Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1995, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1995, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1995 Fréttir Nautakjötsbirgðir halda uppi verðinu: Fornaldarhyggja í framleiðsluháttum - segir Jón Magnússon, formaður Neytendafélags höfuðborgarsvæðisins „Það kemur ekki á óvart þó nú séu miklar birgðir af frosnu nautakjöti. Framleiðendur ákváðu í fyrra að taka hluta framleiðslunnar út af markaði í þeim tilgangi að hækka verð á nautakjöti. Þeim tókst þetta en nú sitjum við uppi með birgðim- ar. Þegar í fyrra mótmæltum við þessu á þeim grundvelli að þarna væri um samkeppnishömlur að ræða en því miður á íslenskur almenning- ur fáa varnarleiki í stöðunni. Stjóm- völd standa alveg á bak við þessa fomaldarhyggju í framleiðsluháttum og meina borgurunum með lögum að gera hagkvæm innkaup," segir Jón Magnússon, formaður Neyt- endafélags höfuðborgarsvæðisins. Umtalsveröar birgðir af frosnu nautakjöti eru í landinu eins og fram kemur annars staðar í blaðinu í dag. Kjötið var tekið út af innlendum markaði í fyrra og var áformaö að selja það til Bandaríkjanna. Þau áform brugðust og í Ijósi innlendra markaðsaðstæðna er vafasamt að hægt sé að selja kjötið innanlands. „Það er spurning hvað menn ætla að gera við birgðirnar. Á að henda þessu eða er hugmyndin sú að skatt- greiðendur borgi fyrir þetta með ein- hveijum hætti, meira en orðið er? Þessi hugsun var aldrei hugsuð til enda. Ef þessir menn ætla að setja þetta núna inn á markaðinn þá mundi það valda töluvert miklum sviptingum á kjötmarkaðinum.“ Guðmundur Lárusson, formaður Landssambands kúabænda, sagði við DV aö nautakjötsbirgðimar væru ekki lengur 300 tonn heldur væri búið að selja nokkurt magn til kjöt- vinnslu og á almennan markað. Þannig hefðu 60 tonn selst í ágúst- mánuði. „Það er verið að selja kjötið jöfnum höndum, annars vegar sem efni í hakk og hins vegar í þeim lofttæmdu umbúðum sem það var pakkað í fyr- ir ári. Kjötið er í mjög góðu ástandi. Ársgamalt kjöt er ekki gamalt kjöt,“ sagði Guðmundur. „Það er merkilegt að nú á tímum frelsisins skuli borgararnir ekki hafa frelsi til að kaupa þann mat sem þeir vilja kaupa. Þeir hafa ritfrelsi, félaga- frelsi, trúfrelsi og ýmislegt fleira eri þeir hafa ekki frelsi til að kaupa sér brýnustu lífsnauðsynjar. Ríkisstjórn á hverjum tíma er að ráðskast með það hvað fólk hefur á borðum hjá sér. Þetta stangast á við mínar hug- myndir um lýðræði og frelsi," segir Jón. -kaa/bjb Stuttar fréttir Aðalfundur Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík var haldinn í aðalstöðvum sveitarinnar í gærkvöldi. Ursögn úr Landsbjörg kom ekki til afgreiðslu heldur fékk stjórnin óskorað umboð til viðræðna við forráðamenn Rauða kross- ins um samstarf í björgunarmálum á breiðum grundvelli. Ingi Þór Þorgrimsson, formaður sveitarinnar, sagði við DV að hún yrði áfram i Landsbjörg, hvað sem framtiðin bæri í skauti sér. DV-mynd ÞÖK Nágrannakrytur vegna lausagöngu búflár: Kindur úr Grindavík á beit í Vogunum - þeirra eigið búfé, segir formaður bæjarráðs Grindavikur Fieiriráðstefnur Fleiri erlendar ráðstefnur verða haldnar á íslandi í ár en áður. Skv. upplýsingum Við- skiptablaðsins verða 77 slíkar ráðsteíhur haldnar í ár saman- borið við 65 í fyrra. Aukinnútflutníngur Útílutningur iðnaðarvara, ann- arra en áls og kísiljáms, hefur aukist um rúm 33% fyrstu 7 mán- uði ársins miðaö viö sama tíma í fyrra. RÚV greindi frá þessu. Úttektá vistfræði Borgaryfirvöld hafa ákveðið að láta vinna ítarlega vistfræðiút- tekt á Elliðaánum, upptökum þeirra og ósasvæði, vegna marg- endurtekinna mengunaróhappa og sjúkdóraa í fiskstofhum ánna. RÚV greindi frá þessu. Óánægjameðleiðir Atvinnumálafulltrúinn á Akur- eyri hefhr sagt upp störfum, Að sögn RÚV er ástæðan óánægja með þær leiðir sem farnar eru í atvinnumálum bæjarins. Talkennararáþingi Félag talkennara