Þjóðviljinn - 07.06.1964, Page 4
A SfÐA
ÞJÓÐVILnNN
DHHMUMN
Ctgcfandi: Samdningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson. Magnús Kjartansson Cáb.),
Siguröur Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudagsins: Jón Bjarnason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóm. afgreiðsla. auglýsingar. prentsmiðja: Skólavðrðust 19.
Sími 17-500 (5 línur) Askriftarverð kr. 90 á mánuðL
Á sjómannadaginn
jslenzkum sjómönnum hæfir ekki annað en mes’ti
stórhugur og heiðasta bjartsýni sem með þjóð-
inni býr. Þeir eiga skilið befra þjóðfélag en það
sem hrifsar með gírugum höndum mestöll þau
verðmæti sem vinna þeirra skilar í land, en læt-
ur sjómennina sjálfa búa oftar en hitt við skarð-
an hlut. Svo mjög er allt nútímalíf íslenzku þjóð-
arinnar byggt á starfi sjómanna og því háð að þeir
yilji og geti haldið því áfram að sækja sjávarafla,
að eðlilegt má teljast að sjómenn væru forréttinda-
s’tétt íslenzkra atvinnustétta, bæru mest út býtum
og fengju öll skilyrði til að búa við góð kjör og
njóta menningarlífs og alls þess öryggis sem þjóð-
félagið getur framast tryggt þeim.
J^angt er frá að svo sé nú, gagnvarf s'jómannas'tétt
landsins vantar mikið á að þjóðfélagsheildin
geri skyldu sína. Þó sjómenn vinni oft nótt með
degi, á vinnutíma og við aðstæður sem engri ann-
arri vinnustétt er boðið, eru tekjur þeirra gjarna
íaldar eftir og meira að segja haldið uppi skrif-
stofubáknum og samtökum í landi sem virðast
'félja það verkefni sitt að hafa af sjómönhum'
samningsbundið kaup. Sjálfan sjómannadaginn
"vírðíst ýmsum það aukaatriði hvort sjómenn eru
heima til að gera sér glaðan dag. Skipin eru drif-
ín út fyrir hátíðina. í ræðum manna í dag mun það
að vísu enn koma í ljós að ýmsir menn í landi eru
því fegnir að sjómannastéttin skuli vera til, en
óþarfi er það og smekkleysa að tefla fram á sjó-
mannadegi þeim ráðherra, sem sjómenn þekkja
undir nafninu gerðardómsmálaráðherra.
gtórhugur og bjartsýni mótaði nýsköpunars'fe’fn-
una, sem Einari Olgeirssyni og Sósíalistaflokkn-
um tókst að gera að stjórnarstefnu skamma hríð í
stríðslokin, og varð til þess að gerbreyta íslenzku
efnahagslífi með tilkomu glæsilegs togara- og
bátaflota og fiskiðnaðarfyrirtækja í landi. Stór-
hugur og bjartsýni réð því, að Lúðvík Jósepssyni
og Alþýðubandalaginu tóks't áratug síðar, 1958, að
knýja fram stækkun landhelginnar í tólf mílur,
og afla nýrra skipa sem færa enn mikla björg í
land. Stórátak þarf einnig á þessum áratug til efl-
ingar sjávarútvegi og fiskiðnaði á íslandi, þrátt
fyrir öra endurnýjun bátaflotans og hina nýju
veiðitækni. Öflun nýfízku togaraflota og fiski-
rannsóknaskips, skipulagning stóraukinna haf- og
fiskirannsókna, endurskoðun skólamála skip-
stjórnarmanna og vélstjóra eru aðkallandi verk-
efni. Og síðas't en ekki sízt: Bæta verður svo um
munar kjör og alla aðstöðu sjómanna, finna nýjar
leiðir til að aflétta vinnuþrælkun og stytta hinn
óhæfilega langa vinnutíma á sjónum, koma á
löngum landfríum með kaupi, gera þjóðfélagsleg-
ar ráðstafanir, sem auðvelduðu sjómönnum að
finna atvinnu í landi við sitt hæfi þegar aldur
færist yfir og tryggði þeim áhyggjulausa elli. Með
þessu er gripið á nokkrum málum sem hugleiða
þarf oftar en á sjómannadaginn og gera verður
að veruleika í lífi íslenzkra sjómanna, vegna vel-
farnaðar þjóðarinnar allrar. — s.
Laugardagur 6. júní 1964
SKÁKÞÁTTURINN
!★★★★★★★★★!
Ritstjóri: ÓLAFUR BJÖRNSSON
Millisvæðamótii hálfnað
Hvítt: Benkö.
