Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1995, Side 12
12
LAUGARDAGUR*8. APRÍL 1995
Erlendbóksjá
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. T. Clancy & S. Pieczenik:
Tom Clancy's Op-Center.
2. Clive Cussler:
Inca Gold.
3. Danielle Steel:
Accident.
4 Allan Folsom:
The Day after tomorrow.
5. Amanda Quick:
Mistress.
6. John Sandford;
Níght Prey.
7. Ulian Jackson Braun:
The Cat Who Came to
Breakfast.
8. E. Annie Proulx:
The Shipping News.
9. Margaret Atwood.
The Robber Bride.
10. Dick Francis:
Decider.
11. Phillíp Margolin:
Heartstone.
12. Michael Crichton:
Congo.
13. Catherine Coulter:
Lord of Falcon Rigde.
14. Dean Koontz:
lcebound.
15. LaVyrie Spencer:
Family Blessings.
Rit almenns eðlis:
1. B.J. Eadie 8i C. Taylor:
Embraced by the Light
2. Thomas Moore:
Care of the Soul.
3. Elizabeth M. Thomas:
The Hidden Lífe of Dogs.
4. Dannion Brinkley8i Paul Perry:
Saved by the Light.
5. Sherwin B. Nuland:
How We Díe.
6. Delany, Delany 8i Hearth;
Having Our Say.
7. Thomas Moore:
Soul Mates.
8. Jerry Seinfeld:
Seinlanguage.
9. Maya Angelou:
Wouldn't Take Nothing for
My Journey now.
10. Maya Angelou:
I Know why the Caged Bird Sings.
11. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
12. Nathan McCall:
Makes Me Wanna Holler,
13. Karen Armstrong:
A History of God.
14. J. Pennington 8< C. de Abreu.
Husband, Lover. Spy
15. N. Gingrich 8i D. Armey:
Contract With America.
(Byggt á New York Times Book Revlew)
Harold Pinter
verðlaunaður
Eitt helsta leikskáld Breta á síöari
hluta aldarinnar, Harold Pinter, var
heiðraöur á dögunum meö hæstu
peningaverðlaunum sem veitt eru
fyrir bókmenntir á Bretlandseyjum.
Þau eru kennd við David Cohen, sem
gaf til þeirra fé, og nema 30 þúsund
sterlingspundum (á ijórðu milljón
króna), auk þess sem enska hstaráð-
ið (Arts Council of England) felur
vinningshafanum að ráðstafa 10 þús-
und sterlingspundum til viðbótar til
menningarstarfsemi. Pinter ánafn-
aði þeirri íjárhæð snarlega til leik-
húss í Glasgow til að hjálpa nýjum
leiksskáldum að fá verk sín sýnd þar.
Þessi verðlaun eru ekki veitt fyrir
einstakt skáldverk heldur til að
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
heiðra breskan höfund fyrir merki-
legt ævistarf á sviði ritlistarinnar.
Þeim var fyrst úthlutað fyrir tveimur
árum, til VS Naipaul, og er Pinter
annar í röð verðlaunahafa.
„Inn í nútímann"
Alastair Niven, talsmaður enska
listaráðsins, sagði dómnefndina hafa
lagt mikið upp úr íjölhæfni Pinters
sem hefur samið fjölda verka fyrir
leiksvið og kvikmyndir og ort ljóð.
„Hann færði bókmentirnar inn í
nútímann. Hann hefur ekki fengið
Harold Pinter, handhafi „The David
Cohen British Literature Prize“ árið
1995.
nein meiri háttar bókmenntaverð-
laun í Bretlandi - einungis tvenn
leikhúsverðlaun fyrir besta leikrit
ársins og heiðursnafnbætur frá há-
skólum. Erlendis er hann viður-
kenndastur allra breskra rithöf-
unda,“ sagði Niven. Þess má geta að
Pinter hefur hlotið nokkur bók-
menntaverðlaun utan heimalands
síns, þar á meðal þýsku Shakespe-
are-verðlaunin.
„Ég er mjög ánægður með þessi
verðlaun og lít á þau sem verulegan
heiöur," sagði Pinter í blaðaviötali.
Og hann bætti við: „Ég þekki einn
eða tvo menn hérlendis sem eru
hrifnir af verkum mínum en ég
mæti líka gífurlegri illkvittni, reynd-
ar hreinræktuðum fjandskap, í blöð-
unum. Slikt er ég alveg laus við er-
lendis.“ Hann telur ástæðu andúðar-
innar vera þá staðreynd að hann sé
óhræddur við að láta róttækar póli-
tískar skoðanir sínar í ljós.
