Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1995, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1995, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 1995 FRéttir Söguleg þátttaka 1 prófkjöri Alþýðuflokksins á Reykjanesi: Rannveig sigraði efftir gríðarlega kjörsókn Rannveig Guömundsdóttir, félags- málaráöherra og varaformaöur Al- þýðuflokksins, var í fyrsta sæti í próíkjöri Alþýðuflokksins í Reykja- neskjördæmi þegar DV fór í prentun um miönættið. Þegar aðeins var eftir aö telja utankjörstaöaatkvæði haföi Rannveig fengiö 4.231 atkvæöi í fyrsta sætið en Guðmundur Árni Stefánsson aöeins 3.403. Guömundur var með 4.297 atkvæði í annað sætiö, Petrína Baldursdóttir alþingismaöur var í þriðja með 4.680 atkvæöi og Hrafnkell Óskarsson læknir í íjóröa sæti meö 4.538 atkvæði. „Þetta kemur mér meira á óvart en hitt og mjög gleðilegt aö forystan sé svona afgerandi og þátttaka Kópa- vogsbúa svo mikil. Á síöustu tveimur vikum hef ég fundið að ég hef eign- ast afar sterkan og góðan stuönings- mannahóp um allt kjördæmiö. Mér finnst eins og Kópavogsbúar hafi fylgst meö störfum mínum og hafi veitt mér ákveöna viöurkenningu sem stjómmálamanni vegna þess aö ég er eini þingmaöurinn úr Kópavogi síðan 1978 og fyrsti ráðherrann," sagði Rannveig Guðmundsdóttir fé- lagsmálaráðherra í gærkvöld þegar % hlutar atkvæöa höföu veriö taldir. Geysigóð stemning var í húsnæði Alþýðuflokksins í Hamraborg í Kópavogi í gærkvöld og margir sem komu til að samfagna Rannveigu eft- ir prófkjörsstarf síðustu vikur enda kom í ljós strax og fyrstu tölur voru birtar að Rannveig hefði náð foryst- unni og húrrahrópin hljómuðu hátt þegar nýjustu tölur voru lesnar. Mik- ill mannfjöldi var einnig saman kom- inn í listamiðstöðinni Hafnarborg í Hafnarfiröi þar sem kosningavaka hafnfirskra alþýðuflokksmanna var. Söguleg þátttaka varð í prófkjöri Alþýðuflokksins í Reykjaneskjör- dæmi um helgina. 8.791 greiddu at- kvæði eða ríflega helmingi fleiri en í prófkjörum flokksins í sveitar- stjórnarkosningunum í fyrra. Lang- flestir kusu í Hafnarfirði eða 2824, næstflestir í Kópavogi eða 2479 og 1.248 í nýja sveitarfélaginu á Suður- nesjum. í Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi, Garðabæ, Vogum, Grindavík og Sandgerði kusu á bilinu 73-751. Elín Harðardóttir úr Hafnarflrði lenti í fimmta sæti, Gizur Gottskálks- son úr Garðabæ í sjötta sæti og Garð- ar Smári Gunnarsson í því sjöunda. Guðmundur Ami Stefánsson: Bylgjaní Kópavogi kom á óvart - skilar sér væntanlega „Ég stefndi að fyrsta sæti listans en hlaut annað sæti. Eftir allt sem á undan er gengið er augljóst að mín staða er mjög sterk í þessu kjör- dæmi. Þaö kemur auðvitað mjög á óvart og sérstaklega ánægjulegt að þessi bylgja jafnaðarmanna skuli hafa risið i Kópavogi og haft jafnmik- il áhrif á niðurstöðuna og raun ber vitni. Það skilar sér væntanlega í kosningum í ljósi þess að Alþýðu- flokkurinn í Kópavogi virðist hafa margfaldað fylgi sitt á örskömmum tima. Þátttakan í prófkjörinu undir- strikar styrk flokksins,“ segir Guð- mundur Ámi Stefánsson alþingis- maður. „Þetta er í samræmi við það sem ég hef vænst. Ég er mjög ánægð með að fá þriðja sætið. Þetta er í fyrsta skipti sem ég fer í svona prófkjör í svona stóru kjördæmi og ég hef enga reynslu af prófkjörum þannig að ég var stundum kvíðin en þetta hefur verið frábært,“ segir Petrina Bald- ursdóttir alþingismaður. Alþýðuflokksmenn i Hafnarfirði komu saman í listamiðstöðinni Hafnarborg þegar fyrstu tölur voru birtar