stendur fyrir málþingi í Breiðholtsskóla í Reykjavík á föstudaginn. M.a. á að ræða framtíö núverandi þjón- ustu við flutning grunnskólans til sveitarfélaga. Óhressir á Reykjanesi Reyknesingar eru óhressir meö sölu tveggja báta til Kambs hf. á Flateyri. Með bátunum fer nokk- ur hundruð tonna kvóti. Kratarviljaskýrslu Kratar ætla aö krefja forsætis- ráðherra um skýrslu um fram- kvæmd GATT þegar Alþingi kemur saman í haust. í samþykkt krata segir að hver mistökin hafi rekið önnur í afgreiðslu ríkis- stjórnarinnar á innflutningsmál- umítengsIumviðGATT. -kaa „Við höfum orðiö vör við lausar kindur hér, sérstaklega undanfarnar vikur. Þær eru væntanlega úr Grindavík því lausaganga er bönnuð hjá okkur. Nokkrar hafa verið á vappi hér í kring og ein hefur verið hér í mestallt sumar. Við ráðum ekki við það þegar fénaður úr öðrum sveitarfélögum kemur yfir til okkar. Við reynum eftir fremsta megni að handsama þetta fé en það gengur ekki alltaf. Þær eru mjög styggar og sækja í brautina," segir Jóhanna Reynisdóttir, sveitarstjóri í Vogum. Hreppsnefnd Vatnsleysustrandar- hrepps og önnur bæjarfélög á Reykjanesskaga hafa þrýst á bæjar- yfirvöld í Grindavík að banna lausa- göngu búfjár en lausaganga er bönn- uð á öllum Reykjanesskaganum vegna ofbeitar og umhverfissjón- armiða, nema í Grindavík, auk slysa- hættu á Reykj anesbrautinni þegar kindur sækja þangað. Grindvíkingar eiga um 300 fjár, sem ganga laus, en Vogamenn eru með um 100 kindur lokaðar í hólfi á vegum hreppsins. „Þetta er allt fé frá þeim sjálfum. Það er bændunum í sjálfsvald sett hvort þeir leyfa kindunum að ganga lausum eða ekki og ég veit ekkert um það hvort girðingin þeirra er held. Við ætlum ekki að smala fyrir þá nema í réttimar. Viö höfum heyrt um áhuga þeirra á aö við lokum okk- ar kindur inni í hólfi en ekki stendur til að banna lausagöngu búfjár. Hún er ekki bönnuð á landinu og af hverju ættum við aö banna hana? Þó landiö sé gróðursnautt aö hluta þá er það frekar vanbeitt en ofbeitt," segir Hallgrímur Bogason, formaður bæj- arráðs í Grindavík. Samkomulag milli sveitarfélag- anna á Suðurnesjum og Varnarliös- ins í Keflavík um að greiða Sam- bandi sveitarfélaga á Suðurnesjum fyrir fjárgæslu rann út í fyrra og er ekki fyrirhugað að endurnýja það. Ekki er nein sérstök íjárgæsla á svæðinu nú. -GHS NIÐURSTAÐA ,r o d Hefur þú trú á aö vinstri .z', með geti sameinast í íULItOmo einnflokki? 904-160„ - segir Jakob Jakobsson „Ég myndi ekki slá lán út á þessi seiði, í það mínnsta ekki strax," sagði Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofnun- ar, aðspurður um hvort sterkur þorskárgangur væri nú að vaxa upp á íslandsmiðum. í nýkynntum niðurstöðum af mælingum Hafrannsóknastofn- unar á þorskseiðum frá í ár kom fram að seiðafjöldinn er yflr með- allagi og þess vegna ekki útilokað að úr verði sterkur árgangur. „Við þurfum góða aðstoð frá náttúrunni ef vel á að rætast úr þessum seiöum. Þaö er því enn of snemmt að fagna komandi góð- æri í sjávarútveginum en það er líka margt sem gefur tilefni til meiri bjartsýni en síðustu ár,“ sagðiJakob. -GK Reykjavikurborg: Akureyring- ur ráðinn Borgarráð hefur samþykkt að ráða Jón Bjömsson, félagsmála- stjóra á Akureyri, i stöðu fram- kvæmdastjóra uppeldis-, menn- ingar- og félagsmála. Ekki er Ijóst hvenær hann tekur til starfa. Borgarráð hefur einnig sam- þykkt ráðningu 32 starfsmanna í ýmis verkefni sem áður töldust átaksverkefni við skóla í Reykja- vík. -GHS Akranes: Minnstaat- vinnuleysi um árabil Daníel Ólafeson, DV, Akranesi: Eitthvað virðist vera að rofa til í atvinnumálum á Akranesi. At- vinnuleysi i júní sl. var 5,12% en í júli var það 3,86% og er það minnsta atvinnuleysi um árabil í bænum, að sögn Brynju Þor- björnsdóttur, atvinnufulltrúa og . rekstrarfræðings á Akranesi, sem hefur unnið ötullega að því að fjölga störfum á Akranesi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.