Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1995, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 1995
Útlönd
Frakkarvilja
lögleiða hóruhús
Mitoll meirihluti Frakka vill
lögleiða hóruhús þar í Iandi.
Þetta kemur fram í skoðana-
könnun sem birt var í vikublað-
inu Le Journal du Dimanche í
gær. 68% aðspurðra eru þessu
fylgjandi en 28% reyndust vera
andvíg. 4% þeirra sem spurðir
voru tóku ekki afstöðu.
Hóruhús hafa verið bönnuð i
Frakklandi frá 1946 eða skömmu
eftir að seinni heimsstytjöldinni
lauk. Þá voru vændiskonur gerð-
ar brottrækar úr 178 byggingum
og 6 þúsund hótelherbergjum í
París einni saman. í könnuninni
nú kemur einnig fram að 71%
telur að með lögleiðingu þessarar
starfsemi megi draga úr hætt-
imni á eyöní og fleiri sjúkdómum.
28% aðspurðra höíðu hins vegar
enga trú á að shkt myndi gerast.
Clinton boðiðað
syngjaíNorður-
Kðreu
Roger Clin-
ton, stjúpbróð-
ir Bills Clint-
ons Banda-
ríkjaforseta,
hefur fengið
boð um að
koma fram á
skemmtun í
Pyongyang í
Norður-Kóeru í april. Roger Clin-
ton, sem bæði syngur og leikur á
gítar, sendi frá sér hljómplötuna
Nothing Good Comes Easy i sept-
ember á síðasta ári en hann er
nú staddur í Seoul. Þar kemur
hann fram á skemmtun til styrkt-
ar fótluðum bömum.
Taismaður Hvíta hússins segir
aö litlar likur séu á Roger komi
fram í Norður-Kóreu. Landiö sé
nú beitt refsiaðgeröum og það sé
tæknilega enn í stríði við Suður-
Kóreu. Haft er eftir tónlistar-
manninum sjálfum að hann muni
enga ákvörðun taka fyrr en eftir
að hafa rætt við bróður sinn, for-
„Skyndibitastaðurinn sprakk í loft
upp í fyrri sprengingunni. Hermenn-
irnir hlupu þá frá biðstöðinni til að
hjálpa þeim slösuðu og þá kvað við
önnur sprenging," sagði Kobi Marc-
iano, sjónarvottur að ódæðinu í mið-
borg Jerúsalem í ísrael í gær þegar
nítján fórust og yfir sextíu slösuðust
í árás sjálfsmorðssveitar hryðju-
verkamanna.
Af þeim særðu eru þrettán alvar-
lega slasaðir en hryðjuverkasamtök-
in Heilagt stríð hafa lýst ódæðinu á
hendur sér. í yfirlýsingu þeirra segir
að árásin hafi verið gerð til að hefna
fyrir dauða félaga þeirra, sem var
myrtur þegar bíll sprakk í loft upp á
Gaza-svæðinu í nóvember sl. Palest-
ínumenn saka ísraela um þann
verknað.
Útvarpið í ísrael sagði frá því að
nú væri verið að rannsaka hvort
fleiri en einn hryðjuverkamaður
hefði borið sprengju innan klæða.
Þegar hefur fundist hk eins hryðju-
verkamanns en samtökin Heilagt
stríð segja að tveir félagar'þeirra
hafi verið að verki. Samtökin nafn-
greina mennina sem Anwar Mo-
hammed Sakr og Salah Abedel
Hamid Shaker Mohammed en þeir
voru báðir búsettir á Gaza-svæðinu.
Um þrjú hundruð manns hafa nú
verið drepnir frá því að ísraelar
Um þrjú hundrað manns hafa fallið frá því að ísraelar og Palestinumenn skrifuðu undir samning i september 1993.
Á myndinni er verið að hlúa að tveimur israelskum hermönnum sem slösuðust í árásinni í gær en þar létu 18
manns lífið.
skrifuðu undir samning við Palest- Yitzhak Rabin, forsætisráöherra PLO, Yasser Arafat, sem er ábyrgur
ínumenn í septemer 1993. Atburðirn- ísraels, um að endurskoða hug sinn fyrir öryggismálum á Gaza-svæðinu.
ir nú hafa enn aukið á þrýstinginn á til viðræðnanna viö forystumann Reuter
Blóðbað á skyndibitastað í miðborg Jerúsalem í gær:
Nítján látnir og
yf ir sextíu særðir
- hryðjuverkasamtökin Heilagt stríð hafa lýst ódæðinu á hendur sér
setann.
Braustinn
ífangelsi
Vandræðagangur fangelsisyfir-
valda í Bretlandi yirðist engan
enda ætla að taka. Á föstudaginn
bárust af því fréttir að kona hefði
brotist þar inn í fangelsi til að
deila nóttinni með lesbískri vin-
kqnu sinni.
í umræddu fangelsi í Cheshire
fannst hola undir fangelsisveggn-
um en viö nafnkall kom í ijós að
engan vantaði. Nú hefur fyrrum
fangi skýrt frá því að holan hafi
verið notuð af utanaðkomandi
„gesti“. Ekkert fannst heldur við
öryggisleit í klefum enda var
„gesturinn" vel faUnn undir rúmi
ástvinarins.
