Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1995, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1995
5
Fréttir
Aðeins átta laxa á tólf stangir á þremur dögum:
Það er eitthvað mikið
að í Laxá í Aðaldal
- segir Erlingur Helgason sem veitt hefur í ánni í 25 ár
„Við voram við veiðar í þrjá daga
í síðustu viku með 12 stangir og feng-
um ekki nema 8 laxa. Þetta er auðvit-
að engu likt og hver svo sem ástæðan
er þá er það staðreynd að veiðin hef-
ur verið að dragast saman í ánni með
hverju árinu sem líður undanfarin
ár,“ sagði Erlingur Helgason lax-
veiðimaður í samtali við DV, nýkom-
inn úr Laxá í Aðaldal.
Ég hef veitt í Laxá í Aðaldal í ein
25 ár en aldrei vitað hana svona
daprá. Hér áður fyrr var það ekki
óalgeng sjón að sjá jafnvel fimm til
tíu laxa stökkva í einu á sama veiði-
svæðinu. Nú er það alveg sérstakt
ef maður sér hreyfingu. Það veit eng-
inn hvað er að og óteljandi skoðanir
á lofti þar um. Hjá okkur sem vorum
þarna í þrjá daga við ána var ekki
um annað rætt en hvað væri hægt
að gera. Það má svo sem segja að það
hafi verið aðalumræðuefniö við ána
undanfarin ár því veiðin hefur verið
að dragast saman ár frá ári. Það er
eitthvað mikið að í Laxá í Aðaldal,"
sagði Erlingur Helgason laxveiði-
maður í samtali við DV, nýkominn
úr Laxá í Aðaldal.
Þegar best veiddist í Laxá í Aðaldal
komu um og yfir þrjú þúsund laxar
á land á hverju ári. Þá var áin kölluð
perla íslenskra laxveiðiáa. Undan-
farin ár hefur veiðin verið að dragast
saman og í fyrra veiddust um 1400
laxar og nú er áin að skríða yfir eitt
þúsund laxa.
Kristján Benediktsson, bóndi á
Hólmavaði, er einn af þeim sem
þekkir Laxá best. Á Hólmavaðssvæð-
inu einu veiddust hér áður hátt í 300
laxar á sumri. Nú eru það fáeinir
fiskar sem koma þar á land.
„Ég vildi að ég vissi hvað er að. Það
er auðvitað margt sem spilar inn í.
Köld ár undanfarið samfara miklum
sjávarkulda hefur eflaust sitt að
segja. Svo hefur verið mikill sand-
burður í ánni síðustu ár. Það hefur
að vísu gerst áður en er nú með allra
mesta móti. Menn hafa verið að
græða upp land nærri Kráká til að
reyna að hefta sandfok í hana en hún
hefur borið mikinn sand í Laxá. En
ástandið er orðið svo slæmt að hjá
því verður ekki komist að setjast nið-
ur og skoða málin ofan í kjölin til að
reyna að finna orsakirnar fyrir
þessu,“ sagði Kristján Benediktsson
á Hólmavaði.
Trúnaðarbrestur lögreglustjóra á Keflavlkurflugvelli:
Reynum að f ylgja ótvíræðu
áliti umboðsmanns Alþingis
- segir Hannes Heimisson hjá Varnarmálaskrifstofu
Nær allir skipstjórar rækjuskipa
hafa skrifað undir kröfu til sjávar-
útvegsráðherra um að ekki verði
skylda að nota seiöaskilju við
rækjuveiöar um vetur. Telja skip-
stjórarnir að skiljan geti verið lífs-
hættuleg vegna þess hve þung hún
er. -GK
„Við höfum enn ekki séð álit um-
boðsmanns Alþingis og getum því
ekkert um málið sagt að svo stöddu,“
sagði Hannes Heimisson hjá varnar-
málaskrifstofu utanríkisráðuneytis-
ins um meintan trúnaðarbrest lög-
reglustjórans á Keflavíkurflugvelli í
máli Skarphéðins H. Einarssonar.
DV greindi í gær frá því áliti um-
boðsmanns Alþingis að lögreglu-
stjórinn hefði brotið trúnaöarskyldu
þegar hann afhenti tryggingafélagi
gögn vegna umferðaróhapps sem
Skarphéðinn lenti í árið 1993.
„Við reynum auðvitað alltaf að
fylgja ótvíræðu áliti umboðsmanns
en í þessu tilviki eigum við eftir að
kynna okkur álitið áður en ákveðið
verður með framhaldið," sagði
Hannes.
-GK
Alþýðubandalagið:
Flokksf élögum hef ur fjölgað
- smölun vegna formannskjörs
Undirbúningur að formannskjöri
Alþýðubandalagsins er í fullum
gangi en kosið verður um formann
og varaformann flokksins á lands-
fundi á Hótel Sögu 12.-15. október.
