Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1995, Blaðsíða 30
42
MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 1995
Afmæli
Guðmunda Elíasdóttir
Guðmunda Elíasdóttir söngkona,
Vesturgötu 26B, Reykjavík, er sjötíu
ogfimm áraídag.
Starfsferill
Guðmunda fæddist í Bolungarvík
og ólst þar upp á Grundum fyrstu
sex árin en faðir hennar drukknaði
er hún var á fjórða árinu. Hún flutti
með móður sinni að Látrum í Aðal-
vík 1926, fór til systur sinnar á
ísafirði ári síðar þar sem þær mæðg-
ur bjuggu til 1932 en þá fluttu þær
til Reykjavíkur og bjuggu fyrstu
árin þar á Smiðjustígnum.
Guðmunda fór ung til Kaup-
mannahafnar og hóf þar nám við
Konservatoríið 1939. Áuk hinna al-
mennu námsgreina þar sótti hún
söngtíma til prófessors Dóru Sig-
urðsson. Þá stundaði hún söngnám
hjá prófessor Kristian Riis í Kaup-
mannahöfn, hjá Madame Fourest-
hier í París og hjá Florence Bower
íNew York.
Guðmunda söng í óperum og hélt
konserta á íslandi og víða erlendis,
m.a. við hátíðarmessu á jólum í
Hvíta húsinu. Eldri íslendingum er
Guðmunda minnisstæð sem Ma-
dame Flora í Miðlinum eftir Me-
notti og sem Maddalina í Rigoletto.
Auk þess að syngja á konsertum og
á sviði hefur hún sungið í útvarp
og inn á hljómplötur. Þá hefur Guð-
munda kennt söng um árabil, bæði
í Söngskólanum í Reykjavík og í ein-
katímum. Árið 1982 kom út ævisaga
Guðmundu, Lífsjátning, sem Ingólf-
ur Margeirsson skráði.
Fjölskylda
Guðmunda giftist 24.10.1943 Hen-
rik Knudsen, gullsmíðameistara frá
Maribo í Danmörku sem nú er lát-
inn. Þau bjuggu í Danmörku til 1945
en síðan ýmist á íslandi, í Dan-
mörku eða í New York þar til þau
slitu samvistum.
Börn Guðmundu og Henrik: Berg-
þóra, f. 12.6.1944, d. 1946; Hans Al-
bert, f. 1.10.1947, flugumsjónarmað-
85 ára
. januar
Louise Chr. Kjartansson,
Skólagerði 60, Kópavogi.
Þorsteinn Magnússon,
Álfaskeiði 64, Hafnarfirði.
50ára
80ára
Sigrún Guðmundsdóttir,
Skúlagötu 40, Reykjavík.
Kristin Matthíasdóttir,
Hrfnistu við Kleppsveg, Reykjavík.
75ára
Árni Árnason,
Mýrarvegi 124, Akureyri.
Jón Erlendsson,
Hólagerði 1, Fáskrúðsfjarðar*
hreppi
70 ára
Sigrún A. Sigurðardóttír,
Tryggvagötu 5, Selfossi.
Jóhann V. Sigurjónsson,
Álftahólum 2, Reykjavík.
Kristjana Gísladóttir,
Lindargötu 66, Reykjavík.
Krístjana tekur á móti gestum á
heimili dóttur sinnar, Hraunbæ 30,
eftir kl. 20 á afmælisdagimi.
Soffía Helgadóttir,
Nesbakka 1, Neskaupstað.
Sigurbjörg Björgvinsdóttir,
Þórsgötu 21a, Reykjavlk.
Helga Gunnarsdóttir,
Sætúni 1, Ísafírði.
Bryndís Einarsdóttir,
Ranavaði 1, Egílsstöðum.
Guðmundur Sigurðsson,
Fannafold 13, Reykjavík.
Stefán Jörundsson,
Öldugötu30a, Reyjavík.
ara
RúnarLoftsson,
Klukkubergi 23, Hafnarfirði.
Dagmar S. Hallgrimsdóttir,
Krókamýri 66, Garðabæ.
Sigurjón Kristmannsson,
Hofslundi 4, Garðabæ.
Margarita A. Chaldarian,
Holtsgötu31, Reykjavík.
Jóhannes Jónasson,
Brúarlandi 2, Svalbarðshreppi.
