Þjóðviljinn - 07.06.1964, Blaðsíða 2
2 SÍÐA
HÓÐVHJTNN
SuTrrmdagttr 7. júní 1964
Gróa Biarnadóttir
Kveðjuorð
Gróa Bjarnadóttir var fædd
14 ágúst 1878 að Neðri-Hrepp
í Skorradal og andaðist 2. jún(
1964 að Elliheimilinu Grund í
Reykjavík og verður til grafar
borin á morgun Hún fór til
Noregs ung að aldri og giftist
þar "Daníel Daníelssyni hótel-
eiganda 1902 og eignuðust þau
einn son, Árna. Eftir dauða
manns síns fluttist hún heim
til Islands. 1907 giftist hún á
ný. Þorvarði Þorvarðssyni
prensmiðjustjóra og eignuðust
þau fjóra syni: Þorvarð, Ólaf,
Gunnar og Bjarna. Ennfremur
ólu þau upp tvö fósturböm:
Ingibjörgu Sigurgeirsdóttur og
Baldur Georgs, — og eftir að
Gróa missti Árna son sinn. ól
hún upp dóttur hans, Helgu.
Reyndist Gróa þeim öllum sem
bezta móðir. Síðari mann sinn
missti Gróa 1936 og hefur hún
einnig orðið að sjá á bak öll-
um souum sfnum nema Gunn-
ari. Kjartan sonur Þorvarðar
af fyrra hjónabandi, dvaldi og
hjá þeim hjónum lengst af og
reyndist Gróa honum eins og
hinum fósturbörnunum, unz
hann dó 1935.
----------------------------------3>
Hætta nú við
frestunina!
BRUSSEL 5/6 — Haft er eftir
góðum heimildum í Brussel, að
ráðherrafundur Efnahagsbanda-
lagsins muni trúlega breyta |
þeirri ákvörðun sinni, að bíða
í hálft ár með að fastákveða
sameiginlegt kornverð innan ■
bandalagsins.
Á fundi sínum á miðvikudag
hafði ráðherrafundurinn sam-
þykkt að fresta ákvörðun f
þessu harðvítuga dedumáh +
bandalagsins fram til 15. des-1
ember næstkomandi. '
Gróa Bjarnadóttir var stór-
brotin kona, er tók öllum
þessum raunum sínum sem
hetja. Ég kom til hennar 17
ára að aldri og átti hjá henni
heimili um nokkurt skeið.
Tengdumst við vináttuböndum
er héldu alla ævina. Ég kynnt-
ist því öllum hennar góðu hlið-
um: dugnaðinum í daglegu
starfi, listamennskunni í hann-
yrðum og hetjuskapnum i
raununum Slík listakona var
hún 1 handavinnu, að eitt af
því, sem henni féll þyngst i
ellinni, var þegar hún gat ekki
lengur saumað sín listaverk,
ssm hún af örlæti miklu gaf
ættingjum og vinum. Síðasta
hálfan annan áratug ævinn-
ar bjó hún ásamt sonardóttur
sinni, Helgu, og Katrínu, dótt-
ur Ingibjargar, með fósturdótt-
ur sinni Ingibjörgu, er hún
hafði reynzt svo vel. og reynd-
ist Ingibjörg henni þannig í
elli og sjúkdómi þessara ára að
aldrei verður fullþakkað.
Ég þakka þér,- Gróa mín,
allt sem þú hefur verið mér
og mínum um ævina. Minning
þín mun Hfa í hjörtum okkar
allra, sem kynntust þér og
lærðú að meta þíg. "
Sigríður Þorvarðardóttir.
Pyrirlesfnr
Pramhald af X síðu.
hefur verið til þessa. Leggur
hanin áherzlu á að ná til barn-
anna sem allra yngstra til þess
að hjálpa þeim að komast yfir
fötlun sína og gera þau að full-
gildum og nýtum þjóðfélags-
þegnum. Vill hann ekki léta
loka þau inni á sérskólum fyr-
ir blinda, heyrnarlausa og mál-
lausa, heldur ala þau' upp í sem
eðlilegustu umhverfi og láta
þau ganga í venjulega skóla
með öðrum börnum, þó að þau
sem mest eru fötluð þurfi að
fá tilsögn í bekkjum. Hefur
þessari skipun þegar verið kom-
ið á í Árósum fyrir forgöngu
dr. Bentzens og gefið góða raun.
Vel-
vilji
Tíminn segir réttilega i gær
að samkvæmt samkomulag-
inu nýja verði kaupmáttur
launanna lægri en vert
væri og heldur áfram: „Hins
vegar hefði árangurinn vissu-
lega getað orðið meiri, ef
velviljuð stjórnarvöid hefðu
setið hinumegin við samn-
ingaborðið." Þeir sem sátu
andspænis fulltrúum verk-
lýðssamtakanna við samn-
ingaborðið voru ekki aðeins
málsvarar ríkisstjórnarinnar
og Vinnuveitendasambands
íslands, heldur og valdamikl-
ir Framsóknarmenn frá
Vinnumálasambandi sam-
vinnufélaganna. Höfðu þeir
sig bæði í frammi þegar
fjallað var um heildarsam-
komulaeið og eins er gengið
var frá samningum félaganna
fyrir norðan og austan. Hins
vegar þekktust Framsóknar-
leiðtogarnir ekki úr á afstöðu
sinni og skoðunum: þeir stóðu
með ríkisstjórninni og Vinnu-
veitendasambandinu í einu
og öllu og voru sízt til við-
tals um það að auka kaup-
mátt launanna.
