Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1995, Side 16
16
MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 1995
Fréttir
„Gróft trúnaðarbrot“ vegna bréfaskrifta 1 hreppsnefnd Jökuldals:
Hýðing á almannafæri
er refsing oddvita
Sérkennilegar deilur hafa veriö
í hreppsnefnd Jökuldalshrepps
undanfarnar vikur vegna þess að
Arnór Benediktsson oddviti sendi
ljósritað uppkast að svarbréfl til
umsækjanda um stöðu ráðskonu
við Skjöldólfsstaðaskóla á Jökuldal
í lok ágúst. Hreppsnefnd hefur átal-
ið oddvita harðlega fyrir að hafa
sent vinnuplagg nefndarinnar út í
heimildarleysi. Nefndin telur að
um „gróft trúnaðarbrot oddvita"
sé að ræða og hefur óskað eftir því
að hann biðjist afsökunar á því að
hafa sent plaggiö út. Þetta kemur
fram í fundargerð hreppsnefndar-
innar 8. janúar 1995.
Bréfasending Amórs Benedikts-
sonar oddvita hefur verið til um-
ræðu á tveimur hreppsnefndar-
fundum á Jökuldal að undanfórnu
og eru lyktir málsins þær að Arnór
hefur hreinskrifað bréfið og sent
það til umsækjandans. Málið kom
til umfjöllunar í hreppsnefnd eftir
aö umsækjandinn sendi kvörtun-
arbréf og taldi menn ekki eiga rétt
á að sitja í sveitarstjórn ef þeir
vaeru ekki skrifandi á íslenskt mál.
í fundargerð Jökuldalshrepps frá
8. janúar segir að oddviti telji „sína
refsingu vera þá að vera hýddur á
almannafæri. Skuli böðullinn vera
Sigurður Aðalsteinsson á Vað-
brekku svo að hann geti þar með
fengið útrás fyrir sínar vondu hu-
grenningar. Skuli böðullinn
ákveða stað og stund,“ eins og seg-
ir í fundargerðinni. í samtali við
DV sagði Arnór Benediktsson að
böðullinn væri ekki búinn að
ákveða stund og stað.
„Á hreppsnefndarfundi um miðj-
an janúar var tahð að þessu máli
væri lokið. Þetta var bara vinnup-
lagg sem hreppsnefndarmenn
skrifuðu á fundinum. Vinnuplagg-
ið leit ansi fátæklega út, yfirstrik-
ánir og orðalagi breytt hér og þar.
Plaggið átti ekkert erindi út af
fundinum og því afhent oddvita til
afgreiðslu. Hann er nú einu sinni
kosinn til þess að koma á framfæri
samþykktum hreppsnefndar og
fær kaup fyrir það,“ segir Sigurður
Aðalsteinsson, bóndi á Vaðbrekku.
„Ég er sjálfsagt að hluta til sekur
fyrir aö hafa sent þetta bréf svona
en ég tel að þessu máli sé lokið. Ég
sendi aldrei neitt afsökunarbréf því
að ég þurfti ekkert að afsaka. Ég
tel kvörtunina einkum beinast að
þeim sem skrifaöi bréfið í hrepps-
nefnd. Ég ætlaði að leysa málið
utan fundar en sá sem skrifaði
bréfið brást öfugur við. Hann sætti
sig ekki við að leysa þetta án þess
að troöa á mér,“ segir Arnór Bene-
diktsson oddviti.
Ráöhúsið í Reykjavík:
Nemendur Langholtsskóla hlýða á séra Arna Berg Sigurbjörnsson við Askirkju sl. fimmtudag. Efnt var til göngu
frá skólanum til kirkjunnar með friðarljós til að sýna Súðvíkingum samhug vegna snjóflóðanna þar í vikunni.