Ólafur Þorbjörn Halldórsson,
Klapparstíg 26, Reykjavík.
Ásthildur Kristjánsdóttir,
Grýtubakka 26, Reykjavík.
Ásgeir Jónas Salómonsson,
Árholti7,ísafirði.
Erla Maria Ásgeirsdóttir,
Asparfelli 12, Reykjavík.
Einar Haildórsson,
Kúskerpi, Akrahreppi.
Ingibjörg Dóra Hansen,
Kirkjuvegi 5, Hafnarfirði.
Ármann Eggertsson,
Sólheimum, Grímsneshreppi.
Ásmundixr Jón Jónsson,
Hllðargötu 6, Akureyri.
Haukur Friðrik Sigurðsson,
Lyngási6, Garöabæ.
ur í Lúxemborg, kvæntur Laufeyju
Ármannsdóttur og eiga þau tvö
börn, Henrik Knudsen, f. 25.7.1984,
og Helenu Sif Knudsen, f. 15.11.1987;
Sif Knudsen, f. 2.7.1950, sjúkraliði á
Landakotsspítala, gift Stefáni Ás-
grímssyni blaðamanni og eiga þau
tvö börn, Guðmund Elías, f. 23.1.
1974, og Sigurlaugu, f. 6.10.1978.
Vorið 1973 giftist Guðmunda
Sverri Kristjánssyni, f. 1908, d. 1976,
sagnfræðingi og rithöfundi.
Alsystur Guðmundu: Þorgerður,
f. 1922, en hún lést í frumbernsku,
og Þorgerður Nanna, f. 23.5.1923,
búsettíReykjavík.
Hálfsystkini Guðmundu, sam-
feðra: Jón Árni sem drukknaði
rösklega tvítugur; Olga sem lést í
bernsku; Sveinbjörn sem drukknaði
tvítugur; Olga, búsett í Keflavik;
Elías, lést ungbarn; Ágústína, búsett
í Reykjavík, og Jónína, búsett í
Hafnarfirði.
Hálfsystkini Guðmundu, sam-
mæðra, Guðmundsbörn: Tvíbur-
arnir Guðmundur og Sigurður sem
dóu í frumbernsku; Gunnar Sólberg
sem dó sjö ára; Elísabet sem fórst í
flugslysi í Búðardal 1947; Kristín
Halldóra sem dó í frumbernsku og
Gunnar Sólberg sem dó þriggja ára.
Foreldrar Guðmundu voru Elías
Þórarinn Magnússon, f. 5.11.1878,
d. 7.11.1923, formaður í Bolungar-
vík, og síðari k.h., Sigríður Jensdótt-
ir, f. 1.2.1881, d. 2.1.1968, húsmóðir.
Ætt
Elías var sonur Magnúsar, hús-
manns í Bolungarvík, Jónssonar,
hreppstjóra að Hóli á Bolungarvík,
Guömundssonar, b. í Ytrihúsum í
Arnardal, Ásgrímssonar, hrepp-
stjóra í Arnardal fremri, Bárðarson-
ar, ættfóður Arnardalsættarinnar,
Illugasonar. Móðir Magnúsar var
Þóra Árnadóttir, b. á Meiribakka í
Skálavík, Árnasonar, b. í Ósi í Bol-
ungarvík, Magnússonar „auðga“
Sigmundssonar.
Móðir Elíasar var Elín Jónsdóttir,
Guðmunda Elíasdóttir.
b. á Meiribakka, Einarssonar, b. á
Meiribakka, Jónssonar.
Sigríður var dóttir Jens Guð-
mundar, b. í Arnardal, Jónssonar,
b. í Fremri Arnardal, Halldórsson-
ar, b. í Fremri Arnardal, bróður
Guðmundar í Ytrihúsum.
Móðir Jóns í Fremri Arnardal var
Ingibjörg Jónsdóttir, b. á Gih í Bol-
ungarvík, Jónssonar. Móðir Jens
var Guðrún Jónsdóttir, rokkasmiðs
á Ytri-Veðrará, Jónssonar. Móðir
Sigríðar var Sólborg Sigurðardóttir,
b. á Siglunesi á Barðaströnd, Finn-
bogasonar, b. í Miðhlíð og á Siglu-
nesi, Sigurðssonar.
