Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1995, Page 22
34
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1995
Fólk í fréttum
Ami Vilhjálmsson
Árni Vilhjálmsson, prófessor og
stjórnarformaöur Granda, Hlyn-
gerði 10, Reykjavík, hefur verið í
fréttum vegna athyglisverðrar hug-
myndar um veiðileyfagjald.
Starfsferill
Ámi fæddist í Reykjavík 11. maí
1932. Hann lauk stúdentsprófi frá
MR1951, viðskiptafræðipróíi frá HÍ
1954, AM og Ph.D.-prófum frá Har-
vard 1957, var Teaching fellow við
Harvard 1956-57 oggjesteassosiat
við Ósióarháskóla 1958-59.
Ámi stundaði hagrannsóknir hjá
Framkvæmdabankaíslands 1957-58
og viðskiptaráðuneytinu 1960, hag-
fræðingur hjá Alþjóðabankanum í
Washington DC 1960^61 og hefur
verið prófessor við HÍ frá 1961.
Árni hefur um árabil kennt á nám-
skeiðum á vegum prófnefndar lög-
giltra endurskoðenda, Iðnaðar-
málastofnunar íslands, Stjómunar-
fræðslu iðnaðarráðuneytisins og
Stjórnunarfélags ísiands. Hann var
stjórnarformaður Háskólabiós
1963-78, Hampiðjunnar hf. 1968-76,
Iðnþróunarstofnunar íslands
1971-77, Hvals hf. frá 1979, Kassa-
gerðar Reykjavíkur hf. frá 1982, Þró-
unarsamvinnustofnunar íslands
1987-89, Granda hf. frá 1988 og Ár-
mannsfells frá 1989, í bankaráði
Landsbankans frá 1974-88 og for-
maður 1977-80, í stjórn Flugleiða hf.
frá 1986 og Verðbréfaþings Islands
frá 1989.
Ámi hefur setið í fjöida stjórn-
skipaðra nefnda og situr í nefnd
sjávarútvegsráðherra um stefnu-
mörkun í sjávarútvegsmálum.
Fjölskylda
Árni kvæntist 18.7.1964 Ingibjörgu
LilyBjörnsdóttur,f. 12.12.1942,
skólastjóra Listdansskóla Þjóðleik-
hússins. Hún er dóttir Bjöms Jó-
hannssonar, forstjóra í Reykjavík,
og Helgu Jóhannsson, f. Craig, hús-
móður.
Dætur Árna og Ingibjargar em
Ásdís Helga, f. 16.5.1965, nemi í
landslagsarkitektúr í New York, gift
Guðmundi Franklín Jónssyni, við-
skiptafræðingi hjá verðbréfafyrir-
tæki í New Y ork, og er sonur þeirra
Árni Franklín Guðmundsson, f. 5.5.
1993; Birna Björk, f. 17.3.1970, nemi
í landafræði við HÍ; Auður Kristín,
f. 13.7.1974, nemi í spænsku.
Systur Áma eru Sigríður, f. 3.1.
1929, húsmóðir, og Kristín, f. 1.5.
1930, kennari.
Foreldrar Árna: Vilhjálmur Árna-
son, f. 27.5.1986, skipstjóri, og Guð-
ríður Sigurðardóttir, f. 17.12.1898,
húsmóðir.
Ætt
Vilhjálmur var sonur Áma, sjó-
manns á Stokkseyri, Vilhjálmsson-
ar, b. á Stóra-Hofi í Rangárvöllum,
Jónssonar. Móðir Árna var Styr-
gerður, systir Sesselju, langömmu
Gunnlaugs M. Sigmundssonar, for-
stjóra Þróunarfélagsins. Bróðir
Styrgerðar var Ámundi, langafi
Guðrúnar Helgadóttur rithöfundar.
Styrgerður var dóttir Filippusar, b.
í Bjólu, Þorsteinssonar, bróður
Önnu, langömmu Svövu, móður
Matthíasar Mathiesen, fyrrv. ráð-
herra, foður Áma alþm.
