Þjóðviljinn - 24.12.1969, Qupperneq 19

Þjóðviljinn - 24.12.1969, Qupperneq 19
JÓLABLAÐ — | 9 Það vakti eftirtekt mikla á skódahátíð á fæðingardag konungs (8- apríl), að Hilmar Finsen stiftamtmaður þakkaði fyrir drukkið minni stiftsyfirvalda með langri ræðu á latínu fyrir mitnni skólans og hafði fyrir texta orð spekingsins forna: „Bókmenntimar skerpa æskuna, skemmta ellinnni, prýða meðlætið, veita hæli og hugfró í mótlæt- inu“. Þeir Bjami rektor og Gísli kennari Magnússon kvittuðu fyrir, hinn fyrri með sérstakri ræðu fyrir Finsen stiftamtmanni, hinn siðari með ræðu fyrir minni Islands, og töluðu báðir latínu- (tJr bák Jáns biskups Heligaisonar „Árbækur Reyk,javíkur“ (ium ár- ið 1866). Myndin er eftir bókartiöfund og sýnir Reyiktjavík, eiins og, hún leit út fyrir heilli öld, á þeirn tíma er Kristján Fjallaskáld dvaldist þar). Bræður þrfr frá Hofi í Vbpna- firði, Gunnlaugur, Jón og Lár- us Halldórsisynir munu þó hafa verið honum mest traust í skól- anum, og víst er það um Lárus, að það kom síðar fram- Þeir urðu allir sambakkingar Kristj- áns 1865- En það er vinnustúlkan, sem kom frá Fljósbakka við Skjálf- andafljót að Hóli á Fjöllum vor- ið 1860, sem talin er að valda mestu um örlög Kristjáns- Hún á að vera heitmey hans um mörg ár, en bregða sivo því heiti með þeim afleiðingum fyrir Kristján, að hann sagði sig úr skóla og átti þá stutt eftir ólifað. Sagt hefur það verið að stúlka þessi hafi séð Kristján haustið 1859, gestkomandi á heimili sínu, og hafi þá þegar ákveðið að láta slag standa um það að hann yrði eiginmaður sinn, Kristján er þé á 18-' ári, en stúlkan 21 áns, svo hér er undarleg saga á ferð, og væri hún sönn segir hún það fyrst og fremst hversu Kristján er bráðþroska, að hann kveikir í vinrtukohum á 18- ári! Stúlkan hefur eflaust verið greind og voru foreldrar henn- ar Jóhannes Oddsson og Guðný Kristjánsdóttir, ættuð af Tjör- nesi og Aðaldal- Jóhannes var hagmæitur maður og tilfærð vísa eftir hann um lát Antoníusar skálds Amboníusiarsonar árið 1857 í bókinni „Horfnir úr Héraði“ eftir Konráð Vilhjálmsson. Bróð- ur Jóhönnu, Þorstein að nafni, þékkti ég, er hann var á gam- alsaldri og fékkst hann við skáldsikap, en var lengi í Amer- íku- Bók gaf hann út er heitir „Dalurinn minn“. Allir vilja hafa það fyrir satt að þau ha'fi bundizt heituim Kristján og Jó- hanna, og þá eru náttúrlega heit- rofin fyrir hendi, þvi að Jó- hanna var gift réttu missiri áð- ur en Kristján dó. Það er þó of einföid skýring á þvf, sem hér var urn að ræða, því að hvernig eru hú svikin í vaxt- arjaginu? Fiatlavist Eflaust hefur Guðný móðir Kristjáns átt við lítinn kost að búa í Ási árið 1857 - 58, er hún virðist búa þar og hafa þá báða drengina á búi sínu. Þess getur, að vísu lauslega, að þá hafi það borið til, að Bjöm hafi gist á Fjöllum og lesið þar bók- Sagði hann svo Kristjáni bróður sín- um efhi bókarinnar, en þeir bræður gjörðu sameiginlega kvæði út af.gfninu og var það Veiðimaðurinn, eitt bezta kvæði i kvæðabók Kristjáns. Þetta gæti ég hugsað væri málum blandað- Þetta vor, 1858, virðist þvf lok- ið fyrir Guðnýju að halda sam- an fjölsikyldu sinni. Þau hjón