Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1995, Side 28
28
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995
Trimm____________^
Hlaupavertíðin
er að byrja
í nýútkominni handbók FRÍ er að
finna hlaupaskrá sumarins. Þessa
skrá skoða skokkarar með svipuðu
hugarfari og sælkerinn opnar kon-
fektkassa. AUt sem blasir viö er
girnilegt: Hvað á að velja og hvenær
eru bestu bitamir? í ljós kemur að
þeir sem standa að hlaupum nota
ýmsar brellur til þess að lokka fólk
til þátttöku, s.s. kaffihlaðborö,
ókeypis pasta og fleira.
Við þá sem eru nýbyrjaðir að
skokka er rétt að segja þetta: Það er
frábær og ódýr skemmtun að taka
þátt í almenningshlaupum og það að
skokka væri ekki nema hálf ánægja
ef ekki gæfust tækifæri til þess að
Kanntu
að sippa?
Gamla sippubandiö er velflest-
um kunnugt úr bamæsku. Þetta
gamla leikfang getur komið sér
vel fyrir þá sem vflja fjölbreytni
í æfingum. Ef ekki viörar til
hlaupa og ekki er tími til aö
skreppa i sund er góð æfmg að
sippa rösklega í jafnlangan tíma
og viðkomandi er vanur að
skokka. Að sippa er minna álag
á fæturna en að hlaupa og getur
hentað vel þeim sem em lítiilega
meiddir. Best er að vera í hefð-
bundnum íþróttaskóm og helst
ekki sippa á steingólfi. Gætið þess
að sippubandið sé nógu langt.
Endar þess þurfa að ná upp í
handarkrika þegar staðið er með
annan fótinn í lykkjunni. Þegar
sippað er skal ekki hreyfa hand-
leggina nema um úlnliöi og oln-
boga. Sipp er talin góð þjálfun
fyrir fæturna en sérstaklega fyrir
kálfana og þjóhnappana. Góða
skemmtun
Slúður-
molar
Trimmsíðan hefur heyrt að
mjög ævintýralegt almennings-
hlaup sé í undirbúningi og eigi
aö fara fram þegar nótt verður
björL Hlaupið verður kennt við
eyju í nágrenni Reykjavíkur og
fer að einhveiju leyti fram þar.
En nú segjum við ekki meira því
þetta er leyndarmál. Jamm.
Trimmsíðan hefur fyrir satt að f
dag sé kosiö til Alþingis. Þeir sem
ætla aö skokka á kjörstaö eru
minntir á að hafa persónuskilriki
meðferðis. Passið að láta ekki
svitadropa leka á kjörseðilinn því
hann gæti orðið ógildur. í Flóa-
hlaupinu á dögunum var ágæt
þátttaka og endasentust menn
um allar sveitir austur í Flóanum
sem hlaupið er kennt við. Þátt-
takendur voru um 60 og þar af
helroingur frá Nárosflokkum
Reykjavíkur. Tveir hlauparar
hafa verið útskrifaðir úr skokk-
hópi Námsflokkanna en slíkt
tíðkast að gera við þá sem eru
famir aö hlaupa að jafnaði hrað-
ar en þjálfarinn, Jakob Bragi
Hannesson. Þessir tveir eru
Geröur Guðlaugsdóttir og Guð-
mann Elísson sem bæði hafa
gengið til liðs við ÍR.
- allir út að skokka
Hitað upp fyrir Reykjavíkurmaraþon í fyrrasumar.
urður Haraldsson í síma 565 1114 og
Magnús Haraldsson í 565 4614.
20. maí: Landsbankahlaupið um
land allt en kl. 11 í Laugardalnum í
Reykjavík. Þetta er vinsælasta
bamahlaup ársins og nú slátra menn
sparigrísnum og kaupa nýja hlaup-
askó.
21. maí: Breiðholtshlaup Leiknis
hefst kl. 13 við sundlaugina við Aust-
urberg. Minnst 2 km o’g mest 10 km.
Það eru góðar brekkur í Breiðholt-
inu. Ójá. Upplýsingar veitir Jóhann
Úlfarsson langskokkari í símum 569
0100 og 568 2853.
27. maí: Neshlaup TKS og Gróttu
hefst kl. 11 við Sundlaug Seltjarnar-
ness. Minnst 3,5 km og mest 14 km.
Frábært hlaup kringum golfvöllinn
með skrækjandi kríur yfir hausnum.
Upplýsingar veitir Margrét Jónsdótt-
ir þrumuskokkari í síma 562 2883.
Nánari upplýsingar af ýmsu tagi
er að finna í áðumefndri Handbók
FRÍ sem fæst gegn vægu gjaldi á
skrifstofu Reykjavíkurmaraþons og
skrifstofu FRI. Báðar eru til húsa í
íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
reyna sig við aðra skokkara og sjálf-
an sig í heilbrigðri og jákvæðri sam-
keppni. En lítum aðeins nánar á
hlaupaskrána fyrir næstu tvo mán-
uði.
15. apríl: Víðavangshlaup UMFA
hefst kl. 14 við Varmárvöll í Mosó.
Hlaupið er minnst 900 metra, lengst
8 km og er kjörið tækifæri til þess
að vita hvernig maður kemur undan
vetrinum. Upplýsingar á skrifstofu
UMFA í síma 566 7089.
20. apríl: Víðavangshlaup ÍR hefst
kl. 13 við Ráðhús Reykjavíkur. Vega-
lengdin um 5 km. Allir fá pening og
kafflhlaðborð á eftir. Allir í hnallþór-
umar. Upplýsingar hjá Katrínu Atla-
dóttur í sima 567 6122.
20. apríl: Víðavangshlaup Vöku.
Upplýsingar: Aðalsteinn Sveinsson í
síma 98-63304.
