Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1995, Qupperneq 38
Sviðsljós
Systumar Jackie og Lee:
Börðust um hylli skipakóngsins
Jackie Onassis.
Lee Radziwill.
Jackie Kennedy, fyrrverandi for-
setafrú Bandaríkjanna, og systir
hennar, Lee Radziwill, háðu harða
baráttu um hylli skipakóngsins Ar-
istotelesar Onassis. Þetta fullyrðir
rithöfundurinn Diana DuBois í nýú-
kominni bók sinni um líf Lee.
í bókinni kemur fram að Lee hafl
átt í ástarsambandi við gríska skipa-
kónginn á undan Jackie. Lee var þá
gift pólska prinsinum Stanislaw
Radziwill en ætlaöi að skilja við
hann. Áætlanir hennar fóru hins
vegar út um þúfur þegar Jackie kom
til skjalanna.
Reyndar var það Lee sjálf sem
kynnti Jackie og Onassis á lysti-
snekkju hans.
Lee á seinna að hafa hringt til rit-
höfundarins Trumans Capotes og
öskraö í símann þegar Jackie og
Onassis voru farin að draga sig sam-
an: „Hvernig gat hún gert mér þetta?
Hvernig gat þetta gerst?“ „Lee hélt
að hún væri búin að negla Onassis.
Hún var ekki ástfangin af honum en
hún hafði áhuga á öllum skipunum
hans,“ sagði Capote seinna.
Jackie, sem lést í maí síöastliðnum,
giftist Onassis 1968. Hjónabandið olh
vonbrigðum margra Bandaríkja-
manna sem höfðu dýrkað hana og
dáö. Þeir töldu að hún hefði einungis
gifst Onassis peninganna vegna.
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995
Jessica ásamt eiginmanni sinum, Sam
Shepard.
... að Tiffany Trump, 16 mánaða
dóttir Mörlu og Oonalds Trump,
værl þegar farin að taka þátl i
samkvæmislifinu. Sú stutta
mætti á tískusýningu á dögunum
með móður sinni og gættu henn-
ar fjórir lífverðir
... að leikkonan Pam Ferris
væri orðín ieið á þvi að ieika
húsmóður í sjónvarpsmynda-
flokknum Mrs. Hartley and the
Growth Centre. Hún dansar nú
hálfnakin i sjónvarpsþætti með
ástfanginn ungling við hlið sér.
. . . au * mivi ia wvinpi ii laoasa
hefði leikið á Ijósmyndara sem
elta hana hvert sem hún fer. Hún
gerði sér svo dælt við bekkjar-
bróður sinn á skíðaferðalagi að
Ijósmyndarar héldu að hann
væri nýl kærastinn hennar.
Stráksi, sem tók þátt i leik prins-
essunnar, er hins vegar kærasti
vinkonu hennar.
Jessica með Baryshnikov og dóttur þeirra,
Alexöndru, sem nú er 14 ára. Yngri börn
Jessicu eru Hannah, 9 ára, og Walker, 7
ára.
Jessica Lange er af finnskum og pólskum ættum.
Ólyginn
... að kvikmyndaleikkonan
Glenn Close ætlaði að gifta síg
í þriðja sinn. Hún kynntist hinum
heitteiskaða, Steve Beers, við
uppsetningu á söngleiknum Sun-
set Boulevard á Broadway.
Gienn leikur þar stórt hlutverk
en Steve gerði leikmyndina.
... að súperfyrirsætan og lesb-
ían Rachel Wiliiams ætti von á
barni með kærasta Naomi
Campbelis, Eric Goode, sem er
veitingahússeigandi í New York.
Ekki eru nema nokkrar vikur sið-
an Rachel lýsti yfir ást sinni á
pönksöngkonunni Alice Temple.
Jessica Lange:
Fyrrverandi hippi
og flakkaði víða
Jessica Lange, sem hlaut óskars-
verðlaunin sem besta leikkonan fyrir
hlutverk sitt í kvikmyndinni Blue
Sky, er 45 ára og þriggja barna móðir.
Jessica er gift leikritahöfundinum
og leikaranum Sam Shepard sem er
51 árs. Hún segist aldrei hafa hitt
manneskju með jafn spennandi
hugsanagang og Sam. Hann sé einnig
með mjög óvenjulegan húmor og
hafi veriö henni hrein ráðgáta þegar
þau hittust. Hún kveðst verða hrifn-
ari og hrifnari af eiginmanninum
eftir því sem árin líða.
Jessica ólst upp í Minnesota í
Bandaríkjunum og voru foreldrar
hennar af finnskum og pólskum ætt-
um. Hún flutti að heiman 1968 og
gerðist hippi og flakkaði víða, til Suð-
ur-Ameríku, Evrópu, New York, Ka-
lifomíu og Mexíkó. Núna hefur hún
búið í Virginíu í níu ár og finnst það
undarlegt að hafa verið svo lengi á
sama stað. Hún segir það ekki bein-
línis eiga við sig og hefur loksins
fengið Sam og börnin til að sam-
þykkja að flytja aftur til Minnesota.
Hún bjó um skeið í Evrópu og ætl-
aði aldrei að koma aftur til Banda-
ríkjanna af pólítískum ástæðum.
Þegar farið var að þjarma að Nixon
kom hún aftur því hana langaði til
að fylgjast með. Það var þegar Water-
gatemálið stóð sem hæst.
Jessica sagði nýlega í blaðaviötali
að það kæmi fyrir sig stöku sinnum
þegar hún gengi eftir götu og sæi
spegilmynd af sjálfri sér í verslunar-
glugga að sér fyndist hún orðin göm-
ul. Henni þykir erfitt að eldast og
hefur verið að velta því fyrir sér
hvort hún eigi að fara í andlitslyft-
ingu. Sam er hins vegar algjörlega
mótfallinn því að því er Jessica
greinir frá.
Hún þykir alvarleg og jafnvel
stundum döpur. Hún telur sig dapra
að eðlisfari og það sé ef til vill þess
vegna sem hún sækist eftir hlutverk-
um þar sem persónumar syrgi eitt-
hvað sem þær vita jafnvel ekki hvað