Móðir Vilhjálms var Sigríöur
yngri, systir Ingibjargar, ömmu
Salome Þorkelsdóttur, fyrrv. alþing-
isforseta. Sigriður var dóttir Þor-
kels, hreppstjóra á Hólum, Jónsson-
ar yngri, formanns á Óseyrarnesi,
Jónssonar. Móðir Þorkels var Ólöf,
systir Símonar, iangafa Jóhanns í
Mundakoti, afa Ragnars í Smára.
Móðir Ólafar var Valgerður Ara-
dóttir, b. í Neistakoti, Jónssonar, á
Roðarhóh Bergssonar, ættföður
Bergsættarinnar Sturlaugssonar.
Móðir Sigríðar var Sigríður Jóns-
dóttir, b. á Vestri-Loftsstöðum,
Jónssonar og Sigríðar elstu Jóns-
dóttur ríka, hreppstjóra í Vestri-
Móhúsum, Þórðarsonar. Móðir
Jóns var Guðlaug, systir Ara í Neis-
takoti.
Guðríður var systir Bjama, föður
Hinriks dagskrárstjóra hjá Ríkisút-
varpinu. Guðríður var dóttir Sig-
urðar, formanns í Ranakoti, bróður
Valgerðar, ömmu Bjama Guðna-
sonar prófessors. Sigurður var son-
ur Hinriks, b. í Hallskoti, bróður
Þorkels, hreppstjóra á Hólum. Móð-
Arni Vilhjálmsson.
ir Sigurðar var Guðríður, systir
Jóns, langafa Brynju Benediktsdótt-
urieikstjóra.
Móðir Guðríðar var Kristín, systir
Þuríðar, móður Páls ísólfssonar.
Kristín var dóttir Bjarna, formanns
í Símonarhúsum, Jónssonar, þar
Bjarnasonar. Móðir Jóns var Val-
gerður Bjamadóttir. Móðir Valgerð-
ar var Guðrún Guðmundsdóttir,
ættfóöur Kópsvatnsættarinnar Þor-
steinssonar.
Afmæli
Pétur Már Sigurðsson
Pétur Már Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri, Fagrabergi 16, Hafn-
arfirði, er fertugur í dag.
Starfsferill
Pétur fæddist í Hafnarfirði og ólst
þar upp. Hann lauk gagnfræðaprófi
frá Víghólaskóla í Kópavogi og
fjórða stigi vélstjóranáms frá Sjó-
mannaskólanum í Reykjavík 1984.
Pétur var háseti og vélstjóri til sjós
um árabil. Hann stofnaði sápugerð-
ina Fagraberg í árslok 1988 en seldi
fyrirtækið á síðasta ári. Þá starfaði
hann hjá fyrirtækinu ísbergi hf. sem
stofnað var 1954. Hann keypti fyrir-
tækið 1992 og starfrækir það að
Hverfisgötu 39 í Reykjavík.
Pétur fann upp vél til átöppunar
sápu á brúsa 1989, einfalda og hand-
hæga. Hann hefur tekið virkan þátt
í starfi fjölda félaga, hefur verið
skáti frá bernskuárunum, var fé-
lagsforingi skátafélagsins Vífils í
Garðabæ 1975-76 ogfélagsforingi
Hraunbúa í Hafnarfirði í fimm ár.
Fjölskylda
Pétur kvæntist í júlí 1984 Stefaníu
Úlfarsdóttur, f. 7.9.1949, húsmóður.
Hún er dóttir Úlfars Jónssonar,
læknis í Flórída sem er látinn, og
Guðnýjar Ámundadóttur, kaup-
konu í Reykjavík.
Dætur Péturs og Stefaníu era
Erna Unnur, f. 10.12.1984, og Guðný
Hildur, f. 3.10.1986.
