Þjóðviljinn - 07.06.1964, Page 1
Sunnudagur 7. júní 1964 — 29. árgangur — 126. tölublað.
Farmiðar / Borgarfjarð arferðina
□ Við minnum á skemmtiferð Sósíalistafélags Reykjavíkur um
efri byggðir Borgarfjarðar sunnudaginn 14. júní. Tekið er á móti
farmiðapöntunum í skrifstofu félagsins, Tjarnargötu 20, sími 17510,
og í Ferðaskrifstofunni Landsýn, Týsgötu 3, sími 22890. Ferðaskrif-
stofan veitir jafnframt allar upplýsingar um ferðina og afgreiðir
farmiða.
KEFLAVIKURGANGA 21. JUNI
□ Miðnefnd Samtaka hernámsandis,taeð-^
*
inga samþykkti nýlega að efna til Keflavík-
urgöngu sunnudaginn 2 1. júní og útifundar í
Reykjavík að kvöldi þess dags. Jafnframt var
ákveðið að efna í sumar til fundahalda víða
um land til undirbúnings landsfundi hernáms-
andstæðinga sem haldinn verður við Mývatn
helgina 5.—6. september í haust.
Frá þessai greinir í fréttatil-
kynningu frá Samtökum her-
námsandstasðinga sem Þjóðvilj-
anum barst í gær, en þar er
ennfremur komizt svo að orði:
Ttlar um merka
nýjung í upp-
Hingað til lands er kominn
mjög kunnur danskur læknir,
dr, Ole Bentzen frá Árósum í
boði Zontaklúbbs Reykjavíkur
og barnaverndarnefndar og
mun hann flytja hér fyrirlestur
í hátíðasal Háskólans á morg-
un kl. 8.30, cr hann nefnir; Det
handicapede barn og Samfund-
et.
Dr. Bentzen er yfirlæknir við
Hörecentralet í Árósum og hef-
ur gerzt forgöngumaður um það
að meðhöndla börn sem á ein-
hvern hátt eru hindruð, svo
sem vegna heyrnarleysis, eða
heymardeyfu, blindu eða ann-
arrar líkamlegrar eða andlegrar
fötlunar, á annan hátt en gert
Framhald á 2. síðu.
I í dag er blaðið 16 síður
og að verulegu leyti helg-
að sjómannadeginum. —
Sunnudagur og Óska-
stundin fylgja blaðinu að
venju, fjölbreytt að efni.
I Vegna árlegrar skemmti-
ferðar starfsfólks Þjóð-
viljans kemur blaðið ekki
út á þriðjudaginn. Næsta
blað Þjóðviljans kemur út
á miðvikudag.
KEFLAVfKURGANGAN 1964
er farin á tuttugu ára afmæli
íslenzka lýðveldisins. Með þess-
ari miklu kröfugöngu vilja
göngumenh beina athygli þjóðar
sinnar að þeirri staðreynd, að
hersetan veitir okkur enga
vernd, en kallar tortímingar-
hættu yfir meirhluta lands-
manna, ef til styrjaldar dreg-
ur. Höfuðkrafa Keflavíkur-
göngunnar er enn sem fyrr:
Herinn burt og ævarandi hlut-
leysi fslands!
Það er jafnframt tilgang-
ur göngumanna að vara við
áformum rikisstjórnarinnar
um enn frekari útvíkkun her-
námsins og mótmæla yfirlý*t-
um fyrirætlunum um bygg-
ingu flotastöðvar í Hvalfirði
á vegum Atlanzhafsbanda-
lagsins.
Hinn erlendi her, sem í land-
inu situr, hefur nú gerzt svo
nærgöngull íslenzku menningar-
lífi, að slíks eru engin dæmi í
sögu þjóðarinnar. Með sjónvarp-
ið að vopni, sterkasta áróðurs-
tæki nútímans, hafa Bandaríkja-
menn skapað sér aðstöðu til að
móta viðhorf íslendinga, þekk-
ingu þeirra og hugsunarhátt í
amerískum anda. Engin önnur
sjálfstæð menningarþjóð hefur
þolað slíka innrás í þjóðlíf sitt.
KEFLAVfKURGANGAN 1964 er
farin til að ítreka þau sannindi,
að hemám hugarfarsins, ísmeygi-
legt og seigdrepandi. er engu
minni voði íslenzku sjálfstæði en
þráseta bandarískra 6tríðsmanna
í áratugi.