Byrjaði á
sjötta áratugnum
í ræðu sem Pinter hélt eftir að hann
hafði tekið við „The David Cohen
British Literature Prize“ rifjaði hann
upp bókhneigð sína í æsku, þótt eng-
ir peningar væru til á heimilinu til
bókakaupa, og fyrstu skrefin á ferlin-
um sem leikskáld.
„Ég fór að semja leikrit árið 1957
og árið 1958 var The Birthday Party
frumsýnt í Lyric-leikhúsinu, hakkað
í spað af gagnrýnendunum (nema
Harold Hobson) og tekið út af dag-
skrá eftir átta sýningar," sagði hann
og rakti síðan hvernig þaö var að
fylgjast með einni sýningunni ásamt
aðeins sex áhorfendum. Þetta leikrit
varð síðar heimsfrægt.
Hann lagði jafnframt áherslu á að
rithöfundaferli sínum, sem hefði nú
staðið í 45 ár, væri langt í frá lokið.
í áðumefndu blaðaviötali lýsir
hann þeirri miklu þörf sem hann
hefur fyrir að halda áfram að skrifa
og segir: „Þegar þú getur ekkert
skrifað fmnst þér eins og þú sért út-
lægur ger frá sjálfum þér.‘
Metsölukiljur
Bretiand
Skáldsógur:
1. Catherine Cookson:
Justice Is a Woman.
2 Stephcn Fry:
The Hippopotamus.
3. Frederick Forsyth:
The Fist of God.
4. Hilary Mantel:
A Change of Clímate.
5. Caroline Harvey:
Parson Harding’s Daughter.
6. Elizabeth George:
Playing for the Ashes.
7. Jonathan Coe:
What a Carve Up!
8. Mary Wesley:
An Imaginative Experience.
9. Joanna Trollope:
The Choir.
10. Peter Hoeg:
Míss Smilla's Feeling for
Snow.
Rit almenns eölis:
1. Margaret Thatcher:
The Downing Street Years.
2. Jung Chang:
Wild Swans.
3. Stella Tillyard:
Arístocrats.
4. Andy McNab:
Bravo Two Zero.
5. W.H. Auden:
Tell Me theTruth about Love.
6. Julian Benyon:
We Just Clicked.
7. Jean P. Sasson:
Daughters of Arabia.
8. Konrad Spindler:
The Man in the lce.
9. R. Bauval 8r A. Gilbert;
The Orion Mystery.
10. Quentin Tarantino:
Pulp Fiction.
(Byggt á The Sunday Times)
Danmörk
1. Jung Chang
Vílde svaner.
2. Mary Wesley:
Kærlighed og kogekunst.
3. Jostein Gaarder:
Sofies verden.
4. Rosie Thomas:
Oen hvide due.
5. Paul Orum:
Syndebuk.
6. Peter Hoeg:
Froken Smillas
fornemmelse for sne.
7. Jorn Riel;
En arktisk safari og andre
skroner.
(Byggt á Politiken Sondag)
Vísindi
Risahumarinn var kon-
ungurinn í hafdjúpxinum
Svona ímynda menn sér að risahumarinn hafi litið út.
Hassa
heilanum
Vísindamenn vissu að ákveðn-
ar taugafrumur í okkur væru
með sérstakan nema sem tekur
við því efni kannabisplöntunnar
sem verkar á hugann, svokölluðu
TCH. Nú er vitað hvers vegna.
Jú, svarið er einfalt; heilinn í
okkur gefur sjálfur frá sér móle-
kúl sem að uppbyggingu er ekk-
ert ósvipað TCH kannabisplönt-
unnar og notast við sama nema.
Mólekúl þetta heitir anandamíð
(ananda þýðir hamingja á sans-
krit) og það voru franskir vís-
indamenn sem einangruðu það.
Skýring á
offitu?
Baráttan við aukakílóin getur
veriö einhver erfiðasti slagur sem
hægt er aö lenda í, eins og þeir
vita sem tekið hafa þátt í þeirri
glímu. En skyldi þessi ófógnuður
sem aukakílóin eru stafa af því
að heilinn í okkur misskilur boö
sem fitufrumurnar í líkamanum
senda honum?
Sérfræðingar við Rockefeller-
háskólann í New York uppgötv-
uðu gen í músum sem stjórnaði
þyngd þeirra með því að senda
heilanum boð um fitumagn í fitu-
frumunum. Ef fitan eykst skilur
heiiinn það sem boð um að draga
úr matarlystinni og öfugt. En gen
þetta getur veriö gallað og sent
vitlaus skilaboð til heöans.
Umsjon
Guðlaugur Bergmundsson
Fyrir sex hundruð milljónum ára
synti sex feta langt rándýr með ógn-
arsterkar griptengur, ekkert ósvipað
risastórum humri í útliti, um heims-
ins höf. Nýjustu steingerðu leifar
skepnu þessarar, sem sænskir og
kínverskir vísindamenn hafa rann-
sakað, benda til þess að hún hafl fal-
ið sig í leðju á hafsbotninum á meðan
hún beið eftir að hremma bráð sína.
