Þjóðviljinn - 07.06.1964, Page 8
Sunnudagur 7. júní 1964
8 «*»*
ÞTOnmnmi
□ Atburðir siðustu daga hafa aftur beint athygli manna að Suður-Kór-
eru. Sagan frá 1960 þegar uppreisn stúdenta í Seúl varð til að hrekja hinn
hataða einvald og Bandaríkjalepp Syngman Rhee frá völlum virðist vera
að endurtaka sig. Bandaríkjamenn fá enn einu sinni að kenna á því, að
það getur verið dýrt spaug að styðja til valda gerspillta glæframenn, sem
einskis trausts njóta með þjóð sinni. Fyrirsögnin hér á síðunni er ekki
samin á ritstjómarskrifstofum Þjóðviljans. Hún er þýðing á fyrirsögn
greinar sem birtist í danska blaðinu „Information“, en það verður tæp-
ast sakað um fjandskap við Bandaríkin og allra blaða ólíklegast til að
bera þeim verr söguna en ástæða er til. Frásögnin hér á eftir styðst við
þá grein.
SUÐUR-KÓREA
Landið þar sem allir
hata Bandaríkin
Bandaríkin sem annars
höfðu i meira en nóg
horn að líta i Asíu
standa nú enn frammi
fyrir meiriháttar vandræðum
í Suður-Kóreu.
Bandaríkin geta ekki horft
aðgerðalaus á það sem gerist í
Suður-Kóreu. Það er ekki að-
eins að í landinu eru um 50.000
bandarískir hermenn, heldur
hafa Bandaríkin ausið gífur-
legum fjárfúlgum þangað, um
og yfir 300 miljörðum króna
síðan stríði lauk Þegar Syng-
man Rhee var steypt af stóli
skuldbundu Bandaríkin sig auk
þess til að tryggja lýðræði í
landinu. Þá skuldbindingu hafa
þau ekki staðið við. enda var
það kannski aldrei ætlunin.
Valdarán
Þegar Rhee einræðisherjra
hafði verið steypt, tók við
völdum John Myong Chang,
sem talinn var einlægur lýð-
ræðissinni og naut stuðnings
þeirra afla. fyrst oS fremst há-
skólastúdentanna í Seúl, sem
risið höfðu gegn Rhee. Hann
fékk þó ekki að sitja við völd
í meira en eitt ár. Bandarikja-
menn horfðu á það aðgerða-
lausir að herforingjar tóku af
honum völdin, enda þótt her
Suður-Kóreu sé algerlega háð-
ur þeim. Grunur lék á því, að
bandaríska leyniþjónustan
CIA, sem hvarvetna getur látið
illt af sér leiða, hafi staðið að
bakí uppreisn herforingjanna.
Sem fyrri daginn tók Banda-
ríkjastjórn þann kost að viður-
kenna valdaránið, en hafði þó
að fororði fyrir viðurkenning-
unni, að hún gilti aðeins, ef
herforingjarnir afsöluðu sér
völdum áður en langt liði og
gengju undir dóm þjóðarinnar
í „frjálsum“ kosningum. Þann-
ig skuldbatt hún sig til að
stuðla að lýðræðisþróun í
landinu. En hún stóð ekki við
þá skuldbindingu.
Lögreglurílci
Herforingjamir komu upp
lögregluríki, sem i engu var
frábrugðið harðstjórn Syng-
mans Rhee. Á sama hátt og
Ngo Dinh Diem, hinn banda-
ríski leppur í Suður-Vietnam,
kom sér upp geysifjölmennri
lögreglu og setti bróður sinn
yfir hana, lét Chung Hee Park,
forseti herforingjaklíkunnar,
mág sinn, Kim Chang Pil, koma
upp 30000 manna leynilög-
reglu, og Pil varð brátt, eins
og Nhu í Suður-Vietnam, hinn
raunverulegi valdamaður lands-
ins.
Öðrum foringjum í hernum
og flotanum mislíkaði þessi
þróun. Þeir óttuðust valdafíkn
Pils og kusu heldur þingræðis-
stjórn, enda þótt hún væri að-
eins til málamynda.
