Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1995, Side 4
4
FÖSTUDAGUR 30. JÚNl' 1995
Fréttir
■
Menn sammála um að til bóta horfi í málefnum Hæstaréttar:
Biðtíminn styttist
- segir formaður dómarafélagsins - nóg að gert, segir formaður lögmanna
„Opinberu málin ganga mjög hratt
fyrir sig hjá dómstólunum. Tími
einkamála fyrir héraösdómunum
hefur styst og er aö styttast fyrir
Hæstarétti þar sem flöskuhálsinn
var fyrst og fremst. Þær breytingar,
sem gerðar voru 'fyrir tæpu ári á
dóminum, virðast hafa boriö árangur
því málatíminn er aö styttast," segir
Allan Vagn Magnússon, formaður
Dómarafélagsins, í samtali viö DV.
Eins og greint var frá í DV fyrir
skömmu hefur mál Málfríöar Þor-
leifsdóttur, sem slasaöist fyrir 8
árum í vinnuslysi, verið til meöferð-
Björk Guðmundsdóttir fær lofsam-
lega dóma í danska blaðinu Jyllands-
Posten nú nýlega en þar segir gagn-
rýnandi blaösins, Uffe Christensen,
m.a. aö Björk sé einn merkasti lista-
maöur þessa áratugar.
Christensen segir Björk hafa tekiö
alla með trompi með fyrstu plötu
sinni, Debut, vegna þeirrar miklu
orku sem hún búi yfir. Sú orka
magnist stöðugt og sé nú meiri en
nokkru sinni fyrr. Með nýjustu plötu
sinni, Post, sanni hún að hún sé í
fararbroddi nýrrar kynslóðar rokk-
tónlistarmanna. Hann segir Björk
auðveldlega hafa getað lifað á þeirri
frægð sem hún hlaut með Debut en
hún hafi hins vegar ekki látið sér það
nægja. Með Post fari hún inn á svið
þar sem mikiifenglegir hæfileikar
hennar komi berlega í ljós.
Undarleg og djörf
Christensen segir að eins og platan
Debut sé Post mjög persónuleg plata.
ar hjá Hæstarétti í hálft annað ár og
ekki enn verið tekið til meðferðar.
Ljóst er að málið verður hins vegar
flutt í byrjun næsta árs, tveimur
árum eftir að því var áfrýjað. Margir
hafa orðið til aö gagnrýna þann tíma
sem tekið hefur að fá niðurstöðu í
málinu og önnur svipuð mál.
Svo virðist sem menn hafi verið
sammála um að eftir að tókst að færa
meðferð einkamála í héraði til betri
vegar sé flöskuhálsinn í Hæstarétti.
Hefur rétturinn verið gagnrýndur
harðlega en á undanförnum árum
hafa verið gerðar töluverðar breyt-
Hún sé eilítið undarleg og djörf en
það sé einmitt undarlegheitin sem
geri tónlist Bjarkar svo aðlaöandi.
Þá segist hann vera yfir sig hrifinn
af rödd Bjarkar sem hann segir líkj-
ast svolítið rödd írsku söngkonunnar
Sinead O’Connor. Hins vegar búi
Björk yfir meiri krafti og rödd henn-
ar verði aldrei fyrirséð eins og raun-
in sé með Sinead O’Connor. „Björk
breytir rödd sinni stöðugt og tónlist
hennar er aldrei eins og maður býst
við að hún verði. Rödd hennar hel-
tekur mann og leiðir mann um marg-
breytileika hæfileika hennar.” Hann
segir að tónlist Bjarkar sé oft og tíð-
um ekki falleg og ekki alltaf hljóm-
ræn en þó alltaf áhugaverð.
Christensen segir að lokum að með
Post hafi Björk náð að skapa eitt
áhugaverðasta tónlistarverk ársins
og sem listamaður hafi hún skapað
sér sess sem einn merkasti listamað-
ur þessa áratugar.
ingar á skipulagi þannig að mál taka
ekki jafn langan tíma og áður tíðkað-
ist en mikill fjöidi einkamála hafði
safnast fyrir hjá réttinum. í júlí sl.
voru gerðar enn frekari breytingar á
skipulagi réttarins. Fólu þær helst í
sér að fækka enn meir þeim málum
sem tekin eru til fullrar meðferðar
og stytta þann tíma sem tekur að
undirbúa mál til flutnings.
