeildLandspítalans6.jan- metra löng. Foreldrar hennar eru
úar kl. 04.23. Hún reyndist vera Ólafía Jónatansdóttir og Haukur
—-------------------- Konráðsson og er hún fyrsta barn
Bam dagsins Þeirra
Tvær blóðsugur. Brad Pitt og
Kirsten Dunst í hlutverkum sín-
um í Viðtal við vampíru.
Vampírur í New Orleans
Viðtal við vampíru (Interview
with the Vampire), sem Sam-
bíóin sýna þessa dagana, er byggð
á þekktri skáldsögu eftir Anne
Rice. Aðalpersónur sögunnar eru
þrjár vampírur með Lestat
fremstan í flokki, enda er hann
elstur og reyndastur í faginu.
Myndin byrjar þegar hann hefur
valið sér nýjan félaga, Louis, sem
200 árum síðar segir sögu sína
blaðamanni. Allt frá byrjun hefur
Louis fundist hlutskipti sitt vera
ömurlegt. Hann sker sig nefni-
lega frá öðrum vampírum að því
Kvikmyndahúsin
leyti að hann hefur samvisku.
Margir þekktir leikarar eru í
helstu hlutverkum. Tom Cruise
og Brad Pitt leika Lestat og Louis
og hin unga Kirsten Dunst leikur
hið hungraða barn sem alltaf vill
meira. Þá fara Antonio Banderas
og Stephen Rea með hlutverk
vampíra í París og Christian Slat-
er leikur blaðamanninn, sem
skráir sögu Louis, en River Pho-
enix var rétt byrjaöur að leika
það hlutverk þegar hann lést.
Leikstjóri er Neil Jordan en síð-
asta mynd hans var hin eftir-
minnilega The Crying Game.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Priscilla
Laugarásbíó: Skógarlíf
Saga-bíó: Konungur ljónanna
Bíóhöllin: Banvænn fallhraði
Stjörnubíó: Aðeins þú
Bíóborgin: Viðtal við vampíruna
Regnboginn: Stjörnuhlið
Gengiö
Almenn gengisskráning Ll nr. 6.
10. janúar 1995 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 67,960 68,160 69,250
Pund 106,150 106,470 107,010
Kan. dollar 48,230 48,420 49,380
Dönsk kr. 11.2200 11,2650 11,1920
Norsk kr. 10,0990 10,1390 10,0560. ,
Sænsk kr. 9,0960 9,1330 9,2220
Fi. mark 14,2380 14,2950 14,4600
Fra.franki 12,7870 12,8380 12,7150
Belg. franki 2,1463 2,1549 2,1364
Sviss. franki 62,7200 52,9300 51,9400
Holl. gyllini 39,4300 39,5900 39,2300
Þýskt mark 44,2300 44,3600 43,9100
It. líra 0,04186 0,04206 0,04210
Aust. sch. 6,2720 6,3030 6,2440
Port. escudo 0,5093 0,5119 0,4276
Spá. peseti 0,4282 0,4304 0,5191
Jap. yen 0,67800 0,68000 0,68970
Irskt pund 104,980 105,510 105,710
SDR 99,22000 99,72000 100,32000
ECU 83,8300 84,1600
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Krossgátan
Lárétt: 1 eyða, 7 góð, 8 hæð, 9 óþéttar,
11 gyltu, 12 skelfmg, 13 kvabb, 15 stelpur,
18 þramm, 19 oddi, 20 aur, 21 deilur.
Lóðrétt: 1 andi, 2 kynstur, 3 svik, 4 nema,
5 dolla, 6 umhyggja, 8 hrúgu, 10 vaskar,
12 gagnslaus, 14 kvendýr, 16 traust, 17
drepsótt.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 hárug, 6 km, 8 ásökun, 9 loku,
11 lán, 12 örk, 13 slen, 15 skutli, 17 larfa,
19 Sk, 20 arm, 21 ásar.
Lóðrétt: 1 hál, 2 ás, 3 rökkur, 4 ukust, 5
gull, 6 kná, 7 mennsk, 10 orkar, 12 ösla,
14 eisa, 16 las, 18 fá. *