Park lét undan þessum kröf-
um þeirra, en þó aðeins í þeim
tilgangi að tryggja sjálfum sér
völdin. Hann boðaði að kosn-
ingar skyldu fara fram í maí
í fyrra, en um leið lagði hann
fram nýja stjómarskrá, sem
veitti forsetanum óskoruð völd.
Samkvæmt henni hafði þingið
enga hönd í bagga með stjórn
landsins og forsetanum var
heimilað að ógilda öll ákvæði
um almenn mannréttindi, hve-
nær sem honum þætti til
hlýða. Og enginn var í vafa
um að Park ætlaði sjálfum sér
forsetaembættið.
Hin nýja stjórnarskrá var
lögð undir þjóðaratkvæða-
greiðslu 17. desember 1962 og
því lýst yfir að hún hefði ver-
ið samþykkt. Úrslitin höfðu
verið ráðin áður en gengið var
til atkvæða. í febrúar boðaði
Pil lögregluforingi að hann
myndi bjóða sig fram í kosn-
ingunum í mai, og um leið var
tilkynnt að 2.600 nafngreindir
menn myndu ekki fá að skipta
sér af kosningunum. Þetta
voru andstæðingar þeirra
Parks og Pils, bæði meðal
hinna frjálslyndari mennta-
manna og innan hersins. Þá
var mælirinn fullur og Park
neyddist til að afturkalla þá
tilkynningu og mágur hans,
Pil, var neyddur til að fara úr
landi.
Ölga
Ólgan magnaðist í landlnu
og Park sá sitt óvænna. Hann
gerði enn eina tilraun til að
festa sig í sessi með valdbeit-
ingu og boðaði 16. marz að
hann hefði í hyggju að íresta
öllum kosningum í fjögur ár.
Stjórn Kennedys gat ekki lát-
ið þetta afskiptalaust. And-
stæðingar Parks minntu hana
á fyrri fyrirheit og skuldbind-
ingar, og talsmaður bandaríska
utanríkisráðuneytisins, Lincoln
White, sagði nokkrum dögum
eftir að Park hafði boðað frest-
un kosninganna að „framleng-
ing herforingjastjómarinnar í
Suður-Kóreu myndi ógna
traustu og áreiðanlegu stjórn-
arfari" í Suður-Kóreu. Jafn-
framt var Park tilkynnt að
hann mætti eiga von á þvi að
efnahagsaðstoð Bandaríkjanna
yrði stórum skert, ef hann
hætti ekki við fyrirætlun sína.
Kosningasvik
Park vissi hvað klukkan sló
og kosningarnar til þjóðþings
og forsetaembættis voru haldn-
ar í október og nóvember í
fyrra. En það kom enn einu
sinni á daginn að Bandaríkj-
unum var meira í mun að láta
líta svo út á yfirborðinu að
leppir þeirra nytu stuðnings
þjóða sinna, heldur en að svo
væri í raun og veru. Hvers
konar brögðum var beitt í
kosningunum, ofbeldi og svik-
um. Þó náði Park kosningu að-
eins með 300.000 atkvaeða
FramhaJd á 11. síðu.
Þessar myndir eru frá hinum sögulegu atburðum í Seúl, höfuðborg Kóreu, fyrir fjórum árum
þegar hinn hataði leppur Bandaríkjanna, Syngman Rhee, var steypt af stóli. Þá eins og nú
voru það stúdentar við háskólann í höfuðborginni sem fóru fremstir í flokki fyrir andstæðing-
um harðstjórans. — MYNDIN hér að ofan sýnir stúdenta á götu í Seúl þegar uppreisnin gegn
Bhee hófst. Þannig hefur einnig verið innhorfs í Seúl þessa dagana.
1960 var vopnaðri lögreglu og herliði einnig sigað gegn stúdentum, en þeir létu sér ekki segjast
fremur en nú, en héldu baráttunni áfram þar til sigur var unninn. Það reyndist að vísu stundar-
sigur og því hafa stúdentar aftur risið upp. MYNDIN sýnir byggingu eins af málgögnum ein-
valdsherrans í ljósum logum.
Nú sem þá hefur her og lögregla einræðisherra Suður-Kóreu beitt bandarískum vqpnum ge.'m
vopnlausum múgnum, en þó orðið að lúta í lægra haldi. — MYNDIN sýnir tvoi bandaríska
skriðdreka sem stúdentar náðu af hermönnum harðstjórans. -e