Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1995, Qupperneq 16
16
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1995
íþróttir
Port Vale vill
kaupa Þorvald
Daníel Ólaöson, DV, Akcanesi:
Fréttastofa Sky skýrði frá því í
gærkvöldi að enska knattspyrnufé-
lagið Port Vale, sem leikur í 1.
deild, hefði áhuga á að fá íslenska
landsliðsmanninn Þorvald Örlygs-
son til liðs viö sig, en hann spilar
með nágrannaliðinu, Stoke.
Þorvaldur sagði í viðtali viö Sky
að sér væri frjálst að fara frá Stoke,
en eins og málin stæðu vildi hann
ekkert um það segia hvert hann
færi og það væri sitt einkamál.
Þorvaldur sagðist jafnframt ræða
við nokkur félög á næstunni en
vildi ekkí gefa upp hver þau væru.
Leikmenn Partick
mjög grimmir
Keflavík leikur í Skotlandi á morgun
Ægir Már Káiason, DV, Suöumesjum:
„Við vitum lítið um þetta skoska
lið en þær upplýsingar sem ég hef
fengið eru að þeir hafi ekki marga
veikleika. Þeir eru mjög grimmir og
líkamlega sterkir. Þá hafa þeir að
sögn góðan markaskorara. Þeir náðu
fljúgandi siglingu í lokin í skosku
úrvalsdeildinni og töpuðu ekki leik í
síðustu 5 umferðunum," sagði Þórir
Sigfússon, þjálfari Keflvíkinga sem
leika gegn skoska liðinu Partick
Thistle í Inter Toto keppninni í Skot-
landi á morgun.
Þetta er annar leikur Keflvíkinga í
keppninni en þeir töpuðu fyrir Metz
frá Frakklandi um síðustu helgi, 1-2.
Partick ætlar sér mjög langt í
keppninni og í viðtali við Sunday
Mirror sagði framkvæmdastjórinn,
John Lambie, að liðið yrði hreinlega
að vinna Keflavík til að eiga mögu-
leika að komast áfram. Hann sagðist
ekki vita mikið um hina íslensku
andstæðinga sína en þeir væru án
efa með gott lið. Stjórinn sagði enn
fremur að sínir menn kæmu fullir
sjálfstrausts í leikina í þessari keppni
og þeir tækju hana mjög alvarlega.
Óvænt úrslit á Wimbledon
Michael Chang, Stefan Edberg og Jim Courier féllu allir óvænt út úr
Wimbledon-mótinu í tennis í gær. Chang tapaði fyrir Korda frá Tékklandi,
Edberg fyrir Norman frá Belgíu og Courier fyrir Pioline frá Frakklandi.
Andre Agassi og Boris Becker komust hins vegar áfram án vandræða. í
kvennaflokki vann Stefíi Graf sigur á Amöndu Coutzer frá Suður-Afríku, en
Helena Sukova tapaði óvænt fyrir Yome Kamio frá Japan.
Fyrsti Draumaliðsmeistarinn
Fyrsta hlutanum í Draumaliðsleik DV er lokið og ljóst hver er „þjálfari
júnimánaðar“. Það verður gert opinbert í helgarblaðí DV en þar er fjallað
um þennan vinsæla lesendaleik á tveimur síöum.
inmiiii
iiimiii
IIIMIII
liimgiimiæiimiiHsiii
I
M
i
M
i
I
mm
i
I
i
mm ■
mm
|
i
mm
I
mm
i
i
g
mm
1
I
Íi
Opna Dilettóíí J
kvennamótib
verbur haldib á
G raf a rhojt sveH i
j jlj n j
✓ s
Leiknar verba 18 holur meb fullri
forgjöf í þremur forgjafarflokkum.
A-flokkur
B-flokkur
C-flokkur
■0-22
forgjöf 23 - 27
forgjöf 28 - 36
Glæsileg verblaun verba fyrir þrjú
efstu sætin í hverjum flokki og fyrir
besta skor mótsins.