Það er rétt hjá Tímanum
að betri árangnr hefði náðsl
ef Framséknarleiðtogarnír
sem sátu hinumegin við
samningaborðið hefðu verið
velviljaðir.
Barátta
Morgunblaðsins
Morgunbiaðið segir i gær
að samkomulagið við AI-
þýðusambandið sé „í sam-
ræmi við margra ára baráttu
blaðsins". Það er nú líkast
til. Mönnum er ekki úr minni
liðið hversu ákaflega Moirg-
unblaðið hefur barizt fyrir
því að greiddar væru vísi-
tölubætur á kaup. Ekki hefur
það heldur farið fram hjá
neinum hversu mjög Morg-
unblaðið nefur áfeilzt stjórn-
arþingmennina fyrir að sam-
þykkja ekki tillögur Alþýðu-
bandalagsins um aukið orlof.
Ævinlega þegar Alþýðubanda-
lagsmenn hafa krafizt á þingi
verulegra umbóta í húsnæðis-
málum hafa þeir átt hauk í
horni þar sem Morgunblaðið
er, svo að ekki sé minnzt á
baráttu Alþýðubandalagsins
fyrir styttum vinnutíma og
viku- eða mánaðar-greiðslum
á kaupi.
Það væri sannarlega rauna-
legt ef einhverjir hefðu
gleymt hinum ómetanlega
stuðningi Morgunbiaðsins á
þessum sviðum Væri ekki ráð
að sérprenta allar þessar
ágætu greinar? — Austri.
SKRIFSTOFA
SKEMMTIKRAFTA
PÉTUR PÉTURSSON
Rússneski píanósnillingnr-
VLADIMIR
ASHKENAZY
Píanótónleikar
í Háskólabíói miðviku-
daginn 10. júní kl. 9 e.h.
Efnisskrá:
Mozart: Sónata í a moll
K 310
Stíhumann: Fantasía í
C dúr Op.. 17
Moussorgsky: Myndir
á sýningu.
VLADIMIR
ASHKENAZY
og
MALCOLM
FRAGER
Samleikur á tvö píanó
í Háskólabiói fimmtudag-
inn 18. júni kl. 9 e.h.
Bandariski píanósnilling-
. urinn
MALCOLM
FRAGER
Píanótónleikar
í Hóskólabíói mánudaginn
22. júní kl. 9 e.h.
Efnisskrá:
Haydn: Sónata No. 38
í Es dúr.
Schumann: Sónata í
g moll Op. 22.
Brahms: Valsar Op. 39.
Bartok: Sónata (1926).
Aðgöngumiðasala og
pantanir hjá Lárusi Blön-
dal, Eymundsson og Máli
og menningu.
Vélskóflustjóri
Maður vanur
vélskóflustörfum
óskast.
VÉLSKÓFLAN h.f.
Höfðatúni 2. —
Sími 22184.
orlofsdvöl
ý+Húsmæður i Kópavogi at-
hugið að orlofstíminn fer í
hönd. Allar upplýsingar um
orlofsdvöl á sumri komanda
eru veittar í Félagsheimili
Kópavogs n.k. mánudag.
þriðjudag og miðvikudag kl.
8 — 1C e. h. og í símum
’*t
■'A+V'J
ÓDÝRSKÓ-
FATNAÐUR
SELJUM Á MORGUN OG NÆSTU DAGA:
KARLMANNASKÓ
úr leðri með gúmmí- og leðursóla.
Vandaðar gerðir fyrir
kr. 232,00 og kr. 296,00.
KARLMANNA-
SANDALA
með formsóla fyrir kr. 270,00.
INNISKÓ
(tátiljur) fyrir kvenfólk fyrir
kr. 65,00.
MOKKASÍNUR
fyrir kvenfólk fyrir kr. 110,00.
SLÉTTBOTNAÐA
KVENSKÓ
með gúmmísóla fyrir kr. 198,00.
SLÉTTBOTNAÐAR
TÖFFLUR
fyrir kvenfólk fyrir kr. 98,00.
SLÉTTBOTN AÐ A
KVENSKÓ
úr leðri fyrir kr. 198,00.
TELPNASKÓ
úr leðri, stærðir 27—34 fyrír
kr. 165,00.
HVÍTBOTNAÐA
GOMMÍSKÓ
drengja, allar stærðir fyrir
kr. 72,00 — 83,00. . ...
SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR
ito'An IððSG
Laugavegi 100.
j -i. wóbw m.
SUiK
Erum kaupendur að
öllum tegundum fisks til frystingar,
söltunar og herzlu.
Kaupum einnig síld og hrogn.
Seljum
beitusíld, saltsíld, hraðfrystan, saltaðan,
y hertan fisk og ís.
Hraðfrystihús Kefiavikur
KEFLAYÍK.
Símar 2095 og 1104.
T'V
ti - .T'-fWi
Vi ■• ' -•' 3**-
Ti 30
- 'K+rrí m9é
JL
%
.0
%
Í4F,
4-