Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1995, Side 22
22
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995
Aukauppboð
Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur ákveðið að halda aukauppboð á fasteign-
inni Tryggvagötu 16, 3. hæð og 1/2 1. hæð, þinglýstur eigandi Sport-
menn hf. Uppboðið fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 12. apríl 1995
kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík.
SÝSLUMAÐURINN i REYKJAVÍK
Tilbúinn í páskareisuna
Þessi glæsiiegi bíll sem er isuzu crew
cab, árg. 1992, er til sölu.
Bíllinn er ekinn 29.000 km, lengdur um 35 cm, 250 hö.
Chevr. vél, árg. '89, ný44" Dick Cepek á 15" léttmálmsfelg-
um, loftpúðafjöðrun að aftan, gormar að framan, stillanleg-
ir demparar, 380 lítra bensíntankar, GPS staðsetn. tæki,
SSB talstöð, Storno farsími, Pioneer útv. + geislasp. Verð
3,4 millj. Uppl. í síma 43988 og 46070 eða 989-62303.
Taktu þátt í skemmtilegum leik meö Sparihefti heimilanna og þú getur átt
von á aö vinna gómsætt páskaegg frá
Nóa Síríusi. Allt sem þú þarft aö gera er aö hringja f 99-1750 og svara
fimm laufléttum spurningum um Sparihefti heimilanna sem
nú hefur veriö dreift í öll hús á höfuðborgarsvæöinu.
Þann 12. aprfl næstkomandi veröur dregiö úr pottinum og hljóta hvorki
meira ná minna en 500 heppnir þátttakendur páskaegg frá Nóa Síríusi f
verölaun.
Þú sem þátttakandi I leiknum getur kannaö hvort þú sért einn af þeim
heppnu meö því aö hringja f síma 99-1750 frá 12. april næstkomandi.
Páskaeggin “eröa afhent vinningshöfum laugardaginn 15. apríl.
Auglýsingadeild
///////////////////////////////
Síðasta blað fyrir páska
kemur út
miðvikudaginn 12. apríl
Skil á stærri auglýsingum í það blað er fyrir
kl. 17.00 mánudaginn 10. apríl.
Fyrsta blað eftir páska
kemur út eldsnemma að morgni
þriðjudagsins 18. apríl.
Skil á stærri auglýsingum í það blað er fyrir
kl. 17.00 þriðjudaginn 11. apríl
auglýsingadeild
Þverholti 11 - sími 563 2700
Skák
Danski stórmelstarinn Curt Hansen hafði mikla yfirburði á Norðurlanda- og svæöamótinu.
Norðurlanda- og svæðamótinu er ekki lokið:
Aukakeppni
um sæti á milli-
svæðamóti
Danski stórmeistarinn Curt Hans-
en hafði svo mikla yfirburði á Norð-
urlanda- og svæðamótinu á Hótel
Loftleiðum að jafnvel þótt hann tap-
aði síðustu skák sinni fyrir Helga
Ólafssyni varö hann hálfum öðrum
vinningi fyrir ofan næsta iiiann. Að
þessu leyti minnti svæðamótið nú á
mótið í Reykjavík fyrir tuttugu árum
þar sem Ungveijinn Ribli sigraði
áreynslulaust.
Curt Hansen ætti að vera íslensk-
um skákunnendum að góðu kunnur
en þó voru margir sem ekki höíðu
heyrt hans getið fyrr og héldu jafn-
vel að nú væri nýr Bent Larsen kom-
inn fram á sjónarsviðiö. En Curt, sem
er þrítugur, hefur í allmörg ár verið
í fremstu röð danskra skákmanna.
Hann var bráðefnilegur unglingur;
varð m.a. Evrópumeistari 1982 og
heimsmeistari unghnga 1984 og er
fjórfaldur Danmerkurmeistari.
Vera má að Curt hafi ekki tekist
fram aö þessu að uppfylla aUar þær
vonir sem við hann eru bundnar í
heimalandinu en auðveldur sigurinn
á svæðamótinu bendir til þess að pilt-
ur hafi nú náð að stíga skrefið fram
á við. Hann gæti vel gert stóra hluti
á millisvæðamótinu, sem trúlega
veröur þó ekki haldið fyrr en í byijun
næsta árs, að sögn Kasparovs heims-
meistara sem var hér á ferð á dögun-
um.
Teflt var um þrjú sæti á milli-
svæðamóti. Margeir Pétursson,
hreppti annað sætið einn og tryggði
sér þar með farmiða á millisvæðamót
í þriðja sinn. Helgi Áss Grétarsson
hefur þegar unnið sér keppnisrétt,
sem heimsmeistari unglinga og
möguleiki er á því aö þriðji íslending-
urinn bætist í hópinn. Sex skákmenn
urðu jafnir í þriðja sæti og þurfa að
heyja aukakeppni um þátttökurétt.
