Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1995, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1995, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995 '■ ■. I 1 I J LJJIL JL r n'H n 1 :...i... n I ri -fyiir alla sjálfstæðismenn. Mætum öll á kosningavökuna og fögnum úrslitunum. Ósvikin kosningastemmning eins og hún gerist líflegust. Horft á kosningasjtmvarp ________ KosniJigaumræöur Kosningadans Húsið opnarkl. 22:30 Hljómsveitin Stjómin leikur fyrir dansi ásamt Sigríði Beinteinsdóttur og Bjama Arasyni. BETRA ÍSLAND Á NÆSTA SÖLUSTAÐ EÐA í ÁSKRIFT í SÍMA 563 2700 UPPBOÐ Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins að Strandgötu 52, Eskifirði, sem hér segir, á eftir- farandi eign: Brekka 6, Djúpavogi, þingl. eig. Gunn- ar B. Gunnarsson, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður Austurlands, Lífeyris- sjóður sjómanna og Lífeyrissjóður verslunarmanna, 12. apríl 1995 kl. 10.00. SÝSLUMAÐURINN Á ESKMRÐI UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á eignunum sjálfum sem hér segir: Hamarsgata 24, Fáskrúðsfirði, þingl. eig. Aðalheiður Valdimarsdóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður Austur- lands, 12. apríl 1995 kl. 13.15. Tunguholt, Fáskxúðsfjarðarhreppi, þingl. eig. Ingibjörg Jóhannsdóttir, gerðarbeiðendur Veðdeild Lands- banka Islands og Lífeyrissjóður Aust- urlands, 12. apríl 1995 kl. 13.50. Hammersminni 28, Djúpavogi, þingl. eig. Víkingur Birgisson og Guðbjörg Jónsdóttir, gerðarbeiðendur Veðdeild Landsbanka íslands, Djúpavogs- hreppur og Lífeyrissjóður Austur- lands, 12. aprfl 1995 kl. 16.00, Markarland 6A, Djúpavogi, þingl. eig. Baldur Gunnarsson og Stefánía Hilm- arsdóttir, gerðarbeiðendur Veðdeíld Landsbanka íslands, Landsbanki ís- lands og Djúpavogshreppur, 12. apríl 1995 kl. 16.30. SÝSLUMAÐURINN Á ESKIFIRÐI Matgæðingur vikuimar Súrsætur sví nakj ötsréttur Guðrún Eggertsdóttir, sem vinnur í matvöruversl- uninrú í Sólheimum í Grímsnesi, er matgæðingur vik- unnar að þessu sinni. Guðrún kveðst hafa gaman af því að prófa nýja og gimilega rétti. „Það eru þá helst kjötréttir því fiskur er ekki vinsæll heima hjá mér. Mér þykir líka gaman að baka úr geri.“ Guðrún býður upp á einn af girnilegu kjötréttunum sínum, súrsætan svínakjötsrétt. Súrsætur svínakjötsréttur 500 g svínakjöt 2 til 3 msk. sérrí 1 msk. sojasósa 1/2 bolli kartöflumjöl 2 gulrætur 1 til 2 paprikur 2 til 3 ananashringir 1 bolli sveppir 1 hvítlauksrif eða eftir smekk olía Sósa 1/2 bolli edik 1/2 bolli vatn 1/8 tsk. pipar 1 msk. sojasósa 6 msk. sykur 1 tsk. chilli 11/2 msk. kartöflumjöl 1 msk. vatn olía Blandið sérrí og sojasósu saman. Skerið kjötið í litla bita, þerrið það og setjið í sérríblönduna. Látið kjötið bíða í minnst 10 til 20 mínútur, gott er að láta það bíða í um 2 klukkustundir. Hrærið kartöflumjöli saman viö blönduna og látið bíða í 5 til 10 mínútur. Kjötiö er síðan steikt í olíu, tekið upp úr og þerrað á pappír. Kjötið er djúpsteikt tvisvar. Til að flýta fyrir er hægt að steikja í fyrra skiptið nokkrum klukku- stundum áður. Sveppirnir skornir ef vill, gulrætur hreinsaöar og Guðrún Eggertsdóttir. skomar, paprika skorin í bita og hvítlaukur skorinn smátt. 1 tsk. af olíu sett á pönnu og hvítlaukurinn steiktur. Hann er síðan tekinn af pönnunni á meðan grænmet- ið er steikt. 