Systkini Péturs eru Guðrún Unn-
ur, f. 9.12.1949, menntaskólakennari
í Kalifomíu, gift Donaid William
Martyny, höfuðsmanni í bandaríska
flotanum og eiga þau þrjú börn; Ól-
afur, f. 30.8.1953, matvælafræðingur
og gæðaeftirfitsstjóri hjá Hagkaupi,
kvæntur Önnu Bergsteinsdóttur og
eiga þau tvær dætur; María, f. 19.5.
1957, húsmóöir á Hvammstanga, gift
Erni Gíslasyni og eiga þau fjögur
böm.
Foreldrar Péturs: Sigurður H. Þor-
steinsson, f. 6.6.1930, rithöfundur,
uppeldisfræðingur og fyrrv. skóla-
stjóri, búsettur í Hafnarfirði, og
Toríhildur Steingrímsdóttir, f. 30.12.
1928, myndlistamaður og húsmóðir.
Pétur Már Sigurðsson.
Pétur tekur á móti gestum í
Fjörukránni í dag, milli kl. 19.
21.00.
00 og
Auglýsing
Sambú, rekstrarfélag Lífeyrissjóðs bænda og Sam-
vinnulífeyrissjóðsins, mun flytja starfsemi sína úr
Sambandshúsinu á Kirkjusandi á 3. hæð í Húsi versl-
unarinnar, Kringlunni 7. Vegna flutninganna verða
skrifstofur Sambús lokaðar föstudaginn 5. maí 1995,
en opna í hinu nýja húsnæði að morgni mánudags-
ins 8. maí 1995. Síma- og faxnúmer verða óbreytt.
Sambú
Áskrifendtir DV fá
10% aukaafslátt af
smáauglýsingum
^wwwv
AUGLYSINGAR
Þverholti 11 -105 Reykjavik
Sími 563 2700 - Bréfasími 563 2727
Græni síminn: 99-6272
(fyrir landsbyggðina)
OPIÐ:
Virka daga kl. 9-22
Laugardaga kl. 9-14
Sunnudaga kl. 16-22
Athugi&!
Smáauglýsingar i helgarblað
DV verða að berast fyrir
kl. 17 á föstudögum.
afmælið 4. maí
80 ára
60 ára
Þuríður Benedlktsdóttir,
Breiðabólsstaö I, Dalabyggð,
75 ára
Stefán G. Svavars,
Kópavogsbraut lb, Kópavogi.
Mekkín Guðnadóttir,
Einiiundi 2c, Akureyri.
ÓlöfÓlafsdóttir,
Bjarmastíg 13, Akureyri.
Ríkharður Gestsson,
Bakkageröi, Svarfaðardalshreppi.
Guðbjörg Halivarðsdóttir,
Arnarhrauni 20, Hafnarfirði.
Margrét Guðvinsdóttir,
Hóiavegi 22, Sauðárkróki.
Elisa Viihjálmsdóttir,
Heiðarhomi 1, Keflavík.
Arnbjörg Auður Örnólfsdóttir,
Safamýri 79, Reykjavík.
Elín G. Haraldsdóttir,
Yrsufelfi 11, Reykjavík.
Þrúður Gunniaugsdóttir,
Feilsmúla 6, Reykjavík.
Sigriður Halldórsdóttir,
Hvoli, Gerðahreppi.
40 ára
Guðriður Aadnegard,
Barmahfið2, Sauðárkróki.
Benedikt Jóhannesson,
Hjálmhoiti 7, Reykjavík.
Ólöf Kristín Ingólfsdóttir,
Gljúfraseli 8, Reykjavík,
50ára
70 ára
Skúii Júlíusson,
Skólabraut 3, Seitjarnamesi.
Sigriður Guðiaugsdóttir,
Jörfabakka 2, Reykjavík.
Þorhjörg Snorradóttir,
Klapparstíg 7, Akurey ri.
^ Tekur við svörum fyrir þig!
Aöeins 25 kr. mínútan.
Sama verö fyrir
alla landsmenn.