Þetta var á fyrstu árum kambríum-
tímans, allt að 400 milljónum ára
áður en risaeðlurnar komu til sög-
unnar.
Að sögn vísindamannanna Juns-
yuans Chens, Lars Ramskolds og
Guis-qings Zhous eru þessi nýju
sönnunargögn mikilvæg þar sem þau
benda til þess að töluverð þróun hafi
orðiö á tímabili sem er jafnvel styttra
en áöur var talið. Það hefur verið trú
vísindamanna til þessa að svona stór
rándýr hafi ekki orðið til fyrr en
milljónum ára síðar.
Kambríumtíminn er merkilegur
fyrir það hversu hratt fjölfrumungar
komu fram á sjónarsviðið, í kjölfar
milljarða ára þar sem þróun ein-
frumunga á bprð við þörunga var
miklu hægari. Á meðan á svokallaðri
„kambriumsprengingu“ stóð komu
forfeður allra tegunda sem þekkjast
nú, og sumra sem eru útdauðar,
skyndilega fram á sjónarsviöið.
Dýrið sem kínversku og sænsku
vísindamennimir em að rannsaka,
anómalókaris heitir það, er sérstak-
lega áhugavert vegna stærðar sinnar
og vegna þess að nokkrir stein-
gervingahlutar, sem hafa fundist á
undanfómum eitt hundrað árum,
hafa verið greindir vitlaust. Seint á
síðustu öld fundust til dæmis útlim-
ir, sem voru eins og fótleggir, í hinu
fræga kanadíska setlagi sem kennt
er við Burgess-leirsteininn. Þá var
talið að þar væri um að ræða skrokka
á skepnum sem voru líkar rækjum.
Og það sem verra er, kjálki sem nú
er vitað að kom úr anómalókaris var
skráður sem partur úr marglyttu.
Derek EG Brigs, jarðfræðingur við
háskólann í Bristol á Bretlandi, segir
að saga skepnu þessarar séu ámóta
ólíkindaleg og dýrið sjálft. „Þó svo
að útlimirnir hafi borið vitni um risa-
stórt rándýr, var eðli dýrsins mönn-
um hulin ráðgáta þar til eintök þar
sem líkaminn var varðveittur, með
úthmina framan á hausnum, fundust
meðal þess sem tekið var úr Burg-
ess-leirsteininum fyrir um tíu
árum,“ segir Briggs í tímaritinu Sci-
ence þar sem skýrt var frá skepn-
unni.
Það sem skipti síðan sköpum voru
steingervingar sem fundust í Kína
árið 1984 og voru ekki rannsakaöir
til fullnustu fyrr en á árunum 1990
til 1992. Meðal þess sem grafið var
upp voru mjúkir hlutar skepnunnar
sem höfðu varðveist í fíngerðu seti.
Alla jafna hverfa mjúkir veflr og
aðeins eru eftir bein eða hlutar bei-
nagrindar.
Kiukku-
genið fundið
Sömu visindamenn og bjuggu
til glóandi plöntur með því að
sprauta DNA kjarnasýru úr eld-
ílugu í ungar fræplöntur hafa nú
fundið fyr sta líffir æðilega klukku-
genið í plöntum.
Klukkugen þetta stjómar hlut-
um eins og daglegum hreyfingum
lauthlaöa og ljóstillífunarhring
plantnanna. Uppgötvunin getur
hugsanlega haft þýðingu fyrir
rannsóknir á heilsu manna þar
sem margir visindamenn telja að
ákveðin form depurðar megi
rekia til óeðlilegrar starfsemi lif-
fraaðilegu klukkunnar í okkur.
Langt er síðan vísindamemi
viðurkenndu að viss hegðun hæði
dýra og plantna virtist ekki stafa
af neinu ytra áreiti, heldur
stjórnast af eins konar innri
klukku. Sem dæmi má nefna
plöntur sem lyfta blöðum sínum
til himins áður en sólin kemur
upp til að tryggja að þær nái
fyrstu Jjósgeislunum.
Var ekki
útdautt
Austur í Ástralíu fannst nýlega
lítiö pokadýr sem vísindamenn
héldu að hefði dáið út fyrir 125
árum. Dýr þetta, rottukengúra
með langt nef, er af undirtegund-
inni Gilberti.
Dýr þetta sást síöast árið 1869.
Vísindamennírnir fundu fimm
stykki, tvö fullvaxin karldýr,
ungt karldýr og fullvaxið kven-
dýr með unga i pokanum. Rottu-
kengúran verður um það hil 30
sentímetra löng og vegur eitt kíló.