Skrifstofa hernámsandstæð-
inga í Mjóstræti 3 mun stjórna
undirbúningi göngunnar og
skrá fólk til þátttöku. Fyrst
um sinn er skrifstofan opin
frá 14.-18.30 alla virka daga.
Sími skrifstofunnar er 24701“.
Hversdagsönn á Grandagarði
Hér eru þrír hásetar á Rifsnesinu og eru þessa daga að vinna um borð í skipinu við und-
irbúning síldveiðanna fyrir Norðurlandi. Þeir halda norður á miðin annað kvöld. Þeir
heita Gísli Már Ólafsson frá Reykjavík, Eyjólfur Ágústsson frá ísafirði og Albert Stefáns-
son frá Reykjavík. — Fleiri svipmyndir úr hversdagsönn sjó-
manna á Grandagarði þessa daga eru birtar á 12. síðu í tilefni
dagsins. — (Ljósm. Þjóðviljinn G.M.).
Samningar hér syðra byrja
væntanlega / þessari viku
I DAG er ekki einungis Sjó-
mannadagur heidur og opn-
unardagur listahátíðar þeirr-
ar er Bandalag íslenzkra
listamanna gengst fyrir í til-
efni 20 ára afmælis lýðveld-
isins.
HÁTÍÐIN verður sett í Háskóla-
bíói kl. 1.30 af Jóni Þórarins-
syni, formanni bandalagsins.
Ávörp flytja Geir Hallgríms-
son borgarstjóri og Gylfi Þ.
Gíslason menntamálaráð-
herra. Aðalræðuna flytur
Halldór Laxness, en hann
hélt einnig ræðu sem fræg
er orðin á fyrsta Listamanna-
þingi fyrir réttum tuttugu ár-
um. Þórbergur Þórðarson,
Guðmundur Böðvarsson og
Gnðmundur Hagalín lesa úr
verkum sínum og flutt verð-
ur íónlist eftir Pál ísólfsson.
Klukkan 4 í DAG opnar Ragn-
ar Jónsson myndlistar- og
bókasýningu sem haldnar eru
i Sölum Listasafns rikisins
og Bogasal. Þann dag eru
þær opnar gestum en almenn-
ingi frá og með mánudegi.
Um kvöldið er hátíðasýning
á óperettunni Sardasfurstinn-
an í Þjóðleikhúsinu.
Á MÁNUDAGSKVÖLD halda
þeir Vladímir Asjkenazi og
Kristinn Hallsson tónleika í
Háskólabíó og flytja verk eft-
ir Beethoven og Schumann.
Sama dag er opnuð sýning
á íslenzkri byggingarlist að
Laugavegi 26.
Á ÞRIÐJUDAGSKVÖLD er sýnt
x Iðnó nýtt leikrit eftir Einar
Pálsson, Brunnir Kolskógar,
en fyrir sýningu lesa þrír
rithöfundar úr verknm siu-
um.
★ Þjóðviljinn hafði í gær tal af
Eðvarð Sigurðssyni, formanni
Verkamannafélagsins Dagsbrúnar
í Reykjavík, og spurði hann eftir
undirbúningi samninga hjá fé-
laginu.
☆ ☆ ☆
★ Eðvarð kvað samningana vera
í undirbúningi hjá stjórn félags-
ins og trúnaðarmannaráði, og
taldi hann Iíklegt að formlegar
viðræður við atvinnurekendur
gætu hafizt um miðja þessa viku.
En búast má við að samningarnir
taki nokkurn tima. þar sem þeir
eru mjög yfirgripsmiklir og. í
samningum Dagsbrúnar eru fjöl-
mörg atriði, sem ekki koma til
greina í samningum annarra fé-
laga.
☆ ☆ ☆
★ Þá er þess að vænta að samn-
ingar við önnur félög á Suður-
og Vesturlandi hefjist bráðiega.
Leiðrétting:
1 frásögn ÞjóðvOjans I gær
af meginatriðum samkomulagsins
við rikisstjórnina varð ein mein-
leg villa. Þar sem rætt er um
vinnutímann á bls. 9, segir, að
dagvinnutíminn styttist um 15
mínútur með óskertu kaupi.
Þetta er rangt og á að vera, að
eftirvinnutíminn styttist um 15
mínútur með óskertu heildar-
kaupi. Eru lesendur beðnir af-
sökunar á þessum mistökum.