Þá samþykkti miðstjórn flokksins, á
fundi sem haldinn var um síðustu
helgi, að landsfundurinn myndi
fialla sérstaklega um atvinnu og lífs-
kjör, starfsemi sveitarfélaga, framtíð
vinstri hreyfingar og ofbeldishneigð
og vímuefnavanda. Þetta kom fram
á blaðamannafundi nýlega.
„Það er frekar óvenjulegt að stjórn-
málaflokkur fialli sérstaklega um
starfsemi sveitarfélaga með þessum
hætti. Hingað til hafa sveitarfélögin
verið talin fyrir utan hinn hefð-
bundna vettvang landsfundar flokk-
anna en við teljum að starfsvettvang-
ur sveitarfélaganna sé orðinn það
mikilvægur að rétt sé að fialla um
sveitarfélögin á landsfundinum,“
segir Ólafur Ragnar Grímsson, for-
maður Alþýðubandalagsins.
Kjörskrá fyrir formannskosningar
flokksins verður lokað 29. septemb-
er. Þá verða kjörseðlar sendir heim
til allra flokksfélaga og eiga þeir að
sjá sjálfir um að skila þeim til yfir-
kjörstjómar fyrir klukkan 12 föstu-
daginn 13. október. Þá hefst talning.
Flokksfélagar sem ganga í flokkinn
eftir að kjörskrá lokar geta reynt að
kæra sig inn á kjörskrá fyrir lands-
fundinn. Flokksfélagar eiga kost á
því að kjósa utan kjörstaðar.
Félagar í Alþýðubandalaginu eru
um 2.700 í dag og segir Einar Karl
Haraldsson, framkvæmdastjóri Al-
þýðubandalagsins, að þeim hafi fiölg-
að um nokkra tugi undanfarnar vik-
ur.,í fiölmiðlum hefur komið fram
að liður í kosningabaráttu frambjóð-
endanna sé að smala í flokkinn.
-GHS
Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, og Steingrimur
J. Sigfússon og Margrét Frímannsdóttir, frambjóðendur til formanns, kynntu
á blaðamannafundi nýlega umfjöllunarefni landsfundar flokksins sem fram
fer um miðjan október. Á landsfundinum verður fjallað um atvinnu og lifs-
kjör og framtið vinstri hreyfingarinnar auk formannskjörsins. DV-mynd ÞÖK
Langar þig í
skemmtilegan skóla
eitt kvöld í viku?
■ Langar þig að vita hvar látnir vinir þínir og vandamenn
hugsanlega og líklega eru í dag og hversu öruggt meint
samband við þá og þessa undarlegu heima er með
aðstoð miðla?
■ Langar þig að vita hvað eru afturgöngur og draugar og
hvers vegna þessi fyrirbæri sjást?
■ Langar þig að vita af hverju langflestir „vísindamenn"
heimsins hafa eins mikla fordóma fyrir dulrænni
reynslu fólks og raun ber vitni?
■ Langar þig að vita hvað best og mest er vitað í gegnum
sálarrannsóknarhreyfinguna sem og vísindalegar rann-
sóknir á líkunum á lífi eftir dauðann og hvar framliðn-
ir liklega eru og i hvemig samfélagi þeir líklegast lifa?
■ Langar þig að lyfta þér upp eitt kvöld í viku í bráð-
skemmtilegum og vönduðum skóla innan um lífsglatt
og skemmtilegt fólk, þar sem skólagjöldunum er stillt
í hóf?
Ef svo er þá áttu ef til vill samleið með okkur.
Tveir byrjunarbekkir eru að hefja nám í Sálar-
rannsóknum 1 nú á haustönninni. Skráning
stendur yfir. Hringdu annars ogfáðu allarnán-
ari upplýsingar ísímum 561 -9015 og 588-6050.
Yfir skráningardagana út september er svaraö í síma Sálarrann-
sóknarskólans alla daga vikunnar kl. 14.30 til 19.00. Skrifstofa
skólans verður hins vegar opin alla virka daga kl. 17.00 til 19.00
og á laugardögum kl. 14.00 til 16.00.
jÉ\Sálarrannsóknarskólinn
Mí/,.A - Skemmtilegur skóli -
Vegmula 2,
S. 5-619015 og 5-886050.
Haustvörunar eru komnar!
Terelynebuxur - flauelsbuxur - gallabuxur - vinnuskyrtur - úlpur - pólóbolir
háskólabolir og margt margt fleira.
Við höfum yfirstærðirnar
— - Nýtt - Mikið úrval af fallegum kventöskum
Wm I 10% staðgreiðsluafsláttur
^!1!*** Búðin, Bíldshöfða 18. OpiðL mánud.-föstud. 10-18