Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1995, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1995
33
Fréttir
Leikhús
Þau voru á Núpárbökkum fyrir fáum dögum, Linda Ósk Á'rnadóttir, Bjarni Þór Árnason, Helga Björk Árnadóttir
og Ingi Már Þorvaldsson. Það lágu 12 laxar og voru frá 8 upp í 16 pund. 35 laxar hafa veiðst í Núpá. DV-mynd Árni Þór
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Rokkóperan
Jesús Kristur
SUPERSTAR
eftir Tim Rice og Andrew
Loyd Webber
Frumsýning föstudaginn 14. júli, örfá sæti
laus, laugardaginn 15/7, sunnud. 16/7.
Forsaia aögöngumiöa hafin.
Miðasalan verður opin frá kl. 15-20
alla daga og einnig tekið á móti
miðapöntunum i sima 658-8000 frá
kl. 10-12 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
Tónleikar
Rangámar:
16 laxar veiddust
Sumartónleikar í
Grindavíkurkirkju
Síöastliðna þijá sunnudaga hafa veriö
haldnir tónleíkar í Grindavíkurkirkju
meö þekktu og góöu listafólki. Er þetta
hður í átaki til að auka fjölbreytni í bæj-
arlífmu yfir sumartímann. Á sunnudag-
inn kl. 18 leikur strengjakvartett.
„Veiöin er öll aö glæðast í Rangán-
um og í dag veiddust 16 laxar sem
þýöir aö áin hefur gefið 35 laxa. Lax-
inn var hellast upp í Ægissíðufossinn
í kvöld,“ sagði Þröstur Elliðason í
gærkvöldi en dagurinn í dag var sá
besti á þessu sumri. í fyrra var það
hægt og róléga sem veiðin fór af stað
Veiðivon
Gunnar Bender
en núna kemur þetta allt í einu,
næstu dagar gætu orðið góðir.
„Það var svæði tvö sem gaf 10 laxa
og svæði eitt að vestanverðu sem gaf
6 laxa. Ytri-Rangá hefur gefiö 2 laxa.
Þetta er bæði stórlax og smálax í
bland. Smálaxinn hefur alltaf verið
að veiðast, frá fyrsta degi,“ sagði
Þröstur enn fremur.
-G.Bender
Veiðivötn:
582 fiskar
á einni viku
Silungsveiðin hefur gengið sæmi-
lega það sem af er sumri i mörgum
veiöivötnum landsins. í heila viku
hafa veiöst 582 silungar í Veiðivötn-
um (Hraunsvötnum, Litlasjó, Stóra-
Fossvatni og Ónýta vatni) og var
stærsti fiskurinn 9,5 pund.
„Við fórum í könnunarferö um síð-
ustu helgi og fórum meðal annars í
Þórisvatn. Veiðin í vatninu hefur
verið góð það sem af er sumri. Það
hafa veiöst einhver þúsund af silung-
um í vatninu," sagði Kolbeinn Ing-
ólfsson í samtali við DV. Hann hefur
eytt mörgum helgum við silungs-
veiði.
„Veiðimenn hafa verið að fá þetta
frá 5 upp í 30 fiska og flestir eru fisk-
arnir frá 2,5 pundum upp í 4,5 pund.
í Köldukvísl eru veiðimenn byrjaðir
að fá fisk. Veiðin í Kvíslaveitum á
Sprengisandi byijar innan fárra
daga,“ sagði Ingólfur enn fremur.
Mýrarkvíslin:
20pundabolti
Fyrsti lax sumarsins úr Mýrarkvísl
var 20 punda bolti og skýtur því Laxá
í Aðaldal úr toppsætinu meö 19,5
punda fisk sem þann stærsta.
Úr Þverá í Borgarfirði eru komnir
255 laxar og hann er 19 pund sá
stærsti. Beitt er maðki og flugu þessa
dagana.
Gunnar Sveinbjörnsson veiddi
fimm laxa í Brennunni fyrir skömmu
og veiðin er að glæðast þar verulega
eftir rólega byrjun. -G. Bender
Þeir Vigfús Páll Auóbergsson, Ivar Páll Bjartmarsson og Jóhann Vignir
Hróbjartsson fengu frá 10 upp í 18 punda laxa á efra svæðinu í Reykjadalsá.
DV-mynd ÞPP
Reykjadalsá í Borgarfirði:
Fyrstu laxarnir á land
Það verður stöðugt algengara að
löxum sé sleppt í árnar til að veiöi-
menn hafi eitthvað að glíma við. Nú
í sumar eru þetta meðal annars
Brynjudalsá í Hvalfirði, Reykjadalsá
í Borgarfirði, Norðlingafljót í Borg-
arfirði og Núpá á Snæfellsnesi.
„Fyrsta hollið var í ánni núna um
helgina en leyfilegt er aö vera helm-
ing tímans á sleppisvæöinu. Þeir
veiddu 5 laxa og sá stærsti var 18
pund,“ sagði Þorvaldur Pálmason í
Reykholti í samtali við DV.
„Það er gott vatn í ánni þessa dag-
ana og lax farinn að ganga á neðra
svæðið en hefur ekki tekið ennþá hjá
veiðimönnum. Þessi fiskur sem er
sleppt í Reykjadalsá er að mestu af
Reykjadalsárstofni," sagði Þorvaldur
ennfremur. -G.Bender
Evrópsk ungmennahátið
28 íslensk ungmenni munu leggja
land undir fót á þriðjudag til að taka
þátt í baráttu ungmenna í Evrópu
gegn kynþáttahatri og skorti á um-
burðarlyndi. Er slagorö fram-
kvæmdarinnar „All different - All
equal" og hefur það verið þýtt sem
„Enginn eins - engum til meins".
