Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1995, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1995, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1995 Utlönd Tilraunasprenging Frakka vekur viðbrögð um heim allan: Heimskuleg gjörð - sagði Paul Keating, forsætisráðherra Ástralíu „Eg fordæmi harðlega það sem Frakkar hafa gert. Þetta er heimsku- leg gjörð. Með henni sýnir franska ríkisstjómin löndunum og fólkinu á svæðinu og öllum þeim sem stefna að kjarnorkuvopnalausri veröld fyr- irlitningu," sagði Paul Keating, for- sætisráðherra Ástralíu, eftir að Frakkar sprengdu fyrstu kjamorku- sprengju sína af átta neðanjarðar á Mururoa-eyjum í Kyrrahafi í gær- kvöldi. Sprengjan, sem var tæp 20 kílótonn að stærð, sprakk klukkan hálftíu að íslenskum tíma. Við sprenginguna varð lygn sjórinn við kóralrifið allur hvítfryssandi um stund og há vatns- súla steig til himins. Franskir herfor- ingjar klöppuðu kurteislega þar sem þeir sátu í sólstólum og fylgdust með. „Þessar tilraunir em nausðynlegar svo við getum verið vissir um áreið- anleika og öryggi kjarnorkuvopna- búrs okkar til lengri tíma. Kjarn- orkuvopn tryggja okkur sjálfstæði og verndun mikiivægra hagsmuna," sagði Charles Millon, vamarmála- ráðherra Frakka, eftir sprenginguna. Frakkar sögðu að niðurstöður sprengingarinnar lægju ekki að fullu fyrir fyrr en eftir nokkra mánuði. Niðurstöðumar gætu þó vel orðið til þess að fyrirhuguðum tilrauna- sprengingum, allt að átta, yrði fækk- að. í kjölfar sprengingarinnar til- kynntu stjórnvöld á Nýja-Sjálandi og í Chíle að þau kölluðu sendiherra sína í Frakklandi heim. í Hvíta hús- inu í Washington hörmuðu menn að Frakkar skyldu framkvæma spreng- inguna og hvöttu stjórnvöld í París til að hætta við frekari kjarnorkutil- raunir. Bandarískir embættismenn sögðu Clinton forseta hafa komið skilaboðum þess efnis áleiðis til Par- ísar. Rússar hörmuðu sprenginguna, Japanir og fleiri þjóðir. Með sprengingunni í gær var brot- ið bann sem Mitterrand, forveri Jacques Chiracs á forsetastóli, hafði sett við kjamorkutilraunum. í dag em það aðeins Kínveriar sem fram- kvæma slíkar tilraunir. Frakkar segja tilraunimar nauðsynlegar svo þeir geti skrifað undir sáttmála um algert bann við kjarnorkutilraunum í Genf á næsta ári. Grænfriðingar um heim allan mót- mæltu sprengingunni og yfirlýsing- arnar vora óblíðar. „Sprengingin mun setja Jacques Chirac á spjöld sögunnar sem pólitískan og um- hverfislegan glæpamann," sagði tals- maður grænfriðunga á Nýja-Sjá- landi. Reuter Hollensk kona og Astrali taka niður um sig buxurnar til að sýna andúð sina á kjamorkutilraunum Frakka. Myndin var tekin á „video-blaðamannafundi“ sem haldinn var i Papeete i Frönsku-Pólynesíu i kjölfar sprengingarinnar. Franski hershöfðinginn Paul Vericel er á skjánum i baksýn. Simamynd Reuter NÚ BJÓÐUM VIÐ UPP í QianSy NÝ NÁMSKEIÐ SEM HEFJAST Á HAUSTÖNN BARNADANSAR GÖMLUDANSARNIR