Aukaverblaun verba fyrir ab vera
næst holu á 2. og 6. braut vallarins.
Ræst verbur út frá kl. 10:00.
Skráninq fer fram í
Golfverslun Sigurbar Pét .rssonar í
síma 587 2215. Skráningu lýkur
laugardaginn 1. júlíkl. 16:00
Þátttökugjald 1.800,- kr.
ATH! Framvísa skal félags- og forgjaf-
r til keppni.
arskírteini þegar mætt er t
Golfklúbbur Reykjavíkur
'í
Ksm
i
0
mm
I
M
i
I
i
M
i
I
M
I
MH
i
M
i
mm
i
i
i
mm
i
i
O.Johnsontk Kaaber hf
lliaHliamiimHIHBIIBBIimHIIHHIIHBIIHBIIMHIIHIl
■nnamiiMuf
EMítugþraut
um helgina
Keppni í 2. deild, fyrsta riðli,
Evrópukeppninnar í tugþraut
karla og sjöþraut kvenna fer fram
á laugardag og sunnudag á Laug-
ardalsvelli. Keppni hefst klukkan
10 báða keppnisdagana og stend-
ur til klukkan 17. Alls keppa 5
þjóðir í karlaflokki, ísland, ír-
land, Slóvenía, Lettland og Dan-
mörk. í kvennaflokki keppa 4
þjóðir, ísland, írland, Danmörk
og Lettland.
Hver þjóð sendir 4 þátttakendur
en árangur þriggja efstu telur til
stiga. Landslið Islands í karla-
flokki er skipað þeim Jóni Arnari
Magnússyni, Friögeiri Halldórs-
syni, Ólafl Guðmundssyni og
Theódóri Karlssyni. í kvennalið-
inu eru þær Sunna Gestsdóttir,
Vala R. Flosadóttir, Sigríður A.
Guðjónsdóttir og Þuríður Yngv-
arsdóttir.
Sáfimmtándi
gegn Færeyjum
Fimmtándi A-landsleikur ís-
lands og Færeyja í knattspyrnu
fer fram í Neskaupstað á sunnu-
daginn klukkan 14 og er það jafn-
framt fyrsti landsleikurinn á
Austurlandi. ísland hefur unnið
13 af 14 leikj umþjóðannatilþessa
en liðin geröu 0-0 jafntefli í Fær-
eyjum árið 1984. Þá tefldi ísland
fram 21 árs landsliði sínu. Síðast
léku Uðin í Þórshöfn árið 1990 og
þá vann ísland nauman sigur,
3-2. ísland hefur líklega aldrei
teflt fram jafn sterku liði gegn
Færeyjum og nú en fjórir at-
vinnumenn taka þátt í leiknum.
Fjórir leikir
í 2. deild
Fjórir leikir fara fram í 2. deild-
inni í knattspyrnu á sunnudag.
Klukkan 16 mætast efsta liöið
Stjarnan og Þróttur í Garðabæ.
Um kvöldið klukkan 20 verða síð-
an þrír leikir. KA og Þór mætast
í Akureyrarslagnum, botnlið ÍR
og HK mætast í Mjóddinni og
Víkingar taka á móti Skalla-
grímsmönnum í Fossvogi.
Dortmund vill
fá Herrlich
Þýsku meistararnir Borussia
Dortmund vilja ólmir fá hinn
stórefnilega framherja Heiko
Herrlich til liðs við sig. Herrlich
var markahæstur í þýsku úrvals-
deildinni og er af mörgum talinn
framtíðarstjarna í Þýskalandi.
Herrlich leikur með Borussia
Mönchengladbach sem varð bik-
armeistari á dögunum og vilja
forráðamenn liðsins gera allt sem
þeir geta til að halda í leikmann-
inn. Talið er líklegt að Herrlich
vilji frekar leika með Dortmund
og víst er að liðið er tilbúið að
borga háa fjárupphæð fyrir leik-
manninn.
