Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1995, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1995
Viðskipti________________________________________
Hundruð tonna af frystu nautakjöti:
Liggja undir skemmd-
um í f rystigeymslum
- í Kópavogi og á Svalbarðseyri
Megniö af nautakjötsfjallinu er geymt í þessari frystigeymslu við Dalveg í
Kópavogi. Afgangurinn er í geymslu á Svalbarðseyri. DV-mynd ÞÖK
Vöruskipti íjúlí
íjárnum
Vöruskipti við útlönd voru í
jámum í sl. júlímánuöi. Þá flutt-
ust út vörur fyrir 7,8 milljarða en
inn fyrir nánast sömu upphæð.
Munar þar eingöngu 5 milljónum
króna í plús. í sama mánuði í
fyrra voru vöruskipún hagstæð
um 1,2 milljarða króna.
Fyrstu sjö mánuði ársins voru
fluttar út vörur fyrir 66,6 miflj-
arða króna en inn fyrir 57,6 millj-
aröa. Afgangur var því upp á 9
milljarða en eftir sama tima í
fyrra voru vöruskiptin hagstæö
um 13,5 milljarða króna. Verð-
mæti vöruútflutningsins var 6%
meira en eftir sama tíma í fyrra
en verðmæti innflutnings jókst
um 17%.
Flutningamið-
stöðstofnuðá
Austfjörðum
Samskip og Kaupfélag Hér-
aösbúa hafa sameigínlega stofnaö
Flutningamiöstöð Austurlands,
FMA, sem tekur formlega til
starfa þann 1. október nk. með
aðsetri á Reyðarfirði. FMA mun
auk allra almennra vöruflutn-
inga á sjó og landi annast vöru-
geymslu, fiskflutninga og gáma-
flutninga. Auk þess veröur boðíð
upp á skipaafgreiöslu og löndun-
arþjónustu á Reyöarfirði. Starfs-
menn FMA veröa sjö talsins.
FMA veröur með afgreiðslur á
Reyðarflrði, Egilsstöðum, Djúpa-
vogi, Breiðdalsvík, Stöðyarfirði,
Fáskrúðsfirði, Eskifirði, í Nes-
kaupstað og á Seyðisfirði. Enn
fremur verður vikuleg þjónusta
við Borgarfjörð eystri.
NýrPowerPC
örgjörvifrálBM
Nýherji hf. er farinn aö taka við
pöntunum frá íslenskum fyrir-
tækjum á nýja PowerPC örgjörv-
anum frá IBM. Örgjörvinn nefn-
ist PowerPC AS og hefur verið
settur í AS/400 stórtölvur. Tölvu-
búnaöurinn verður aíhentur nú
á haustdögum, samkvæmt til-
kynningu frá Nýherja.
Örgjörvinn er hannaður sér-
staklega fyrir hið almenna vinnu-
umhverfi viðskiptalifsins sem
notast við AS/400 tölvur frá IBM.
-bjb
Hundruðir tonna af frystu
ársgömlu nautakjöti hggja nú undir
skemmdum í tveimur frystigeymsl-
um á landinu. Um 200 tonn eru í
geymslu við Dalveg í Kópavogi og
afgangurinn er geymdur á Svalbarðs-
eyri í Eyjafirði, í geymslu sem Kjama-
fæði á Akureyri leggur til. Um er að
reeða kjöt sem bændur tóku út af
markaði á síðasta ári til að minnka
ffamboðiö og halda uppi verði. Ætl-
imin var að fiytja kjötið á markaði í
Bandaríkjunum en þar var því hafnað
sakir lítilla gæða og rangra merkinga.
Tildrög þessa máls voru þau að
vorið 1994 stofnuðu búgreinafélög
kúabænda, sauðfjárbænda og
hrossabænda hlutafélagið Kjötfram-
leiðendur hf. sem skyldi sjá um að
halda verðlagi á kjöti uppi með því
að taka það út af markaði. í kjölfarið
var ákveðið að flytja kjötið á banda-
rískan markað. Þrátt fyrir kostnaö-
arsama markaðssetningu brást
bandaríski markaðurinn, enda þótti
kjötið seigt auk þess sem merkingar
á pakkningum voru rangar.
