Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1995, Qupperneq 32
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í
síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eba er
notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiö-ast 7.000. Fulirar nafnleyndar er gætt.
Viö tökum við fréttaskotum allan sóiarhringinn.
55ÖM555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1995.
Fj árlagafrumvarpið:
Tekjur ríkisins
aukast um sjö
milljarða
frá fjárlögum
Efnahagsbatinn á næsta ári mun
auka tekjur ríkissjóös um ríflega
milljarð króna. Skeröing bóta-
greiðslna til einstaklinga, hækkun á
tryggingagjaldi af launum, fjár-
magnstekjuskattur, hátekjuskattur
og aörar aögerðir munu auka tekjur
enn frekar. Samkvæmt drögum rík-
isstjómarinnar að fjárlagafrumvarpi
munu tekjurnar aukast um 7 millj-
arða miðaö við fjárlög þessa árs og
verða alls 119 milljaröar.
Drögin voru kynnt á þingflokks-
Mi fundi Framsóknarflokksins í gær og
í dag verða þau kynnt þingflokki
Sjálfstæðisflokksins. Samkvæmt
þeim munu útgjöld ríkissjóðs á
næsta ári aukast um 3,5 milljarða
miöað við gildandi fjárlög og verða
123 milljarðar. Gert er ráð fyrir að
fjárlagahallinn veröi um 4 milljarðar
í stað 7,4 milljarða í ár.
í frumvarpsdrögunum er gert ráð
fyrir um 1 prósents hagvexti á næsta
ári í stað 2,5 prósenta eins og gengið
var út frá í ársbyrjun. Minni hag-
vöxtur kostar ríkissjóö um 1,5 millj-
arða í tekjur og um 500 milljónir í
útgjöld.
Eitt umdeildasta atriðiö í frum-
varpsdrögunum er aukin tekjuteng-
ing lífeyrisgreiðslna Tryggingastofn-
unar en frá því var greint í DV í síð-
ustu viku. Ætlunin er að tengja
greiðslumar við fjármagnstekjur og
mun það meöal annars skerða ellilíf-
eyri sparifjáreigenda og eignafólks. í
krónum talið er mest um niöurskurð
innan heilbrigðiskerfisins en að
hluta er honum mætt með aukinni
og samræmdri gjaldtöku innan heil-
brigðiskerfisins. -kaa
- Stór stund
hjá Björk
Daníel Ólafsson, DV, Akranesi:
Myndband Bjarkar Guömunds-
dóttur, Army of Me, hefur veriö til-
nefnt sem eitt af fimm bestu mynd-
böndunum í E vrópu 1995 af tónlistar-
sjónvarpsstöðinni MTV. Talið er að
Björk eigi mikla möguleika á að
vinna verðlaunin - sigra.
Afhending verðlaunanna fer fram
aðfaranótt föstudagsins 8. september
- hefst bein útsending á MTV kl. 24
og stendur í þijár klukkustundir.
Meðal listamanna sem koma þar
fram eru Michael Jackson, REM,
TLC, Bon Jovi og hljómsveitin Live.
stórum gæsum!
LOKI
Þessirskotveiðimenn hljóta
að vera vaniransi
Veðrið á morgun:
Skýjaðað
mestu
Á morgun verður norðaustlæg
átt, víöast kaldi. Allra austast á
landinu verður rigning, skúrir
við noröurströndina en skýjaö að
mestu í öðrum landshlutum.
Hiti verður á bilinu 6-12 stig,
hlýjast um landið suðvestanvert.
Veðrið 1 dag er á bls. 44
Fóturinn vsr
hreinlega md
aður í sundur
- segir Bjöm Jóhannesson, eigandl trippisins
„Það vantar eitthvað i höfuðið á
þessum mönnum,“ segir Björn Jó-
hannesson á Akranesi, eigandi
trippis sem varð að fella eftir að
gæsaskyttur höfðu skotiö undan
þvi fótinn nú í vikunni.
