Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1995, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995
27
T-bolur kr. 290
Roadh. skyrta kr. 990
Spainpils <; kr. 1.290
Spica bolur kr. 1.290
Spanish kjóll kr. 1.590
Émpira bómullarpeysa kr. 1.590
DarleensMki jLl. ] 990
.- '■.
.. ,
Kringlunni
s. 686244
Snakk með
kosningasjón-
varpinu
Islendingar munu án efa setjast fyrir
framan sjónvarpið í kvöld og fylgjast
með kosningadagskrám sem boðið
verður upp á á báðum sjónvarpsrás-
um. Þegar spennan fer að vaxa um
og eftir miðnætti má búast við að
gamirnar séu farnar að gaula og þá
er gott að fá sér miðnætursnarl. Hér
koma nokkrar uppskriftir sem upp-
lagöar eru með sjónvarpinu í kvöld.
Mexíkóskt taco er ákaflega vinsæll
réttur, hvort sem er hjá ungum eða
öldnum. Skeljamar eru keyptar til-
búnar og einnig er hægt að fá krydd-
blöndu og tacosósu í búðum ef menn
ætla að fá sér hefðbundiö taco. Hér
er hins vegar öðruvísi taco sem vert
er að prófa.
Hakk með chili
300 g nautahakk
1 laukur
smjör til steikingar
1 dós tómatbaunir
chilikrydd eftir smekk
1-2 msk. tómatkraftur
salt og pipar
1 avokado eða 8-10 grænar ólífur
Steikið hakkið ásamt söxuðum
lauknum í smjörinu. Setjið síðan
baunirnar út í og látið malla í 5-6
mínútur. Kryddið með chilikryddi,
tómatkrafti, salti og pipar. Skrælið
avokado, skerið í bita og blandið
saman við. Setjið blönduna síðan í
heitar skeljarnar um leið og þær em
bornar fram.
Grænmetisfyllt taco
2 grænar paprikur
200 g sveppir
1 laukur
1 pakki baunaspírur
smjör til steikingar
1-2 tsk. sojasósa
1 tsk. rifln engiferrót
salt og pipar
Skerið paprikurnar í þunna
strimla og sveppina í skífur. Saxið
laukinn. Léttsteikið allt á pönnu og
bætið vökvanum út í og kryddið.
Bætið baunaspírunum í í lokin og
setjið síðan blönduna í heitar taco-
skeljamar.
ídýfa fyrir taco
2 velþroskuð avokado
1 tsk. fínt hakkaður laukur
2 msk. sítrónusafi
nokkrir dropar tabasco
2 vel þroskaðir tómatar
salt og pipar
Skiptið avokadoinu í tvennt, skrap-
ið kjötið úr og músið það með gaffli.
Blandið lauknum, sítrónusafanum,
tabasco og hökkuðum tómötum, salti
og pipar saman við. Látið standa á
köldum dimmum stað þar til ídýfan
veröur borin fram, annars vill
avokado-ávöxturinn breyta um lit.
Tómatpitsa með lauk
Deigið
15 g ger
1 dl vatn
1 msk. oha
1/2 tsk. salt
ca 150 g hveiti
Fylling
1 msk. oha
2 msk. tómatkraftur
4 meðalstórir laukar
5-6 tómatar
salt og pipar
oregano og basil
8-10 ólífur
ca 150 g rifinn ostur
Gerið er leyst upp í volgu vatni og
síðan er ohu, salti og mestu af hveit-
inu blandað saman viö. Hnoðið deig-
ið vel og bætið meira hveiti út í. Lát-
ið hefast í 45-50 mínútur. Deihð síðan
deiginu í tvo parta. Fletjið út pitsu-
botnana og setjið á ofnplötu. Brettið
upp á kantana svo að fylhngin renni
ekki af. Blandið saman 1 msk. af
ólífuohu og tómatkrafti og smyijið
yfir botnana. Skerið laukinn í þunn-
ar skífur og tómatana í aðeins þykk-
ari skífur og setjið ofan á pitsuna.
Kryddið með salti og pipar og oreg-
ano og basil. Skreytið með ólífum,
svörtum eða grænum, og þekið með
rifnum osti. Loks er ca ein matskeið
Gott er að fá sér rjúkandi pitsu með
sjón varpinu og auðvelt að gera hana
sjálfur.
Fyllt zucchini er spennandi réttur og nýstárlegur.
af olíu sett yfir og bakað í ofni við
250 gráður í 8-10 mínútur.
Pönnukökur með
kjötfyllingu
Deig
125 g hveiti
örlítið salt
2 dl mjólk
1/2 dl rjómi
2 egg
Hrærið saman hveiti, salti, mjólk
og rjóma þar til hræran verður
kekkjalaus. Hrærið þá eggjunum
saman við. Steikið þunnar pönnu-
kökur.
Fylling
500 g kjöthakk
2 laukar
250 g sveppir
50 g smjör
11/2 dl tómatsósa
salt og pipar
1-2 hvítlauksbátar
1 tsk. basil
1-2 dl ostur
Hakkið laukinn fínt og skerið
sveppina í skífur. Bræðið smjörið og
brúnið laukinn og kjötið. Bætið síðan
sveppunum í og steikið. Bætið tóm-
Mexíkóskt taco er mjög vinsæll réttur, jafnt hjá yngri sem eldri.
atsósu út í og kryddið með salti, pip-
ar, hvítlauk og basil. Látið kjötfyll-
inguna malla í 10-15 mínútur. Skiptið
fylhngunni á 10-12 pönnukökur,
rúllið þeim upp og setjið í eldfast
form. Stráið ostinum yfir og bakið í
ofni við 200 gráður í 20 mínútur. haf-
ið gjarnan salat og brauð með.
Gratínerað zucchini
3 stór zucchini
rifinn ostur og parmesan
Fylling
1/4 kg kjöthakk
1/2 laukur
1 hvítlauksbátur
1/2 dl ólífuoha
1 dós tómatar
ca 70 g tómatkraftur
salt og pipar
1-2 tsk. oregano
Brúnið kjötakkið og laukinn i ólíu
og bætið síðan öðru út í. Látið sósuna
malla þar til hún verður frekar
„þurr“.
Skerið lok af zucchininu og skafið
úr því þannig að pláss verði fyrir
fyllinguna. Það sem þú tekur úr
ávextinum er vel hægt að nota í kjöt-
fyllinguna. Blandið saman rifnum
osti og parmesan og stráið yfir kjöt-
fyllinguna. Bakið zucchinið við
230-240 gráður þar til osturinn verð-
ur gylltur og zucchinið orðið mjúkt.
Borið fram með salati og brauði.