Þjóðviljinn - 24.12.1969, Síða 9
■-lytyr*
JÓL.ABLAÐ — 9
O. já, ég hefði gjarnan viljað
bera hana. Fjórir af sex voru
þó úr Holtshverfinu. Hinir
tveir voru Halli i Bæ. og Ari
á Læk. sem nú var orðinn silf-
urhærður. Þeir tóku stefnu í
norðvesturhorn garðsins. Jú,
þar eygði ég væna moldar-
hrúgu. Allfjölmennur hópur
fylgdi þeim eftir. ásamt ein-
um hempuklæddum.
Ég sióst ' í hópinn. Það var
eins og sta^kkuðu augu sumra,
þegar þeir 'áttuðu sig á. hver
kominn vár. Einstaka kinkaðd
kolli. það Var ekki siður að
tala mikið og þaðan af síður
hátt í hópi líkfylgdar í Aust-
urdal.
Burðarménn létu kistuna
síga niður i gröfina. losuðu
böndin og gengu frá. — Nú
var ég í vanda staddur. Sá
hempuklæddi var auðsjáanlega
tilbúinn að framkvæma síðasta
verk kristilegrar hefðar. en ég
vissi, að eitt sinn hefði mátt
segja nokku-r orð áður en rek-
unum var kastað. Og ég lagði
frá mér hatt. regnhlíf og ann-
að á jörðina og steig fram að
gröfinni . . Og sagði:
„Olga!
Það eru orð að sönnu, þeg-
ar þú sagðir við mig á vega-
mótunum fyrir sjö árum, er ég
var að fara úr þessari sveit.
að við sæjumst trúlega ekki
aftur Og ég man einnig orð-
in, sem þú valdir mér. þegar
þú óskaðir mér velfarnaðar og
enn er það vel í sjónminni,
er þú að lokum veifaðir til
mín stafnum þinum. En nú á
þessari stundu. stend ég yfir
gröf þinni. sem mér virðist
vera tilviljun ein — og þó. Það
eru kannski örlögin, sem hafa
gripið í taumana og viljað hafa
það svona.
Það er sagt. að við grafar-*.
bylinn sé jafnan þöignin rofin.
Og nú vil ég, og einmitt nú
þakka þér kynni og velvild. Ég
gæti minnzt margra bjartra
stunda og skemmtilegra sem
við fólkið í Holtshverfinu höf-
um átt með þér. Það var oft
kátt í baðstofuylnum í gamla
daga. er við urðum aðnjótandi
mælsku og frásagnarsnilldar
þinnar. Þó er mér eitt minnis-
stæðara en amnað- Það var
eitt sinn um jól. þegar heims-
kreppan mikla hvíldi harðast
á, að þú prjónaðir handa okk-
ur sokka svo að við myndum
ekki klæða köttinn. Það var
okkur miklu meira virði. en
nokkuð annað þá.
Og það vil ég þakka sérstak-
lega hér yfir gröf þinni, og ég
vona fyrir alla þá, er þú megnáð-
ir að skapa björt jól. Og við þá,
sem til mín heyra vil ég segja:
Það mun langur tími líða þar
til sveitin eignast slíkan per-
sónuleika, sem Olga var. Og ég
er raunar viss um það, að rúm
það, sem hún skipaði verður
ekki fyllt. Ég kalla hana eilcki
Olgu förukonu, sú nafngift er
alröng- Það hefði verið nær
sanni, að hún héfði verið köll-
uð öreiginn á Norðurlofti, því
að það var hún á veraldarvisu-
En hún var öðrum fremur rík-
ari af því, sem kallast andlegt
sálarþrek. Eða hver hefði átt
heima á Norðurlofti yfir þrjátíu
ár án þess að kvarta? Ég held
að ef líf hennar yrði rannsakað
niður í kjö-linn, þá muni hún
hafa verið sá aðili í þessari
sveit sem borið hefur heitast
hjartá til samtíðar og einstak-
linga-
Það er bjart yfir dalnum í
dag. Þa-5 er líka bjart yfir lífi
þessa fulltrúa, sem sveitin kveð-
ur nú, og geymast mun á arni
minninganna-“
Ég tók upp pjönkur mínar og
gekk nokkur skref frá- Og með
hattinn minn í hendinni, horfði
ég á unga, glæsilega prestinn
kasta rekunum, sem honum líka
fórst vel úr hendi. Og væmnis-
laust sagði hann m a-:
„Af moldu eru komin
að moldu skaltu aftur verða“.
STAKA
eftir Kristínu Jónsdóttur í
Flatey.