1 msk. af olíu sett á pönnuna og gulrætum- ar steiktar, síðan paprikkurnar. Sveppum bætt út í og að sfðustu ananasbitum. Pannan tekin af hitanum og hvítlauknum bætt út í. Lögurinn er settur í pott (má blanda 1 til 3 dögum áöur og geyma í ísskáp) og hitaður. Hann má ekki sjóða. Þegar búið er að djúpsteikja kjötið er það sett á ilvolga pönnu og grænmetinu blandað saman við. Lát- ið bíða í nokkrar sekúndur. Lögurinn er síðan settur yfir kjötið og grænmetið og allt jafnað en ekki við hita. Notið einnig afganginn af sérríblöndunni, ef eitthvað er eftir, til að jafna með. Gott er að bera fram meö þessu hrísgrjón og hvít- lauksbrauð. Guðrún skorar á Steinunni Magnúsdóttur, líffræðing í Reykjavík, aö vera næsti matgæðingur. „Hún er mjög fær í brauðbakstri og ýmsu öðru.“ Eftir helgina má fá uppskriftina í Símatorgi DV. Síma- númerið er 99 17 00. Hinhliðin Ætlatil Mílanó í sumar - segir Berglind Olafsdóttir, fegurðardrottning Reykjavíkur Berglind Ólafsdóttir, tæplega átj- án ára Hafnarfjarðarmær, var val- in feguröardrottning Reykjavíkur fyrir rúmri viku. Berglind sagði að þaö hefði komið sér mjög á óvart: „Eins og alltaf er sagt,“ bætti hún við. Hún segir að nú taki við miklar æfingar fyrir Fegurðarsamkeppni íslands sem fram fer 24. maí. „Það hefur verið æðislega skemmtilegt að taka þátt í þessu og nú er hör- kupúl framundan," segir Berglind sem var yngst þátttakenda í keppn- inni. Þess má geta að Berglind tók þátt í Fordkeppninni árið 1993. Það er fegurðardrottning Reykjavíkur sem sýnir hina hliðina að þessu sinni: Fullt nafn: Berglind Ólafsdóttir. Fæðingardagur og ár: 4. júní 1977. Maki: Enginn. Börn: Engin. Bifreið: Engin. Starf: Starfa hjá Módel 79. Laun: Mjög góð. Áhugamál: Karate, stunda snjó- bretti, dans og ferðalög. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Ég vinn aldrei í neinu - þetta var í fyrsta skipti sem ég vinn eitt- hvaö. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Fara í fjallaferöir. Hvað finnst þér leiðinlegast að Berglind Ólafsdóttir er fegurðar- drottning Reykjavíkur. gera? Að bíða. Uppáhaldsmatur: Piparsteik. Uppáhaldsdrykkur: Sprite. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Magnús Scheving. Uppáhaldstimarit: Vikan. Hver er fallegasti karl sem þú hefur séð? Þeir eru margir sætir en ætli það sé ekki leikarinn Brad Pitt. Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn- inni? Ég er algjörlega ópólitísk enda ekki komin með kosningarétt. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Eg á fjölmarga vini erlendis sem mig langar að hitta. Uppáhaldsleikari: Brandon Lee. Uppáhaldsleikkona: Engin sérstök. Uppáhaldssöngvari: Ég hlusta mjög mikið á tónlist og á marga uppá- haldssöngvara sem ég get ekki gert upp á milli. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ég á engan uppáhaldsstjórnmálamann. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Simpson-fjölskyldan. Uppáhaldssjónvarpsefni: Spennu- myndir. Uppáhaldsveitingahús: Hótel Holt. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Ég er í fríi frá skólanum og ætla líka að taka mér frí frá bóklestri. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? X-ið. Uppáhaldsútvarpsmaður: Anna Björk Birgisdóttir. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Stöð 2. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sig- mundur Emir Rúnarsson. Uppáhaldsskemmtistaður: Tungl- ið. Uppáhaldsfélag í íþróttum: FH. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Já, aö ná lengra. Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- inu? Ég ætla að starfa sem fyrir- sæta í Mílanó í sumar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.