Ingólfur Amar Þorkelsson
Ingólfur A. Þorkelsson, fyrrv. skóla-
meistari MK, Hlaðbrekku 14, Kópa-
vogi, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Ingólfur fæddist á Háreksstöðum
í Jökuldalshreppi og ólst upp á Seyð-
isfirði og Jökuldal. Hann lauk prófi
frá Eiðaskóla 1944, frá KÍ1948, stúd-
entsprófi frá MR1954, B A-prófi í
sögu og dönsku frá HÍ1959, stund-
aði framhaldsnám í dönskum bók-
menntum og sagnfræði við Kenn-
araháskólann í Kaupmannahöfn
1966-67 og hefur sótt fjölda nám-
skeiöa í dönsku, sögu og stjórn-
sýslufræðum.
Ingólfur var kennari við MR
1948^49, Kópavogsskóla 1949-1953,
Gagnfræðaskólann í Kópavogi
1954-61, Vogaskóla 1961-65 og
Kvennaskólann í Reykjavík 1965-73.
Hann var skipaður skólameistari
MK og gegndi því starfi til 1994 er
hann lét af störfum að eigin ósk.
Ingólfur var jafnframt stunda-
kennari við KÍ1967-70 og æfinga-
kennari í mannkynssögu á vegum
heimspekideildar HÍ1964-73.
• IngólfursatístjórnLandssam-
bands framhaldsskólakennara
1960-64, stjórn Félags BA-prófs-
manna 1962-64, í stjórn Félags há-
skólamenntaðra kennara 1964-67 og
formaður 1970-73, í fulltrúaráði
BHM1963-66, var formaður Félags
dönskukennara 1968-70, í flokks-
stjórn Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna 1969-79, í fram-
kvæmdastjórn 1972-74, sat í rit-
stjórn blaðsins Frjálsrar þjóðar Nýs
lands 1972-74 og var formaður Seyð-
firöingafélagsins í Reykjavík frá
1981. Ingólfur sat í grunnskóla-
nefndinni 1972-75 og fleiri stjórn-
skipuðum nefndum.
Fjölskylda
Ingólfur kvæntist 25.9.1960 Rann-
veigu Jónsdóttur, f. 8.6.1935, cand.
mag. Foreldrar hennar voru Jón
Kristófersson skipstjóri og k.h., Þór-
linn Guðmundsdóttir húsmóðir.
Börn Rannveigar og Ingólfs eru
Jón Arnar, f. 31.10.1961; Þorkell
Már, f. 15.5.1964, BA, starfsmaður
hjá flutningafyrirtæki; Þóra Sigríð-
ur, f. 14.6.1966, BA, starfar hjá Máh
og menningu, í sambúð með Karli
Emil Gunnarssyni, starfsmanni hjá
Prenttæknistofnun.
Systkini Ingólfs eru Anna Birna,
f. 3.12.1922, starfsmaður hjá Lyfja-
búðinni Iðunni í Reykjavík; Þórður,
f. 2.1.1929, verkamaður í Reykjavík;
Soffía, f. 5.7.1931, húsmóðir á
Hólmavík; Þórný, f. 3.9.1920, d. 31.3.
1961, húsmóðir á Húsavík.
Hálfsystur Ingólfs, samfeðra:
Anna Margrét, f. 15.2.1914, hús-
freyja aö Brekku í Mjóafirði, og
Kristín María, f. 2.6.1918, d. 1.6.1985,
húsfreyja.
Foreldrar Ingólfs voru Þorkell
Björnsson frá Galtastöðum í Hró-
arstungu, f. 24.6.1892, d. 9.8.1974,
verkamaður á Seyðisfirði og for-
maður Verkamannafélagsins Fram
um árabil, og k.h., Þóra Margrét
Þórðardóttir frá Gauksstöðum á
Jökuldal, f. 21.6.1900, d. 4.5.1990.