SUÐURAMERfSKIRDANSAR SAMKVÆMISDANSAR KENNT í FRAMHALDS OG BYRJENDAFLOKKUM. EINNIG ER BOÐIÐ UPP Á EINKATÍMA. INNRITUN DAGLEGA FRÁ KL. 13 - 19. KENNSLA HEFST LAUGARDAGINN 16 9 95. wt mwóLm REYKJAVÍKURVEGI 72 HAFNARFIRÐl SÍMI 565 2285 NÝI DANSSKÓLINN SKILAR BETRI ÁRANGRI. Verðlaunahafar í sumarþrumuleik Gronsásvogi 11 Sml: 5 886 686 Fax: 5 886 888 Mistök voru í auglýsingu sem birtist 30. ágúst sl. um verðlaunahafa í Sum arþrumuleik Bónus Radíó. Aukaverðlaun voru 10 en ekki 4 eins og stóð í auglýsingunni og leiðréttist það hér með. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Aðalverðlaun: Samsung Max 370 hljómtækjastæða Hannes Þorkelsson Heiðarbrún 78 Hveragerði 10 aukaverðlaun: Hermann Sigurbjömsson Nýjabæjarbraut 86 900 Vestmannaeyjum Guðrún Jónsdóttir Hátúni 4*105 Reykjavík Bergur Þór Torfufelli 44 111 Reykjavík Þórarinn Jónsson pósthólf 12 270 Mosfellsbæ Ámi Páll Þorbjömsson Borg á Mýrum Borgarbyggð Jón Gunnarsson Veghúsum31 112Reykjavfk Helena Eiríksdóttir Hafnarstíg 17A Hmnamannahrepp Selfoss Anna María Sigurðardóttir Víkurbraut 38 Grindavík Grétar Þór Guðmundsson Laugavegi 17 Reykjavík Anna Herdís Pálsdóttir Engihjalla 2 Kópavogi Hinir heppnu mega sækja vinninga sína í Bónus Radíó, Grensásvegi 11. þakkar öllum þátttökuna. Mótmæli á kvennaráðstefau spyrjast ekki út: Getum ekki skýrt frá f lestu sem við sjáum - segir kínverskur blaðamaður um starfsskilyrðin Kinverskur almenningur veit harla lítið um allar mótmælaaðgerð- irnar sem konur á óháðu kvennaráð- stefnunni í Kína efna til á degi hverj- um. Ritskoðun fjölmiðla og þúsundir einkennisklæddra og óeinkennis- klæddra öryggisvarða sjá til þess að fáir landsmenn komast á snoðir um það sem fram fer. „Það þjónar engum tilgangi að við, kínverskir blaðamenn, fylgjumst með ráðstefnunni," sagði kínverskur blaðamaður sem ekki vildi að nafn sitt kæmi fram. „Við getum ekki skýrt frá flestu af því sem við sjáum. Dagblöðin flytja valdar fréttir og ekkert um mótmælin, jafnvel þótt þau tengist Kína ekki neitt." Konur á óháðu ráðstefnunni efna til mótmæla á hverjum degi gegn margvíslegu misrétti sem konur eru beittar um heim allan. Það var ein- mitt af ótta við að þess konar mót- mæh mundu smita út frá sér að ráð- stefnan var flutt til Huairou. „Það er best að horfa ekkert á mótmælaaðgerðirnar, það er best að foröast þær,“ sagði afgreiðslustúlka í verslun sem opnaði aðeins nokkr- um dögum áður en ráðstefnan hófst. „í Kína gerum við hlutina eftir okkar eigin höfði. Ég klára vinnuna, fer heim og sef.“ Hillary Rodham Clinton, forsetafrú í Bandaríkjunum, gagnrýndi kín- versk stjórnvöld í ræðu sinni á opin- beru kvennaráðstefnunni í Peking í gær fyrir framkomu þeirra gagnvart þátttakendum á óháðu ráðstefnunni ogfékkmikiðklappfyrir. Reuter HVAR VARST ÞU 8. SEPTEMBER 19757 Fylgstu með auglýsingatímanum í 19:19 á föstudag. Frjálst.ohaö dagblaö

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.