Þjóðviljinn - 07.06.1964, Side 12
HÖÐVILIINN
Sunnudagur 7. júní 1964
J2 SIÐA
I TILEFNI
SJÓMANNADAGSINS
sendum vér sjómannastéttinni vorar beztu
hamingjuóskir.
EIMSKIPAFÉLAG
REYKJA VÍKUR
íslenzkir sjómenn
Af tilefni Sjómannadagsins sendir
SJÖMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR
ykkur sínar beztu hamingjuóskir, þakkar
ykkur gott starf á liðnum árum og óskar
ykkur allra heilla í framtíðinni.
SJÓMANNAFÉLAG REYKJA VIKUR
SENDUM SJÖMANNASTETTINNI
HEILLAÖSKIR í TILEFNI
SJÖMANNADAGSINS
Brunabótafé/ag Islands
Sími 24425.
Sendinefnd SÞ
til Kambodja
NEW YORK 5/6 — Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna ákvað á
fundi sínum í gær að senda
þriggja manna nefnd til Kam-
bodja og Suður-Víetnam. Skal
nefnd þessi gera tillögur um
það. á hvem hátt megi hindra
það að landamæraóeirðirnar
hefjist á ný. Skýrslu sinhi skal
nefndin hafa skilað innan 45
daga.
Líklegt er talið, að nefndar-
menn verði frá Marokkó, Gull-
ströndinni og Brasilíu. Það voru
fulltrúar Gullstrandarinnaf og
Marokkó, sem báru fram þá til-
lögu í ráðinu, að slík nefnd væri
skipuð. Fulltrúar Sovétríkjanna
gagnrýndu í fyrstu mjög þessa
tillögu, en féllust síðan á hana
og var hún samþykkt einróma.
Styðja Dðlskn
Laostillöguna
VIENTIANE 5/6 — Hersveitir
Pathet Lao hófu á föstudag sókn
á stöðvar hlutleysissinna á
Krukkusléttunni.
Kouprasith Abhay, hershöfð-
ingi sá, er stjómaði valdaráni
hægri manna i Vientiane hinn
19. apríl síðastliðinn, skýrði svo
frá, að árásin hafi byrjað kl.
þrjú um nóttina eftir staðar-
tíma. Hershöfðinginn kvað bar-
daga halda áfram og reyni hlut-
leysissinnar að halda stöðvum
sínum á hæðinni Phou Khoutt,
sem þeir náðu af Pathet Lao
fyrir um það bil viku.
jr A SJÓMANNADAGI sendum vér sjómannastéttinni vorar beztu NN
hamingjuóskir. r
SÖLUSAMBAND ISLENZKRA
FISKF R AMLEIÐEN D A.
Hótar landgöngu
á Kýpur
ANKARA 5/6 — Utanríkisráð-
herra Tyrklands, F. C, Erklin.
Iysti því yfir í dag, að ef svo
haldi fram sem nú stefndi, sé
það augljóst mál. að Tyrkir
verði að ganga á land á Kýp-
ur. Stjórnmálafréttaritarar f
Ankara benda f þessu sam-
handi á það,- að Kýpurdeilan
sé nú í miðdepli stjórnmálanna
í Tyrklandi. Sérstaklega hafi
betta orðið áberandi eftir að
Makarfos forseti samþykkti
herskyldu á eynni og fréttir
tóku að berast af því, að
Grikkir á eynni séu teknir að
flytja inn vopn.
Það var í gærkvöld, sem
Kýpurstjóm tilkynnti það, að
hún hefði ákveðið að kalla til
herþjónustu gríska Kýpurbúa á
aldrinum 18—20 ára. Haft er
eftir áreiðanlegum heimildum.
að hér sé um fjögur þúsund
manna lið að ræða. Kýpur-
stjórn rökstyður þessa ákvörð-
un með því, að ógnað sé sjálf-
stæði eyjarinnar.
Á Kýpur hefur allt verið
rólegt í dag. Þó hefur heyrzt
skothríð í einu af úthverfum
Nicosiu og í Kyrinia-fjöllum,
en ekkert er nánar vitað um
þau vopnaviðskipti, ef einhver
eru.
Flugmannaverk-
fall vofir yfir
Svíum
STOKKHÖLMI 576 — Likur eru
nú á því, að flugstarfsmenn j
Svíþjóð hefji verkfall. Flug-
mannafélagið hefur áður hót-
að tímabundnu verkfalli hjá
félagiinu Linjeflyg, sem eink-
um annast innanlandsflug. Hefst
verkfallið 11. og 12. júní svo
fremi ekki verði gengið að kröf-
um flugmanna um fimm daga
vinnuviku. Á föstudag svaraði
svo félagið með því að lýsa
verkbanni á flugmennina. sem
eru yfir 80 að tölu. frá og
með 13. júní ef þeir geri al-
vöru úr verkfallshótun sinni.
Með þessu hefur hlaupið slík
harka í deiluna, að haft er
eftir góðum heimildum að erf-
itt kunni að reynast að finna
leiðir til samkomulags. Samn-
ingaviðræður hefjast á mánu-
Sjómannasam-
■
band Íslands
sendir íslenzkum sjómönnum
beztu hamingjuóskir á Sjómanna-
daginn og árnar þeim allra heilla i
framtíðinni.
NauðungaruppboB
verður haldið að Skúlagötu 4, hér í borg (neðstu hæð).
eftir kröfu ríkisútvarpsins þriðjudaginn 9. júni n.k.
kl. 1,30 e.h. Setdir verða nokkrir tugir af notuðum
útvarpstækjum o. fl.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Til hamingju með hátíðina.
Kexverksmiðjan ESJA
Hafíð þér athugað
1. — að það er tiltölulega mjög ódýrí að
ferðast með strandferðaskipum vorum í
kringum land. Fátt veitir betri kynni af
landi og þjóð.
2. — að siglingaleið m.s. „Heklu“ að sumr-
inu til Færeyja, Noregs, Svíþjóðar og
Danmerkur er mjög skemmtileg og far-
gjöldin hófleg.
Skipaútgerð ríkisins
'BT
Sendum
íslenzkum sjómönnum
■IB
beztu hamingjuóskir á Sjómannadaginn.
SJÓKLÆÐAGERÐ
ÍSLANDS HÆ
fe