Ætt
Björn, faðir Þorkels, var sonur
Péturs, b. á Klúku, Runólfssonar,
b. Bjarnasonar, á Unaósi í Hjalta-
staðaþinghá. Móðir Björns var Ás-
laug frá Klúku, dóttir Sigurðar
Jónssonar frá Njarðvík og fyrri k.h.,
Kristínar Maríu Sigfúsdóttur,
prests í Ásum í Fellum, Guðmunds-
sonar. Anna, móðir Þorkels, var
dóttir Björns Björnssonar frá
Bóndastöðum í Hjaltastaðaþinghá
og síðari k.h., Önnu Jónsdóttur,
prests á Hjaltastað, Guðmundsson-
ar. Bjöm var sonur Skúla Sigfús-
sonar frá Brimnesi viö Seyðisfjörð
Ingóifur A. Þorkelsson.
og k.h., Svanhildar Sveinsdóttur frá
Torfastöðum í Jökulsárhlíð. Dóttur-
sonur Björns er Björn Grétar
Sveinsson, formaður Verkamanna-
sambands íslands.
Tvíburabróðir Þóru var Skúli,
magister í sagnfræði. Þóra var dótt-
ir Þórðar, b. á Gauksstöðum, Þórð-
arsonar, b. á Sævarenda í Loðmund-
arfirði. Þórður á Sævarenda var
sonur Jóns Eyjólfssonar og Gróu
Jónsdóttur er ættuð var úr Fellum
á Fljótsdalshéraði og var lengi
vinnukona hjá Eiríki Einarssyni,
útvegsb. á Eldleysu í Mjóaíirði.
Kona Þórðar á Sævarenda og amma
Þóru var María Guttormsdóttir,
Skúlasonar, frá Brimnesi, Sigfús-
sonar, og þar koma saman föður-
og móðurætt Ingólfs. Móðir Þóru
var Stefanía Jónsdóttir, fædd í
Fögrukinn í Jökuldalsheiði. For-
eldrar hennar vom Jón Guðlaugs-
son, Pálssonar, b. á Sörlastöðum í
Fnjóskadal, og seinni k.h., Steinunn
Símonardóttir, b. í Hvammi í Lóni,
Halldórssonar. Guðlaugur, faðir
Jóns, var bróðir Þórðar á Kjarna í
Eyjafiröi.
Ingólfur verður að heiman á af-
mæhsdaginn.
Bridge
Islandsmótið í parasveitakeppni
Helgina 28.-29. janúar verður spil-
að í Þönglabakka 1 þriðja íslands-
mótið í parasveitakeppni. Spiluð
verður Monrad-sveitakeppni með 16
spila leikjum, alls 7 umferðir. Fjórar
þær fyrstu fara fram á láugardag og
þijár á sunnudag. Spilamennska
hefst klukkan 11 báða dagana.
Keppnisgjald er 10.000 krónur á sveit
og spilað er um guhstig í hverjum
leik. Skráning er á skrifstofu BSÍ
klukkan 13-17 aha virka daga og
skráningarfrestur er til fimmtudags-
ins 26. janúar.
Bridgehátíð Borgarness
Ágætis þátttaka var í Bridgehátíð
Borgamess sem fram fór helgina
14.-15. janúar. Á laugardag var sph-
uð Monrad sveitakeppni meö þátt-
töku 26 sveita og lokastaða efstu
sveita varð þannig:
1. Háspenna..................164
2. Sigfús Þórðarson..........145
3. Sparisjóður Mýrasýslu.......142
4. Ólöf Þorsteinsdóttir........139
5. Guðlaugur Nielsen...........136
Sveit Háspennu var skipuð þeim
Matthíasi Þorvaldssyni, Sverri Ár-
mannssyni, Jóni Hjaltasyni og Aðal-
steini Jörgenssyni. Á sunnudaginn
var síðan spilaður tvímenningur og
tóku 53 pör þátt í honum. Lokastaða
efstu para varð þannig:
1. Matthías Þorvaldsson-
Sverrir Ármannsson.............945
2. Murat Serdaroglu-
Þórður Björnsson...........911
3. Sigfús Þórðarson-
Gunnar Þóröarson...........899
4. Ragnar Haraldsson-
Gísli Ólafsson.............889
5. Guðlaugur Sveinsson-
Júlíus Snorrason...........874
6. Erhngur Einarsson-
Árni Bragason.........!.....851
Jakob Kristinsson var keppnis-
stjóri á mótinu og fórst það vel úr
hendi. Heildarverðmæti vinninga á
mótinu voru 200.000 krónur. Margir
spilaranna voru veðurtepptir í Borg-
arnesi á sunnudaginn vegna illviðris
sem geisaði um allt land. Menn létu
það ekki á sig fá og spilað var langt
fram eftir nóttu að lokinni tvímenn-
ingskeppninni.