fara í Garð, i Kristján í Meiða- velli, en feril Björns hef ég í engu raikið. Hann fór síðar til Airxeríku. Ii Svo er það 1859, að Kristján fer til frænda sinna að Hóli á Fjöllum- Fjallasveit er á þess- um tíma allmikil sveit og eikki mikill fjallabragur á lífi fóikis, þótt að vísu sérstæður sé. Mörg heimili eru stór, þar á meðal Hóll- Það er tímanna táikn, að Norðausturlandið er fjölbyggð- ast í landinu um 1860. Aðal- manntalið það ár sannar þetta- 1 Vopnafirði eru 989 menm. I Jökuldalsbreppi eru hálft fimmita hundrað manns. Byggð er þá uim allar heiðar við Jökuldal, Vopmafjörð og Þistilfjörð. Þjóð- in nær þá ekki 60 þúsund manns, og er hér törgætt efni í söigu að rannsaka- Á Fjöllum eru 106 menm og 10 bæir, fimm af þeim kenndir við hól: Hóll, Hólsel, Víðihól, Nýhóll og Grundar- hóll, og er Víðihóll kirkjustáð- urinn, og þjónað frá Skinnastað. Síðan eru Grímsstaðir, Nýibær, Fagridalur. Ás og Langavatn- Við Fjallabæi bsebast svo, að þvi að sikilja er, heiðabæir í Búr- feiísheiði Foss og Ilvannstaöir, er báðir eru í Skinnastaðapresta- kalli, en ekki Svalbarðspresta- kalli. En hyort þeir hafa verið í Svalbarðshreppi hef ég ekki athugað, og á Hvannstaðir stytza kirkjuleið að Víðihóli, því þeir standa undir Heljardalsfjalli. Síðan lengist. Axarfjarðarbyggð i átt til Fjalla með þremur bæj- um, er heita Grænur, .Hviril- vellír og Ásholt- Allar þessar fjalla- og heiðasálir þarf prest- urinn á Skinnastað að hirða og gerir það trúlega svo heimildim- ar eru fyrir hendi. Nú hefur prestur minna ómak, er öll þessi byggð er hbrJin nema þrír bæ- ir á Fjöllum, að vísu þríbýli á eirium þeirra. Bændur á Fjöilum eru allvei stöndugir, en abnúgi náttúrlega fátækur, þar á með- al Kristján og vinnukonan á Hóli- Sveitin er yfirbragðsmikil og kaldleg en kjaminn segist og eýnist í landi og búháttum. Það er viss hrikalháttur í sveitarlífinu. Fjallamenn em ekki mysumenn í lífsháttum, margir greindir og vel lesnir menn, tals- máti fólks ákveðinn og oít næsta grófur eða stórgerður. Það ger- ir landslagið, víðáttan blönduð auðnum við kjamagresjur- Landið svíkur ekki og þá ber mönnum ekki að svíkja lamdið, hvorttveggja gefur mikið og heimtar mikið — það er Fjalla- líf. Orðspor af Fjallamönnum er ekki mikið í grenindinni, sumt af því er öfund, annað misskilning- ur. Fyrir einni öld bjuggu þar f jórir bræður og voru allt Fjalla- líf á þeim dögum. Þeir voru kallaðir Fjallaþjófar, greindir menn og ágætir Gg stórum kyn- sælir menn- Þeir léku á sýslu*- manninn, heljaríork, og létu gestina hjálpa sér til að slátra ófrjálsu sauðfé. Þetta vom sög- urnar, þetta hlaut að vera sjálf- stætt rí'ki með sínum eigin lög-t um, en varð samt að ónota hreppsbrennimarki, sem dregið var eftir langt fram í tíma í Fjalladilkinn. Hér kom eíkikert tii, engin rök, enginn sannleik- ur nema sérstæðið, sem ætíð vinmur sér inn kenninafnið. Þeir vom Jónssynir Fjallabræður og Ámi hét einn og mestur Fjalla- bróðir- Nú vom þeir sonarsynir hams, Árni á Hóli og Brynjólfur í Hólseli, Brynjólfssynir, og orðnir gamlir menn og eð'lilega var svipurinm á Fjallalífi gamall þegar Kristján. kom þangað- En svo eiga