20. apríl: Víöavangshlaup Skeiða-
manna. Upplýsingar: Valgerður Auð-
unsdóttir í síma 98-65530.
29. apríl: Víðavangshlaup UMSE.
Upplýsingar á skrifstofu UMSE í sím-
um 96-24011 og 96-24477.
29. apríl hefst Námsflokkahlaup
Reykjavíkur við Miðbæjarskólann
kl. 11. Vegalengdin er 10 km. Öllum
þátttakendum er boöið upp á frítt
Umsjón
Páll Ásgeir Ásgeirsson
pasta eftir hlaup. Ójá. Þarna verða
margir helstu skokkjaxlamir mættir
ásamt rennilegum hlaupadrottning-
um sem koma grannar og sprett-
harðar undan snjónum. Sjálfur Pétur
Frantzson veitir upplýsingar í síma
551 4096.
29. apríl: Víðavangshlaup ÚÍA.
Upplýsingar á skrifstofu ÚÍA í síma
9711353.
1 maí: Vorhlaup UFA hefst við
íþróttahöllina á Akureyri kl. 14.
Minnst 1,2 km, mest 6,8 km. Verður
hlaupið á þrúgum? Upplýsingar veita
Sigurður í síma 9627791 og Jón í síma
9625279.
1. maí: 1. maí hlaup Fjölnis og OLÍS
hefst við íþróttamiðstöðina Dalhús í
Grafarvogi kl. 14. Minnst 1,6 km og
mest 2,7 km. Sannkallaö úthverfas-
kokk og allir með. Upplýsingar veitir
Jóhann Jakobsson í síma 567 6153.
4. maí hefst Flugleiöahlaupið við
Hótel Loftleiðir kl. 19. Vegalengdin
er 7 km. Upplýsingar veitir Arni Sig-
urðsson flugskokkari í síma 569 0700
Og 552 0309.
6 maí: Víðavangshlaup íslands
hefst kl. 14 í Mosfellsbæ. Þetta er
hlaupið sem verður að fara fram á
grasi lögum samkvæmt. Hlaupið
verður minnst 1,5 km en mest 8 km.
Upplýsingar á skrifstofu Umf. Aftur-
eldingar í síma 566 7089.
6. maí: Vímuvamahlaup Lions í
Hafnarflrði hefst kl. 14 á Víöistaða-
túninu. Mest 4,5 km. Allir hlaupa
allsgáðir og fá pening fyrir. Upplýs-
ingar veitir Bryndís Svavarsdóttir
ofurskokkari í síma 555 3880.
11. maí: Fjölskylduhlaup Vals hefst
kl. 19 við Hlíðarenda.
13. maí: Húsasmiðjuhlaup FH hefst
kl. 13 við Húsasmiðjuna við Hellu-
hraun í Hafnarílrði. Minnst 3 km en
mest 21 km en keppni í hálfmaraþoni
hefst kl. 12.30. Þetta er sko almenni-
legt hlaup og nú mæta allir sem fæti
geta valdið. Upplýsingar veita Sig-
Jakob Bragi Hannesson:
Sígandi lukka er best
„Við þá sem era að byija vil ég
segja eitt: Byijið rólega. Þó ykkur
langi til þess að taka þátt í almenn-
ingshlaupum er það varla ráðlegt
fyrsta mánuðinn og hlaupið alls ekki
lengra en fimm kílómetra í fyrsta
sinn.“ Jakob Bragi Hannesson er
þekktur hlaupari og meðal reynd-
ustu skokkþjálfara. Hann er lesend-
um Trimmsíðu að góðu kunnur sem
höfundur þjálfunaráætlana fyrir
Reykjavíkurmaraþon. Hann þjálfar
skokkhópa í Námsflokkum Reykja-
víkur og er að hefja fjórða starfsárið.
Hópurinn, sem skiptist oröiö í tvo
flokka, byijendur og lengra komna,
er milli 50 og 60 manns og ekki er
lengur þörf á að auglýsa starfsemina
því byrjendahópar fyllast af sjálfu
sér.
Jakob segir að eftir erfiðan vetur
sé mikilvægt fyrir skokkara að fara
varlega þegar færið batnar. „Mörg-
um hættir til hlaupa of hratt, eins
og kálfar á vori, þegar færiö batnar
og eru svo lengi að jafna sig. Sígandi
lukka er best og þeir sem hlupu sig
í góða þjálfun síðasta sumar og hafa
kannski farið rólega í vetur ættu að
íhuga það. Ekki ijúka út með látum
og hlaupa eins og vitfirringar. Betra
er að hlaupa langt og rólega en stutt
og hratt og byggja fyrst upp þoliö því
það er grunnurinn fyrir hiraðann."
Jakob Bragi segir að því sé haldið
fram að mikil hreyfing á aldrinum
9-14 ára, þegar mikilvæg líffæri era
aö ná fullum þroska, geti lagt grunn-
inn að þoh og getu manna á fullorð-
insárum. Þannig geti blundað hlaup-
ari í fólki án þess að það viti af og
mjög sé misjafnt hve fljótt fólk nái
upp þoli. Þetta telur hann sýna að
aldrei sé of seint að byija að hlaupa
og margir búi yfir leyndum hæfileik-
um á þesu sviði og meiri getu en
þeir vita af.
En er hlaupaaldan enn aö rísa og
vaxa eða er hún í rénun? „Mér finnst
aö áhugi fólks og þátttaka í almenn-
ingshlaupum sé enn að aukast og
sumarið leggst mjög vel í mig.“ Jakob
Bragi Hannesson skokkþjálfari ráð-
leggur mönnum aö fara hægt í fyrstu.
Jakob Bragi Hannesson.
DV-mynd GVA