Mörgum hefur ekki þótt nóg að
gert og spyrja hvort ekki sé hægt að
stytta þann undirbúningstima sem
málsaðilar fá til að ganga frá málum
til flutnings í Hæstarétti enn frekar.
„Við byrjum í dag, fljúgum til Lu-
ton og höfum fengið mjög góð við-
brögð við þessu. Það má segja að
vélin sé nánast full,“ sagði Stefán
Ásgrímsson, starfsmaður Emerald
Air, en flugfélagið hefur flug til Lu-
ton í London í dag. Áætlunarferðir
verða síðan tvær á viku, þriðjudaga
og fóstudaga. Farið verður frá Kefla-
vík klukkan 13.55.
„Ég tel að ekki sé hægt að stytta
þennan tíma meira. Sá tími sem tek-
ur lögmenn að afla ágrips og ganga
frá greinar- og dómsgerðum hefur
styst og er reyndar mjög knappur f
dag. Til að stytta þann tíma sem Mður
frá því mál er tilbúið til flutnings og
þar til það er flutt og dæmt er frekar
spurning um peninga eins og allt
annað í þjófélaginu. Til þess þurfa
stjórnvöld að fjölga dómurum enn
meira, bæta við dómsölum og fjölga
starfsfólki,“ segir Þórunn Guð-
mundsdóttir, formaður lögmannafé-
lagsins.
„Flugfélagið hefur verið með áætl-
unarflug milh Belfast og Luton frá
þvi í vetur en nú hefur ísland bæst
í hringinn. Flugleiðin hefst í Luton
að morgni, flogið er til Belfast, þaðan
til íslands, þá Belfast og loks er end-
að í Luton,“ segir Stefán. Hann segir
Emerald Air vera nýlegt írskt félag
með varnarþing í Belfast en ýmsir
íslendingareigiíþví. -sv
Sigurður Líndal, lagaprófessor við
HÍ, segir að hluti skýringarinnar á
af hverju svo mörg mál séu í biðröð
hjá Hæstarétti sé sú að allt of miklu
af ómerkilegum málum sé áfrýjað til
réttarins - málum sem eiga raun-
verulega ekkert erindi til Hæstarétt-
ar heldur ætti að leysa á öðrum vett-
vangi.
„Það þarf að dæma þessi mál rétt
líka fyrst þau eru komin fyrir réttinn
þótt manni finnist þau oft ómerkileg
og þá bitna þau á merkilegri málun-
um, “ segir Sigurður. -pp
KeflavíkurflugvöHur:
Sprengjuhót-
unin gabb
Ægír Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Þetta var gabb. Það hefur ekki
tekist að rekja símtalið og ekki er
vitaö hver var þarna að verki. Sá
sem hringdi talaði ensku,“ sagði
Þorgeir Þorsteinsson, sýslumaöur
á Keflavikurflugvelli.
Herlögregiunni á Keflavíkur-
flugvelli barst sprengjuhótun kl.
12 í gærdag og sagt var aö
sprengju hefði verið koraið fyrir
á vellinum. Helst var hægt að
skilja á hótuninni að sprengjunni
eða sprengjunum hefði verið
komið fyrir á stað þar sem mikill
fjöldi manna var saman kominn
í hádeginu. Herlögreglan gerði
íslensku lögreglunni á Keflavík-
urflugvelli strax viðvart og fór
hún ásamt slökkviliðinu á vellin-
um þegar af stað til leitar. Leitin
beindist að mötuneytum, mat-
sölustöðum og samkomuhúsum
hermanna og voru allir staðimir
þegar í stað rýmdir á meðan leit
fór fram en engin sprengja
fannst.
Herlögreglan hefur búnað til að
rekja símtöl. Hættuástandi var
aflýst einum og hálfum tíma eftir
að hótunin barst og tóku rúmlega
40 manns þátt í leitinni.