Shilton til
Coventry
Peter Shilton, fyrrum landshðs-
markvörður Englands, gerði í
gær samning við úrvalsdeildar-
liðið Coventry. Shilton, sem kom-
inn er vel á fimmtugsaldurinn,
lék 125 landsleiki fyrir England
og yfir eitt þúsund deildarleiki
með hinum ýmsu félögum.
Fyrstustig
Neistans
Neisti frá Hofsósf fékk sín
fyrstu stig í 4. deildinni í knatt-
spy rnu með 1^1 sigri á SM í Hörg-
árdal í gærkvöldi. Donald Þór
Kelly skoraði fyrir SM. Víkverji
og Ármann geröu jafntefli, 0-0.
Bikarliðið
er áf ram í
slagnum
- Grindavík vann FH, 0-2
Víöir Sigurösson skrifar:
„Bikarlið" síðasta árs, Grindavík,
stóð undir nafni í Kaplakrikanum í
gærkvöldi þegar það vann verð-
skuldaðan sigur á FH, 0-2, í 16 liða
úrshtum Mjólkurbikarsins.
Grindvíkingar voru mun betri aðil-
inn í fyrri hálfleik og komust yflr á
26. mínútu. Eftir glæsilega sókn
renndi Tómas Ingi Tómasson boltan-
um inn í vítateig FH þar sem Grétar
Einarsson skoraði með hörkuskoti.
Á 54. mínútu skoraði svo Þorsteinn
Jónsson eftir fyrirgjöf frá Grétari,
0-2. Þá tók FH völdin og sótti grimmt
og komst næst því að skora þegar
Ólafur B. Stephensen átti hörkuskot
í þverslá og Albert Sævarsson varði
vel frá Jóni Erling Ragnarssyni og
Þorsteini Halldórssyni. En á loka-
kaflanum fékk Grindavík mörg færi
til að skora þriðja markið, Grétar það
besta þegar hann skaut í stöng úr
dauðafæri.
„Þetta var mjög mikilvægur sigur
og kom á réttum tíma. Hann gefur
okkur mikið sjálfstraust fyrir næstu
leiki í deildinni, sem við ætlum að
vinna, og það yrði gaman að komast
aftur alla leið í bikarnum," sagöi
Milan Jankovic, fyrirliði Grindvík-
inga, við DV eftir leikinn.
Jankovic og Þorsteinn Guðjónsson
léku mjög vel í vörn Grindavíkur og
Zoran Ljubicic var allt í öllu á miðj-
unni og upphafsmaður að báðum
mörkum hðsins. Hjá FH léku varnar-
mennirnir Jón Sveinsson og Auðun
Helgason best og byggðu upp fjöl-
margar sóknir, en samt var það veik-
ur hlekkur hjá FH hve illa miðjan í
vörninni opnaðist nokkrum sinnum.
Miðað við þennan leik eru Grindvík-
ingar greinilega betur í stakk búnir
fyrir baráttuna í neðri hluta deildar-
innar en Hafnarfjaröarliðiö, sem er
komið í verulega vond mál.
Óvæntenverð-
skuldað í Eyjum
Porsteinn Guruiarsson, DV, Eyjurru
2. deildar hð Þórs kom skemmti-
lega á óvart með verðskulduðum
sígri á ÍBV, 2-3, í framlengdum leik
í Eyjum í gærkvöldi.
Eyjamenn skoruðu fyrsta mark
leiksins strax á 3. mínútu og var
þar að verki Rútur Snorrason úr
vítaspyrnu eftir að brotið var á
Tryggva Guðmundssyni. Áhorf-
endur voru að búa sig undir enn
eina markasúpuna hjá Eyjamönn-
um þegar Þórsarar jöíhuðu með
marki Árna Þórs Árnasonar eftir
mistök í vörn ÍBV. Eyjamenn sóttu
stíft eftir þetta og fengu góð færi
en Ólafur Pétursson, markvörður
Þórs, varði í öll skiptin glæsilega.