Svart: Larsen.
tJr 6. rnnferð.
1. g3 — g6, 2. Bg2 — Bg7,
3. d4 — c5, 4. c3 — cxd4, 5.
cxd4 — Rf6.
(Með d5 gat svartur komið
upp samlokustöðu en hvítur
er þá leik á und-an).
6. e4 — 0—0, 7. Rc3 —d6,
8. Rge2 —
(Ef hvítur leikur 8. f4
svarar svartur með 8. —e5).
8. — Db6, 9. 0—0 — Rc6.
(Hvítur hefur öflugt mið-
borð en svörtu mennirnir eru
vel etaðsettir. Ef hvítur reynir
leiki eins og Hbl og h3 er
svarið e5).
10. d5 — Re5, 11. h3 —
Bd7, 12. b3 — Hfc8, 13. Be3
— Da5.
(Einnig kom Da6 til greina
en þá hefur svartur ekki eins
góðan þrýsting á c3 ef hvítur
léki nú 14. f4 — þá Hxc3, 15.
Rxc3 — Dxc3, 16. Bd4 —
Dxg3, 17. fxe5 — Bxíh3).
14. Bd4 — g5, 15. Dd2 —
h6.
(Ef 15. — Bxh3 þá 16.
Dxg5).
16. f4 — gxf4, 17. gxf4 —
Rg6, 18. e5 — Rh5. 19. e6
— fxe6, 20. dxe6 — Bb5, 21.
Bxg7 — Rxg7, 22. Dd5 —
Db6f, 23. Kh2 — Hxc3, 24.
Rxc3 — Bxfl, 25. Hxfl —
Hf8, 26. Dd3 — Rxf4, 27.
Hxf4 — Hxf4, 28. Rd5 —Dd4,
29. Rxe7f — Kf8, 30. Rg6t
— Kg8.
(Ekki 30. — Ke8?? vegna
Db5t o. s. frv.).
31. Re7t — Kf8, 32. Rg6t
— Kg8. Jafntefli.
(Hvítur getur ekki teflt til
vinnings t.d. 33. Rxf4 —
Dxf4f, 34. Dg3 — Dxg3t, 35.
Kxg3 — b6, 36. Bd5 — Kf8
og hvítur er í taphættu vegna
veikleikans á e6).
V V V
1 eftirfarandi skák nær
hvítur fljótlega undirtökunum
og hinn öfiugi leikur 20. d5
færir honum vinningsstöðu,
þótt svartur flýtti fyrir úr-
slitunum með 20. — Rc5.
Hvitt: Spasskí.
Svart: Fouguelman.
9. umferð.
1. e4 — c6, 2. d4 — d5,
3. Rc3 — dxe4, 4. Rxol —
Bf5, 5. Rg3 — Bg6, 6. Bc4
— Rf6, 7. Ggle2 — e6, 8.
h4 — Rh5, 9. Rxh5 — Bxh5,
10. f3 — h6, 11. Rf4 — Bd6,
12. De2 — Bxf4, 13. Bxf4
— Rd7, 14. g4 — Bg6, 15.
0—0—0 — Df6, 16. Bd6 —
0—0—0, 17. Bb3 — h5, 18.
De3 — Hhg8, 19. Bf4 — De7,
20. d5 — Rc5, 21. d6. Gefið.
V V V
Hvítt: Tal.
Svart: Smyslof.
5. umferð.
1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6,
3. Bb5 — a6, 4. Ba4 — Rf6,
5. 0—0 — Be7, 6. Hel — b5,
7. Bb3 — 0—0, 8. c3 — d6,
9. h3 — Ra5, 10. Bc2 — c5,
11. d4 — Rc6, 12. Rd2 —
Db6, 13. dxc5 — dxcð, 14.
Larsen
Rfl — Be6, 15. Re3 — Had8,
16. De2 — c4, 17. Rf5 —
Bxf5, 18. exf5 — Hfe8, 19.
Rg5 — Bc5, 20. Re4 — Rxe4,
21. Bxe4 — Re7, 22. Df3 —
Hd6, 23. b4 — cxb3, 24. axb3
— b4, 25. cxb4 — Dxb4, 26.
Ba3 — Db6, 27. Bxc5 —
Dxc5, 28. Hecl — Bb6, 29.
Ha4 — Hd4, 30. Dc3 — g6,
31. fxg6 — hxg6, 32. Dc7 —
Dxc7, 33. Hxc7 — Hf8, 34.