DV-mynd Sveinn
Ellefu milljóna
innkaup fram
hjá útboðum
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri segir að skipuð verði þriggja
manna nefnd til að koma með tillög-
ur um 270 milljóna króna sparnað í
rekstri borgarinnar sem gert er ráð
fyrir í fjárhagsáætlun borgarsjóðs
fyrir þetta ár. Starfssvið nefndarinn-
ar nái yfir útboð og verkkaup á veg-
um borgarstofnana en í DV hefur
komið fram að 20 prósent af verk-
kaupum borgarstofnana, eða einn
milljarður af fimm sem eytt er í verk-
kaup, fari fram hjá útboðum á vegum
Innkaupastofnunar Reykjavíkur-
borgar. Stefnt er að því að nefndin
skili tillögum fyrir 1. maí.
„Ef gert er ráð fyrir þvi að útboð
skili tíu prósenta sparnaði þá gætu
100 milljónir sparast í útboðum og
því þarf aö gera leikreglurnar miklu
skýrari. Aðhald hefur ekki verið
nægilegt í borgarrekstrinum. Borg-
arendurskoöun hefur veriö mjög
veik og ekki Utið svo á að hún hafi
það gagnrýnishlutverk sem hún á að
hafa. Athuga ber hvort ekki þurfi að
efla Borgarendurskoðun enn frekar
og auka raunverulegt sjálfstæði
hennar," segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri.
Borgarskrifstofurnar í Ráðhúsi
Reykjavíkur vörðu 11 milljónum
króna i innkaup árið 1993. Aðeins
rösklega 217 þúsund krónur fóru í
innkaup gegnum Innkaupastofnun
Reykjavíkurborgar, eða 1,9 prósent,
meðan 11,5 milljónir fóru framhjá
stofnuninni. Kann borgarstjóri skýr-
ingar á þessu?
„Greinilegt er að hér hafa menn
keypt inn eftir einhverjum öðrum
reglum. Það er auðvitað mjög slæmt
ef yfírstjórn borgarinnar þekkir ekki
þær reglur sem fara þarf eftir. Þessu
þarf auövitað að breyta og ég reikna
með að nefndin komi með tillögur
um það,“ segir Ingibjörg Sólrún.
Áskrífendur DV fá
10% aukaafslátt af
smáauglýsingum
Þverholti 11 -105 Ifeykjavík
Sími 563 2700 - Bréfasími 563 2727
Græni síminn: 99-6272
(fyrir landsbyggðina)
OPIÐ:
Virka daga kl. 9-22
Laugardaga kl. 9-14
Sunnudaga kl. 16-22
Athugið!
Smáauglýsingar í helgarblað
DV verða að berast fyrir
kl. 17 á föstudögum.
vwvvw
Tryggingastofnun hugar að húsnæðiskaupum:
Núverandi
húsnæði er
óviðunandi
- segirKarlSteinarGuðnason
„Núverandi húsnæði Trygginga-
stofnunar er óviöunandi. Það er
kjami málsins. Fatlaðir og aldraðir
eru að príla upp og niður fjórar hæð-
ir við niðurlægjandi aðstæður og við
húsið eru engin bílastæði. Hægt yrði
að ráða bót á þessu öllu saman með
því að kaupa nýtt húsnæði," segir
Karl Steinar Guðnason, forstjóri
Tryggingastofnunar ríkisins.
Oforml^gar viðræður hafa verið
milli Tryggingastofnunar og verk-
takafyrirtækisins Eykt hf. um bygg-
ingu h'úsnæðis undir stofnunina á
Gijóthálsi í Reykjavík. Um yrði að
ræða fjögur til fimm þúsund fer-
metra hús sem hýst gæti alla starf-
semi stofnunarinnar. Formlegar við-
ræður um kaupin eru áformaðar á
morgun.
Samkvæmt heimildum DV hefur
heilbrigðisráðuneytið þegar lýst sig
samþykkt kaupunum enda verði fer-
metraverðið á bilinu 75 til 85 þúsund
krónur. í fjármálaráöuneytinu er
máli enn til skoðunar. Trygginga-
stofnun á að stórum hluta eignir og
fjármuni fyrir húsnæðiskaupunum
ef af yrði, meðal annars húseignirnar
að Laugavegi 114 og 116 og hálft hús-
iðaðTryggvagötu28. -kaa