Þórsarar voru betri framan af
síðari hálfleik en Eyjamenn kom-
ust aftur yfir með marki Tryggva
Guðmundssonar. Vendipunktur
leiksins var síðan á 78, mínútu þeg-
ar Eyjamenn fengu vítaspyrnu- og
gátu gert út um leikinn. Ólafur
varði hins vegar með thþrifum frá
Rúti og skömmu síðar jaifnaði Árni
Þór með Öðru marki sínu fyrir Þór.
í framlengingunni gerðist fátt
markvert þar til Árni Þór var felld-
ur klaufalega af Gísla Sveinssyni,
markverði IBV, og Sveinbjörn Há-
konarson skoraði af öryggi úr vit-
inu. Eyjamenn sóttu stíft það sem
eftir híði leiks en Þórsarar vörðust
vel með Ólaf í markinu sem besta
mann og héldu sinu. Þórsarar stigu
villtan stríðsdans i leikslok enda
uppskáru þeir vel.
Glæsisigur Fylk-
is á Ólafsf irði
- vann 1. deildar liö Leifturs, 3-6
Helgi Jónsson, DV, Ólafefiröi:
Það voru skoruð níu mörk í þok-
unni á Ólafsfirði í gærkvöldi þegar
baráttuglaðir Fylkismenn sigruöu
heillum horfna Leiftursmenn, 3-6.
Annarrar deildar lið Fylkis er þar
með komið áfram en 1. deildar lið
Leifturs er úr leik. Þetta er í þriðja
skipti á 5 árum sem Árbæjarliðið
sendir Leiftur út úr keppninni.
Fylkir komst yfir strax á 5. mínútu
þegar Kristinn Tómasson komst inn
fyrir vöm heimamanna og skoraði,
Sverrir Sverrisson jafnaði 1-1 á 13.
mínútu eftir vamarmistök Árbæ-
inga. Síðan fengu gestirnir nokkur
dauðafæri sem ekki nýttust og komu
öll eftir hroðaleg varnarmistök Leift-
ursmanna
Gunnar Oddsson kom Leiftri yfir,
2-1, og virtist leikuirinn þá ætla að
snúast. En það var öðru nær. Fylkis-
menn jöfnuðu úr aukaspyrnu Guð-
mundar Torfasonar og í hléi stóð 2-2.
Kristinn Tómasson óð hreinlega í
færum í síðari hálfleik og lét til sín
taka. Hann skoraði úr mjög vafa-
samri vítaspyrnu en Páll Guömunds-
son jafnaði fyrir Leiftur, 3-3,
skömmu síðar. Leiftursvörnin sofn-
aði síðan illa á verðinum og Fylkis-
menn nýttu sér það til fullnustu.
Guðmundur Torfason skoraði með
góðu skoti, 3-4, og Kristinn skoraði
síðan í tvígang undir lok leiksins og
kórónaði frábæra frammistöðu sína,
en hann gerði 4 mörk í leiknum.
Fylkismenn uppskáru eins og þeir
sáðu. Þeir börðust vel frá fyrstu mín-
útu á meðan Leiftursmenn léku langt
undir getu. Dómari leiksins, Ólafur
Ragnarsson, var líka langt undir getu
í þessum leik og var mistækur.
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1995
25
Þorsteinn Jónsson fagnar innilega öðru marki Grindvíkinga gegn FH-ingum í Krikan
um í gærkvöldi. DV-mynd BG
Fjör í Garðabænum
- KR vann fríska Stjörnustráka, 1-2
Bjöm Leósson skxifar
„Það var kominn tími til aö ég setti
svona eins og eitt raark og það var virki-
lega gaman að skora bæði mörkin. Þetta
var erfiður leikur, Stjarnan er með
mjög gott lið og það vissum við fyrir-
fram. Við höfum bikarinn að verja og
ætlum okkur aha leið,“ sagði Sahh
Heimir Porca eftir 1-2 sigur KR á
Stjörnunni í 16 liða úrslitum Mjólkur-
bikarkeppninnarí Garðabæí gærkvöld.
Porca gerði bæði mörk KR í leiknum.