Fjöllin sínar gersem- ar, Dettifbss og Herðubreið og aldrei er líf svo stórbrotið, né menn svo stórbrotmir að gersim- irnar hafi ekki ríkust áhrifin þegar kemur inn úr öllu stór- brotnu ytra lífi- Þetta kemur Kristjáni vel. Á Fjallaámm sín- um mótast hann, undir stór-. brotnum ytri áhrifum fólkis og náttúm og rómantík dýrra. djásna. Hvo.rttveggja skfrskot- aði til hans í ríkum mæli. Þann- ig • ólst Egill Skaliiagrímssori upp, undir rómantísfcu .veldi hins dýra skáldskapar hjá Brák og ættarvígabrandi h áfftröll ssonar úr Hrafnistu- Kriistján kvað snemrna eins og hann. Um annað í Fjallavist Kristj- ánis sýnist það vera, eftir kvæð- um hans, að hánn h,áfi aðgang að bókium eða að minnsita kosti hafi hann getað aflað sér þeirra- Hann kveður uim Bjöm á Skarði, svo ljóst verður, að hann hef- ur haft arinála hans undir hönd- um, en þeir vom gefnir út í Hrappsey 1772, og aðra útgáfu hefur Kristján ekki undir hönd- um á þessum tíma- Um bóka- kost Fjallamanna verður ekkert sagt með neinni vissu. En á þessum tíma fæddist þar og ólst upp ágætlega ritfær maður, Friðrik Guðmundsson, ■ er ritáði emdurminningar sínar með prýði á stílgrein. En það kemur ann- að fram í Fjallavist Kristjáns, það mun vera strax fynsta árið sem hann er á Fjöllum, að þar kemur fram: Fjallaskáld Etflaust hefur það verið þekkt í fari Kristjáns áður en hann bom á Fjöll, að hann var slkáld- mæltur. Marlc að því hefur þó tæpast getað verið mikið, þar sem hann er ekki enn orðinn fullra 17 ára vorið 1859, er hann kemur þangað, sjá þó kvæðið Veiðimaðurinn og það sem fyrr var sagt í þvi sambandi. En það var um haustið á Vopna- firði, þangað sóttu Fjallamenn verzlun oig líklegt að þangað hafi þeir rekið væna sauði á blóð- völl. Þar er Kristján í hópi þeirra. Höfðu þeir þar einhver umsvif í fjöru, líklega við inn- mat úr fé- Þá ber þar að Vil- hjálm Oddsson, bónda á Hrapps- stöðum. Hann var glaðlátur maður, og kastaði oft fram vls- um, var mikill félagi Páls Ól- afssonar við hesta og skél og lifir lengst á ljóðabréfum Páls, er hann kvað til hans, er Smjör- f jöúl sfcildu þá að. Hann var son- ur Gunnlaugs dómkirkjuprests Oddssonar og mégur séra Hall- dórs á Hofi. Hann hafði þá setið eitt ár á Alþinigi og hafði góðar virðingar. Nú yrðir hann á Fjallamenn í fjörunni: Fastir standa Fjallamenn í fjörugrýti, athæfi í aur og skíti, allir fara þcir í víti! Þá er tekið undir i hópi Fjallamanna og mátti kallast karí hinn skeggllausi og kvað: Vilhjáimur oss vinarkveðjur vandað hefur, viðmótsbMður var sem refur, Vopnafjarðar gáttaþefur. „Hvaða helvítis strákur er þetta?“ spurði Vithjálmur. Jú. þa'ð ei- stiúkur frá Hóli; • á Fjöllum! En það sem Kristján sagði laut að því, að eðlilega var Vil- h jálmur heima kominn á Vopna- firði, þar sem töldust höfðingjar. Var honum láð þetta nokkuð og bótti vísan kom,a vél niður og Vilhjálmur hafa vel til unnið, er hann stóðst nú ekki stráikinn- En frá þessum tima hét Kristján Fianaskáld- Það var á sinn hátt stórbrotið, eins og nú var um- hverfi Kriistjáns og hann að sækja í sig veðrið. Það varð fliótt eftir þetta, að meira kvað að skáldskap hans, og var eitt af því kvæðið „Dettifoss“. Stór- brotið orðalag og stórbrotnar hugmyndir, einkenndu það mest, og kannsiki kvæða mest- Fjalla- skáld Maut að hafa kveðið bað- „1 jörmunefldum íturmóði" er sannarleiga fjallaiskáldskapur og fjallalíf- Kveðskopur Kristjáns fór að verða kunnur og birtist í blöðum á Akureyri. Það kom hrímikalt haust ofan af Fjöllum og þótti öllum gott að fá það haust- Það mun hafa verið fyrst áríð 1862, sem sýnt þykir að Kristján er svo mikið skáld, að mikið tjón verður að þvf, ef hann getur eigi menntazt í til- svörun við sína ' ágætu skáld- gáfu- Hann hét þá „vinnupiltur- inn á Hólsfjöllum“ og þótti þá allrar hæversku gætt í mennt- aðri túlkun á Fjallaskáldinu. Talið hefur verið að einna fremstur í floikki um aðgerðir í þessu menntamáli hafi verið Jón, frændi Kristjáns, alþinigis- maður á Gautlöndum Sigurðs- son- En vitað mél er það, að ekki hefur það faríð framhjá séra Halldóri á Hofi, ef eitt- hvað átti að gera í þessari grein. Hann hélt kennara 1861 - ’62 og sama mann fyrir aðstoðarprest árið eftir, sem og fyrr sagði- Hann er þá að búa syni sína undir skóla og gepgu þrír þeirra í skólann í Reykjavík 1865 í annan bekk, og urðu allir sam- stúdentar 1870. Ég þykist viss uim að þama hafi Kristján notið góðs af, að minnsta kosti um tímia, enda er hann ekki skráð- ur vinnumaður á Hóli 1862 - ’63- Svo verður það sumarið 1863, að hann fer til Reykjavíkur í fylgd með Jóni á Gautlöndum og semst þá við ýmsa meran þar, að kenrna honum undir skóla- Um haustið fer hann frá Hóli til Reykjavíknr eins og áður var sagt, og stendur i kirkjubók burtfluttur úr sókninni til Reykjavífcur og eins og áður var sagt, er hann ekki síðan skráð- ur til heimilis á Fjöllum og siegir það sig sjálft að Fjalla- menn hafa ekki ætlað að láta hann vinna sér inn sveitfesti á Fjöllunum! Svo sem sagt var, kom Jó- hanna Jöhannesardóttir að Hóli 1860, og er þá Kristjón þar vinnumaður og er að verða 18 ára gamall. Það er erfitt að gera ráð fyrir þvi, eftir þeim svip, sem er á lífi Kristjáns á Fjöll- um á þessum árum, að honum sé áhangaradi kvenmaður. En þetba vill sagan vera láta- Og svipur sögunnar er þetta: Þau Kristján og Jóhanna eru sam- tíða á Hóli 1860-61, að hann verður 19 ára- Þá fara þau bæði í Fagradal með Brynjólfi Árna- syni og Rannveigu Sveimbjarn- ardóttur og eru þar samtíða næsta ár 1861-62. Þá er Krist- ján tvíbugur, og nú fer hann í Hól, en Jöhanna verður öftir hjá Rannveigu, sem nú er orð- in ekkja og fyrirsvar lítið á heimilinu þetta ár, þrjú böm þeirra hjóna eru ung að árum. Er hér farið skiMnerkilega eftir Meimildum að aldrei eru þau samvistum á Fjöllum, Krist- ján og Jóhanna, nema þessi tvö ár, og enigar líkur eru fyrir því, að Jóhanna hatfi ráðizt þannig til vistar að skyldugt væri að veita Kristjáni kaupavinnu- Frá 1862 til 1868 eru þau aldrei sam- vistum á Fjöllum og vafasamt að þau hafi sézt eftir haustið 1863 að Kristjón fór suður, því ekki þeikfci ég áreiðanlegar heim- ildir fyrír því, að Kristján hafi dvalið á Fjöllum á sumrum er hann var £ skölia. Hvað menn vilja giera úr þessu ástalífi hirði ég ekki um. Ég þykist reyndar vita að Jó- hanna hafi getað