Sama fangelsi var mikið í frétt-
um á síðasta ári en þá var fjölda-
morðingja, sem þar er vistaöur,
leyft að bregða sér í verslunar-
leiðangur til nálægrar borgar og
annar fangi fæddi þar bam innan
veggjanna.
QusncyJones
helðraður
Tónlistar-
maðurinn Qu-
incy Jones
verður heiðr-
aður sérstak-
lega við af-
hendingu ósk-
arsverðlaun-
anna. Jones
táer viðurkenn-
inguna fyrir starf sitt að mannúð-
anmálum en að þeim hefur hann
lengi unniö. Jones var t.d. upp-
hafsmaðurinn að því aö hljóörita
lagiö We Are the World sem saíh-
aði milljónum doliara fyrir bág-
Stadda. Reuter
James Bond og jafnréttiö:
Færri klæðalitlar
fegurðardísir
James Bond, frægasti njósnari
allra tíma, er nú kominn með kven-
kyns yfirmann. Samfara breyttum
viðhorfum í heiminum hafa forráða-
menn kvikmyndanna um 007 tekið
upp ný vinnubrögð.
Bond er ekki aðeins kominn með
yfirmann af „veikara kyninu" heldur
bregður nú svo við í nýjustu mynd-
inni um þennan fremsta njósnara
allra njósnara að miklu minna fer
fyrir fáklæddum stúlkum sem áður
voru vörumerki 007. Hollenska leik-
konan Famke Janssen fer meö eitt
hlutverkanna í nýju myndinni, sem
ber heitið Goldeneye, og hún segist
ekki vera aö leika neina heimska
ljósku.
Um 2,5 billjónir manna hafa nú séð
ævintýri Bonds á hvíta tjaldinu en í
þessari nýju mynd er hann að eiga
við skipulögð glæpasamtök en helstu
samtök mafíubófa hafa nú aðsetur í
Rússlandi. Af öðrum liðum þar sem
einnig kveöur við nýja tón má nefna
að njósnarinn ekur nú um á þýskri
írinn Pierce Brosnan leikur hinn
nýja James Bond, sem ekur þýskri
bifreið, klæðist ítölskum fatnaði og
gengur með svissneskt úr.
bifreiö, klæðist ítölskum fatnaöi og
gengur með svissneskt úr. írinn Pi-
erce Brosnan, sem leikur hinn nýja
Bond, fullvissar fólk hins vegar um
aö bæði skófatnaður hans og undir-
föt eru framleidd í Bretlandi.
Reuter
Umferðarslys í Mexikó:
22 létust þegar rúta
f ór út af veginum
Að minnsta kosti 22 létust þegar
rúta fór út af veginum í Oaxaca í
Mexíkó seint á fóstudagskvöldiö. EU-
efu til viðbótar slösuðust.. Bifreiðin
var á leið um gljúfur á fyrrnefndum
stað þegar óhappið varð en hún hrap-
aði meira en 20 metra.
Reuter
Starfsfólkið í konungshöllinm kjaftar frá:
Díana svaf hjá
Hewitt þegar Karl
var að heiman
Fyrrum ráðskona í konungsfjöl-
skyldunni, Wendy Berry, skrifaði í
dagbókina sína hvernig sængur-
fatnaður Díönu prinsessu var
óhreyfður daginn eftir að James
Hewitt var í heimsókn að Hig-
hgrove. „En í svefnherbergi Hew-
itts, nokkrum skrefum utar á gang-
inum, leit rúmið út eins og eftir
orrustu." Og ráðskonan fyrrver-
andi er ekkert að spara lýsingamar
þar sem hún heldur áfram: „Þegar
ég fór að eiga við sængurfötin var
augljóst að þar höfðu sofið tvær
manneskjur. Á koddanum var sítt,
ljóst hár og á lakinu var sönnunar-
gagn þess að einhvers konar
„virkni" hefði átt sér stað.“
Uppljóstrunin nú er sú önnur í
röðinni en fyrir fáeinum dögum
skýrði fyrrum starfsmaöur í þjón-
ustu konungsfjölskyldunnar frá
bólförum Karls og hjákonu hans,
Camillu. Frásögn ráðskonunnar
var birt í News of the World í gær
en Wendy Berry starfaði hjá Karh
og Díönu í tæp níu ár og hélt ná-
kvæma dagbók allan tímann. Til-
gangur hennar var að selja frá-
sögnina þeim sem mest vildi borga
fyrir hana.
í dagbókina skrifaöi ráðskonan
einnig mn samskipti hjónanna og
áhrifin sem þau höfðu á synina. Á
einum stað hefur Wendy Berry
Diana gamnaöi sér með viðhald-
inu þegar Karl var aö heiman,
segir fyrrum ráðskona þeirra
hjóna.
þetta eftir Vilhjálmi prinsi: „Pabbi,
af hverju læturðu mömmu gráta
allan tímann?"
Reuter