Björk hefur skapað eitt áhugaverðasta tónlistarverk ársins með plötu sinni
Post, að mati gagnrýnanda Jyllands-Posten.
Björk Guömundsdóttlr:
Einn merkasti
listamaður
þessa áratugar
- segir gagnrýnandi Jyllands-Posten
Sumarvinna skólafólks:
Stúlkur kvarta
til Jaf nréttisráðs
Starfsfólks Jafnréttisráðs hefur að
undanfórnu fengið nokkrar kvartan-
ir frá stúlkum á framhaldsskóla- og
háskólaaldri þar sem þær telja að
gengið hafi verið fram hjá þeim við
ráðningu í sumarstörf og yngri og
minna menntaðir piltar teknir inn í
staðinn. Á þetta einkum við um sum-
arvinnu á vegum sveitarfélaga, þó
ekki vinnuskóla eða unglingavinnu.
Erindi stúlknanna hafa komið jafnt
frá höfuðborgarsvæðinu sem lands-
byggðinni. Þær hafa fyrst og fremst
verið að kanna hver réttur þeirra er
en engar formlegar kærur hafa bor-
ist Jafnréttisráðivegnaþessa. -bjb
Grímur Gíslason, stjómarformaður Herjólfs hf.:
Vegagerðin stef nir að
því að yf irtaka Herjólf
- og fá daglega stjómun fyrirtækisins í sínar hendur
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum:
„Ég vil vekja athygli á skulda-
stöðu fyrirtækisins og þeirri
ábyrgð sem því fylgir að halda
áfram á sömu braut. Eins og mál-
um er nú háttað safnast upp við-
skiptaskuld Heijólfs hf. við Vega-
gerðina vegna afborgana af smíöi
skipsins. Skuldir þessar námu 266
milljónum króna um síöustu ára-
mót og stefna í hálfan milljarö í lok
þessa árs. Það er þvi ljóst aö fyrir-
tækið-er nánast gjaldþrota og því
kominn tími til að fá á hreint
hvernig ríkið hyggst afgreiða það
mál enda verður það stærsta mál
næstu stjómar," sagði Grímur
Gíslason, stjómarformaður Her-
jólfs hf., á aðalfundi fyrirtækisins
á þriöjudagskvöldiö.
Grímur segir að meö því að
skuldfæra greiðslur vegna smíði
Herjólfs á fyrirtækið gangi Vega-
gerðin þvert á vilja Alþingis. Það
hafi aldrei verið ætlun þess að
framlög ríkisins vegna smíðinnar
skrifuðust á Heijólf hf. sem á og
rekur Herjólf. Það sé skilningur
stjómarinnar og það hafi þing-
menn kjördæmisins staðfest. Það
hafi ekki breyst þótt Heijólfur og
aörar ferjur í landinu heyri nú
undir Vegagerðina.
„Það hefur frá upphafi verið
stefna Vegagerðarinnar að eignast
Herjólf og flytja stjómun skipsins
til Reykjavíkur. Stjórnin hefur ver-
ið í slag um forræði Heijólfs við
Vegagerðina frá upphafi og aö
mínu mati er þetta stærsta mál
nýrrar stjórnar. Herjólfur hf. er
hlutafélag og með því að skuldfæra
aíborganir og fjármagnskostnað á
fyrirtækiö geta þeir hvenær sem
er gert félagið gjaldþrota," sagði
Grímur en í þessu máli hefur
stjórnin stuðning þingmanna kjör-
dæmisins. „í viðtölum við okkur
hafa þeir staðfest að það hafi aldrei
verið inni í myndinni að til kæmi
breytt eignarhald á skipinu. Herj-
ólfur er okkar þjóðvegur og um
framlög til hans eiga að gilda sömu
reglur og til annarra vegafram-
kvæmda, hvort sem það eru vegir,
brýr eða göng. Þarna þurfa Vest-
mannaeyingar að vera á verði því
ég held að það yrði ekki bæjarfélag-
inu til góðs ef Heijólfi yrði fjarstýrt
úr Reykjavík. Þá er hætt við að
daglegar ferðir heyrðu sögunni til,“
sagði Grímur.
EmeraldAir:
Fyrsta f lugið
til Luton í dag