Hápunktur átaksins er það sem ber
heitiö Evrópska ungmennalestin.
Sex lestir munu leggja samtímis af
stað frá fjórum hornum Evrópu og
mætast í Strassborg þar sem ung-
mennavika verður haldin. íslensku
ungmennin ferðast í „lest menning-
arlegs frelsis" ásamt u.þ.b. 300 ung-
mennum frá hinum Norðurlöndun-
um og Eystrasaltsríkjunum.
í tilefni af þessu verður haldin
menningarhátíð á Ingólfstorgi á
sunnudag. Hátíðin hefst kl. 15 og
meðal atriða eru afrískur dans og
trommusláttur, götuleikhús, fjöl-
Ustamenn og hljómsveitin Maus.
Einnig verður sýning á ýmsu í menn-
ingu ungmenna á Noröurlöndunum.
Tilkyimingar
Árnesingafélagið í
Reykjavík
heldur sumarskemmtun í Félagslundi í
Gaulverjabæ nk. laugardagskvöld kl. 22.
Allir velkomnir.
Útiball á Djúpavogi
Útiball verður á Djúpavogi laugardags-
kvöldið 1. júlí kl. 23-3. Hljómsveitin
Kirsuber sér um að allir skemmti sér.
Næg tjaldstæði. Aldurstakmark 16 ár.
L.A. Café 6 ára
L.A. Café, Laugavegi 45, er 6 ára um þess-
ar mundir og af því tilefni verður brydd-
að upp á mörgum skemmtilegum hlutum.
50% afsláttur verður af matseðb og föstu-
daga og laugardaga munu Anna Karen
og Kristján Guðmundsson leika fyrir
matargesti. Diskótek verður öll kvöld
vikunnar í umsjón Vilhjálms Ástráðs-
sonar.
Plötusnúður á
Jazzbarnum
Um helgina verður sú nýbreytni á Jazz-
bamum að plötusnúður mun velja tón-
Ustina sem spiluð verður. VaUð verður
úr öUum helstu tónlistarstefnum. Lögð
verður áhersla á þekkta tónlist sem er
vel „danshæf. Herlegheitin hefjast kl.
23 í kvöld og á sama tíma á laugardags-
kvöld.
200 ára afmælishátíð
Jim Beam
hefst á veitingahúsmu Déjá-vú í kvöld
kl. 22. AfmæUsbarnið mun taka á móti
gestum og gangandi. Stórhátíð þessi mun
halda áffarn á laugardagskvöld á Déjá-vú
en þaðan mun förinni heitið um land allt.
Fjölskylduhátíð:
„í hjartans
einlægni"
„Þetta er svolítið öðruvísi fjöl-
skylduhátíð, hún er mótvægi við
þessar venjulegu fiölskylduhátíðir
þar sem stórsveitlr spila," segir Sig-
urður Ragnarsson, framkvæmda-
stjóri fiölskylduhátíðarinnar „í
hjartans einlægni" sem haldin er aö
Laugalandi í Holtum um þessa helgi.
Hátíðin hefst í dag og lýkur á sunnu-
dag. Þátttökugjald er 6000 kr. fyrir
fullorðna, börn á aldrinum 4 til 16
ára greiða 500 kr. en yngri böm ekk-
ert. Hægt er að mæta á staðinn í
kvöld og greiða þá gjaldið.
„Við emm að reyna að finna mót-
vægi við stress og hraða nútímans og
beina sjónum fólks að sjálfu sér og
fiölskyldunni. Um leið er ætlunin líka
að skemmta sér,“ segir Sigurður. Á
dagskránni er tónlist og dans og farið
verður í gönguferðir. Fyrir böm verð-
ur starfrækt trésmiðja þar sem þau
geta fengið að smíða, föndursmiðja,
tónsmiðja, leiksmiðja, þrautasmiðja
og „Litla leiksmiöjan“ sem er fyrir
böm yngri en fiögurra ára.
Laugaland í Holtum er í 11 km fiar-
lægð frá Heltu. Að Laugalandi er sami
afleggjari og upp aö Galtalæk og
Heklu.
904-1700
Verö aðeins 39,90 mín.
lj Fótbolti
2 j Handbolti
3 j Körfubolti
4 Enski boltinn
5 | ítalski boltinn
6 Þýski boltinn
71 Önnur úrslit
8J NBA-deildin
JLj Vikutilboö
stórmarkaðanna
2 j Uppskriftir
lj Læknavaktin
2 1 Apótek
31 Gengi
; 1 [ Dagskrá Sjónvarps
21 Dagskrá Stöðvar 2
3 j Dagskrá rásar 1
4 [ Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
J5j Myndbandagagnrýni
. 6 j ísl. listinn
-topp 40
7] Tónlistargagnrýni
8j Nýjustumyndböndin
9 1 Gervihnattardagskrá
1J Krár
21 Dansstaðir
3 I Leikhús
4j Leikhúsgagnrýni
Bíó
jSJ Kvikmyndagagnrýni
1J Lottó
2 [ Víkingalottó
3j Getraunir
904-1700
Verð aðeins 39,90 mín.