Hxd4 — exd4, 35. Bd3 — a5,
36. Hd8--------Kfl, jafntefiL
BAKATTA VID HJÁTRÚNA
Það er ekki haegt að segja.
að karlinn sé hjátrúarfullur, en
hann er sérvitur gagnvart ýms-
um teiknum á láði og legi,
sagði stýrimaðurinnn á Ásþór
RE og hló langt niðri í sér.
Við ætluðum að fara á
þriðjudagskvöldið norður á
miðin, og við vorum komnir
um borð og karlinn segir
svona við mig.
Jæja, — strákar minir. Er
ekki allt klárt til brottfarar.
_Ég fór í huganum yfir út-
búnaðinn og taldi þetta svo
upp fyrir karlinn, og okkur
kom saman um að vantaði
eina kaðalhönk.
Það var sent i land eftir
hönkinni og þegar hún kom
um borð, þá var klukkan fimm
mínútur yfir tólf á miðnætti.
Jæja, — þá sleppum við.
segi ég við karlinn.
Hann lítur á klukkuna og
skimar upp á vesturhimininn
og púar út úr sér. Fallegt er
veðrið. Við förum þó hvergi.
Það var nefniiega kominn
miðvikudagur og karlinn byrj-
ar aldrei vertíð á miðvikudög-
um og mánudögum. Við stork-
um ekki forlögunum, drengir
mínir. Ailir fóru heim til
kvenna sinna á nýjan leik.
Það er nefnilega miðvikudag-
ur í dag sagði stýrimaðurinn
og hallaði sér notalega yfir
borðstokkinn í sólskininu.
Þó átti karlinn í baráttu
við sjálfan sig, og vegur þar
á móti dýrmæti augnabliks-
ins að vera með þeim fyrstu
á miðin og fá svolftið forskot
í kapphlaupi sumarsins.
En svona géta vissar reglur
rist djúpt í sálarlífinu og
svona menn taka vissulega
mark á hlutunum, og myndu
sumir kalla þetta hjátrú og
þó vil ég ekki kalla þetta
hjátrú.
Sama gildir á vetrarvertíð og
gæti ég sagt dæmisögu um
það.
Við erum kannski staddir
við Jökul og erum að gera
allt klárt á dekkinu áður en
við leggjum netin. Komdu
væni minn hinað upp í brúna
og taktu við stýrinu, kallar
hann til mín niður á dekkið.
Hvað gerir svo karlinn?
Hann snarast í bólið og fær
sér blund.
Hann er nefnilega draum-
spakur. Þama púar hann í
kojunni í fimm mínútur og
þá á ég að vekja hann. Hann
snarast fram úr eftir þenn-
an kríublund og kemur á
stjómpallinn og klórar sér á
kollinum og lítur upp á vest-
urloftið. Við leggjum ekki hér
og stefnan er tekin á önnur
mið og þar þarf kannski ann-
an kríublund til þess að úr-
skurða lögnina. Og við er-
um fengsælir þar.
Eitthvað er þetta, ctg reyni
ég ekki að skýra þetta út frek-
ar.
Annars segi ég fyrir mig
persónulega að mér er illa við
að fara norður á miðin áður
en búið er að ákveða síld-
arverðið
Hér eru þeir þungir á brúnina stýrimaðurinn og vélstjórinn á
Ásþór RE við Grandagarð síðastliðinn miðviloidag. Þeir eru
nú komnir norður á miðin. Talið frá vinstri: Eggert Einars-
son, vélstjóri og Baldvin Árnason, stýrim. (Ljósm. Þjv. G.M).
En hvað getur
Þeir ráða bara
mann og maður
ið á góðum bát,
um vik að sýna
um samheldni á
um. Ég er leiður
maður gert?
annan stýri-
missir pláss-
það er erfitt
félögum sín-
svona stund-
og mér finnst
ég vera að bregðast félögum
minum að rjúka svona norður.
Þeir bíða lika með að ákveða
síldarverðið þangað til byrj-
að er að veiða síldina og vilja
helzt fá. sjómennina út á mið-
in og tilkynna þeim þá dreifð-
um út um allan sjó, kaup
og kjör sumarsins og hvemig
eiga þeir þá að mótmæla kjöf-
unum?
Ég er hræddur um að við
verðum hlunnfamir, og það
' er einkennilegt hvað þeir eru
seinir á ferðinni með síldar-
verðið.
En við höldum norður í
nótt.
H.F. mSKlPAFÍLAQ ÍSLANDS
sendir sjómönnum, hvar sem þeir eru stadd-
ir, og aðstandendum þeirra
BEZTU HAMINGJUÖSKIR
á sjómannadaginn og árnar þeim allra
heilla í framtíðinni.