geymt og ekki gleymt- Því mundi miklu síður farið um Kristján. Árið 1863 fer Guðmundur bróðir Rannveigar að Fagradal og þar verður mann- margt heimili, og er Rannveig í sjálfsmennsku- Jóhanna finnst ekki neinstaðar skráð á Fjöllum, en kirkjubökin yfir burílflutta sannar það að Kristján er í Hóli frá krossmessu 1863 til hausts. Ég tel víst að Jóhanna hafi ver- ið á Hóli eða Fagradal 1863-64, og ef hún hefði flutzt til' Reykjavífcur haustið 1863 með Kristjáni, hefði hún einnig ver- ið skráð burtflutt, en það er hún eikki. Nú veit eniginn. um hætti Kristjáns í skólagöngunni, en lauslega hefur verið gert; ráð fyrir þvl, að hann hafi á sumr- in verið á Fjöllum, það eru engar hkur fyrir því né heim- ildir, að ég hygg. Jón Ölafsson getur þess í æviminningu Krist- jáns við útgáfu ljóðmæla hans, að hann hafi bundið vináttu við þá Laufásbræður, Tryggva, Eiggert og Gunnar, og jafravel hafi hann dvalið með þeim á sumrum á skólaárum. Hann yrik- ir brúðkaupsljóð til Eggerts, er hann kvænitist á Stóru Borg í Víðidal 1867, og það er senni- legt að Kristján hafi verið í brúðför Eggerts það surnar og dvalið með honum á Espihóli í Eyjafirði. Jóhanna fer að Grímsstöðum á Fjöllum vorið 1864 til Bjöms Gíslasonar er bá bjó þar, ágætur maður og mikilhasf- ur- Þar er hún vinnukona í tvö ár og fer þaðan að Brú á Jökui- dal 1866. Kristján virðist hverigi nærri, er senniiega í Eyjafirði þetta sumar. Fyrir utan það sem hér blasir við um samband þeirra Kristjáns og Jóhönnu, hafa menn talað um brennheit ástarbrélf frá henni til Kristjánsi, en gizkað á lítil andsvör af hans hendi. Það væri gott ef þau bréf væru til, sem ég efast um að sé- En það kemur ein merkileg heimild í ljós um þetta efni- Guðný Pétursdóttir á Snæ- landi í Kópavogi átti tal við mig út af ritmennsku um Kristjón og sagði mér þá, að föðurmóðir sín, hin gáfaða kona Þóra Ein- arsdóttir, kennd við Fögruhlíð, hefði sagt það, að Kristján hefði verið á Brú og töldust þau þá heitbundin Kristján og Jóhanna. Þar var Þóra til staðar og mátti bera um þeirra samband, sem hennd fannst þurrlegt á Krist- jáns hlið, og hefði varla verið von að Kristján hefði viljað eiga þá konu, og lét hún nokkra orðgnótt fylgja sem henni var ríkulega gefin. Þetta verður ekki hrakið, svo áreiðanleg var Þóra um alla frásögn- Hins vegar finnst Þóra ekki í heimilisfestu á Jökuldal efra, þessi ár, sem hér um ræðir, en hún átti þar frændfólk og var kona oft á kynnisleið, þar sem víðar. Þó er hún þó ung stúlka- Þetta hefur orðið að vera 1868 eða kannski ekki fyrr en Kristján er al- kominn úr skóla, 1868. Úr þvi verður tæplega skorið, en þvi má bæta við að Jóhanna fór ekiki í Bi-ú 1866 ti'l að gifta sig- Ef til vill hefur henni verið stjakað burtu af Fjöllunum í tæka tíð- Það var vani hrepps- nefnda að gera ekki aðkomu- fólk sveitlægt og enginn veit hvaða erfiðleikum þau kunna að hafa átt að mæta, Kristján og Jóhanna, í þessu efni á Fjöll- um. Það, sem hér er víst, er það, að Kristján er kominn til Vopnafjarðar suimarið 1868 og þann 9. sept- er dagsett kvæði til Kristjáns Eldjáms eftir hann.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.