Illt er veður, kárl kveður,
kúrir freðinn öldumar.
Sköflum hleður, skelfing meður,
skelfist gleðin alstaðar.
Kvenréttindi í
Portúgal
Árið sem leið, var hjúsikapar-
löigum Portúgala breytt tals-
vert konunní í vdl. Gamla lög-
gjötfin var hundrað ára gömul,
og ekki er víst, að henni hafi
alltaf verið framfylgt.
Nú getur eiiginmaður ekki
bannað konu sinni að fara í
ferðalag, og ekki hefur bann
fuEan rétt yfir börnunum.
Hann má ekk; selja eignir
hennar og ekki banna henni að
vinna utan heimilis.
Það mun vera fremur sjald-
gæft, að feðgar séu saman á
elliheimili. En á elliheimili í
Danmörku var fyrir skömmu
99 ára gamall maður og sonur
hans 77 ára.
Rómversk-
kaþólsk skírn
Þegiair guðfeðgin hafa tjáð
prestinum nafn barnsins og
játað skirninni fyrir þess hönd.
blæs presturinn þrisvar i and-
lit þess og býður Satan að
víkja frá því. Þá gerir hann
krossmark á enni þess og
brjóst og helgar það Kristi
með því að leggja hendur yfir
það. Þá gefur hann þvi salt.
sem er tákn þeirrar trúar. er
skal varðveita það frá synd.
Öðru sinni særir hann Satan frá
því, lýkur síðan upp skilning-
arvitum þess fyrir Guði og
smyr það olíu. Hann dreypir
vatni þrisvar á höfuð þess og
mælir um leið skirnarorðin.
ber krisma á hvirfil þess og
réttir því loks hvítavoðir og
logandi kerti.
(Trúarbrögð mannkyns).
Lítið er um frið
á jörðu
Það sem af er þessari öld,
hefur verið að heita má óslit-
in styrjöld í heiminum.
Bétt fyrir aldamót hófst Búa-
stríðið. Því laiuk 1902.
Styrjöld Evrópustórveldanna
í Kína árið 1900.
Styrjöld Kínverja og Japana
1904.
Styrjöld Rússa og Japana
1904 — 1905.
Frá lOtftS—1911 rikti friður.
ítailir herja á Tripólis 1911
til 1912
Balkanstríðið 1912—1913.
Heimsstyrjöldin 1914—1918.
Innrás nokkurra þjóða í Rúss-
land 1918—1920.
Styrjöld Grikkj'a og Tyrkja
í Litlu-Asíu 1919—1923.
Sterkur, snotur, vandadur,
Sturtubíll fyrirstráka
REYKJALUMDUR
Foreldrar vita að leikföng barnanna þurfa
að vera snotur og vönduð, og þau þurfa
að likjast fyrirmyndinni.
En umfram allt þurfa leikföng að vera sterk.
Chevrolet vörubíllinn frá Reykjalundi hefur
þessa kosti. Hann er úr tré, sterklega smíðaður,
með sturtupalli, tvöföldurn gúmmihjólbörðum
og stýrisútbúnaði. Hentar til leikja úti sem
inni. Fœst i öllum leíkfangaverzlunum.
VINNUHEIMILIÐ AÐ REYKJALUNDI
AOALSKRIFSTOFA REYKJALUNDI,
Mosfellssveit — Simi 91 ■ 66200
SKRIFSTOFA I REYKjJtVÍK
Bræðraborgarstig 9 — Simi 22150
Vl
te
P;
Styrjold í frlandi, eftir heims-
sityirjöldina, laiuk 1921.
ítalir taka Korfú atf Grikkj-
um árið 1923.
Friður 1923 — 1925.
Styrjöld Frakka og Marokkó-
manna 1925—1926.
Styrjöld gegn franskri lands-
stjóm í Sýrlandd 1925—1928.
Styrjöld í Palestínu 1929.
Styrjöld Japana og Kínverja
1931—1932.
Styrjöld ftala í Abessíníu
1935—1936.
Japanir ráðaisit á Kínverja
1937.
Styrjöidin á Spáni 1936 til
1939.
Heimssityrjöldin 1939—1945.
Ef einhver, sem þetta les,
hefur ekki sjónvarpsglæpa-
mynd að horfa á í kvöld, get-
ur hann dundað við að telja
saman þær styrjaldir, sem hafa
geisað síðan heimsstyrjöldinni
lauk. Það er ekki víst, að frið-
arárin séu mörg.