Alls tóku Kjötframleiðendur við
340 tonnum af kjöti á tímabilinu apríl
til desember í fyrra. Megnið af þessu
kjöti er enn frosið og óselt. Einungis
11,7 tonn af kjöti seldust til Banda-
ríkjanna. Um helmingur kjötsins er
úrbeinaður en þannig var ætlunin
að selja það ytra.
Flugleiðir töpuðu 307 milljónum
króna af rekstri fyrstu sex mánaða
þessa árs. Þetta er talsvert betri af-
koma en eftir sama tíma í fyrra þeg-
ar tapið nam 732 milljónum króna.
Rekstrartekjur þessa fyrstu sex mán-
uði voru rúmlega 7 milljarðar og juk-
ust um 9,3% en gjöld voru rúmlega
7,2 milljarðar og hækkuðu um 9,1%.
Þrátt fyrir tapið á fyrri hluta ársins
I skýrslu frá Kjötframleiðendum,
sem kynnt var á nýafstöðnum aðal-
fundi kúabænda, kemur fram að fall-
ið hafi verið frá því að koma kjötinu
á markað erlendis. Fullyrt er að inn-
lendur markaður þurfi á öllu þessu
kjöti að halda næstu mánuðina.
Samkvæmt upplýsingum sem DV
fékk hjá Framleiðsluráði landbúnað-
arins voru nautakjötsbirgðirnar alls
397,6 tonn í byrjun ágúst, aðallega
ungnautakjöt. í júlí féllu til alls 240
tonn í slátrun en á innanlandsmark-
aði hafa selst á bilinu 250 til 300 tonn
á mánuði nú í sumar.
gera áætlanir Flugleiða ráð fyrir
hagnaði á árinu og styðja góðar
haustbókanir þá spá.
Skýringin á bata milli árshluta ér
fyrst og fremst söluhagnaður af flug-
vél upp á 325 milljónir króna. í til-
kynningu frá Flugleiöum segir að
verkfall flugfreyja í apríl hafi kostað
félagið 70 milljónir króna.
Stjórn Flugleiöa samþykkti á fundi
Fráleitt markaður
fyrir ársgamalt kjöt
Að sögn Jónasar Þórs, kjötverk-
anda í Reykjavík, er fráleitt að ætla
að markaður sé fyrir kjötið á ís-
landi, enda orðið ársgamalt. Hann
bendir á að í upphafi hafi menn var-
að við því að binda miklar vonir við
útflutning. Nú hafi allt það gengið
eftir sem efasemdamenn sögðu. Eftir
standi að bændur hafi tekið kjöt út
af markaði með miklum tilkostnaði
fyrir íslenska neytendur.
sínum í ágúst að leigja enn eina Boe-
ing 757-200 vél til næstu sex ára. Vél-
in verður afhent ný frá Boeing verk-
smiðjunum í janúar 1996. Á næsta
ári munu Flugleiðir því starfrækja
íjórar Boeing 757-200 og fjórar Boeing
737-400 flugvélar í millilandafluginu.
-bjb
-kaa/bjb
Milliuppgjör Flugleiða:
Tap en þó á uppleið
Fjör í kringum hlutabréfin
Viðskipti með hlutabréf í síðustu
viku námu rúmum 70 milljónum
króna. Það er töluvert meira fjör en
boðið var upp á í vikunni þar á und-
an. Langmest var keypt af bréfum
íslenska útvarpsfélagsins, eða fyrir
18,5 milljónir. Næst komu viðskipti
upp á rúmar 11 milljónir króna í bréf-
um bæði Flugleiða og Sfldarvinnsl-
unnar.
Gengi þeirra hlutabréfa sem birtast
í grafinu hér að neðan breyttist
óverulega í síðustu viku. Af öðrum
hlutafélögum er það að segja í síð-
ustu viku að bréf Sameinaðra verk-
taka hækkuðu í verði um 21% milli
vikna, enda urðu viöskipti meö bréf-
in upp á 8,3 milljónir. Þetta hafði ei-
lítil áhrif á þingvísitöluna en eftir
helgi hefur hún lækkað í 1240 stig. ■
Einn togari, Skagfirðingur SK,
landaði í erlendum höfnum í síðustu
viku, bæöi í Grimsby og Bremer-
haven. AUs voru það tæp 100 tonn
sem seldust fyrir 9,2 milljónir. í
gámasölu í Englandi seldust 235 tonn
fyrir 29,5 milljónir.