Af verksummerkjmn má ráða að
skotið hafi verið á trippið af löngu
færi þar sem það var á beit við
eyðibýlið Vallarnes ásamt öðru
hrossi. Dýralæknir var kallaður
til, eftir að Björn fann trippið í blóðí
sínu, og aflífaöi hann það.
„Eínn fóturinn var hreinlega
molaður i sundur," sagði Björn í
samtali við DV í morgun. „Það er
sárt að verða fyrir þessu enda fol-
inn fallegur og efnilegur, undan
fyrstu verðlauna hesti og mikiö
búið að hafa fyrir að ala hann upp. “
Að sögn Teódórs Þórðarsonar,
lögreglumanns í Borgarnesi, fer
ekki á milli mála að trippið var
skotið með öflugum riöli af löngu
færi. Engar vísbendingar hafa
fundist um hver skotmaðurinn var
og rannsakar lögreglan í Borgar-
nesi málið.
„Þarna hafa verið einhverjir óvit-
ar á ferð að skjóta gæs með stórum
riffii. Við höfum heyrt af slíkum
mönnum á þessum slóðum,“ segir
Teódór og lýsir eftir upplýsingum
um mannaferöir við Vallarnes nú
í byrjun vikunnar.
-GK
Sólin er loks farin að láta sjá sig á höfuðborgarsvæðinu eftir vætutið ágústmánaðar og það kunna námsmenn vel
að meta. Einar Örn Ævarsson og kærastan hans, Ingigerður Guðmundsdóttir, notuðu tækifærið og kynntu sér
nýjar námsbækur úti í náttúrunni. DV-mynd ÞÖK
Drukknaði
í Kötiuvatni
Maöur á áttræðisaldri drukknaði
við silungsveiðar í Kötluvatni á Mel-
rakkasléttu í gær. Kafari fann lík
mannsins á botni vatnsins eftir
skamma leit.
Hinn látni fór snemma í gærmorg-
un aö vitja neta sinna. Um hádegið
veittu aðstandendur hans því athygli
að bátur hans var á reki. Var björg-
unarsveit kölluð út og fannst lík
mannsins um klukkan þrjú.
Telur lögreglan á Þórshöfn að mað-
urinn hafi fallid fyrir borð, ef til vill
eftir aðsvif. Ekki er hægt að birta
nafnhansaðsvostöddu. -GK
Húsavík:
Féslátrað
fyrir Banda-
ríkjamarkað
Albert G. Timaison, DV, Húsavík:
Slátrun hófst hjá Kaupfélagi Þing-
eyinga 5. september og er áætlað aö
slátra 50 þúsund fjár. Þar verður
slátrað lömbum frá fleiri stöðum en
úr Þingeyjarsýslum eða frá Vopna-
firöi, Egilsstöðum, úr Eyjafirði og
Skagafirði, að sögn Páls G. Amar
sláturhússtjóra.
Ástæðan fyrir því að fé frá þessum
stöðum er slátrað á Húsavík er sú
að sláturhús KÞ er annað af tveimur
sláturhúsum á landinu sem hefur
útflutningsleyfi á Bandaríkjamark-
að. Alls munu 120 manns starfa við
slátrunina á þessu hausti hjá KÞ.
Smugutogarar
liggja í aðgerð
Mikill afli hefur verið í Smugunni
í gær og í nótt og lágu íslensku togar-
arnir flestir í aðgerð í morgun eftir
að hafa fengiö upp í 50 tonn í hali
síðasta sólarhringinn.
Nú eru um 30 íslenskir togarar í
Smugunni en samkvæmt upplýsing-
um Tilkynningaskyldunnar munu
nokkrir vera lagðir af staö heim með
fullfermi. Veður er gott og segja
Landhelgisgæslumenn að aflinn hafi
að mestu verið tekinn í flottroll.
-GK
Konafótbrotnaði
Kona á níræðisaldri brotnaði illa á
fæti þegar ekið var á hana á Suður-
götu, sunnan Háskólans, í gær. Að
sögn lögreglu gekk konan út á götuna
og náði ökumaður aðvífandi bifreið-
ar ekki að koma í veg fyrir slys.
-GK
wn
alltaf á
Miövikudögnm