í Hvanndölum, milli Ólafs-
fjarðair og Héðinsfjarðar, er
blettur, sem kallaður er Ódá-
insakur. Þjóðtrúin segir, að þar
yxu lífgrös. En sá sem neytti
þeirra, gat ekki dáið. Lögðust
þó Hvanndalir í eyði. Menn
hafa þar ekki verið frekir til
fjörsins.
Ólafsaugnfró heitir sjaldgæf
jurt, sem vex á Reykjum í
Fnjóskadal.
Villihveiti er afar sjaldgæf
jurt. Hefur fundizt á Stóru-
Völlum í Bárðardal.
LÁGMÚLA 9 — SÍMI 81400 — SÍMNEFNI: SAMÁBYRGS
Auk þess að annast endurtryggingar á skipum skyldutryggSum hjá bátaábyrgðarfélögun-
um og skyldutryggingu tréfiskiskipa gegn bráðafúa, tekur Samábyrgðin að sér eftirfarandi
«yggingar:
Frumtryggingai á skipum yfir 100 rúmlestir.
Vélatryggingar á fiskiskipum undir 100 rúmlestum.
Abyrgðartryggingar útgerðarmanna.
Slysatryggingar sjómanna.
Farangurstryggingar skipshafna.
Athygli eigenda bráðafúatryggðra fiskiskipa er vakin á því, að Samábyrgðin lánar þeim
endurgjaldslaust rakaeyðingartæki til þurrkunar á innviðum skipanna.
Bifreið yðar
er vel tryggð
tajá otakur.
VIIU Wpt Samvinnutryggingar hafa annazt
______________________________;_________‘______LL' bifreiðatryggingar frá því i janúar
1947 og alla tíð síðan beitt sér
fyrir margvíslegum nýjungum og
breytingum á bifreiðatryggingum,
sem allar hafa verið gerðar með
tilliti til hags hinna fjölmörgu við-
skiptavina. Fjöldi bifreiða í trygg-
ingu sannar það traust og álit, sem
félagið hefur áunnið sér meðal
landsmanna.
Við viljum benda bitreiðaeigendum
ð eltirlaldar tryggingar og þjónustu hjá
Samvinnutryggingum:
1 . Ábyrgðartrygging
Bónuskerfið hefur sparað bifreiðaeigendum milljónir króna frá þvi að Samvinnutryggingar beittu sér fyrfr,
þeirri nýjung. Gætnir ökumenn fá nú allt að 60°^ afslátt af iðgjaldi og eftir 10 tjónlaus ár er 11. árið ið-
gjaldsfrítt.
2. Kaskótrygging
Iðgjaldaafsláttur er allt að 40%, ef bifreið er tjónlaus í eitt ár. — Auk þess lækka iðgjöld veruléga, ef
sjálfsábyrgð, kr. 2.000,00—10.000,00, er tekin í hverju tjóni.
3. ríáif-Kaskó
er ný trygging fyrir allar tegundir og gerðir bifreiða. Iðgjöld eru sérlega lág éða frá kr. 850,00 á ári.
4. ÖF-trygging
Þetta er dánar- og örorkutrygging fyrir ökumenn og farþega. Bætur eru frá kr. 100.000,00—600.000,00 og
iðgjald kr. 250,00 á ári.
5- Akstur í útlöndum
Viðskiptamenn Samvinnutrygginga geta fengið alþjóðlegt tryggingarskirteini „Green Card“, ef þeir ætla utan
með bifreiðir, án aukagjalds.
6. 10 ára öruggur akstur
Þeir sem tryggt hafa bifreið í 10 ár hjá Samvinnutryggingum og aldrei lent i bótaskyldu tjóni, hljóta hoiðurs-
merki og eru gjaldfriir ellefta árið. Hafa samtals á þriðja þúsund bifreiðaeigendur hlotið þessi verðlaun. 1. mai
sl. fengu 225 bifreiðaeigendur frítt iðgjald og námu brúttóiðgjöld þeirra kr. 1.148.100,00.
7. Tekjuafgangur
Unnt hefur verið að greiða tekjuafgang af bifreiðatryggingum sex sinnum á liðnum árum. Samtals nemur
greiddur tekjuafgangur kr. 68.133.236,00 frá því 1949.
8. Þegar tjón verður
Allt kapp er lagt á fljótt og sanngjarnt uppgjör tjóna. Samvinnutryggingar hafa færa eftirlitsmenn, sem leið-
beina um viðgerðir og endurbætur.
Tryggið bifreið yðar þar sem öruggast
og hagkvæmast er að tryggja.
ÁRMÚLA 3, SÍMI 38500
SAJVlVirvrSIUTRYGGIINGAR
tr