og í Ijós kom að Rannveig Guðmundsdóttir félagsmálaráðherra hafði náð forystunni í fyrsta sætið. Á myndinni má sjá Tryggva Harðarson bæjarfulltrúa, Guðmund Árna Stefánsson alþingismann, Jónu Ósk Guðjónsdóttur og Gunn- laug Stefánsson alþingismann skoða fyrstu tölur. DV-mynd GVA Stuttar fréttir Ögmundur Jónasson: Ætlum að taka til hendinni Unnur Jónsdóttir fundarstjóri, Ögmundur Jónasson, Svanhildur Kaaber, Kári Arnórsson og Linda Ósk Sigurðardóttir. DV-mynd GVA „Ný ríkisstjórn á að taka til hend- inni i velferðarmálum, hætta aö selja aðgang aö skólum og heilsugæslu- stöðvum, taka til gagngerrar endur- skoðunar allar þær kerfisbreytingar sem ríkisstjórnin hefur keyrt í gegn og bitnaö hafa á sjúkum og öldruð- um. Það á að hækka skatta á hátekju- fólki og arðsömum stórfyrirtækjum, skattleggja fjármagn og flytja þangaö sem þess er þörf. Við höfum ekki sett niður stefnu heldur sameinast um þessi meginmarkmið,“ segir Ög- mundur Jónasson, formaður BSRB. Ögmundur Jónasson var einn þeirra sem fluttu ræðu á fundi á Hótel Borg síðdegis í gær þar sem óháðir kynntu stefnumarkmið sín í sameiginlegu framboði meö Alþýðu- bandalaginu í Reykjavík fyrir alþing- iskosningarnar í vor. í samtali við Ögmund í gær kom fram að hann hygðist ekki ganga í Alþýðubanda- lagið og ekki segja af sér formennsku fyrir BSRB komist hann á þing. Eftirtaldir fara að öllum líkindum á framboðslista Alþýðubandalags og óháðra í Reykjavík fyrir hönd óháðra: Unnur Jónsdóttir, leikskóla- stjóri og fundarstjóri í gær, Svanhild- ur Kaaber, fyrrum formaður Kenn- arasambands íslands og Linda Ósk Sigurðardóttir, starfsmaður Félags starfsfólks i veitingahúsum. Ekki er frágengið hvaða sæti þetta fólk skip- ar en ljóst er aö Ögmundur Jónasson verður í þriðja sæti. Sild í f lottroll Ómar Garðaisson, DV, Eyjum: Hjá ísfélaginu var gripið til þess ráðs að fá loðnubátinn Hugin VE til að reyna fyrir sér með síldarflot- troll. Lofar sú tilraun góðu því á laugardaginn kom Huginn með um 150 tonn af stórri og góðri síld. Gylfi Guðmundsson, stýrimaður á Hugin, segir að síldin hafi fengist á Hvalbakssvæðinu fyrir austan land: Síldin var á um 100 faðma dýpi og var mjög dreifð þannig að hún var ekki veiðanleg í nót. Síldin sem Hug- inn kom með fékkst í þremur togum og sagði Gylfi að það væri viðunandi árangur. Verksmiðja í Kaliforníu Össur hf. hefur opnaö nýja stoð- tækjaverksmiðju í Kaliforniu. Að sögn Sjónvarpsins er fram- leiðslugeta nýju verksmiðjunnar svipuð og hér á landi og er henni ætlað að sinna mörkuðum í Am- eríku og Asíu. Voðinnvis Launahækkanir umfram 3 til ,4% á ári næstu tvö árin stefna stöðugleika og atvinnuöryggi hér á landi í voða. Stöð tvö hafði þetta eftir forstöðumanni verðbréfa- fyrirtækis. Keppniívisindum íslenskum íramhaldsskóla- nemum, 15 til 20 ára, býðst nú að taka þátt í samkeppni ungra vís- indamanna. ASð sögn Sjónvarps- ins er keppnin hluti af mann- auðsáætlun ESB. Fjöldi útiendinga Alls voru 4.715 erlendir ríkis- borgarar búsettir á íslandi 1. des- ember síðastliðinn. Á sama tima áriö 1993 var fjöldinn 4.825. Mbl. greindi frá þessu. Aiþingishústeiknað Ungur arkitekt, Lena Helga- dóttir, hefur teiknað nýtt alþing- ishús i Vatnsmýrinni i Reykjavík. Um er að ræða lokaverkefni frá Listakademíunni í Kaupmanna- höfn. Tapviðsölu Fyrri eigendur Viking brugg á Akureyri töpuðu milli 100 og 200 milljónum króna á sölu fyrirtæk- isins til KEA skömmu fyrir ára- mót. Stöð tvö greindi frá þessu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.