Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1995, Qupperneq 43

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1995, Qupperneq 43
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995 51 ísland (plötur/diskar) t 1(1) Reif í kroppinn Ýmsir | 2(2) Unplugged in New York Nirvana • 3(5) Greatest Hits Bruce Springsteen 4 4(3) Dookie Green Day $ 5(4) Smash Offspríng t 6(7) Parklife Blur 4 7 ( 6 ) No Need to Argue The Cranberries t 8(9) Pulp Fiction Úr kvikmynd t 9 (16) Dummy Portishead 4 10(8) Party Zone 94 Ýmsir | 11 (11) Everything Is Wrong Moby 4 12 (10) æ Unun t 13 (-) Above Mad Season 4 14 (12) Þóliðiárogöld Björgvin Halldórsson 4 15(14) Cross Roads - The Best of Bon Jovi 4 16 (13) Heyrðu aftur "94 Ýmsir t 17 (18) Li<mKing Ur kvikmynd t 18 (-) Made in England Elton John | 19 (19) ViolinPlayer Vanessa May 4 20 (15) Maxinquaye Tricky Listinn er reiknaöur út frá sölu í öllum helstu hljómplötuverslunum í Reykjavík, auk verslana víða um landiö. New York (lög) « 1. (-)Wakoup! Boo Radleys 4 2. (1 ) The Color of My Love Celine Dion t 3. ( 4 ) Greatest Hhs Bruce Springsteen 4 4. (2 ) Medusa Annie Lennox 4 5. ( 3 ) Made in England Elton John 4 6. ( 5 ) Elastica Elastica t 7. ( 9 ) No Need to Argue Cranberries t 8. (- ) Subhuman Race Skid Row 4 9. ( 6 ) Pan Pipo Moods Free the Spirít t 10. (11) Parklifa Blur Bandaríkin (piötur/diskar) tórilfp¥ Safnplötuvorið er gengið í garð - nýjar plötur komnar í Heyrðu- og Popp(f)ársseríunum Heiðrún Anna Bjömsdóttir og Óskar Páll Sveinsson: Frekara samstarf ræðst af viðtökum fyrsta lagsins sem þau vinna sam- an. DV-mynd: ÞÖK Vorið er fyrst og fremst tími safn- platnanna þótt vitaskuld skjóti þær upp kollinum á ýmsum öðrum tím- um árs. Popp(f)árið 95, fyrsti hluti, er nýkomin í verslanir og á næstu dög- um kemur Heyrðu sex. Á báðum þessum plötum er blandað saman ís- lenskri tónlist og erlendri. Sumt er nýbúið að vera vinsælt, annað vin- sælt um þessar mundir og á báðum plötum eru ÆÍðan nokkur lög sem vonast er til aö slái í gegn á næstu vikum. Safnplötuformúlan er sem sagt nýtt til fuUnustu. Frumraun Heiðrúnar Af íslensku flytjendunum sem fram koma á plötunum er það óneit- anlega Heiðrún Anna Bjömsdóttir sem fær þrúnimar til að lyftast. Hún hefur hingað til verið einna þekktust í fegurðarsamkeppna- og fýrirsætu- geiranum en kveður sér nú hljóðs sem söngkona með lítt kunnu er- lendu lagi og nýtur dyggrar aðstoöar Óskars Páls Sveinssonar upptöku- stjóra við gerð þess. „Ég hef lengi átt mér þann draum að verða sögnkona og ákvað fyrir nokkra að reyna nú að láta hann ræt- ast, segir Heiðrún Anna og hiær. „Á liönum árum hef ég sungiö í kór, kom- ið fram á skólaskemmtunum, söng- keppni framhaldsskólanna og einnig sungið aðeins á skemmtistöðum. Einnig var ég uppsetningunni á Hár- inu í Islensku óperunni. Svo var það einn daginn að ég sá að ekki mátti lengur við svo búið standa. Það myndi enginn koma og biðja mig að syngja lag inn á plötu svo að ég yrði að gera sjálf eitthvað í málinu. Ég bað vin- konu mína um ráð og hún benti mér á að Óskar Páll upptökumaður í Stúd- íó Sýrlandi gæti kannski eitthvað gert fyrir mig. Og nú er lagið komið. Og lagið er For What It’s Worth eft- ir Stephen Stills sem hljómsveitin Buffalo Springfield gaf út blómaárið 1967. Heiðrún Anna valdi lagið en hafði reyndar ekki hugmynd um fyrstu útgáfu þess. „Ég heyrði fyrstu útgáfuna með Sergeo Mendez And The Brazii ‘66 og fannst það henta mér vel, segir hún. „Þetta lag er búið að vera mjög vin- sælt á Kaffibamum og þegar þaö er spilað skömmu fyrir lokun um helg- ar kemst stemmningin í botn. Fyrst ætlaði ég reyndar að hljóðrita gam- alt Mamas Ánd The Papas-lag, Got A Feeling, en Óskari Páli leist ekki á það. Hann féllst hins vegar á For What It’s Worth. Mig grunaði ekki að lagið ætti sér neina sögu og varð al- veg steinhissa þegar ég heyrði brot úr því í kvikmyndinni Forrest Gump. Síðar uppgötvaði ég að textinn var ádeOa á Vietnam stríðið. Óskar Páil segist hafa leyft upphaf- legum grunntóni lagsins að halda sér. Þá tók hann traustataki tvo gítartóna úr laginu til að gefa því sinn sérstaka svip. Að öðm leyti er lagið spilað að nýju og sér einvala liö hljóðfæraleik- ara um það: Eyþór Gunnarsson, Frið- rik Karlsson, Gunnlaugur Briem, Óskar Guðjónsson og Jon Kjell. En eftir þessa frumraun, verður meira úr samstarfi þreirra Heiðrúnar önnu og Óskars Páls. Þau brosa: „Jú, það hefur verið rætt, segir hún. „Við ætlum fyrst að sjá til hvemig viðtökur þetta lag fær. Það em nokkrar hugmyndir í gangi og þá erum við með friúnsamda tón- list í huga. Óskar Páil bætir við: Það hefúr líka verið rætt um að útbúa fleiri hljóðblandanir af þessu lagi, gera dansútgáfú og þess háttar. Það kemur í ljós á næstunni hvað úr verð- ur. Meira íslenskt Fleiri íslensk lög em á safnplötun- um tveimur. For What It’s Worth er á Heyrðu sex og þar er einnig lagið Losti með poppsveitinni Vinum vors og blóma. Á Popp(f)árinu em fjögur lög með íslenskum flytjendum. Tweety er þar á ferð með lagið Rosa- legt. In Bloom á þar lagið Tribute. Sú sveit hefúr áður látið i sér heyra á safiiplötunni Ýkt böst. Þá er á plöt- unni nýtt lag með Jet Black Joe. I You We heitir það og er einnig að flnna á alþjóðlegri útgáfu plötunnar Fuzz. Loks em Sigríður Beinteinsdóttir og Friðrik Karlsson, öðm nafni Giga- þyte, á ferð með lagið Take Me Away. Það hefur áöur komið út með íslensk- um texta, nefndist þá Vængbrotin ást og var flutt af Þúsund andlitum. vikunnar Phil Anselmo Ræðst gegn röppurunum <
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.