Þeir eru Helgi Ólafsson, Jóliann
Umsjón
Jón L. Árnason
Hjartarson, Lars Bo Hansen, Jonat-
han Tisdall, Rune Djurhuus og Pia
Cramling.
Lokaumferö mótsins var afar
spennandi. Lengstum blés ekki byr-
lega fyrir „okkar mönnum" sem
eygöu einungis veika von í þriðja
sætiö - Margeir tefldi þó öruggt og
vandað gegn Lars Bo Hansen, sem
gerði enga tilraun til þess að flækja
taflið, þótt nauðsyn væri á vinningi
- skákinni lauk með jafntefli og þar
með var Margeir öruggur áfram.
Þegar líða tók á setima fór allt að
ganga upp. Jóhanni tókst að nýta sér
glufumar í taflmennsku fráfarandi
Norðurlandameistara, Simens Agde-
steins, og Helgi sneri við erfiðri skák
gegn Curt Hansen. Pia Cramling og
Jonathan Tisdall gerðu jafntefli og
þá var verkið fullkomnaö.
Tefld verður einföld umferð í úr-
slitakeppninni, sem hefst 19. apríl í
Reykjavik. Fari svo að keppendur
deUi sigri, verða meðalstig andstæð-
inga í aðalmótinu látin ráða. Þessi
regla er auðvitaö alveg hlægileg því
að þeir sem flest hafa stigin geta ekki
teflt viö sjálfa sig og standa þar af
leiðandi lakar að vígi. Samkvæmt
reglunni er Tisdall efstur, því næst
Pia og Jóhann er í þriðja sæti.
Fjörugasta skák Norðurlanda-
meistarans nýkrýnda var gegn landa
hans og nafna, Lars Bo Hansen, þar
sem báðir tefldu djarft til sigurs:
Hvítt: Lars Bo Hansen
Svart: Curt Hansen
Enskur leikur. 1. Rf3 Rf6 2. c4 c5 3.
Rc3 Rc6 4. g3 g6 5. Bg2 d5 6. cxd5
Rxd5 7. d3 Bg7 8. Bd2 0-0 9. Dcl e510.
Rxd5 Dxd5 11. h4?! Bg4 12. Kfl?!
Harla einkennilegt en trúlega áhrif
frá Bent Larsen. Með hvíta kónginn
strandaglóp á miðborðinu getur
svartur leyft sér ýmsilegt.
12. - Hfe8 13. Be3 Dd7 14. Rg5
Hann kýs að láta peðið á c5 eiga
sig, sem gefur svörtum opna línu og
sóknarfæri.
14. - Hac8 15. h5 c4! 16. hxg6 fxg6 17.
dxc4 Rd4 18. Bd5?
Nú leggur hvítur of mikið á stöð-
una. Eftir 18. Bxd4 exd4 með hótun
á e2 og d4-d3 í loftinu, hefur svartur
frumkvæði fyrir peðið.
18. - Bxe2+ 19. Kgl He7 20. b3 b5 21.
Dbl bxc4! 22. Dxg6 Bd3! 23. Re4
▲ I é tni
Á> Á
& JLÁ &■
A &
n *5Sa>-'
ABCDEFGH
23. - Re2+ 24. Kh2
Ekki 24. Kfl Rf4 +, eða 24. Kg2 Dxd5
og nú er riddarinn leppur.
24. - Bxe4 25. Dxe4 Rc3!
Og með þessari laglegu tilfærslu
vinnur svartur mann.
26. Dh4 Rxd5 27. Hadl cxb3 28. Kgl
Ef 28. axb3 He6, eða 28. Hxd5 Dxd5
29. Dxe7 bxa2 o.s.frv.
28. - Df5! 29. Hxd5 b2 30. Kh2 Hb7 31.
g4 Dg6 32. Hd8+ Hxd8 33. Dxd8+ BfS
34. Kg3 bl=D 35. Hh8+ Kxh8 36.
Dxf8+ Kh7
- Og nú loks gafst hvítur upp.
Bridgedeild Barðstrendinga
Nú er lokið fjóram kvöldum af 5 í barómeterkeppni
félagsins og Óskar Karlsson og Þórir Leifsson tróna nú
á toppnum. Baráttan er að öðru leyti geysihörð um efstu
sætin og mörg pör eiga enn möguleika á aö ná efsta
sætinu. Staða efstu para þegar fjórum kvöldum af fimm
er lokiö:
1. Óskar Karlsson-Þórir Leifsson 271
2. Friðjón Margeirson-Valdimar Sveinsson 243
3. Halldór Þorvaldsson-Kristinn Karlsson 232
4. Anton Sigurðsson-Ámi Magnússon 227
5. Halldór B. Jónsson-Eyjólfur Bergþórsson 208