Álið hríðlækkar
Á einni viku hefur álverð á heims-
markaði lækkað að meðaltali um 7%.
Helsta ástæðan er verðlækkun á kop-
ar auk þess sem álbirgðir hafa
snarminnkað. Sérfræðingar spá
áframhaldandi verðlækkun en þó
ekki mikilh.
Gengi helstu gjaldmiðla gagnvart
íslensku krónunni hefur tekið óveru-
legum breytingum undanfama viku.
-bjb
Gá<na|jo>sKu<
Dollai
Skeljungii'
4,00
thngvisrt. niutalH
nmgvisrt husbr
142 139,46
140
Ráðstefnaum
margmiðlun
Árleg haustráðstefna Skýrslu-
tæknifélags íslands fer fram á
Grand Hótel Reykjavik á morg-
un. Yfirskrift ráðstefnunnar í
þetta sinn er Margmiðlun - í al-
vöm! Þar veröur reynt að svara
þeim spurningum hvort þessi
tækni sé leikfang eða hvort í
henni felist nýir möguleilcar á
framsetningu gagna og upplýs-
inga.
Fyrirlesarar koma víða að en
frá íslandi munu flytja erindi þeir
Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV,
og Hallgrímur Thorsteinsson,
framkvæmdastjóri Asks, upplýs-
ingakerfisins sem rekið er af
Skýrr. Aðrir fyrirlesarar eru
Cynthia Rudge, einn eígenda
hugbúnaðarfyrirtækisins Moun-
tain Lake í Kanada, Juergen
Obermann, markaðsstjóri Cisco
Systems, og Anders Herlov, sölu-
stjóri Hewlett Packard í Dan-
mörku.
Heimabanki hjá
íslandsbanka
íslandsbaiki hefur boðið við-
skiptavinum sínum tölvuteng-
ingu við bankann sem gerir þeim
kleift að sinna flestum bankavið-
skiptum sínum heíma hjá sér
hvenær sem þeim hentar. Þessi
nýja þjónusta hefur hlotið nafnið
Heimabanki islandsbanka.
Sundafrosttekið
ínotkun
Eimskip hefur með formlegum
hætti tekið í notkun nýja þjón-
ustumiðstöð fyrir frystivöru í
Sundahöfn sem nefnist Sunda-
frost. Sundafrost var byggt upp í
samræmi við alþjóðlegar kröfur
um nýjustu og fuUkomnustu
kælitækni og vörumeðferð. Þar
hefur verið komiö fyrir upplýs-
inga- og tæknibunaði sem er ný-
lunda í vöruhusum hér á landi.
Samskip semur
viðFaroeLine
Samskíp hafa samið við fær-
eyska flutningaféiagið Faroe Line
um áframhaidandi samstarf. Fé-
lögin hafa verið í samstarfl síð-
ustu tvö ár.
Samstarfið felst í því að Sam-
skip sjá um alla áætlunarflutn-
inga frá Færeyjum tii Bretlands,
Hollands, Þýskalands, Svíþjóðar
og Noregs íyrir Faroe Line og
Faroe Line mun taka Kaup-
mannahafnarflutningana fyrir
Samskip. Með nýja samningnum
leggjast siglingar Faroe Line á
Austfirði af.
laldsforrit
fyrirWindows
Nýtt íslenskt forrit hefur verið
sett á markað. Er það fyrsta
Windows-forritiö fyrir lagervið-
skipti og fiárhagsbókhald sem
kemur út á íslandi. Er það Toll-
meistarinn sem selur forritið en
Níels Einarsson og Örn S. Rós-
inkransson forrituðu þaö. Forrít-
iö heitir Bragðarefur vegna þess
að það gerir flókið verk einfalt.
Að sögn forritaranna er helsti
kostur þess sá að það tekur al-
mennt um hálftíma að læra á það
og því þurfa fyrirtæki ekki að
senda starfsfólk á námskeið.
Minnkar það kostnað talsvert. Er
forritið í raun mörg forrit sainan
sem hægt eraðkeyra í einu, Qár-
hagsbókhald, birgðakerfi, sölu-
kerfi, pantanakerfi o.s.frv. Verö
er mismunandi eftir því hvaða
hiuta forritsins menn vilja fá
með. -GJ