Þjóðviljinn - 13.07.1969, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVELJINN — Surmudagiur 13. júilí 1969.
Veitingahúsið Valaskjálf
Egilsstöðum.
# Forstöðukona: Ásdís Sveinsdóttir.
# Ferðafólk athugið að í félagsheimllinu Valaskjálf
fæst heitur og kaldur matur allan daginn.
# Einnig kaffi, brauð, kökur og margt fleira.
# Útvegum ferðafólki gistingu.
Veitingahúsið Valaskjálf
Egilsstöðum — Sími 101.
Ferðamannaverzltm
að
Fagurhólsmýri
# Ferðamannaverzlun okkar að Fagurhólsmýri
veitir ferðafólki alla þá þjónustu, sem aðstæður
leyfa. Seljum þar m.a. kaffi, samlokur. smurt
brauð, pylsur o. fl.
# Jafnframt viljum við vekja athygli á því, að við
starfrækjum útibú á Fagurhólsmýri, sem opið
er á venjulegum verzlunartímum.
# Á boSstólum eru allar EESO-olíur og benzín.
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga
Höfn í Hornafirði
— málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Otgefandi: Otgáfufélag Pjóðviljans.
Rltstjórar: Ivar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
AuglýsingastJ.: Olafur Jónsson.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavðrðust 19. Síml 17500
(5 linur). — Áskriftarverð kr. 150,00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10,00.
Námsmenn eiga leik
yakið hefur almenna athygli að menntaskólanem-
ar í Reykjavík hafa látið myndarlega að sér
kveða í borgarlífinu. Þetta hefur orðið meir áber-
andi með hverju ári undanfarið. Unga fólkið í
menntaskólunum hefur gengið fram fyrir skjöldu á
fleiri en einu sviði, með þeim árangri, að athafnir
þess eru þegar farnar að hafa víðtækari áhrif en
flesta grunar. Þetta hefur gerzt á sviði listamála;
menntaskólanemar hafa haldið hverja athyglisverða
listsýninguna af annarri, leiksýningar þeirra eru að
verða atburður sem eftir er tekið, kvikmyndaklúbb-
ur þeirra hefur kynnt úrvalskvikmyndir sem ann-
ars hefðu ekki sézt. Hungurvakan vakti meiri at-
hygli en hundrað greinar og ræður. Hitt er ekki
síður athyglisvert að skipulögð ha«fa verið lands'
samtök menntaskólanema sem vakið hafa almenna
athygli á kröfunum um endurbætur menntaskóla-
námsins, með þinghaldi, samþykktum, sambandi
við blöð og útvarp og meira að segja með kröfu-
göngum og útifundum. Breytingar á menntaskólun-
um sem gerðar hafa verið hafa haldizt í hendur
•við þessa hreyfingu unga fólksins, og hver veit
nema menntaskólafrumvarpið, sem ríkisstjómin
sveikst um að gera að lögum á þinginu í vetur
þrátt fyrir einróma stuðning stjórnaráiidstöðunnar,
hefði orðið með öðrum hætti og kannski beðið á
athugunarstigi einn áratug enn ef vitundin um
hreyfingu menntaskólafólksins sjálfs hefði ekki ýtt
á eftir því; vitundin um að sá tími er liðinn að nem-
endur láti bjóða sér lengur menntaskóla með mið-
aldaleifum eins og latínuþrælkun og fáránlegu
málastagli í alltof mörgum tungumálum
Æ‘la mætti að námsmenn háskólans, eldri og
þroskaðri, væru ekki eftirbátar menntaskóla-
nemanna. Svo fjölmennur er háskólinn orðinn, að
eðlilegt væri að verulegra áhrifa gætti frá stúdent-
um í menningarlífi höfuðborgarinnar, að þar væru
einnig öflugar hreyfingar í hagsmunamálum náms-
manna og uppreisnarforysta gegn því, sem staðnað
er og úrelt í æðstu skólastofnun landsins. Þessu hef-
ur vart verið að heilsa, varla er hægt að segja aö
stúdentar hafi á nokkru sviði tekið myndarlegan
bátt í menningarlífi borgarinnar undanfarið. Þeir
hafa að vísu sótt fram í hagsmunamálum sínum og
hlotið aukna íhlutun um stjórn eigin mála, en ekki
hefur verið um nokkra almenna hreyfingu og þrótt-
mikla að ræða. Þetta á sér ýmsar orsakir. Aðstaða
stúdenta margra er þannig, að þeir verða að strita
í hvers konar aukavinnu jafnframt náminu og ó-
skemmtilega margir heltast úr lestinni af fjárhags-
vandræðum. En einmitt deyfðin í félagslegum sam-
tökum er skýring á því, að ríkisstjórnin skuli leyfa
sér að ráðast á stúdenta eins og gert var með reglu-
gerðinni um takmörkun á inngangi í læknadeild-
ina; ráðstöfun sem allir ráðherrarnir, öll ríkis-
stjórnin var samþykk og ber ábyrgð á. Afturhalds*
söm ríkisstjórn þorjr slíkt því aðeins að hún treyst-
ir því að stúdentarnir viti ekki hvers þeir megna
ef þeir standa saman og nenni ekki að beita því
valdi sínu. — s.
Múrarar—Húsbyggjentfur
Hjá okkur fáið þið hin vinsælu sjávarefni:
• SAND OG MÖL .. í steypuna
• PÚSSNINGARSAND .. bæði gróían og fínan
• SKELJASAND ... til fóðurs, áburðar eða
fegrunar.
• FYLLINGAREFNI .... í götur og gruima.
Kynnið ykkur hagstsstt verð og efnisgæði.
Björgun h.f.
Vatnagörðum. — Sími 33255.
Gistihúsið Hólmavík
Hótelstjórn: Pétur Bergsveinsson og Björg Aradóttir.
Ferðafólk, ef þér leggið leið yðar norður um Strandir,
og þurfið á gistingu að halda, þá er Gistihúsið
Hólmavík ætíð tilbúið að veita yður gistingu og
veitingar.
STARFRÆKT ALLT ÁRIÐ
Gistihúsið Hólmavík
Sími: 14.
VESTFIRZKA HARÐFISKSALAN
Seljum fyrsta flokks vestfírzkan harðfisk,
freðýsu og steinbít, þurrkaðan við beztu
skilyrði í útihjöllum á Vestfjörðum.
Seljum einnig inftiþorrkaðan harðflsk,
roðlaus ýsuflök T100 og 200 gr. pökkum
framleitt af HJALLANESI H.F.
VESTFIRZKA
HARÐFISKSALAN
Grensásvegi 7 — Sími 38030.
;i
Framköllun Fljót og gó3 18 GEVAFOTO
Koblering afgreiSsla Lœk]artorgi,
Stœkkun Austurstrœti 6, R. 51