Leikur liðanna var stórskemmtilegur
og flörugur og bæöi liðin léku góða
knattspyrnu. Stjörnumenn fegnu óska-
byrjun er dæmd var vítaspyrna á KR á
17. mín. Birgir Sigfússon var felldur í
teignum og Guðmundur Steinsson
skoraði af öryggi.
Eftir markið óx KR-ingum ásmegin
og sóknir þeirra þyngdust. Jöfnunar-
markið lá í loftinu og það gerði Sahh
Heimir meö skoti í þverslá og inn. Eftir
6 mín. leik í síðari hálfleik rak Sahh
Heimir síöan aftur smiðshöggið á vel
útfærða sókn bikarmeistaranna.
„Þessi leikur var eins og bikarleikir
eiga að vera. Við erum með gott hð og
mér fannst strákamir komast vel frá
verkefninu," sagði Helgi Þórðarson,
annar þjálfara Stjörnunnar.
Valdimar Kristófersson Stjörnumað-
ur komst mjög vel frá leiknum og KR-
ingamir Salih Heimir og Guðmundur
Benediktsson áttu einnig mjög góðan
leik.
Iþróttir
Jóhannes. slag
um ENMitilinn
Jóhannes R. Jóhannesson komst í
gærkvöldi í átta manna úrslit á Evr-
ópumeistaramótinu í snóker í Belfast.
Jóhannes R. sigraði írann John Far-
reh, 5-4, í æsispennandi leik í gær.
Jóhannes sigraðí í lokarammanum eft-
ir að staðan hafði verið jöfn, 4-4.
„Þetta var hrikalega spennandi og
erfitt. Ég komst í 4-2 en þá lenti ég í
vandræðum. Hann jafnaði með því að
sigra tvo ramnia en sem betur fer náði
ég aö sigra i úrslitarammanum. Það
var tæpt en ég vann hann á bleiku
kúlumú. Þetta var mjög góður leikur
ogminn besti leikur í langan tíma. Það
má segja að þetta sé allt barátta upp á
líf og dauða því sá sem tapar fer heim.
Nú er ég kominn í átta manna úrslit
og mæti þar Julian Logue frá írlandi
en hann hefur leikið geysilega vel á
mótinu," sagöi Jóhannes R. við DV í
gærkvöldi.
HM-boði neitað
HSI hefur hafnað boði um þátttöku
í heimsmeistarakeppni 21 árs liða í
handknattleik sem fram fer í Argent-
ínu í haust. ísland tapaði fyrir Portú-
gölum í undankeppninni í júni og
missti þar með af því að komast til
Argentínu, en fékk boð um þátttöku
eftir að fjölmargar þjóðir, aðallega
frá Asíu og Afríku, drógu sig út úr
keppninni.
Lára Hrund Bjargardóttir, Ægi,
setti í gærkvöldi glæsilegt stúlkna-
og telpnamet í 1500 m skriðsundi,
synti á hinum ótrúlega tíma, 17:56,36
mínútum, á innanfélagsmóti. Gamla
stúlknametið var 18:22,00 og gamla
telpnametið 18:51,23 mín. Petteri La-
Tvær Evrópuþjóðir fengu boð á
undan íslandi, Slóvenía sem þáði það
og Litháen sem hafnaði boðinu. Að
sögn Þorbjörns Jenssonar landsliðs-
þjálfara, var bæði um það að ræða
að mjög kostnaðarsamt væri að fara
til Argentínu og síðan að enginn
undirbúningur hefði miðast við ferð
þangað eftir að íslenska liðið féll úr
keppni.
ine, þjálfari Ægis, segir að tímar
Láru lofi mjög góðu um framhaldið
- en fram undan er þátttaka hennar
í Evrópumóti unglinga sem fer fram
í Genf í Sviss 19.-22. júlí. Auk Láru
mun Hjalti Guðmundsson, SH, taka
þátt í mótinu.
Unglingaliðið
í Gautaborg
Landslið íslands, 18 ára og
yngri, í handknattleik mun taka
þátt í opna Norðurlandamótinu í
Gautaborg sem hefst um helgina.