SALA MIÐA /2 FLOKKI
HÞ 1964 £R AÐ HEFJAST
■ Undanfarna daga hefur
Ferið unnið að því að senda
út miða í 2. flokki Happ-
drættis Þjóðviljans 1964, en
dráttur í þeim flokki fer
fram 5. !júlí n.k. Eins og
mönnum er kunnugt hefur
happdrættið í ár verið sam-
einað styrktarmannakerfi
Þjóðviljans þannig að þeim
sem tekið hafa að sér að
styrkja blaðið með ákveðinni
fjárhæð árlega eru sendir
miðar í hgrr" ’ "'finU fyrir
þessa upphæð og skiptist
gr’eiðslan því í femt, þar eð
flokkamir í happdrættinu
eru fjórir.
Fjöldi miða verður sá sami og
í 1. flokki happdrættisins eða 25
þúsund og verð hvers miða kr.
50. — Vinningamir verða hins
vegar sex og er heildarverð-
mæti þeirra krómxr 166 þúsund.
Aðalvinningurinn að þessu
sinni er TRABANT-fólksbíll af
stationgerð að verðmæti krónur
78.405.00. Hefur á skömmum
tíma selzt meira af þessari bfla-
tegund hér á landi en dæmi eru
til um áður «m nokkum annan
b£U
Aukavinningar eru fimm þar
af fjórar sumarleyfisferðir til út-
landa. Fjrsta ferðin er átján
daga íerð til Yalta. Lagt verður
af stað í ferðina 10. ágúst og
flogið til London. Þaðan verður
haldið til Vínar daginn eftir en
frá Vín verður farið með fljóta-
skipi til Svartahafs. Liggur leið-
in í gegnum fimm lönd og verð-
ur höfð viðkoma í allmörgum
borgum. Til Yalta verður komið
17. ágúst en þar verður dvalizt
í viku tíma. Síðan verður haldið
sömu leið til baka og komið
heim affcur- 28. ágúst.
Önnur ferðin hefst 21. ágúst.
Flogið verður til Kaupmanna-
hafnar og stanzað þar í tvo
daga en síðan flogið til Con-
stanza í Rúmeníu sem er falleg-
ur hafnarbær við Svartahaf. Gist
verður á hóteli á hinni frægu
baðströnd Mamaia og þaðan geta
menn skroppið til nærliggjandi
borga við Svartahaf ef þeir
kjósa .Eftir hálfsmánaðardvöl við
Svartahaf verður flogið heim
aftur um Kaupmannahöfn.
Þriðja ferðin hefst 17. júlí. Er
fyrst farið til Kaupmannahafnar
og dvalizt þar í þrjá daga en
síðan verður flogið til Búdapest.
Frá Búdapest verður ekið með
ferðabílum til hótels í Siofolk
við Balatonvat.n en þar verður
dvalizt þrjá daga í Búdapest og
síðan flogið heim um K-höfn.
Fjórða ferðin er 21 dags ferð
til Júgóslavíu. Lagt verður af
stað 5. september og flogið til
Munchen 7. september verður
haldið þaðan með langferðabíl
og hefst þar með hálfsmánaðar
ferðalag um Júgóslavíu, þar sem
m.a. verður dvalizt í fjóra daga
á baðströndinni Dubrovnik, perlu
Adriahafsins. Heimleiðis verður
haldið um Munchen og Lúxem-
borg.
Loks er svo fimmti aukavinn-
ingurinn sem er ferðaútbúnaður
fyrir 15 þúsund krónur. tjald,
svefnpoki, prímus o.fl.
Skrifstofa happdrættisins verð-
ur að Týsgötu 3, sími 17514. op-
in daglega klukkan 9-12 og 1 -P
nema laúgardaga klukkan 9-12.
Samningarnir
einróma
samþykktir
ó Akureyri
Verkalýðsfélagið Eining á Ak-
ureyri hélt félagsfund í fyrra-
kvöld til þess að fjalla um hina
nýju samninga. Björn Jónsson,
formaður félagsins rakti gang
samningaviðræðnaxma og skýrði
hina nýju samninga, sem síðan
voru samþykktir einróma með
öllum atkvæðum fundarmanna.
Fyrsta síldin til
Neskaupstaðar
Fyrsta síldin á sumrin'
barst til síldarverksmiðjunn
ar í Neskaupstað i gærmorg
un. Var það Kópur RE me
600 til 650 mál, sem hau
fékk á miðunum við Langa
Héðan fara níu bátar á síld.
Það eru Björg, Daiaröst, Gló-
faxi, Gúllfaxi, Hafrún, Haf-
þór, Stefán Ben„ Sæfaxi og
Þráinn.
Enginn af þessum bátum
hefur lagt upp ennþá, en
flestir fara norður eftir helg-
ina. — h.g.