íslendingar leika þar í riðh með
Svíum, Þjóðverjum, Slóvökum og
Færeyjum. í hinum riðhnum
leika síðan Norðmenn, Króatar,
Finnar og Katarar.
íslenska landsliðið er skipað
eftirtöldum leikmönnum:
Ásmundur Einarsson, Aftureld-
ingu, Jónas Stefánsson, FH,
Svanur Baldursson, Val, Guðjón
Hauksson, Breiðabliki, Lárus
Long, FH, Gunnar Gunnarsson,
FH, Ólafur Sigurjónsson, ÍR,
Gunnar B. Viktorsson, ÍBV, Arn-
ar Pétursson, ÍBV, Atli Þór
Samúelsson, KA, Haraldur Þor-
varðarson, KR, Sigurður Viðars-
son, Stjörnunni, Einar Jónsson,
Val, Þröstur Helgason, Víkingi,
Hjörtur Arnarson, Víkingi og
Heiðmar Felixson, Þór, Ak.
Met hjá Láru
Þróttarar voru miklu betri
- en Valsmenn naðu að vinna 2. defldar flðið, 3-2. að Hflðarenda
Ægir Mar Kárason skriíar:
Það voru sárir Þróttarar sem gengu
af Valsvelli í gærkvöldi eftir að þeir
höfðu tapað fyrir Val, 3-2, í 16 hða
úrslitum Mjólkurbikarsins. Þróttar-
ar, sem leika í 2. deild, voru miklu
betri lengst af og sundurspiluðu
slaka Valsmenn á löngum köflum.
En 1. deildar liðið nýtti tækifærin og
út á það gengur leikurinn.
„Við gáfum allt í þennan leik og
ætluðum að fara áfram. Ég er mjög
sáttur við leik okkar en viö vorum
óheppnir að klára ekki færin. Það
var mjög sárt að tapa þessum leik,“
sagði Ágúst Hauksson, þjálfari Þrótt-
ar, en hann gat ekki leikið með sínum
mönnum þar sem hann tók út leik-
bann.
Sigþór Júlíusson kom Valsmönn-
um yfir á 13. mínútu eftir mikii varn-
armistök. Kristinn Lárusson bætti
öðru markinu við áður en Hreiðar
Bjarnason minnkaði muninn fyrir
Þrótt rétt fyrir hlé.
Sigþór skoraði aftur fyrir Vals-
menn og kom þeim í 3-1 en Skúli
Egilsson, nýkominn inn á sem vara-
maður, minnkaði aftur muninn.
Þrátt fyrir mikla yfirbuurði Þróttara
á lokakaflanum tókst þeim ekki að
jafna.
Evrópubikarkeppnin
í Qölþrautum
Evrópubikarkeppnin í tugþraut karla og sjöþraut kvenna fer fram dagana
1. og 2. júlí á Laugardalsvelli. Alls keppa 5 þjóðir í karlaflokki, íslending-
ar, Irar, Slóvenar, Lettar og Danir, og í kvennaflokki keppa 4, íslending-
ar, Lettar, írar og Danir. Tímasetning er eftirfarandi:
Laugardagur 1. júlí
10.00 100 m, tugþr.
10.40 Langstökk, tugþr.
10.45 100 m grind, sjöþr.
11.30 Hástökk, sjöþr.
12.10 Kúla, tugþr.
13.30 Hástökk, tugþr.
Kúla, sjöþr.
14.50 200 m, sjöþr.
16.50 400 m, tugþr.
Sunnudagur 2. júlí
10.00 110 m grind, tugþr.
10.45 Kringla, tugþr.
12.00 Stangarstökk, tugþr.
Langstökk, sjöþr.
13.40 Spjót, sjöþr.
15.00 Spjót, tugþr.
15.30 800 m, sjöþr.
17.00 1500 m, tugþr.
Athugið!
Jón Arnar
Magnússon
verður meðal
keppenda í
tugþraut
FLUGLEIDIR
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